Morgunblaðið - 20.02.2016, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 2016
Lúxus og þægindi í
Sérferðum og
Siglingum
Kínahaf, Miðjarðarhaf og
Karíbahaf, Konungsríkið
Bútan og Grand Indókína
VITA | SKÓGARHLÍÐ 12 | SÍMI 570 4444 | VITA.IS
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
„Fyrir sjálfan mig finnst mér þetta
mjög spennandi og óhætt að segja að
þetta passar vel fyrir menningartorf-
una sem bæjarskrifstofurnar standa á
að fá Kvikmyndaskólann í það um-
hverfi,“ segir Ármann Kr. Einarsson,
bæjarstjóri Kópavogs, um kauptilboð
sem barst bænum frá Kvikmynda-
skóla Íslands um kaup skólans á hús-
næði bæjarins við Fannborg 2, 4 og 6.
Tilboðið var lagt fyrir bæjarráð í
fyrradag og því vísað til bæjarstjórnar
sem tekur málið fyrir á fundi sínum
næsta þriðjudag.
„Hér er mjög áhrifamikil og frum-
leg hugmynd á ferð sem mun efla
mannlíf í bænum, styðja við þjónustu
og menningarstarfsemi bæjarins,“
segir í tilboðinu og aðgerðin sé til þess
fallin að styrkja Kópavog sem
skólabæ.
300 manna samfélag fylgir
Kaupverðið er 700 milljónir króna
og fyrsta greiðsla áætluð þann 15.
mars 2016 að upphæð 400 milljónir
króna. Samið yrði um eftirstöðvar til
einhverra ára með hagkvæmum vöxt-
um, segir í tilboðinu.
„Verðið sem þarna er nefnt er
hærra en við gengum út frá í okkar
útreikningum,“ segir Ármann en bæj-
arstjórn hefur íhugað í nokkurn tíma
að selja Fannborg 2-6.
„Það verður spennandi að taka
þessa umræðu á þriðjudaginn,“ bætir
hann við en ekki sé hægt að segja til
um hvort tilboðinu verði tekið en
margir bæjarfulltrúar séu spenntir.
Skólanum mun fylgja rúmlega þrjú
hundruð manna samfélag og telur Ár-
mann að það sé til þess fallið að efla
Hamraborgina til muna.
Í tilboðinu er tekið fram að tíma-
pressa sé á því að ákvörðun verði tek-
in þar sem skólinn þurfi að hefja starf-
semi sína í Fannborg á komandi
hausti, 2016.
„Það er ljóst að ef þetta gengur
ekki hratt fyrir sig þá getur þetta ekki
orðið,“ segir Ármann en bæjarstjórn
sé líka háð því að finna nýtt húsnæði
fyrir starfsemi sína sem nú fer fram í
Fannborg 2-6. laufey@mbl.is
Kvikmyndaskóli Íslands vill
kaupa húsnæði í Fannborg
700 m.kr. kauptilboð gert í bæjarskrifstofur Kópavogs
Laufey Rún Ketilsdóttir
laufey@mbl.is
Í drögum að nýju frumvarpi til stjórn-
skipunarlaga, sem stjórnarskrár-
nefnd birti í gærkvöldi, kemur fram
að almenningi sé heimil för um landið
og dvöl þar í lögmætum tilgangi. Þá
er almenningi einnig tryggður réttur
til upplýsinga um ástand umhverfis
og áhrif framkvæmda á það svo og til
þátttöku í undirbúningi ákvarðana
sem áhrif hafa á umhverfið.
Í frumvarpinu er nánar mælt fyrir
um að ábyrgð á vernd náttúru og um-
hverfis hvíli sameiginlega á öllum.
Stjórnarskrárnefnd lagði einnig fram
drög að tveimur frumvörpum til við-
bótar sem snúa að auðlindum, nátt-
úru Íslands og þjóðaratkvæða-
greiðslum um lög frá Alþingi.
Hægt er að nálgast drögin á vefn-
um stjornarskra.is eða á vef forsæt-
isráðuneytisins. Frestur er til að gera
athugasemdir við frumvarpið til 8.
mars 2016 og sendist þær á netfangið
postur@for.is.
Þá áskilur nefndin sér rétt til að
birta þær athugasemdir sem berast.
Unnið verður úr athugasemdum og
endanlegum tillögum skilað til for-
sætisráðherra. Einnig er hægt að
óska eftir þátttöku fulltrúa í stjórn-
arskrárnefnd á opnum fundum, sem
beina skal til ritara stjórnarskrár-
nefndar.
