Morgunblaðið - 20.02.2016, Side 4

Morgunblaðið - 20.02.2016, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 2016 GO CRAZY 25% af öllu* laugardag og sunnudag ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is laugardaga 10-18, sunnudaga 12-18, mánudaga - föstudaga 11-18:30 *Gildir ekki um vörur á áður lækkuðu verði og merktum Everyday low price. Afsláttur reiknast á kassa. ársins 2015. Landsframleiðslan á þann mælikvarða jókst ár frá ári tímabilið 2003-7 og var 6,72 milljónir 2007. Hún náði lágmarki eftir hrunið kreppuárið 2010 er hún fór niður í 6,07 milljónir króna. Samkvæmt spá Seðlabankans og útreikningum Analytica verður hún orðin 7,16 milljónir árið 2018. Hún verður þá 440 þúsund krónum hærri en árið 2007 og 300 þúsund kr. hærri en í ár, deilt niður á hvern landsmann. Yngvi Harðarson, framkvæmda- stjóri Analytica, segir óhætt að full- yrða að landsframleiðslan árið 2018 verði meiri en nokkru sinni í sögu landsins. Af því leiðir að árið 2018 mun verða úr meiri verðmætum að spila í þjóðarbúinu en nokkru sinni. Samkvæmt Peningamálum mun launakostnaður á framleidda ein- ingu hækka um 9,3% í ár, 4,7% árið 2017 og 5% árið 2018. Þá muni kaup- máttur ráðstöfunartekna aukast um 8,7% í ár, 4,1% árið 2017 og 3,7% ár- ið 2018. Gangi þessar spár eftir gætu launþegar á Íslandi notið aukinnar verðmætasköpunar næstu ár. Vitnar um auðsáhrifin Ásgeir Jónsson, dósent í hagfræði við Háskóla Íslands, segir ferða- þjónustuna hafa leitt hagvöxt frá árinu 2013. Hann bendir einnig á að helstu útflutningsgreinar hafi staðið hrunið ágætlega af sér. „Áhrif hrunsins í raunhagkerfinu voru því minni en maður átti von á. Hins vegar hrundu eignamarkaðir landsins og verðtryggðar skuldir hækkuðu.“ segir Ásgeir. Hann telur íslenska hagkerfið hæglega geta vaxið um 10% á næstu tveimur til þremur árum með áfram- haldandi sókn í ferðaþjónustu. Hins vegar fari samtímis að skapast „veruleg þensluhætta og hætta á bakslagi, sérstaklega ef siglingin verður hraðari en það“. Mikil fjölgun hefur áhrif Eins og fram kom í Morgun- blaðinu fyrr í þessum mánuði áætlar Landsbankinn að útflutningstekjur ferðaþjónustunnar verði rúmir 400 milljarðar í ár, eða rúmlega millj- arður á dag. Það er 44% meira en ár- ið 2013. Þá áætlaði Arion banki í haust að tvær milljónir ferðamanna muni koma til landsins árið 2018, eða hálfri milljón fleiri en í ár. Þessar tölur skila sér í lands- framleiðsluna. Landsframleiðsla á mann að verða meiri en árið 2007  Analytica áætlar að hún verði 440 þúsund kr. meiri á mann 2018 en árið 2007 Landsframleiðsla á mann 2000-2018 116,08 108,87 85,67 *Heimild: Útreikningar Analytica. Reiknað er út frá spá um landsframleiðslu í Peningamálum Seðlabankans (2016/1) og gögnum Hagstofunnar. Yfirfærð á vísitölu þar sem árið 2005 jafngildir 100* 20 00 20 02 20 03 20 01 20 04 20 05 20 07 20 09 20 11 20 06 20 08 20 10 20 12 20 13 20 15 20 17 20 14 20 16 20 18 120 100 80 60 40 20 0 Landsframleiðsla á mann 2000-2018 *Heimild: Útreikningar Analytica. Reiknað er út