Morgunblaðið - 20.02.2016, Síða 9

Morgunblaðið - 20.02.2016, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 2016 Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í sex mánaða skil- orðsbundið fangelsi fyrir líkams- árás og húsbrot og annan karlmann í þrjátíu daga skilorðsbundið fang- elsi fyrir húsbrot. Mennirnir tveir sem dæmdir voru eru feðgar og hafa ekki áður sætt refsingu. Sonurinn var 21 árs þegar brotið var framið. Brotið átti sér stað í Garði í nóvember 2012. Morgunblaðið/Ómar Dæmt Feðgar hlutu skilorðsbundinn dóm en sonurinn var 21 árs þegar brotið var framið. Feðgar dæmdir í fyrsta sinn fyrir hús- brot og líkamsárás Nöfnin Rósý, Dalrún, Lói og Gígí hafa öll verið samþykkt af Manna- nafnanefnd. Hins vegar fékk nafnið Einarr ekki samþykki í ljósi þess að rithátt- urinn er ekki í samræmi við almennar rit- reglur íslensks máls. Úrskurð- irnir voru kveðnir upp 5. febrúar. Kvenkyns- nöfnin sem samþykkt voru taka öll íslenska beygingu í eignarfalli en karlkyns- nafnið Lói var samþykkt af sömu ástæðu. Í úrskurðinum er varðar nafnið Einarr kemur fram að enginn Ís- lendingur hafi verið skráður á 20. öld með ritháttinn Einarr sam- kvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá „og því hefur engin hefð skapast um þann rithátt“. Til að nýtt eigin- nafn sé samþykkt verður það að taka íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. Ekki er heimilt að heita Einarr Nöfn Það má heita Gígí eða Lói. Truflanir í almennum fjarskipta- kerfum á Íslandi hafa aukist mjög á síðastliðnum árum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Póst- og fjar- skiptastofnun. Segir þar að truflanir sem þessar geti valdið alvarlegum vandkvæðum og jafnvel ógnað öryggi manna, þar sem öll þráðlaus fjarskipti séu háð því að ekki séu truflanir á þeim tíðn- um sem eru notaðar í samskiptin. „Það er mikilvægt að fyrirbyggja slíkar truflanir eins og kostur er og slíkt byggist á vitund bæði almenn- ings og fjarskiptafyrirtækja um hugsanlegar orsakir og afleiðingar,“ segir í tilkynningunni. Fjarskiptafélög komi að málum Sú fjölgun sem hefur orðið á til- kynntum truflunum á síðustu þrem- ur árum er áhyggjuefni að sögn stofnunarinnar, en þær hafa aukist um nær 200%. Þannig voru þær 30 árið 2013, 53 árið 2014 og 82 talsins árið 2015. Aukinn innflutningur almennings á tækjum sem keypt eru að utan og uppfylla ekki þær kröfur sem gerðar eru til fjarskiptabúnaðar hér á landi, er talinn vera ein helsta orsök trufl- ananna. Stofnunin segir að að mikilvægt sé að henni verði gert kleift að fram- kvæma fyrirbyggjandi aðgerðir og stunda eftirlit, „með nauðsynlegri reglusetningu, þjálfuðum mannskap og sérhæfðum búnaði til að standa að eftirlitinu“. Aðrir sem einnig þurfi að koma að málum séu til dæmis fjarskiptafélögin sem tryggja þurfi að net þeirra séu heildstæð. „Þá er ekki síður mikilvægt að al- menningur og fyrirtæki gæti þess að eingöngu séu notuð fjarskiptatæki sem eru lögleg til notkunar á Ís- landi. Reynslan síðustu ár sýnir að notkun ólöglegs búnaðar veldur miklum truflunum.“ Fjarskiptatruflanir hafa aukist um nær 200 prósent  Póst- og fjarskiptastofnun telur aukninguna áhyggjuefni Morgunblaðið/Árni Sæberg Aukning Truflanir í fjarskiptakerf- um á Íslandi geta ógnað öryggi. Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is ÚT- SÖLU- LOK Laugardagur 10-16 Sunnudagur 13-18 60%af fatnaði 70% af skóm Opið 10-16 í dag Bæjarlind 6, sími 554 7030 Við erum á facebook Nýjar blússur kr. 12.900 Str. 36-48 • Sjónvarpsstöðin ÍNN. Eigandi stöðvarinnar hefur í hyggju að draga sig í hlé og hefur fengið Kontakt til að kanna áhuga aðila að fjárfesta í stöðinni að hluta eða öllu leyti. • Lítil heildverslun með gott umboð fyrir hágæða múrefni og klæðningar. Velta um 100 mkr. Miklir möguleikar á vexti • Hótel Siglunes á Siglufirði. Sérlega fallegt 19 herbergja hótel, sem fær frábæra dóma, í ört vaxandi ferðamannabæ. • Vaxandi innflutnings- og smásölufyrirtæki með mjög góða markaðshlutdeild á sérhæfðum markaði. Ársvelta 130 mkr. og EBITDA 30 mkr. • Fyrirtæki á SV-horninu í framleiðslu og sölu á harðfiski. Velta 50 mkr. Inannlandsssala og útflutningur. • Lítið hótel og veitingastaður í sérlega fallegu og sögufrægu, uppgerðu húsi í Bolungarvík. Húsið og starfsemin í því er til sölu. Tripadvisor gefur 4,5 stjörnur. • Verslunarkeðja með matvæli (12 útsölustaðir) og miðlæga framleiðslu. Ársvelta 650 mkr. Miklir vaxtamöguleikar og góð afkoma. • Gamalgróin heildverslun með þekkt leikföng og gjafavörur. Velta um 100 mkr. Góð afkoma. • Stórt og gott hótel miðsvæðis á Suðurlandi sem býður upp á mikla möguleika fyrir áhugasaman, nýjan eiganda. • Öflugt og vaxandi fyrirtæki í skiltagerð og markaðslausnum. Vel tækjum búið. Ársvelta um 100 mkr. og góð afkoma. • Rótgróin rafvöruverslun í Reykjavík. Velta 80 mkr. og afkoman góð. • Gróðrarstöð staðsett á Suðurlandi í nálægð við höfuðborgina. Fyrirtækið hefur sterka stöðu á markaði. Velta er nokkuð jöfn allt árið, um 130 mkr. og EBITDA um 25 mkr. H a u ku r 0 1 .1 6 Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is gisting.dk 499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími) Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900 Kaupmannahöfn NÝJAR VORLÍNUR Laugavegi 63 • S: 551 4422 Skoðið laxdal.is/touch of blush-atlanta Upplýsingar í síma 894 0048 | halliparket@gmail.com Gagnheiði 5, Selfossi Til sölu sumarhús, ferðaþjónustuhús, gesthús,hóteleiningar Gerum tilboð í allar teikningar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.