Morgunblaðið - 20.02.2016, Side 6

Morgunblaðið - 20.02.2016, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 2016 Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 bokun@baendaferdir.is Síðumúla 2, 108 Reykjavík Alpafegurðin sem umvefur Salzburg í Austurríki lætur engan ósnortinn. Borgin er þekkt fyrir fagrar byggingar og ekki síst tónlist, en þar fæddist sjálfur Mozart. Í þessari einstöku ferð förum við m.a. að Königssee vatninu,Arnarhreiðri Hitlers og siglum niður Dóná á leið að hinni fornfrægu Regensburg í Þýskalandi. Ferð fyrir alla fagurkera! Verð: 174.700 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið! Sp ör eh f. Fararstjóri: Sigrún Valbergsdóttir 30. apríl - 7. maí Salzburg & Regensburg Vor 5 „Það er alveg sama hverju dýft er í sjóinn, það er mokfiskirí í öll veið- arfæri,“ segir Björn Arnaldsson, hafnarstjóri í Snæfellsbæ, um afla- brögðin síðustu daga. „Janúar- mánuður var besti janúar síðan 2009, bæði gott tíðarfar og fínt fisk- irí. Febrúar hefur sömuleiðis verið góður og tíðin skárri en í fyrra. Það er sama hvort menn róa með drag- nót, net eða línu, það eru allir að fiska og þorskurinn er af stærstu gerð.“ Gott veður var til sjósóknar á fimmtudag, flestir bátar á sjó og afli almennt góður. Dagurinn var þó ekki sá stærsti á vertíðinni því fyrir tíu dögum komu alls um 560 tonn á land í höfnum Snæfellsbæjar; Rifi, Ólafsvík og Arnarstapa. Eins og frá var greint í blaðinu í gær er vertíðin sömuleiðis að kom- ast í gang við Reykjanesið og yfirleitt gott fiskirí. Á fimmtudag voru nánast allir á sjó í fínasta veðri. Þá kom snurvoðarbáturinn Benni Sæm. með 33 tonn og línubátarnir fengu upp í 11 tonn. Allir voru á sjó á fimmtudag, en í gær voru flestir línubátanna í landi. aij@mbl.is „Sama hverju dýft er í sjó“  „Þorskurinn er af stærstu gerð“  Yfirleitt góður afli á vertíðinni Ljósmynd/Björn Arnaldsson Ólafsvík Félagarnir á Bárði SH 81 komu með 22 tonn að landi á fimmtudag úr tveimur trossum. Pétur yngri Pétursson heldur á vænum þorski. Benedikt Bóas benedikt@mbl.is Innanríkisráðuneytið birti á vef sín- um í gærkvöldi drög að lagafrum- varpi um lögreglunám. Samkvæmt því verður námið fært á háskólastig og er það til samræmis við fyrir- komulagið annars staðar á Norður- löndum. Í stað þess að ljúka grunn- námi lögreglumanna á einu ári í Lögregluskólan- um stendur nú til að lengja námið í tvö ár, sem lyki með diplómaprófi á háskólastigi. Eins árs fram- haldsnám verð- ur í boði til að hljóta titilinn lögreglufræð- ingur. Í bráðabirgðaákvæði frumvarps- ins er gert ráð fyrir að þeir sem stunda nám við Lögregluskóla rík- isins við gildistöku laganna eigi rétt á að ljúka því námi miðað við gild- andi námsskipulag og skal því vera lokið fyrir 30. september. Þá telst Lögregluskóli ríkisins formlega lagður niður frá og með 30. sept- ember næstkomandi. Í frumvarpinu er ennfremur lagt til að sett verði á stofn mennta- og starfsþróunarsetur lögreglu innan embættis ríkislögreglustjóra. Hlut- verk setursins verði að sjá um starfsnám lögreglunema sem og að sinna fræðslustarfi og endurmennt- un. Að loknu umsagnarferli fer frum- varpið til lokavinnslu og er stefnt að því að Alþingi fái frumvarpið til þinglegrar meðferðar á vorþingi. Breytt umhverfi Í drögunum segir meðal annars að eðli og umfang lögreglustarfsins hér á landi hafi tekið stakkaskiptum á undanförnum áratugum. „Störf lögreglunnar eru orðin erfiðari og mun flóknari en fyrr. Ógnir við