Morgunblaðið - 20.02.2016, Page 40
40 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 2016
✝ Páll G. Björns-son fæddist í
Garði í Fnjóska-
dal, S-Þingeyj-
arsýslu, 8. október
1936. Hann lést á
Sjúkrahúsi Suður-
lands á Selfossi 2.
febrúar 2016.
Foreldrar hans
voru Garðar Björn
Pálsson, f. 4.6.
1899, á Skugga-
björgum, Dals-
mynni, S-Þingeyjarsýslu, d.
13.8. 1971 á Akureyri, og
Kristbjörg Líney Árnadóttir,
f. 29.5. 1907, Knarrareyri
Flateyjardal, S-Þingeyjar-
sýslu, d. 22.10. 1998 á Dval-
arheimilinu Lundi á Hellu.
Foreldrar Páls bjuggu fyrst
að Hofi í Flateyjardal, 1931-
1937, og síðar í Garði,
Fnjóskadal.
Páll var næstelstur af
þremur systkinum, þau eru:
Guðlaug Borghildur Garð-
arsdóttir, f. 5.6. 1932, d.
12.12. 2015, og Hulda Auður
Garðarsdóttir, f. 1.5. 1940.
Páll kvæntist 7.7. 1967
Önnu Bjarnarson, f. 13.3.
1940, Reykjavík. Þau skildu
1986. Foreldrar Önnu voru
Stefán Bjarnarson, f. 11.7.
1904, Sauðafelli í Dölum, d.
20.3. 1976, og Stefanía
Sigurðardóttir, f. 6.1. 1911,
og síðar Nestúni 13.
Páll ólst upp í Garði í
Fnjóskadal og var þar bóndi
til 25 ára aldurs en flyst 1961
til Reykjavíkur og hefur nám
í Iðnskólanum og lýkur þar
prófi í húsasmíði. Páll vann
við smíðar hjá byggingafyr-
irtækinu Markholti um nokk-
urra ára skeið en flytur síðan
til Hellu ásamt fjölskyldu
sinni og tekur þar við starfi
sem framkvæmdastjóri Gler-
verksmiðjunnar Samverks í
júní 1969 og verður fljótlega
einn af eigendum þess og
starfar þar þangað til hann
fer á eftirlaun.
Páll hafði áhuga á félags-
málum. Hann var kosinn í
hreppsnefnd Rangárvalla-
hrepps 1974-1986 og sinnti
jafnframt oddvitastarfi. Páll
sinnti ungmennafélagsmálum
fyrir Umf. Heklu og Héraðs-
sambandið Skarphéðin. Hann
starfaði í sóknarnefnd Odda-
kirkju, var félagi í Rót-
arýklúbbi Rangæinga og í Frí-
múrarareglunni. Páll var
mikill áhugamaður um fugla
og sinnti árlegum fuglataln-
ingum við Hellu kringum
Ytri-Rangá fyrir Náttúru-
fræðistofnun. Síðustu árin
meðan heilsan leyfði sinnti
Páll gróðurrækt á landskika
nálægt Hellu og stundaði tré-
smíðar.
Páll G. Björnsson verður
jarðsunginn frá Oddakirkju á
Rangárvöllum í dag, 20. febr-
úar 2016, klukkan 11.
Ísafirði, d. 26.2.
1974. Þau bjuggu
í Fossvogi í
Reykjavík. Synir
Páls og Önnu eru:
1) Ragnar Páls-
son, f. 14.3. 1968,
kvæntur Guðrúnu
Dröfn Ragnars-
dóttur, f. 24.11.
1969, börn þeirra
eru: a) Ragnar
Páll Ragnarsson,
f. 2.6. 1995, b) Ás-
gerður Ragnarsdóttir, f. 26.8.
1999, c) Þorgerður Ragnars-
dóttir, f. 5.3. 2003. 2) Ás-
mundur Jón Pálsson, f. 18.2.
1969, d. 8.9. 2002, var í sam-
búð með Guðbjörgu Eddu
Árnadóttur, f. 17.3. 1969, þau
slitu samvistum, sonur þeirra
er a) Stefán Smári Ásmund-
arson, f. 5.12. 1988. Ásmund-
ur Jón kvæntist Sigurbjörgu
Björgúlfsdóttur, f. 7.5. 1970,
dætur þeirra: b) Álfheiður
Fanney Ásmundardóttir, f.
6.4. 2000, c) Ásrún Ásta Ás-
mundardóttir, f. 21.1. 2002.
Páll var í sambúð 1991 til
2010 með Erlu Emilsdóttur, f.
