Víkurfréttir - 19.12.1991, Side 31
Jólablað
Xíkurfréttir
Desember 1991
í Bandaríkjunum er alltaf mikið gert í kring-
um kvikmvnda- og sjónvarpsstjörnur. Inga er
hér að ofan að að afhenda frægri sjónvarps-
stjörnu síns tíma, Robert Fuller, farseðilinn
sinn.
Þegar Continental flugfélagið hóf flug til
Mikonisíu var að sjálfsögðu sett upp sérstök
kynning á viðeigandi hátt. Herramaðurinn
ineð henni á myndinni er Samóa-höfðingi en
Inga er í Continental-búningi með Samóa-
höfðingjastaf.
þar einhverja sök á. Þá hef ég
aldrei reykt. Ég hef verið mikil
reglumanneskja á flestan hátt.
Ég borða hins vegar mikið
súkkulaði og mikið af kökum,
skyri og rjóma en ekki átt í
vandræðum með of mikla
þyngd. Það hefur verið takmark
mitt að halda mér alltaf f sömu
þyngd".
Frábær
uPPby88in8
á Suðurnesjum
-Hvemig finnst þér upp-
byggingin hér á Suðurnesjum í
líkamsræktar- og íþróttamálum
í samanburði við það sem þú
þekkir í Bandaríkjunum?
„Þetta er alveg stórkostlegt.
Ekkert af þessu var til þegar ég
fór. Mér líst vel á það sem ég
hef séð og ég hef einnig heyrt
um margar af þessum stöðvum.
Það er gaman að sjá allt þetta
unga fólk sem stundar leik-
fimina og einnig gamla fólkið.
Það er aldrei of seint að byrja.
Það er bara að fólk viti hvað það
Parið með Ingu á myndinni er vel þekkt kvikmyndafólk, Bo
Derek og maður hennar. Myndin er tekin 1987 en þá var Inga
kontin til starfa hjá SAS-flugfélaginu.
Inga önnur til vinstri í hópi starfsfólks SAS í Los Angeles.
„Það er gaman að sjá allt þetta unga fólk sem stundar leikfimina hér heima, - og einnig eldra
fólkið. Það er aldrei of seint að bvrja" sagði Inga og hélt áfram að lyfta í Æfingastudeo.
Frænkurnar, Hulda Lárusdóttir og Inga Árnadóttir saman í
þreki í hinni vinsælu líkainsræktarstöð - Golds, í júlí 1989.
vill. í Bandaríkjunum er fólk að
byrja 65-70 ára að stunda
íþróttir eins og t.d. tennis. Það
er mjög gott mál að eldra fólk
stundi gönguferðir og passi upp
á sjálft sig“.
Heimurinn er lítill
-Þú ert ekkert að hugsa um
að flytja aftur heim til Islands?
„Ekki í augnablikinu. Það er
þó aldrei að vita hvað maður
gerir í ellinni. Eftir að ég hóf
störf á skrifstofu SAS í Los
Angeles hef ég komist að því
hvað heimurinn er lítili. Þetta
eru svo stuttar vegalengdir í
flugi og alltaf eru menn fljótari
og fljótari á milli staða. Eftir að
ég byrjaði með annan fótinn í
fluginu, þá er mun auðveldara
fyrir mig að skjótast hingað
heim til Islands en áður.
Ég hef þó tekið eftir því að
með aldrinum verða ræturnar
heim sterkari. Ég verð þó að
telja mig rótlausa. Ég er ís-
lenskur ríkisborgari, en hef öll
réttindi í Bandaríkjunum, nema
kosningaréttinn. Það er raunar
ekkert því til fyrirstöðu að ég
geti orðið bandarískur ríkis-
borgari.
Eg er búin að venjast ýmsum
lúxus þarna úti og hér er allt
öðruvísi. Lífsmátinn og veðr-
áttan hefur sitt að segja, en það
væri gaman að koma heim til
íslands og dvelja hér, þó ekki
væri í nema hálft ár eða svo,“
sagði Inga Árnadóttir að end-
ingu.
Viötal:
Hilmar Bragi Bárðarson
og Páll Ketilsson
Myndir:
Hilmar Bragi, Haukur Ingi
og úr einkasafni Ingu
Árnadóttur.