Víkurfréttir - 14.01.1988, Síða 19
V/KUft
jtíOU
15 ára stúlka
hlaut fyrstu
verðlaun
- um nýtt nafn á Veitingahúsið
Tjarnargötu 31
Um 300 nöl'n bárust í hug-
myndasamkeppnina um nýtt
nafn k veitingahúsið sem
Oskar Arsælsson hefur keypt
að Tjarnargötu 31 í Kefla-
vík. Flest voru nöfnin tengd
Brekkubúðinni, sem var og
hét á þessum stað, götunni,
þ.e. Tjarnargötunni, eða
nafni eigandans. T.d. var
Tjarnarbrekka mjög algengt.
Fyrir valinu varð þó hið
stutta og hnitmiðaða nafn
BREKKA, en 13 aðilar áttu
hugmynd að því nafni. All-
ir þessir pðilar, svo og þeir
sem áttu nöfn og drógust til
verðlauna á nöfnin Brekkan
og Oskin, voru boðaðir á
veitingastaðinn á mánudags-
kvöldið, en þá var verðlaun-
unum úthlutað.
Fyrst var úthlutað 3. verð-
launum, sem áttu að vera
matur fyrir 2 með öllu.
Nafnið Brekkan var valin til
þriðju verðlauna og voru
höfundar alls 30 að tölu, en
nafn Hinriks Konráðssonar
var dregið út. Hlaut hann
verðlaunin, sem breytt hafði
verið í mat fyrir 3 með öllu,
svo hann gæti boðið foreldr-
Kúfiskbeita
Til sölu 1. flokks kúfiskbeita, sú vinsælasta
á vestfjörðum og norðurlandi.
Hagstætt verð. Uppl. í síma 94-6292. 94-
6294 á kvöldin.
BYLGJAN HF.
/WÁNI
Fræðslu-
fundur
Hestamannafélagið Máni efnir til opins
fræðslufundar miðvikudaginn 20. janúar
1988 kl. 20.30 í Golfskálanum, Leiru.
Sigurbjörn Bárðarson heldur fyrirlestur
um fóðringu og þjálfun í byrjun vetrar.
Félagar, fjölmennið!
Fræðslunefnd
TILKYNNING
frá Heilbrigðiseftirliti
Suðurnesja
Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja vekurathygli
á, að stranglega er bannað að selja Flús-
sýru nema með sérstöku leyfi heilbrigðis-
nefndar. Flússýra er eitur og er notuð við
rafsuðu. Þeir sem hyggja á sölu efnisins
geta náð í umsóknareyðublöð á skrifstofu
Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja að Vestur-
braut 10a, 230 Keflavík.
Fimmtudagur 14. janúar 1988 19
Handhafi 1. verðlauna í hugmyndasamkeþpninni, Sigríður Ragna Jónasdóttir, tekur við þeim
úr hendi Oskars Arsælssonar. Ljósm.: rós.
um sínum með.
2. verðlaun komu í hlut
Aslaugaj Einarsdóttur fyrir
nafnið Oskin. Hún átti að fá
til verðlauna mat fyrir 4 með
öllu, en svo hún gæti tekið
fjölskyldu sína með var því
breytt í mat fyrir 5 með öllu.
Eftir þessar tvær verð-
launaafhendingar kom að 1.
verðlaunum fyrir nafnið
Brekka. Höfundar voru 13
aðilar og voru þeir allir kall-
aðir upp og skyldi nú dregið
með spilum um Hamborgar-
ferð með Arnarílugi. Mikil
spenna var í loftinu er úr-
drátturinn fór fram, en áður
hafði verið ákveðið að ásinn
yrði hæstur og hjartað. Sá
fyrsti kom með laufagosa, en
næsti hjarta ás, og þar með
þurfti ekki lengur vitnanna
við.
Sigurvegarinn var 15 ára
stúlka úr Keflavík, Sigríður
Ragna Jónasdóttir.
Góð auglýsing ÆVi^mn íí\ Byggðasafn Suðurnesja
gefur góðan arð. ríi ii lií ii fflí n .iíBTBSBES
Auglýsið í Víkur-fréttum. Opið á laugardögum kl. 14-16. Aðrir timar eftir samkomulagi. Upplýsingar í símum 13155, 11555 og 11769.
Þar sem við undirrituð höfum hœttrekstri að Hafnar-
götu 31, Keflavík, frá l.janúar, viljum við þakka öll-
um viðskiptavinum okkar fyrir mjög ánœgjulegtog
gott samspil.
Vonum að Nýja Bakaríið fái að njóta hins sama.
Með ósk um gleðilegt ár.
F.h. Gunnarsbakarís, Keflavík.
Jóna Magnúsdóttir og
Gunnar Sigurjónsson
ÚTBOÐ
Leiga og rekstur baðhúss
við Bláa lónið
Hitaveita Suðurnesja óskar hér með eftir tilboðum í leigu og rekstur
baðhússvið Bláalóniðfráog með 1. mars 1988aðtelja. Miðaðervið
að leigutími sé a.m.k. 2 ár.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu Hitaveitu Suðurnesja,
Brekkustíg 34-6, gegn 3.000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu Hitaveitu Suðurnesja miðvikudag-
inn 3. febrúar 1988 kl. 14.00.
HITAVEITA SUÐURNESJA