24.5. 1933, Reykjavík. Síðustu
árin átti Páll vinkonu, Þór-
nýju Þórarinsdóttur, f. 22.3.
1931, Ingunnarstöðum í
Brynjudal í Kjós. Páll bjó á
Hellu á Rangárvöllum frá
árinu 1969, að Freyvangi 22
Það var í desember 2010 sem
mamma kom heim úr sinni
fyrstu ferð til Kanaríeyja. Hún
hafði farið með fermingarsystur
sinni Maríu, sem vantaði ferða-
félaga. Mamma var einstaklega
ánægð með ferðina og var með
gleðiblik í augum er heim kom.
Það var svo sem ekkert nýtt að
mamma væri glöð, sérstaklega
eftir ferðalag, en það var eitt-
hvað sérstakt og nýtt við þetta
blik í augunum. Fljótlega kom
skýring á því. Hún hafði kynnst
manni í ferðinni, sem hún
hreifst af og hann af henni.
Þessi maður var Páll. Mamma
hafði verið ekkja í rúm 47 ár og
áttu fæstir von á að hún myndi
finna mann sem heillaði hana
eftir allan þennan tíma. Páll var
fljótur að vinna hylli okkar
systkinanna og allra sem
mamma þekkti. Það var ómet-
anlegt og yndislegt að sjá þau
saman eins og ástfangna ung-
linga. Þau voru ólík í útliti.
Hann mjög hávaxinn en hún
lágvaxin og þegar þau leiddust
tók hún 2-3 skref meðan hann
tók eitt. Þau voru hinsvegar að
mörgu leyti lík í sér og fundu
margt áhugavert til að gera
saman. Sérstaklega var áhuga-
vert hve margt fólk þau þekktu
bæði, t.d. á Norðurlandi, og
gátu skemmt sér við sögur það-
an. Páll var úr Fnjóskadal og
þekking hans á mönnum, mál-
efnum og staðháttum á því
svæði var einstök. Lengst af
var Páll hress þrátt fyrir að
glíma við ólæknandi sjúkdóm
og vildi reyndar helst ekkert
vera að ræða það sérstaklega.
Hann vildi miklu heldur tala um
eitthvað skemmtilegt. Hann
hafði gaman af því að fara með
og hlusta á kveðskap og ekki
var verra að húmor væri í kveð-
skapnum. Páll var hávaxinn og
myndarlegur og þó sjúkdómur-
inn reyndi að beygja hann, hélt
hann sínu beina baki og reisn
merkilega vel. Af miklum dugn-
aði hafði hann komið á fót fyr-
irtækinu Samverki fyrir tæpri
hálfri öld og stjórnað því um
áratuga skeið, en í dag er það
rekið af Ragnari syni hans. Páll
var hættur að vinna en hann
var ekki hættur að vera smiður.
Hann vildi alltaf athuga hvort
væri hægt að laga hlutina og
tókst það oftast. Eftir að hann
eignaðist rennibekkinn smíðaði
hann líka marga eigulega gripi
sem hann gaf vinum og vanda-
mönnum. Það má ekki gleyma
að minnast á áhuga hans fyrir
blómum og alls kyns ræktun.
Hann leigði land í nágrenni
Hellu, þar sem hann sinnti trjá-
rækt, og fylgdist með fugla-
varpi, svo lengi sem heilsan
leyfði. Þetta kallaði hann með
stolti „Búgarðinn“. Hann rækt-
aði blóm heima hjá sér og
styrkti reglulega blómasala víða
um land þegar hann keypti fal-
lega blómvendi við hin ýmsu til-
efni til að gleðja samferðafólk
sitt í lífinu. Við viljum þakka
fyrir að hafa kynnst Páli og er-
um þakklát fyrir hve hann
færði mikla gleði og innihald í
líf mömmu þessi rúmlega fimm
ár, sem þau þekktust.
Kæri Páll. Við minnumst þín
með virðingu og hlýju og Har-
aldur yngri vill senda „rúsínu-
kveðjur“!
Komið er að kveðjustund
þú kvaddur ert á æðri fund.
og eilífðina sérð!
Þú finnur eflaust friðland gott
fuglavarp og gróðurvott.
Já vinur, góða ferð!
(Haraldur Hauksson)
Haraldur, Jóhann Svanur,
Eiríkur, Laufey Sigrún, og
Haukur, börn Þórnýjar og
fjölskyldur þeirra.