frá spá um landsframleiðslu í Peningamálum Seðlabankans (2016/1) og gögnum Hagstofunnar. Í milljónum króna á verðlagi ársins 2015 8 6 4 2 0 7, 16 5, 28 5, 36 5, 88 6, 29 6, 26 6, 17 6, 22 6, 46 6, 86 5, 40 5, 47 6 ,1 7 6, 65 6, 076 ,7 2 6, 42 6, 65 7,0 3 20 00 20 02 20 03 20 01 20 04 20 05 20 07 20 09 20 11 20 06 20 08 20 10 20 12 20 13 20 15 20 17 20 14 20 16 20 18 Morgunblaðið/Golli Hagsæld Launþegar á Íslandi munu finna fyrir vexti landsframleiðslu. Gengið styrkist mikið » Samkvæmt Peningamálum Seðlabankans hækkaði raun- gengi miðað við hlutfallslegt verðlag að meðaltali um 4% í fyrra og hefur hækkað um rúm- lega þriðjung frá því að það var lægst árið 2009 (vísitalan var 67,1 stig á 3. ársfj. 2009). » Raungengið á mælikvarða vísitölu hlutfallslegs neyslu- verðs fór í 110 stig á þriðja árs- fjórðungi 2007. Sama vísitala fór í 91,7 stig á 4. ársfj. 2015 og nálgast því gildið á 1. ársfj. 2008, sem var 98,9 stig. BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Rætist spár Seðlabanka Íslands um hagvöxt á næstu árum mun lands- framleiðsla á mann árið 2018 verða meiri en nokkru sinni í sögunni, eða um 7,16 milljónir króna. Þetta kemur fram í útreikn- ingum Analytica sem gerðir voru að beiðni Morg- unblaðsins. Reiknað er út frá spá Seðlabankans um þróun lands- framleiðslunnar í nýjustu Peninga- málum bankans. Upphæðin er á verðlagi ársins 2015. Hér fyrir ofan má sjá tvö gröf. Á grafinu til vinstri hefur lands- framleiðslan á Íslandi verið yfirfærð á vísitölu þar sem árið 2005 jafn- gildir 100. Vísitalan sýnir þannig breytingu á landsframleiðslu á mann miðað við árið 2005. Verður 16% hærri en 2018 Samkvæmt útreikningum Analytica verður vísitalan í 116 stig- um árið 2018. Það þýðir að lands- framleiðslan verður 16% hærri árið 2018 en hún var viðmiðunarárið 2005. Athygli vekur að áætluð hækk- un vísitölunnar árin 2015-18 er sam- bærileg og á árunum 2005-7. Á grafinu til hægri má sjá áætlaða landsframleiðslu á mann á verðlagi Yngvi Harðarson Erla María Markúsdóttir erla@mbl.is „Er einhver hér sem getur frætt mig um þennan gest?“ spyr Ásta Dögg Sigurðardóttir á Facebook- hópnum Heimur smádýranna. Þar spretta reglulega upp líflegar um- ræður um alls konar smádýr sem verða á vegi fólks. Þá er tilvalið að leita til stofnanda síðunnar, Erlings Ólafssonar, sérfræðings í skor- dýrafræði. „Fólk er forvitið og með því að koma með pöddurnar til mín eru tvær flugur slegnar í einu höggi. Fróðleiksfýsninni er svarað og hag- urinn er minn,“ segir Erling, sem var fljótur að svara kallinu. Um er- að ræða blómtítu eða skræputítu, fágætan gest frá Suður-Evrópu, og hefur Erling tvisvar áður litið pödduna augum. Skræputítan er svört og fagurrauð að lit. „Hún er eitruð til átu vegna þess að hún er fjölhæf í plöntuvali og sækir ekki síst í plöntur sem innihalda eitur. Hún drekkur í sig eitrið og safnar í líkamann, sem gerir það að verkum að það verður hennar vörn.