Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.12.1991, Page 6

Víkurfréttir - 19.12.1991, Page 6
Jólablað „Fékk dúndrnndi hjartslátt við tíðindin" • Krúðkaupsmvndin sem tekin var af þeim hjá Nýmynd, en þau voru gefin saman 31. ágúst í Kcflavíkurkirkju, af sr. Ólafi Oddi Jónssyni. \4kurfréttir Desember 1991 • Guðrún K jartansdóttir og Halldór Sigur jónsson á skrifstofu blaðsins þegar þau tóku form- lega við nafnbótinni Krúðhjón ársins á Suðurnesjum 1991. Ljósm.: mad Ung hjón úr Keflavík, Quðný Kjartansdóttir og Halldór Sigurjónsson, brúðhjón ársins 1991 rslit liggja fyr- Uir í keppninni um brúðhjón ársins á Suð- umesjum 1991 sem Vík- urfréttir hafa staðið fyrir frá síðasta hausti. Það var ungt fólk búsett í Keflavík sem hlaut nafnbótina. Þau heita Guðrún Kjartansdóttir og Halldór Sigurjónsson. Hún er úr Sandgerði en hann utan af svæðinu. Þau voru gefin saman í Keflavíkurkirkju 31. ágúst af séra Olafi Oddi Jónssyni og brúðarmyndirnar voru teknar hjá Sólveigu Þórðardóttur í Ný- mynd. Þar fékk brúðurin líka fyrst að vita af úrslitunum. „Eg fór til Sólveigar í Ný- mynd til að panta jólakort. Stelpurnar á stofunni voru eitt- hvað svo sporskar á svipinn og spurðu mig hvort Ernil væri bú- inn að hafa samband við mig. Eg áttaði mig ekki alveg á þessu strax og vissi ekki hvað þær voru að tala um, en kveikti síðan á perunni,“ sagði Guðrún í samtali við blaðamann. -Hvemig varð þér við? „Eg fékk alveg dúndrandi hjartslátt við tíðindin. Þetta er alveg meiriháttar, en ég er varla búin að ná þessu ennþá,“ bætti Guðrún við. -Hvar var eiginmaðurinn þegar hann frétti af þessu? „Ég var staddur í Borg- arfirðinum að sækja búslóð sem flytja þurfti suður. Þegar Guð- rún hringdi til að færa mér tíð- indin sagði ég eitthvað á þá leið: „Segðu eitthvað annað og vertu ekki að grínast“. Svo þegar henni hafði tekist að sannfæra mig og sagði að við ættum að hitta þá á Víkufréttum um kvöldið, stressaðist ég allur upp og var alltaf að fylgjast með klukkunni. Skyldi ég ná heim úr Borgarfirðinum með þungan farm fyrir kvöldið?,“ sagði Halldór Sigurjónsson er hann var spurður um fyrstu viðbrögð. Guðrún og Halldór hafa búið saman á sjöunda ár. Þau eru bæði fædd '67 og eiga tvö börn á 3. og 5. ári. Guðrún er bara heimavinnandi að eigin sögn. Halldór ekur sendibíl á stöð í Reykjavík. Tíðindin bárust á mjög annasömum degi, einum þeim besta frá því að Halldór hóf þar störf. Halldór sagði að það að hafa verið dregin út sem sigurvegarar í keppninni væri eins og að vinna stóran happ- drættisvinning. Verðlaunin eru heldur ekki af verri endanum. Glæsilegur málsverður á Flughóteli og gisting á brúðar- svítunni. Hársnyrting og blástur á Elegans. 10.000 króna vöru- úttekt í Hagkaup og annað eins í búsáhaldadeild Samkaups. Þá gefur Smart nýjasta dörnu- og herrailminn frá Beverly Hills og frá Kósý fengu hjónin fallegan blómvönd. A nýju ári eigum við eftir að kynnast brúðhjónunum enn betur í skemmtilegu viðtali og með nýjunt ljósmyndum. Hefur ritstjóm Víkurfrétta nú ákveðið að hafa þennan skemmtilega sið árlegan við- burð. Birtum við því brúð- kaupsmyndir í blaðinu, eftir því sem þær berast til okkar og í árslok verður eins og nú dregin út ein hjón sem hljóta til- nefninguna. HAGKAUP HÁRGREIÐSLUSTOFAN £Le<jcm sraaRt

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.