Almannaréttur í stjórnarskrá
Meginreglan um heimild almenn-
ings til að fara um landið og dvelja þar
í lögmætum tilgangi vísar til réttinda
sem nefnd hafa verið almannaréttur.
Lagt er til í frumvarpi stjórnar-
skrárnefndar að nýju náttúru- og um-
hverfisákvæði að almannaréttur verði
nú stjórnarskrárvarinn. Almanna-
réttur var fyrst festur í almenn lög ár-
ið 1956 með setningu náttúruverndar-
laga og hefur verið í gildandi lögum
síðan.
Hafi ekki áhrif á eignarrétt
„Allir eiga að geta notið náttúru Ís-
lands,“ segir í greinargerð með drög-
um að frumvarpinu og er þar vísað til
félagslegrar náttúruverndar. Réttur-
inn er ekki takmarkaður við Íslend-
inga og samkvæmt gildandi lögum
um náttúruvernd er ekki gerður
grundvallarmunur á rétti einstak-
linga til að fara um landið eftir því
hvort þeir ferðast í hópferðum sem
skipulagðar eru í atvinnuskyni eða á
eigin vegum.
Réttinum eru sett skilyrði í frum-
varpinu en þau lúta annars vegar að
góðri umgengni um náttúruna og
hins vegar að virðingu fyrir hags-
munum landeigenda og annarra rétt-
hafa.
Ekki er gert ráð fyrir því að viður-
kenning á almannaréttindum hafi
áhrif á þá vernd sem eignarréttindi
eða aðrir hagsmunir, til dæmis frið-
helgi einkalífs, njóta nú samkvæmt
gildandi stjórnarskrá. Rýmkun al-
mannaréttar yrði að rúmast innan
þeirra takmarka sem löggjafinn hef-
ur almennt til takmörkunar á eignar-
réttinum.
Frjáls för stjórnarskrárbundin
Drög stjórnarskrárnefndar að þremur frumvörpum til stjórnskipunarlaga birt Almannaréttur
verði stjórnarskrárvarinn Sameiginleg ábyrgð á náttúru Frestur gefinn til að skila athugasemdum
Á fundi sveitarstjórnar Bláskóga-
byggðar í gær var samþykkt álykt-
un þar sem harðlega er mótmælt
ákvörðun Háskóla Íslands að færa
nám í íþrótta- og heilsufræði frá
Laugarvatni til Reykjavíkur. „Með
þessari ákvörðun er Háskóli Íslands
að bregðast því trausti að vera há-
skóli allra landsmanna,“ segir í
ályktuninni. Sveitarstjórnin segir
að óskiljanlegt sé að háskólinn vilji
ekki fara í öfluga og markvissa
markaðssetningu á námi í íþrótta-
og heilsufræði til að fjölga nem-
endum eins og starfsmenn skólans,
nemendur, þingmenn og sveitar-
stjórn Bláskógabyggðar hafi ítrek-
að lagt til. Að flytja starfsemina til
Reykjavíkur muni ekki leysa þann
vanda sem við sé að etja.
„Það læðist að okkur sá grunur
að aðrar ástæður en staðsetning,
hagræðing rekstrar og fækkun
nemenda séu ástæða þessarar
ákvörðunar. Engin haldbær rök
eru fyrir þessari ákvörðun há-
skólaráðs enda hefur allt ferlið í
kringum þessa ákvarðanatöku ver-
ið með undarlegasta móti,“ segir í
ályktuninni. Um sé að ræða há-
pólitískt byggðamál. „Er stefnan
sett á að sérhæfð störf sem krefjast
menntunar verði á höfuðborgar-
svæðinu á meðan landsbyggðin á að
búa við einsleitni og lágt mennt-
unarstig?“ spyr sveitarstjórnin og
telur að um varhugaverða þróun sé
að ræða.
Mótmæla
flutningi
íþróttanáms
Þegar sólin lætur sjá sig á þessum árstíma á ísa-
köldu landi er ekki laust við að glaðni yfir mann-
fólkinu. Sumir bregða sér í spássitúra án höfuð-
fata þó enn ríki vetur konungur samkvæmt
almanakinu. Fólkið á landsbyggðinni hefur ekki
verið jafn heppið með veður, og í dag er von á
hvassri norðanátt um norðanvert landið með
snjókomu. Má því búast við varasömu ferðaveðri
á þeim slóðum og vert að fara varlega.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Gott að kúra í hlýjum vagni á leið um Vonarstræti
Veðurblíðan hefur leikið við fólk á höfuðborgarsvæðinu