“ Erling hefur gefið hundruðum pöddutegunda íslensk heiti á ferli sínum og hefur því ákveðið frelsi til að nefna pöddurnar eftir sínu höfði. „Blómtíta er heiti sem hefur ekki náð að festa sig, ég ætla því að gleyma því og halda mig við skræputítu, en það heiti vísar í útlit hennar,“ segir Erling. Í svari sínu spurði hann hvort paddan væri föl og hvort hann mætti nálgast hana. „Ég fæ stund- um tilkynningar á fésbókarsíðuna og ef þetta eru spennandi hlutir gerist ég eigingjarn, en á kurteisan hátt. Ég vil ekki hafa neitt af fólki sem vill halda því. En ef það er falt þá þigg ég það.“ Erling gerði sér ferð upp í Árbæ og sótti pödduna og skrifaði um hana pistil á Heim smádýranna. Paddan er því orðin opinber og bíð- ur birtingar á Pödduvef Náttúru- fræðistofnunar, sem Erling heldur úti. „Við erum að endurnýja vefsíð- una og ég hef ekki verið að bæta við nýjum pöddum meðan á því stend- ur.“ Mesta lífið er því í Facebook- hópnum þessa stundina. Fann eitraða skræputítu Ljósmynd/Erling Ólafsson Ferðalangur Skræputíta er algeng tegund skortítu við Miðjarðarhaf.  Skordýrafræð- ingur sótti laumufar- þegann í Árbæinn „Eins og Land- eyjahöfn er í dag þá mun hún aldr- ei þjóna sínu hlut- verki nema sem sumarhöfn. Þó að ný ferja verði smíðuð verða frá- tafir ekkert minni en í dag. Kostn- aður við dýpkun mun minnka óverulega þrátt fyrir nýja ferju, hún er engin lausn,“ segir Ólafur Ragn- arsson skipstjóri, sem var meðal þeirra skipstjórnarmanna sem áttu fund í innanríkisráðuneytinu á fimmtudag um Landeyjahöfn. Að sögn Ólafs lagði hópurinn m.a. áherslu á að fenginn yrði óháður að- ili til að meta stöðuna í höfninni og framhaldið yrði síðan ákveðið. Stjórnvöld verði að gera upp við sig hvort forsvaranlegt sé að verja meiri fjármunum í óbreytta höfn. Ólafur stýrir um þessar mundir dýpkunarskipi í Angóla í Afríku og hefur starfað í þessum geira undan- farin tíu ár, m.a. við dýpkun í Land- eyjahöfn. Dýpkunarskip hans er svipaðrar stærðar og belgíska skipið Galilei 2000 sem er á leið til starfa í Landeyjum. Ólafur telur að til að skipið geti afhafnað sig í höfninni þurfi dýpkunarskip frá Björgun fyrst að dýpka fyrir því. Aldrei upplifað annað eins „Ég hef aldrei upplifað aðrar eins aðstæður og í Landeyjahöfn,“ segir Ólafur. Ef ekki sé hægt að laga höfn- ina þá sé það pólitísk ákvörðun hvort réttlætanlegt sé að að standa áfram í miklum viðhaldskostnaði hafnar- innar. Til greina kæmi þá að fá stóra og öfluga ferju sem gæti siglt á milli Eyja og Þorlákshafnar á 20 sjómílna hraða að jafnaði. Það myndi stytta siglinguna um tæpan klukkutíma, niður í rúma tvo tíma. Ólafur segir það einnig gleymast í umræðunni að það dugi ekki til að fá ferju með minni djúpristu. Eftir sem áður þurfi sama lágmarksdýpi fyrir dýpkunarskip til að athafna sig. Þá segir hann kostnaðinn vera orðinn gríðarlegan. „Menn verða að fara að stinga hausnum upp úr sandinum og við- urkenna að óbreytt ástand gangi ekki,“ segir Ólafur. bjb@mbl.is „Ný ferja er engin lausn“  Telur að dýpka þurfi fyrir dýpkunar- skipi í Landeyjahöfn Ólafur Ragnarsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.