Morgunblaðið - 20.02.2016, Side 51
ÍSLENDINGAR 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 2016
vestan, m.a. í Singapúr, Taívan og
Japan.
Steinunn var í fiskvinnslu á
sumrin á æsku- og unglingsárunum,
breiddi fisk, vann í rækjuvinnslu á
Ísafirði, síld á Raufarhöfn og hjá
BÚR. Hún vann tvö sumur í Bún-
aðarbanka Íslands í Austurstræti á
menntaskólaárum og var verkstjóri
í unglingavinnunni hjá Vinnuskóla
Reykjavíkurborgar í átta sumur.
Steinunn var starfsmaður á
Borgarbókasafni 1968-70, kenndi
við Álftamýrarskóla í Reykjavík
1978-91 og var skólastjóri Álfta-
mýrarskóla 1991-2005. Þau hjónin
fluttu til Kanada 2005 er Markús,
eiginmaður hennar, var sendiherra
Íslands í Ottawa í rúm þrjú ár.
Steinunn hefur svo verið verk-
efnastjóri á skóla- og frístundasviði
Reykjavíkurborgar frá 2009.
Steinunn var trúnaðarmaður
kennara í Álftamýrarskóla og sat í
stjórn Kennarafélags Reykjavíkur.
Hún hefur lengi starfað í sam-
tökum Delta Kappa Gamma sem er
alþjóðlegt félag kvenna í fræðslu-
störfum og er nú formaður í Alfa-
deild félagsins.
Áhugamál Steinunnar snúast
fyrst og síðast um skóla- og
menntamál: „Við förum einnig mik-
ið á leik- og myndlistarsýningar
sem og tónleika. Ég fer oft í
Vesturbæjarlaugina þó ég sé nú
ekki fastagestur þar og svo er ekki
amalegt að fá sér kvöldgöngu í
gamla Vesturbænum.
Því eins og Tómas Guðmundsson
segir um vorið á þeim slóðum:
En er nokkuð yndislegra
- leit auga þitt nokkuð fegra -
en vorkvöld í vesturbænum?“
Fjölskylda
Eiginmaður Steinunnar er Mark-
ús Örn Antonsson, f. 25.5. 1943,
fyrrv. blaðamaður, fréttamaður
Sjónvarpsins, ritstjóri, útvarps-
stjóri RÚV, borgarstjóri, sendi-
herra og forstöðumaður Þjóðmenn-
ingarhúss. Foreldrar hans voru
Bertha Karlsdóttir, f. 16.5. 1921, d.
5.9. 2000, hárgreiðslukona og hús-
freyja í Reykjavík, og Anton Björn
Björnsson, f. 6.6. 1921, d. 25.11.
1943, íþróttakennari.
Börn Steinunnar og Marúsar eru
Sigrún Ása Markúsdóttir, f. 13.11.
1965, starfsmannastjóri í London,
en maður hennar er Jón Daníels-
son, hagfræðingur við London
School of Economics í London, og
Anton Björn Markússon, f. 6.1.
1971, hrl. í Reykjavík, en kona hans
er Helen Ólafsdóttir, sjóðstjóri hjá
Stefni fjárfestingafyrirtæki í
Reykjavík.
Barnabörnin eru Katrín Stein-
unn Antonsdóttir, f. 1993, há-
skólanemi, og Ísabella Tara
Antonsdóttir, f. 2003, grunn-
skólanemi.
Systkini Steinunnar: Halldór, f.
3.10. 1942, doktor í efnafræði, bú-
settur í Reykjavík; Guðbrandur, f.
19.5. 1944, d. 21.11. 2014, stærð-
fræðingur og menntaskólakennari í
Kaupmannahöfn; Áslaug, f. 19.10.
1947, grunnskólakennari á Seltjarn-
arnesi, og Halldís, f. 1.12. 1951,
framhaldsskólakennari í Reykjavík.
Foreldrar Steinunnar: Sigrún
Guðbrandsdóttir, f. 13.7. 1912, d.
