Morgunblaðið - 20.02.2016, Síða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 2016
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Sigurður „Búbbi“ Jónsson, eigandi
fyrirtækisins Aurora Arktika á Ísa-
firði, keypti nýlega aðra skútu, Bör,
og fer í fyrstu ferðina á henni með
farþega á mánudag, erlenda ferða-
menn sem ætla að renna sér á skíð-
um á Hornströndum í um viku.
Sigurður er skipatæknifræð-
ingur, teiknaði og smíðaði skip áður,
átti skútu og fór á henni í skíðaferð-
ir, fjallgöngur og fleira í frístundum.
„Fyrir um tíu árum ákvað ég að
bjóða öðrum upp á tækifæri til þess
að vera með mér í þessum leikara-
skap og stofnaði fyrirtækið,“ segir
hann.
Aurora Arktika hefur gert út
Auroru, 60 feta 12 manna skútu, og
boðið upp á skíðaferðir í Jökulfirði
síðvetrar og á vorin og ferðir um
sama svæði, Jan Mayen og Austur-
Grænland á sumrin. Stystu ferð-
irnar standa yfir í viku en yfirleitt er
um lengri ferðir að ræða. Siglingin
sem slík er ekki aðalatriðið heldur
útilegan, að sögn Sigurðar. „Fyrir
mér eru skúturnar færanlegir fjalla-
kofar til þess að fara á skemmtilega
staði þar sem hægt er að vera úti og
leika sér,“ segir hann.
Mikill áhugi
Reksturinn hefur gengið vel.
Sigurður segir að nánast sé upp-
bókað fyrir einn bát þetta árið. „Ég
hef reynt að fara rólega í þetta og
farþegum hefur fjölgað smátt og
smátt,“ segir hann. Flestir ferða-
mennirnir hafa verið frá Bandaríkj-
unum og Kanada en annars alls stað-
ar að. Sigurður segir að oft taki
hópar bátinn á leigu í ákveðinn tíma
og svo séu skipulagðar ferðir fyrir
einstaklinga. „En ég veg ekki þungt
í þessum milljón túristum,“ áréttar
hann.
Nýja skútan hefur verið í sigl-
ingum við Noreg og tekur 14 manns.
Sigurður segir að ekki sé um lúx-
usferðir að ræða en samt sé lögð
áhersla á góðan aðbúnað, enda sé
búið um borð allan tímann. „Við
leggjum mikla áherslu á góðan mat
og að hafa það notalegt um borð og
erum svo úti að leika okkur á daginn,
á skíðum á veturna og í gönguferð-
um og kajakferðum á sumrin.“
Aurora Arktika á Ísa-
firði bætir við skútu
Morgunblaðið/Sigurjón J. Sigurðsson
Skúta Bör kom til heimahafnar á Ísafirði í fyrradag og fer í fyrstu ferðina eftir helgi.
„Færanlegir fjallakofar til að fara á skemmtilega staði“
Inflúensan hefur sótt mjög í sig veðrið undanfarnar vik-
ur og er álag á Landspítala því orðið mikið vegna þessa,
bæði á bráðamóttöku og legudeildum spítalans.
„Þeim hefur fjölgað mjög að undanförnu sem greinst
hafa með flensu eða leikur grunur á að séu með flensu,
en einnig er mikið um upp- og niðurgangspestir,“ segir
Ragna Gústafsdóttir, deildarstjóri á bráðamóttöku
Landspítala, og bendir á að fjölmargir sjúklingar séu því
nú í einangrun á spítalanum við misgóðar aðstæður.
„Við erum núna með allar stofur fullar af fólki sem er í
einangrun, en það sem er ólíkt nú samanborið við fyrri
tíma er að við vorum í erfiðri stöðu áður en flensan skall
á,“ segir hún en nýting legurýma var þá þegar um 100%.
„Við erum því í enn meiri vanda með pláss fyrir fólk
en undanfarin ár. […] Höfum við meira að segja þurft að
leggja fólk fram á gang sem er í einangrun,“ segir
Ragna.
Leggst þungt á yngra fólk
Samkvæmt upplýsingum frá Heilsugæslu höfuðborg-
arsvæðisins er um mjög skæða inflúensu að ræða og
virðist hún leggjast þungt á fólk á aldrinum 15-64 ára.
Tvær tegundir inflúensu smitast nú manna á milli og er
mælt með notkun veirulyfja, eins konar bremsulyfja, og
er gagnsemi þeirra ótvíræð ef meðferð hefst innan 48
klst. khj@mbl.is
Skæður inflúensufaraldur herjar nú á landsmenn
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
„Það er auðvitað hörmulegt að svona
geti gerst og menn eru slegnir yfir
þessu í þessu litla samfélagi sem er
hér,“ segir Ásgeir Magnússon, sveit-
arstjóri í Mýrdalshreppi, í kjölfar
þess að maður frá Srí Lanka, búsett-
ur á Vík, var handtekinn í fyrradag
grunaður um mansal. Leikur grunur
á því að hann hafi verið með tvær
konur í þrælkunarvinnu í saumastofu
á jarðhæð á heimili sínu í miðjum
bænum. Maðurinn var úrskurðaður í
mánaðar gæsluvarðhald síðdegis í
gær.