Það var á vordögum árið
1991 sem ég hitti Pál tengda-
föður minn fyrst er ég kom með
Ragnari á heimili hans á Hellu,
en við Ragnar vorum þá nýlega
farin að draga okkur saman. Ég
man að ég var nokkuð feimin að
hitta föður kærastans í fyrsta
skipti, en hann tók mér afar vel
eins og ávallt síðan. Ég fann
strax að hann var traustur, yf-
irvegaður og ekki fyrir að trana
sér fram en var alltaf til staðar
þegar á þurfti að halda. Við
Ragnar fluttum á Hellu vorið
1994 og jókst þá samgangur á
milli okkar og Páls og Erlu,
sem bjó þá með Páli. Margar
skemmtilegar stundir áttum við
hjá þeim við að spila brids
þennan fyrsta vetur okkar á
Hellu. Þeir Ragnar unnu saman
í glerinu og við Erla kenndum
saman, þannig að samneyti var
mikið og ávallt gott.
Barnabörnin áttu alltaf vísan
stað hjá þeim Páli og Erlu en
þau voru okkur ómetanleg hjálp
á meðan börnin voru lítil, alltaf
tilbúin að gæta þeirra og hlaupa
undir bagga þegar einhver var
lasin eða sækja þurfti í leik-
skóla. Margar góðar minningar
eigum við fjölskyldan úr ferða-
lögum með Páli og Erlu og sér-
staklega eru minnisstæðar ferð-
irnar norður í land, í
Fnjóskadalinn og út á Flateyj-
ardal, þar var Páll í essinu sínu,
þekkti hvern hól og hverja þúfu
og sagði okkur frá örnefnum,
fólki og atburðum og þá var
ekki langt í grínið. Páll var góð-
ur sögumaður og kunni ógrynni
af skemmtisögum, vísum og
kvæðum sem við nutum góðs af.
Páll hafði áhuga á fuglum og
náttúrunni, hann hafði yfir að
ráða landskika við Hellu sem
hann kallaði búgarðinn sinn.
Þar plantaði hann trjám og
útbjó tjarnir til að gera landið
ákjósanlegt fyrir fugla. Barna-
börnin fengu að velja sér tré á
búgarðinum sem hann merkti
þeim svo þau gætu fylgst með
þeim vaxa. Þar er líka varða
sem hann hlóð fagmannlega og
eru steinarnir í hana komnir
víða að.
Ef framkvæmdir voru í gangi
hjá fjölskyldunni þá fylgdist
hann áhugasamur með enda
hafði hann mikinn áhuga á
framkvæmdum og gott var að
leita ráða hjá honum með þær
sem annað. Hann dyttaði að
ýmsu fyrir okkur og smíðaði, til
dæmis breytti hann forljótum
hurðum í fallegar fulningahurð-
ir í fyrsta húsinu okkar. Hann
undi sér ávallt vel við smíðar og
ekki síst við að lagfæra og gera
upp enda nægjusamur og nýt-
inn. Við sumarhúsið okkar
byggði hann lítið hús sem hann
gaf dætrum okkar, innréttað af
hagleik og útsjónarsemi. Dýr-
mætt er nú fyrir stelpurnar að
eiga þetta fallega hús til minn-
ingar um afa Pál.
Síðustu ár var Páll ekki góð-
ur til heilsunnar og það dró
mjög úr hans kröftum en hug-
urinn var þó alltaf fullfrískur,
allt undir það síðasta. Vildi
hann gjarnan geta framkvæmt
meira en heilsan leyfði því hann
vildi hafa nóg fyrir stafni. Hann
sinnti þó smíðum í bílskúrnum
eins lengi og hann gat og
renndi þar m.a. fallega gripi.
Það er skrítið að eiga ekki
lengur von á Páli í heimsókn en
hann var duglegur að líta inn
hjá okkur þegar hann var á
ferðinni, kíkti í kaffisopa og
spurði frétta.
Það er með virðingu og þökk
sem ég kveð Pál, tengdaföður
minn, í dag. Blessuð sé minning
hans.
Guðrún Dröfn
Ragnarsdóttir.
Ein af mínum fyrstu minn-
ingum um Pál móðurbróður
minn eru heimsóknir hans til
foreldra minna á Smáraflötina.
Mér fannst hann svo hár í loft-
inu og óttaðist alltaf að hann
myndi rekast upp í hurðark-
arminn þegar hann gekk inn í
húsið. Páll var virðulegur með
eindæmum, með fallega rödd
sem var hás en samt svo dimm
og karlmannleg. Heimsóknum
hans fylgdi ávallt gleði með
sögum og skemmtilegum kvæð-
um, sem hann kunni heil ósköp-
in af. Mikið þótti mér gaman að
fá hann frænda minn í heim-
sókn.
