Morgunblaðið - 20.02.2016, Síða 11
Ljósmynd/Tora
Mandólín Þau spila fyrst og fremst saman til að hafa gaman af því og gefa hvert öðru rými til að vera þau sjálf.
að tala saman. Stundum dugar að
gjóa augunum í einhverja ákveðna
átt og þá vita allir hvað maður er að
hugsa. Martin setur til dæmis upp
sérstakan svip þegar honum finnst
við spila of hægt og þá gefum við í.
Útgangspunkturinn er að þetta er
fyrir okkur sjálf og gleðina sem
fylgir því að spila saman,“ segir Sig-
ríður Ásta.
„Við leggjum okkur fram um að
hvíla í augnablikinu og njóta þess að
allt er eins og það er. Og við gefum
hvert öðru rými til að spila. Losum
okkur við egóið,“ segir Ástvaldur.
Elísabet Indra segir frábært að
hafa tekið hljóðfærið upp að nýju og
fá loksins að spila á eigin forsendum.
„Það er glæný hugsun og gleði sem
fylgir því, fullkomið frelsi. Ég var
lengi í klassísku hljóðfæranámi en
þá er maður svo hræddur við að gera
mistök og ég lagði fiðluna á hilluna
upp úr tvítugu.“
Sigríður Ásta tekur undir þetta
og segir það hafa verið algjört kikk
að dusta rykið af tónlistariðkuninni
eftir langt hlé og nálgast hana á nýj-
um forsendum. „Ég var aldrei látin
spila eftir eyranu í mínu fjórtán ára
klassíska píanónámi.“
Hjá Ástvaldi er þetta á hinn
veginn, hann hefur alla tíð spilað eft-
ir eyranu.
„Mér gekk illa að spila eftir nót-
um og þess vegna smellpassar fyrir
mig að vera í Mandólín, þetta er
mjög opið tónlistarlega séð. Þegar
tónlistin smellur saman hjá okkur,
þá er það eitthvað sem er handan við
réttar eða rangar nótur.“
Syngja á fimm tungumálum
Þau æfa í hverri viku, hvort sem
eitthvað er framundan eða ekki. „Við
höfum haldið marga tónleika á þess-
um tveimur árum og við höfum líka
spilað í brúðkaupum, afmælum og
boðum. Þetta er mjög veisluvæn tón-
list og dansvæn. Þó laglínurnar séu
klezmer þá útsetjum við sjálf, spilum
þetta með okkar nefi. Við spilum
ekki aðeins klezmer, líka tangó og
ýmislegt annað, ætli við séum ekki
eins og gamaldags saloon-hljóm-
sveit.“ Ástvaldur segir að bandið sé
mjög ególaust og fyrir vikið verði
tónlistin mjög falleg.
„Annað sem er óvenjulegt er að
allir innan bandsins geta sungið,
raddir okkar eru eitt hljóðfærið enn.
Við höfum verið að syngja á rúm-
ensku, finnsku, jiddísku, þýsku og
íslensku. Það hafa stundum slæðst
gyðingar á tónleika hjá okkur og
þakkað okkur sérstaklega fyrir.“
Í Mandólín er þó nokkuð leik-
húselement, þau dressa sig upp og
leggja upp úr því sjónræna, hugsa
um umgjörðina.
„Ég væri til í að vera í leikhús-
hljómsveit að aðalstarfi,“ segir Sig-
ríður Ásta og vísar til þess hversu
gaman hafi verið að spila um síðustu
helgi í Iðnó með hópi leikkvenna
sem kalla sig Sviðslistakonur 50
plús, en þær lásu upp ljóð Nínu
Bjarkar Árnadóttur við undirleik
Mandólíns.
„Magnea leikstjóri bað okkur
um að vera með í þessari ljóðasýn-
ingu og þetta var mjög fallegt sam-
starf, hún gaf okkur fullt frelsi.“
Þegar spurt er hvað sé á döfinni
er Ástvaldur fljótur til svars:
„Heimsyfirráð eða dauði.“ En kon-
urnar bæta við að Mandólín ætli í
samstarf með Söngsveitinni Fíl-
harmóníu í vor og einnig með kórn-
um hans Ástvalds, Álafosskórnum.