net- öryggi, vöxtur skipulagðrar glæpa- starfsemi og vaxandi ógn vegna hryðjuverka eru þær hættur sem Evrópuríki líta helst til og kalla á aukna þekkingu og þjálfun lögreglu- manna. Þátttaka íslensku lögregl- unnar í alþjóðlegu samstarfi lögreglu er sífellt mikilvægari og verður þekking og þjálfun að vera í takt við þær kröfur sem gerðar eru í öðrum ríkjum. Reglulega verður að gera faglegar greiningar og mat á hættu og ógnum sem steðja að íslensku samfélagi og lögreglan verður að geta tileinkað sér nýjungar í rann- sóknum á sakamálum, ekki síst á meintum glæpum á netinu og í tengslum við efnahagsbrot svo dæmi séu tekin.“ Leitað til háskólanna Leitað var til allra háskóla á land- inu til að kanna vilja og möguleika þeirra til að taka þátt í þróun lögregl- unáms á háskólastigi. Ráðuneytinu bárust svör frá Háskóla Íslands í samstarfi við Keili í Reykjanesbæ, og háskólunum í Reykjavík, Bifröst og á Akureyri. Í dag eru 16 nemendur í grunn- námi í Lögregluskólanum og stendur til að þeir útskrifist í lok ágúst. Að auki starfar framhaldsdeild sem held- ur utan um námskeiðahald fyrir starf- andi lögreglumenn. Karl Gauti Hjaltason, sem hefur verið skólastjóri Lögregluskólans síð- an á miðju ári 2014, hafði ekki kynnt sér drögin þegar Morgunblaðið náði í hann seint í gærkvöldi. Lögreglunámið verði fært á háskólastig  Innanríkisráðuneytið vill breyta námi lögreglumanna Morgunblaðið/Júlíus Að kenna Lögreglunema er kennd umferðarstjórnun á götum höfuðborgar- innar. Lögregluskólanum verður líklega lokað 30. september næstkomandi. Karl Gauti Hjaltason Baldur Arnarson baldura@mbl.is Fulltrúar stjórnarráðsins og þróunarfélagsins Landstólpa fund- uðu síðdegis í gær um mögulegan leigusamning og útlitsbreytingar á svonefndu Hafn- artorgi sem fyrir- hugað er norðan við Lækjartorg. Stefán Thors, húsameistari rík- isins, sat fundinn fyrir hönd for- sætisráðuneytis. Upphaf þess- ara viðræðna má rekja til gagnrýni Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, forsætisráðherra, á útlit fyrirhugaðra bygginga. Taldi hann stefna í „skipulagsslys“. Gísli Steinar Gíslason, fram- kvæmdastjóri Landstólpa, segir menn hafa skipst á hugmyndum. Stefán hafi viðrað hugmyndir um hvernig breyta megi útliti bygginga á reitnum, meðal annars á austur- hliðinni, sem snýr að stjórnarráðinu, þannig að nýbyggingarnar höfði meira til gamla tímans. Um leið séu nýbyggingarnar að- lagaðar að þörfum stjórnarráðsins sem ætlunin sé að verði með skrif- stofur í austari hluta Hafnartorgs. Funda aftur í næstu viku Gísli Steinar kveðst ekki vilja tjá sig um það á þessu stigi hvort hug- myndirnar séu raunhæfar. Hann segir að fundað verði um framhaldið í næstu viku. Fulltrúar Landstólpa muni meta hugmyndirnar. Hann segir aðspurður gert ráð fyrir að uppbygging reitsins tefjist ekki. Miðað sé við að mannvirkin verði tilbúin tveimur og hálfu ári eft- ir að framkvæmdir hefjast. Verklok séu áformuð vorið 2018. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, segir ljóst að góð- ur gangur sé í viðræðunum og að fram hafi farið jákvæð skoðana- skipti. Hugmyndirnar sem Stefán kynnti á fundinum voru sagðar á frumstigi. Ótímabært væri að birta myndir af þeim í fjölmiðlum. Tölvuteikning/PK arkitektar/Birt með leyfi Hafnartorg Svona myndi hluti bygginganna líta út séð frá Arnarhóli. Ræða breytingu á Hafnartorgi  Húsameistari ríkisins sýnir tillögur Gísli Steinar Gíslason

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.