Árið sem ég varð sjö ára vor-
um við Brynja systir svo lán-
samar að fá að dvelja sumar-
langt hjá Páli frænda og
fjölskyldu hans á Hellu. Sá tími
var ævintýralegur fyrir tvær
litlar stelpur. Skemmtilegast
þótti okkur að fara með Páli
frænda í Kaupfélagið til að
kaupa ís og ýmsan glaðning.
Við vorum svo stoltar af frænda
okkar sem þekkti alla í þorpinu
og allir þekktu hann. Þetta
voru góðir tímar enda dreymdi
mig í mörg ár um að eiga heima
á Hellu þegar ég yrði stór. Þar
ríkti gleðin og þar var alltaf
gott veður eins og Páll sagði
svo oft og meinti það sannar-
lega.
Örlögin höguðu því þannig að
Páll frændi varð mín helsta
tenging við móðurætt mína. Þar
átti ég hauk í horni og fyrir það
verð ég honum ævinlega þakk-
lát. Ég minnist þess hversu
hvetjandi, uppbyggilegur og
ráðagóður hann var. Þau voru
ófá samtölin sem ég átti við
hann þar sem ég gat spurt hann
ráða varðandi lífið og tilveruna.
En fyrst og fremst var Páll
frændi traustur vinur.
Mér þótti afar vænt um það
þegar Páll gerði sér ferð árið
2004 alla leiðina til Lúxemborg-
ar til að heimsækja mig og fjöl-
skyldu mína. Var hann eins og
besti afi, fór með börnin í skól-
ann og spjallaði heilmikið við
þau. Honum þótti ætíð gaman
að rabba við yngri kynslóðina.
Páll heimsótti í þessari ferð
klaustrið í Clervaux og keypti
þar litla postulínsafsteypu af
hinu fræga verki „Pietà“. Þegar
heim kom stillti hann ekki verk-
inu upp inni hjá sér heldur
færði hann dvalarheimili aldr-
aðra það að gjöf með það fyrir
augum að fleiri fengju að njóta.
Þannig vildi Páll alltaf láta gott
af sér leiða og gera samfélaginu
til góða.
Til marks um áhuga Páls á
æskuslóðum sínum tók hann
saman fyrir nokkrum árum
handrit afa síns, Páls G. Jóns-
sonar frá Garði, og gaf út bók-
ina Flateyjardalsheiði, sem
fjallar um mannlíf og staðhætti
á Flateyjardalsheiði. Páll mátti
ekki til þess hugsa að þessi
vitneskja glataðist.
Páll var menntaður húsa-
smiður og þótt hann hafi ekki
starfað við þá iðn um áratuga
skeið þá munaði hann ekki um
að smíða heilan sumarbústað
eftir að hann var sestur í helg-
an stein. Þvílíkur handverks-
maður var hann. Mér er einkar
kær falleg skál sem hann
renndi úr trjávið úr Vaglaskógi
og færði mér að gjöf fyrir
nokkrum árum. Hann hafði fyr-
ir því að skera út nafnið mitt í
skálina með skrautstöfum.
Sumir eru meistarar í skák,
aðrir meistarar á skíðum en
Páll var stórmeistari í að vera
frændi. Hans verður sárt sakn-
að.
Við Magnús og börnin send-
um Ragnari, Guðrúnu og barna-
börnum Páls, sem og öðrum
ástvinum, okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Harpa frænka.
Í dag verður Páll G. Björns-
son kvaddur hinstu kveðju og
jarðsettur í Odda á Rangárvöll-
um. Viljum við votta honum
okkar virðingu með nokkrum
orðum. Þegar við fjölskyldan
settumst að í Odda að sumri
2006 gegndi hann embætti for-
manns sóknarnefndar Odda-
sóknar og gerði það til ársins
2007. Honum þótti vænt um
Oddakirkju og lagði mikinn
metnað í að umhverfi og aðbún-
aður væri sem bestur, því ekk-
ert minna fannst honum að
myndi sóma þeim merka stað
Odda. Hann hafði í formannstíð
sinni lagt mikla vinnu við að
byggja upp safnaðarheimilið á
Hellu og hafði umsjón með
þeim framkvæmdum ásamt þá-
verandi sóknarpresti. Hefur
safnaðarheimilið fest sig í sessi
í safnaðarlífi sóknarinnar og
nýst ekki síður samfélaginu öllu
á Hellu, sem Páli var einnig
annt um að gerði. Hann var
traustur og trúr í störfum sín-
um í þágu kirkjunnar og hafi
hann þökk fyrir það. Það var
gott að leita til hans á þessum
fyrstu árum mínum í prests-
skap enda var hann röskur,
ráðagóður, útsjónarsamur og
hafði af mikilli reynslu að miðla.
