Víkurfréttir - 14.01.1988, Blaðsíða 20
Fimmtudagur 14. janúar 1988
AFGREIÐSLA BLAÐSINS
er að Vallargötu 14, II. hæð. - Sími 14717.
SPURÐU SPARISJÓÐINN
Sjóslysið:
Arangurslaus
leit á sjó
og landi
| fórust með m.b. Bergþóri KE
Mikill fjöldi sjálfboðaliða 5 út af Garðskaga á föstu-
hefur tekið þátt í leit að skip- dagskvöldið. Hafa menn úr
brotsmönnunum tveimur er ' slysavarnasveitunum Ægi,
Bergþór KE 5.
Sigurvon og Skyggni svo og
úr björgunarsveitinni Stakki
gengið fjörur frá Stafnesvita
og inn á Vatnsleysuströnd,
auk þess sem flugvélar og
bátar hafa leitað, en án
árangurs.
Nú um helgina verða fjör-
ur gengnar á þessum kafla,
auk þess sem siglt verður
með strandlengjunni ef veður
leyfir. Þá fóru fram á þriðju-
dag sjópróf vegna slyss þessa
hjá bæjarfógetanum í Kefla-
vík.
Með Bergþóri fórust
Magnús Geir Þórarinsson,
Elfar Þór Jónsson.
skipstjóri og eigandi bátsins,
til heimilis að Oðinsvöllum 1
í Keflavík, fimmtugur að
aldri, lætur eftir sig eigin-
konu og þrjú uppkomin
börn og Elfar Þór Jónsson,
matsveinn, Tunguvegi 10,
Njarðvík, þrítugur að aldri,
lætur eftir sig sambýliskonu,
2 börn og eina fósturdóttur.
Þeir sem björguðust voru
Einar Magnússon, stýrimað-
ur, Keflavík, Sverrir Víg-
lundsson, vélstjóri, Njarðvík
Magnús Geir Þórarinsson.
og Gunnar Magnússon,
vélavörður, Keflavík. Þeir
Magnús og Einar eru feðgar
og Sverrir og Gunnar mágar.
Eins og fram kemur ann-
ars staðar í blaðinu bjargaði
Akurey KE 121 þremenning-
unum úr gúmmíbáti eftir að
þeir höfðu dvalið þar á aðra
klukkustund, en Bergþór
sökk á 2-3 mínútum eftir að
hafa fengið á sig hnút er hann
var að draga línuna um 8 sjó-
mílur NV af Garðskaga.
Stokkavör:
Starfsfólki sagt upp
Öllu núverandi fisk-
vinnslufólki hjá Stokkavör
hf. í Keflavík hefur veriðsagt
upp störfum. Að sögn Eiríks
Hjartarsonar er ástæðan sú
að framundan er mikil end-
urskipulagning hjá fyrirtæk-
inu.
Hefur nýr framkvæmda-
stjóri verið ráðinn, Júlíus
Rafnsson. Eftir skipulags-
breytingar þessar er reiknað
með því að flest allt starfs-
fólkið verði endurráðið, auk
þess sem Júlíus mun koma
með það starfsfólk sem vann
áður hjá R. A. Péturssyni, en
þar var hann áður fram-
kvæmdastjóri. Er því reikn-
að með að þegar fyrirtækið
hefur starfsemi á ný muni
starfa þar milli 20 og 30
manns.
Þá hefur systurfyrirtæki
Stokkavarar, Sigurborg hf.,
keypt vélbátinn Hvalsnes frá
Sandgerði, en auk hans á það
fiskiskipin Baldur KE og
Sigurborgu KE. Munu þessi
þrjú skip því afla hráefnis
fyrir frystihúsin.
R. A. PETURSSON
GJALDÞROTA
Þann 22. desember úr-
skurðaði skiptaráðandinn
í Njarðvík, Þorsteinn Pét-
ursson, R.A. Pétursson
hf. gjaldþrota. Að sögn
Þorsteins er hér um tölu-
vert gjaldþrot að ræða, en
endanlegar tölur ligja
ekki fyrir í því máli.
Verður frystihúsið í
Njarðvík auglýst til leigu
eða sölu á næstunni, svo
halda megi því gangandi
eða koma í verð sem fyrst.
Fyrirtæki þetta hefur
fengið verðlaun oftar en
einu sinni fyrir sérstak-
lega vandaða og góða
framleiðslu. Þá hefur
tækjakostur þess verið
aukinn mikið og var það
orðið eitt tæknivæddasta
frystihús landsins.
Er talið að það sem réði
úrslitum um gjaldþrotið
hafi verið þegar stórri
sendingu frá fyrirtækinu
var stolið erlendis á síð-
asta sumri. I því sam-
bandi hefur m.a. alþjóða-
lögreglan Interpool leit-
að að þeint seka, en án ár-
angurs.
Leigubíllinn er stórskemmdur eftir ákeyrsluna. Ljósm.: epj.
ðlvaður
Úk á girðingu
og braut
niður
Um helgina síðustu var
ekið á flugvallargirðing-
una við Flugvallarveg í
Keflavík. Féll girðingin
niður á 10 metra kafla við
áreksturinn.
Farþegi í bílnum var
fluttur á sjúkrahús með
meiðsli í baki en við rann-
sókn reyndist aðeins verd'
um mar að ræða. Bifreið-
in skemmdist það mikið
að flytja varð hana á brott
með kranabifreið.
leigubílstjöri
ök á staur
All harður árekstur varð á
föstudagsmorgun á gatna-
mótum Víknavegar og Græn-
ásvegar í Njarðvík. Ók leigu-
bíll þar á ljósastaur sem er
miðju vegarins þar sem göt-
unni er skipt í akreinar.
Farþegi í framsæti leigu-
bilsins var lluttur á sjúkra-
hús, en mun ekki hafa slasast
alvarlega. Ökumaður leigu-
bílsins er aftur á móti grun-
aður um meinta ölvun við
akstur.
Er leigubíllinn stór-
skemmdur og varð að fjar-
lægja hann með dráttarbíl frá
Bílabragganum.
Ég var að frétta að Bifreiðaeftir-
litið ætli að samþykkja Subaru-
bílana ef þeir fá nýtt nafn:
Sjóbaru . . .