Víkurfréttir - 19.12.1991, Síða 18
Jólablað
Víkurfréttir
Desember 1991
JÓLADAGUR:
„Hveiti-
partarnir
alveg
ómissandi"
- segir hreppstjórafrúin
í Garði
Hveitipartar með
hangikjötinu á
jóladag eru alveg
ómissandi þáttur í jóla-
haldinu hjá Dagmar
Arnadóttur, hrepp-
stjórafrú að Skiphóli í
Garði. Hún segir partana
vera gamla hefð á sínu
heimili og var fús að leyfa
okkur að skoða matseð-
ilinn sem hún hefur á
jóladag og kynnast nánar
þessum hveitipörtum.
Það sem borið er á
borð:
Sauðahangikjöt
Kartöfluuppstúf
Grænar baunir
Rauðrófur
Með þessu eru síðan
hafðir hveitipartar sem
steiktir eru í feiti líkt og
kleinur. í hveitipartana
fereftirtalið:
1/2 kg. hveiti
6 tesk. lyftiduft
2 tesk. salt
2 msk. sykur
3. dl. mjólk (súr)
Partana á að kljúfa og
smyrja. Þá er sett hangi-
kjötssneið ofan á og
hrærð egg. Trépinna er
stungið í og þessu síðan
staflað í topp á hringlótt
fat.
I eftirrétt er svo boðinn
sveskjugrautur með
rjónta sem einnig er orð-
inn gamall siður. Þá er
kaffi og konfekt.
í miðdegiskaffitíma á
jóladag er heitt súkku-laði
með rjóma, smá-kökur og
tertur. Kaffi á eftir.
Jólamatseðillinn þeirra
Að þessu sinni bregðum við út af venjunni. í stað þess að fá til liðs við
okkur útlærða matreiðslumenn til að sjá um jólamatseðilinn, höfðum við
samband við fjórar húsmæður og báðum þær um að kynna fyrir les-
endum hvað þær bjóða fram. Allt eru þetta húsmæður sem þekktar eru
fyrir að vera duglegar í matargerð.
Þær eru valdar þannig að tvær eru í yngri kantinum, ein á miðjum aldri
og sú fjórða í hópi eldri borgara. Tvær þeirra búa í Keflavík, ein í
Njarðvík og ein í Garði.
Tóku þær allar vel í að taka þátt í þessu með okkur og kunnum við þeim
bestu þakkir fyrir. Hér kemur síðan árangurinn:
„Gaman að brydda upp
á einhverju óvæntu"
- segir Guðný Björnsdóttir, Sparisjóðsfulitrúi
Eg hef ekkert gaman af
því að þeir sem koma
til mín í matarboð viti
fyrirfram hvað sé á
borðum. Er matseðillinn því
breytilegur og fjölbreyttur hjá
mér á jólunum. Því er erfitt að
ráðleggja öðrum einhvern sér-
stakan jólamatseðil, en ég gef
þó smá innsýn í það sem ég gæti
hugsanlega borið fram á jól-
unum“, sagði Guðný Bjöms-
dóttir og hér sjáum við ár-
angurinn
Laxamús (fyrir fjóra):
1 pakki ljóst hlaup (Aspic)
250 gr. reyktur lax
150 ml. mayones
salt, svartur pipar úr kvörn
150 ml. rjómi
4 blöð matarlím (lögð í bleyti
og brædd í ftskisoðinu)
120 ml. ftskisoð
saft úr 1/2 sítrónu.
Byrjið á að gera hlaupið
samkvæmt leiðbeiningunum á
pakkanum. Skerið síðan laxinn
í sneiðar. Takið fallegustu
sneiðamar frá og bleytið þær í
hlaupinu, hinar fara í maukið.
Raðið þeim síðan innan í 4 tóm
jógúrtbox og kælið. Setjið rest-
ina af laxinum í blandara ásamt
mayonesi og kryddi og blandið
vel saman. Sett í skál og létt-
þeyttum rjóma blandað saman
við. Að lokum er fiskisoðinu og
sítrónusafanum bætt útí. Sett í
jógúrtboxin og kælt í nokkrar
klst. Skreytt með salatblaði og
sítrónubáti.
Hreindýrasteik(fyrir 4):
Ca. 1 kg úrbeinaður hrygg-
vöðvi
villikrydd, salt pipar og jafn-
vel smá rósapipar
Olívuolía til steikingar
Kryddið kjötið með
villikryddi og pipar. Hitið ol-
íuna á pönnu og brúnið kjötið
vel á öllum hliðum. Kryddið
með salti og etv. smá rósapipar
og látið kjötið í 200°C heitan
ofn (blástursofn 180°C) og
steikt áfram í 20-30 mín. Kjötið
er síðan skorið í sneiðar og bor-
ið fram með brúnuðum kart-
öflum, eplasalati og léttsoðnu
fersku grænmeti.
Sósan:
Hreindýrasoð
villikrydd, rósapipar, lítill
biti af gráðosti
1-2 dl. rjómi
rifsberjahlaup
brúnn Maizena sósujafnari.
Soðið hitað í potti. Kryddi,
osti, rjóma og rifsberjahlaupi
bætt útí eftir smekk. Jafnað
með Maizena sósujafnara.
Eplasalat:
1 egg og 1 msk. sykur þeytt
saman
1 peli rjómi þeyttur
4 smátt skorin epli (kjörnuð
og afliýdd)
valhnetur smátt skornar
Eggjahræru og rjóma bland-
að santan. Eplum og valhnetum
bætt útí.
Konfekt.
Mokkakonfekt:
200 gr. marsípan
Instant kaffi
súkkulaði.
Leysið kaffið upp í örlitlu af
heitu vatni. Blandið vel saman
við marsipanið og mótið litlar
kúlur. Hjúpið með súkkulaði og
skreytið með súkkulaði-
baunum.
Gráfíkjukonfekt:
200 gr. marsípan
200 gr. gráfíkjur
súkkulaði.
Hakkið gráfíkjumar og
hnoðið saman við
marsípanið. Rúllið
í lengjur og skerið
lengjurnar í bita.
Hjúpið með
súkkulaði og
skreytt.
Pistaciemánar:
200 gr. mar-
sípan
Pistaciemassi
smátt skornar
möndlur
súkkulaði.
Fletjið út mar-
sípanið og skerið
út litla hringi.
Sprautið smá
Pistaciemassa í
miðjuna og látið
nokkra möndlu-
bita ofaná. Leggj-
ið hringinn saman
og hjúpið með
súkkulaði. Skreytt
með möndlum.
Apríkósu-
marsípan:
200 gr. marsípan
apríkósumarmelaði
koníak
súkkulaði
Fletjið út marsípanið og
skerið í litla hringi. Blandið
saman apríkósumarmelaði og
koníaki eftir smekk og setjið
með teskeið á marsip-
anhringina. Til þess að auð-
veldara verði að hjúpa konfekt-
ið, er gott að láta súkkulaði með
teskeið yfir marmelaðið og það
látið storkna. Hjúpað og
skreytt.
Eftir konfektgerðina er ágætt
að nýta restina af hjúp-
súkkulaðinu og bæta út í það
hnetum og jafnvel rúsínum og
kókosmjöli. Sett með teskeið í
lítil konfektform.