Það var okkur fjölskyldunni
einnig dýrmætt að hann lagði
sig fram um að mynda tengsl
við alla fjölskyldumeðlimi og
kannaði reglulega hvort okkur
öllum liði ekki vel og skorti
ekkert. Við hjónin og fjölskyld-
an þökkum honum kæra sam-
fylgd og vináttu og sendum fjöl-
skyldu hans okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Guðbjörg, Hreinn,
Freyr, Ásrún og Örn.
Ég set hér á blað nokkrar
minningar um vin minn til 45
ára, Pál G. Björnsson, allt frá
því hann var ráðinn til nýlega
stofnaðs hlutafélags Samverks,
glerverksmiðju á Hellu. Hlut-
hafar voru allmargir, flestir
með lítinn hlut en margir lögðu
fram vinnu við verksmiðjuhúsið
fyrsta. Það varð svo, að ég fékk
sem fulltrúi hluthafa að fylgjast
með rekstri fyrirtækisins í all-
mörg ár og þrautseigju Páls við
að halda Samverki á lífi, oft í
kreppu sem þá fylgdu vanskil
kaupenda svo og misliðlegir
bankamenn þegar mikið lá við.
Megum við íbúar byggðarlags-
ins þakka Páli og síðar syni
hans Ragnari, sem hélt áfram
myndarlegri uppbyggingunni
og ekki verður annað séð en
strákurinn standi sig vel. Þeir
feðgar höfðu yfir húsi að ráða
(byggt sem prentsmiðja) sem
vegna góðra samninga er nú að
hálfu Safnaðarheimili Odda-
sóknar. Þar átti Páll æði mörg
handtök og að hálfu er það tón-
leikasalur og æfingahúsnæði
fyrir kóra og félagasamtök auk
tómstunda- og handavinnu fyrir
eldra fólk úr sýslunni. Páll kom
víða við í starfi fyrir samfélagið,
allt frá íþrótta- og unglinga-
starfi til hreppsnefndarstarfa
og margt fleira mætti til taka.
Ég minnist Páls sem notalegs
ferðafélaga og er ofarlega í
huga Parísarferð er Samverk
stóð að. Páll var góður sögu-
maður og kom það vel fram í
þeirri ferð og mörgum ferðum
með Harmónikufélagi Rang-
æinga. Ég vil að lokum þakka
notalega og trausta samfylgd
þennan kafla í lífinu. Ég þakka
einnig þeim sem Páll valdi sér
til samfylgdar hverju sinni góð
kynni. Njóttu hvíldarinnar, vin-
ur.
Við Unnur vottum öllum að-
standendum samúð okkar.
Bragi Gunnarsson.
Halló, sæll Óli, er eitthvað að
frétta frá Hellu? Þú fréttir yf-
irleitt meira héðan en ég. Þann-
ig byrjuðu oft samtöl okkar
Páls G. Björnssonar, eða Palla í
Samverk eins og hann var oft-
ast kallaður. Með Palla er geng-
inn einn af gömlu kynslóðinni,
maður sem varð að leggja hart
að sér við rekstur fyrirtækis á
erfiðum tímum.
Palli var ráðinn fram-
kvæmdastjóri Samverks 1969
en þá var fyrirtækið nýstofnað
á Hellu. Nokkrum árum áður
hafði hann útskrifaðist sem tré-
smíðameistari í Reykjavík en
þar kynntist hann traustum
mönnum í stéttinni sem áttu
eftir að reynast honum vel í
rekstrinum. Ásamt samhentu
og duglegu starfsfólki tókst
Páll G. Björnsson HINSTA KVEÐJA
Páll er látinn, harmur að honum,
hann var maður verkastór,
líf sitt byggði á björtum vonum,
bætti það sem miður fór.
Verksmiðju reisti hér á Hellu,
hamhleypa mjög fylginn sér,
sumir töldu það tóma dellu,
að takast á við spegla og gler.
Þetta tókst og það með prýði,
þótt í byrjun fylgdi kvíði.
Á kveðjustund þessa mæta
manns
í minningu geymist lífið hans,
nú komin er heim til himnarans
og hvílir í faðmi Skaparans.
(Bj.Þ.)
Björgúlfur og Pálína.
Útfarar- og lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Jón G. Bjarnason
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Við önnumst alla þætti undir-
búnings og framkvæmd útfarar
ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu
og umhyggju að leiðarljósi
og af faglegum metnaði.