Ljósmynd/Einar Baldvin Pálsson
Tangó Á tónleikum á Rósenberg stigu gestir dans við seiðandi tóna.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 2016
Hljóm-
sveitin
Mandólín
snýr aftur
á Rósen-
berg við
Klappar-
stíg í kvöld
kl. 22 og
flytur
hjartanær-
andi
blöndu af
klezmer- og tangótónlist. Með-
limir syngja hver með sínu
ágæta nefi.
Sérstakur gestur á tónleik-
unum verður söngkonan og
sjarmatröllið Brynhildur Björns-
dóttir.
Aðgangseyrir er 1.500 krónur
og vert er að taka fram að eng-
inn posi verður á staðnum.
Spila á Rósen-
berg í kvöld
TÓNLEIKAR OG DANS
Ljósm./Dagur G.
Ógnvænlegar og dularfullar skepnur
spretta fram úr bréfum sem opnuð
verða í óvenjulegri sendibréfasmiðju í
Safnahúsinu við Hverfisgötu kl. 14-16
á morgun, sunnudag. Dularfull sendi-
bréf er yfirskrift þessarar fjöl-
skyldusmiðja, sem er innblásin jafnt
af kynjaverum úr íslenskum þjóðsög-
um sem skrýtnum geimverum. Kynja-
verur eru nefnilega af ýmsum toga og
finnast víða; í lofti, sjó eða á landi.
Þær geta líka tekið á sig mynd mars-
búa eða torkennilegra vera úr tölvu-
heiminum. Sumar eru hreistraðar
eða loðnar, aðrar fiðraðar og sam-
settar úr líkamspörtum dýra, manna
eða hluta.
Börn og fullorðnir fylgifiskar þeirra
eru boðin velkomin, og reyndar er
mjög æskilegt að fylgifiskarnir komi
með. Aðgangur í smiðjuna er ókeypis,
en efni og áhöld sem og frímerki eru
á staðnum. Arite Fricke og Kristín
Þóra Guðbjartsdóttir skipuleggja og
leiða smiðjuna, sem er samstarfs-
verkefni Þjóðminjasafnsins og list-
kennsludeildar Listaháskóla Íslands.
Í bígerð er að halda Galdrastaf-
asmiðju, Landakortasmiðju og Flug-
drekasmiðju á næstu mánuðum.
Fjölskyldusmiðja
Kynjaverur úr
sendibréfum
Bréf Sum bréfin eru skepnuleg.
Vettvangur Safnahúsið við Hverfis-
götu (áður Þjóðmenningarhúsið).
Framboð í trúnaðarstöður
FRV
Samkvæmt 34. gr. laga Félags Rafeindavirkja
skal fara fram kosning til trúnaðarstarfa fyrir félagið.
Framboðsfrestur skal vera minnst 14 sólarhringar
og skal tillögum skilað til kjörstjórnar innan þess tíma.
Með hliðsjón af framansögðu hefur framboðsfrestur
verið ákveðinn til kl. 12 á hádegi 14.03.2016
Reykjavík 20. febrúar 2016
Stjórn Félags Rafeindavirkja
Samkennd
- að styrkja sig innan frá
Á námskeiðinu er tvinnað saman gjörhygli og samkennd, byggt er á þekkingu á því hvernig hugurinn hefur þróast
og hvernig hann starfar. Þetta er ný meðferðarleið sem þegar hefur verið sýnt fram á að geti hjálpað okkur við að
fást við streitu, sjálfsgagnrýni og erfiðar tilfinningar eins og sektarkennd, skömm, reiði, kvíða og depurð.
Innifalið: Ljúffengur og hollur matur, skipulögð dagskrá, hugleiðsla og jóga, aðgangur að sundlaugum, baðhúsi og
líkamsrækt. Einnig nudd og val um ýmsar meðferðir.
Verð pr. einstakling með gistingu er 130.000 kr.
í einbýli en 123.500 kr. í tvíbýli.
Námskeiðið er fyrir þá sem vilja efla þann styrk sem býr innra með okkur öllum.
- berum ábyrgð á eigin heilsu
Heilsustofnun
Náttúrulækningafélags
Íslands
Nánari upplýsingar og skráning á heilsustofnun.is
eða í síma 483 0300.
13.-20.
2016
mars
7 daga námskeið dagana 13.-20. mars 2016