Hinn handtekni var undirverktaki
fyrir Icewear og í tilkynningu frá fyr-
irtækinu kemur fram að maðurinn
hafi starfað fyrir fyrirtækið sem und-
irverktaki en að samningi við hann
hafi verið rift.
Ásgeir segir að hann hafi þekkt til
hins handtekna sem flutti til landsins
fyrir 3-4 árum og býr í Vík ásamt eig-
inkonu sinni sem einnig er frá Srí
Lanka. „Þau hafa rekið fyrirtæki sem
eru í þessum prjóna- og saumaskap.
Það kom okkur því mjög á óvart að
eitthvað svona væri í gangi,“ segir
Ásgeir. Þrátt fyrir að samfélagið í Vík
sé fámennt hefur hann ekki orðið var
við veru meintra þolenda, kvennanna
tveggja í bænum. „En það er eðlilegt í
ljósi þess að hér er fjölþjóðlegt sam-
félag og margir ferðamenn sem fara
hér í gegn,“ segir Ásgeir.
Samstarf þriggja umdæma
Þrjú lögregluembætti stóðu að að-
gerðinni. Lögreglan á Suðurlandi,
lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og
lögreglan á Suðurnesjum. Lögreglu-
embættið á Suðurlandi hafði for-
göngu í málinu en fékk liðsinni sér-
fræðinga í mansalsmálum frá hinum
tveimur embættunum.
Þorgrímur Óli Guðmundsson, yfir-
lögregluþjónn hjá lögreglunni á Suð-
urlandi, segir að þetta sé fyrsta man-
salsmálið sem komið hefur inn á borð
í umdæminu en vildi að öðru leyti
ekki tjá sig um málið.
Meintum þolendum hefur verið út-
hlutaður réttargæslumaður. Engar
upplýsingar fengust um það hvort
þær séu með dvalar- eða landvistar-
leyfi, eða séu með kennitölu hér á
landi. Stendur þeim til boða sálfræði-
þjónusta og er málið eftir atvikum á
herðum velferðarráðuneytisins eða
félagsþjónustu viðkomandi sveitarfé-
lags.
Til skoðunar í þrjá mánuði
Að sögn Gísla Davíðs Karlssonar,
lögfræðings Vinnumálastofnunar,
hafði verktakafyrirtæki mannsins í
Vík verið í skoðun hjá Vinnumála-
stofnun síðustu þrjá mánuði. „Þetta
fyrirtæki var á radarnum hjá okkur.
Það eru þrír mánuðir síðan það datt
inn á borðið hjá okkur,“ segir hann í
samtali við mbl.is.
Samfélagið í
Vík er slegið
Úrskurðaður í gæsluvarðhald í man-
salsmáli 5 mansalsmál til rannsóknar
Saumastofa Konurnar voru að
störfum í húsi í miðjum bænum.
Alda Hrönn Jóhannsdóttir, aðallögfræðingur hjá lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir að reglulega
komi upp mál þar sem grunur leikur á mansali. Alla
jafna hefur verið um ábendingar að ræða, gjarnan frá
stéttarfélögum. Alls voru um 20 mál skoðuð á síðasta
ári en fimm þeirra eru til rannsóknar. „Það eru nokkur
mál sem hafa verið til skoðunar, en sönnunarbyrði er
gjarnan erfið í þessum málum,“ segir Alda Hrönn.
„Stundum er það þannig að ef um er að ræða erlent
vinnuafl, þá eru þeir einstaklingar gjarnan farnir af
landi brott þegar við fáum þessar ábendingar. Því er-
um við stundum ekki með eiginlegan þolanda í höndunum. Eins er það
gjarnan þannig að þolendur eru mjög háðir kvölurum sínum og vilja ekki
aðstoð frá lögreglu,“ segir Alda. Hún segir að um fimm mál séu til rann-
sóknar. „Sum eru til rannsóknar, en önnur eru enn opin en í bið þar sem
við erum að bíða eftir frekari upplýsingum eða að fylgjast með fram-
vindu málanna,“ segir Alda.
Fimm mál eru til rannsóknar
20 MANSALSMÁL VORU SKOÐUÐ Á SÍÐASTA ÁRI
Alda Hrönn Jó-
hannsdóttir
Umhverfisvæn áhersla !
lífrænt trjákurl í kattaklósett
...........................................
náttúruleg lyktar- og bak-
teríueyðing (stóri rauði
miðinn)
klumpast vel og er 100%
niðurbrjótanlegt (rauði miðinn
í miðjunni)
mhverfisvæn áhersla!
LÍFRÆNT TRJÁKURL í kattaklósett
Náttúruleg
lyktar- og
bakteríueyð
ing
Klumpast ve
l og er 100%
niðurbrjótan
legt, má los
a í salerni
Mjög hagkv
æmt
botnlag má
vera 4-6 vik
ur í kattakló
settinu
– fyrir dýrin þín Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | sími 511-2022 | www.dyrabaer.is