27.3. 2002, kennari í Reykjavík, og
Ármann Halldórsson, f. 29.12. 1909,
d. 29.4. 1954, skólastjóri og náms-
stjóri í Reykjavík.
Úr frændgarði Steinunnar Ármannsdóttur
Steinunn
Ármannsdóttir
Bjarni Sveinsson
b. í Viðfirði
Guðrún Jónsdóttir
húsfr. í Viðfirði í S-Múlasýslu
Halldór Bjarnason
kaupm. á Ísafirði
Elísabet Bjarnadóttir
húsfr. á Ísafirði
Ármann Halldórsson
skólastj. og síðar námsstjóri í Rvík
Bjarni Sveinsson
b. á Hafrafelli N-Múlasýslu
Anna Kristín Bjarnadóttir
húsfr. á Hafrafelli í N-Múlasýslu
Björn Guðbrandsson
barnalæknir í Rvík
Elínborg Björnsdóttir
kennari í Kýrholti í Viðvíkursveit
Gunnhildur Björnsdóttir
húsfr. á Grænumýri í Blönduhlíð
Guðbjörg Björnsdóttir Bjarman
húsfr. á Akureyri
Jensína Björnsdóttir
búsett á Hofsósi, Sigluf. og í Rvík
Guðrún Björnsdóttir
húsfr. á Miklabæ í Blönduhlíð í Skagafirði
Halldór Halldórsson
prófessor í norrænum fræðum við
HÍ og orðabókarhöfundur í Rvík
dr. Björn Bjarnason
frá Viðfirði, fræðimaður og rithöfundur
Inga Dóra
Björnsdóttir
mannfræðingur
og rithöfundur
Haraldur Bessason
prófessor í íslensku við háskólann
í Winnipeg og rektor HA
Björn Jónsson
pr. í Keflavík og á Akranesi
og prófastur í Borgarfirði
Jón S. Bjarman
fanga- og síðar sjúkrahúsprestur
Ragnar Fjalar Lárusson
sóknarpr. í Hallgrímskirkju
Stefán Lárusson
sóknarpr. í Odda
Halldór
Halldórsson
ritstjóri
Guðfinna Jensdóttir
húsfr. á Miklabæ í Skagafirði
Guðbrandur Björnsson
prófastur í Viðvík og á Hofsósi
Anna Sigurðardóttir
húsfr. í Viðvík og á
Hofsósi í Skagafirði
Sigrún Guðbrandsdóttir
grunnskólakennari í Rvík
Sigurður Einarsson
útvegsb. í Pálsbæ og Litla-Seli
Sigríður Jafetsdóttir
húsfr. í Pálsbæ á Seltjarnar-
nesi og í Litla-Seli í Rvík
Guðbjörg Sigfríður Jónsdóttir
rithöfundur frá Broddanesi
Björn Jónsson
prófastur á Miklabæ
Bára fæddist í Hafnarfirði 20.2.1922. Foreldrar hennar voruSigurjón Einarsson, skip-
stjóri í Hafnarfirði, og Rannveig
Vigfúsdóttir húsfreyja.
Sigurjón var sonur Einars Ólafs-
sonar stýrimanns og Sigríðar Jóns-
dóttur húsfreyju, en Rannveig var
dóttir Vigfúsar Jónssonar og Ragn-
hildar Gestsdóttur húsfreyju.
Fyrri maður Báru var Kjartan
Sigurjónsson söngvari en seinni
maður hennar var Pétur Guðjónsson
framkvæmdastjóri sem lést 1983 og
eru synir þeirra Sigurjón og Guðjón.
Bára lauk prófi frá Kvennaskól-
anum í Reykjavík en flutti síðan til
Danmerkur þar sem hún lauk prófi í
danskennslu frá Dansskóla Fjeld-
gaard og Flatau 1939 og einnig leik-
fimi- og sundkennaraprófi frá Oll-
erup í Kaupmannahöfn. Hún lauk
einleikaraprófi á píanó frá Tónlistar-
skólanum í Reykjavík 1943 og síðan
diplómu frá Edmée-snyrtiskólanum
í Kaupmannahöfn sem snyrtifræð-
ingur árið 1946. Loks lauk hún
sveinsprófi í hattagerð frá Iðnskól-
anum í Reykjavík 1954.
Báru var margt til lista lagt og var
harðdugleg athafnakona. Hún starf-
rækti dansskóla í Hafnarfirði og í
Reykjavík á árunum 1939-43. Jafn-
framt því starfaði hún við undirleik
til 1950, söng, sýndi dans og vann við
snyrtingu auk þess sem hún sinnti
verslunarstörfum.
Bára stofnaði eigin tískuvöru-
verslun á Hverfisgötunni í Reykja-
vík, árið 1950, undir nafninu Hjá
Báru. Verslunin varð snemma ein
helsta og þekktasta kventískuversl-
un höfuðstaðarins en kjólar voru
lengst af aðalsmerki verslunarinnar.
Árið 2000 hætti Bára störfum í
versluninni eftir 50 ára farsælan
rekstur, þá 78 ára að aldri.
Bára var í hópi þekktustu kaup-
kvenna hér á landi. Hún var jafnan
hress og skemmtileg í viðmóti og
heimili þeirra Péturs var rómað fyr-
ir glæsileika og fagran húsbúnað.
Ingólfur Margeirsson rithöfundur
skráði bráðskemmtilegar endur-
minningar Báru. Bókin, sem nefnist
Hjá Báru, kom út hjá Erni og Örlygi
árið 1992. Bára lést 8.6. 2006.
Merkir Íslendingar
Bára Sigurjónsdóttir
Laugardagur
90 ára
Helga Torfadóttir
Viggó M. Sigurðsson
85 ára
Arnhildur Jónsdóttir
Sigrún Guðdís
Halldórsdóttir
Sylvía Ólafsdóttir
80 ára
Ragnhildur Jónsdóttir
Sigurberg Einarsson
75 ára
Elín Jónsdóttir
Roy Richard Roesel
70 ára
Guðmundur Kristjánsson
Gunnar Árnmarsson
Harald Sigurðsson
Jóhanna V.
Reginbaldursdóttir
Margrét S. Sigurðardóttir
Ólöf Þóra Ólafsdóttir
Steinunn Ármannsdóttir
Sæmundur Bjarkar
Árelíusson
60 ára
Arnleif Gunnarsdóttir
Gísli Jón Elíasson
Ingibjörg Auður Finnsdóttir
Kolbrún Linda Ísleifsdóttir
Magnús Magnússon
Magnús Pétursson
María Björk Wendel
Snjólaug Sigurbjörnsdóttir
Þorbjörg Atlad.
Sigríðardóttir
50 ára
Eiður Ottó Guðlaugsson
Gestur Skarphéðinsson
Guðjón Vilmar Reynisson
Guðrún Hauksdóttir
Ingunn Mjöll Sigurðardóttir
Margrét Jósefsdóttir
Maria Pisani
Sigríður Ruth Magnúsdóttir
Stefán Gunnar
Ármannsson
Þórður Vilberg Oddsson
Þórey Sigfúsdóttir
40 ára
Artur Walesiuk
Einar Rúnar Einarsson
Eiríkur Björnsson
Florevi Caspillo Abaygar
Hermann Jón Erlingsson
Hrólfur Már Helgason
Karl Ágúst Guðmundsson
Katerina Rázová
Magnús Örn Halldórsson
Ragip Bajraktari
Rebekka Rut S. Carlsson
Sigríður Dögg Þórðardóttir
Svavar Hrafn Svavarsson
Þóranna Dögg Björnsdóttir
30 ára
Bryndís Helgadóttir
Einar Örn Þrastarson
Eyrún Erla Ólafsdóttir
Guðrún Björk Magnúsdóttir
Hildur María Sævarsdóttir
Hólmsteinn Þór
Valdimarsson
Kolbrún Arnardóttir
Marianna Clemens
Mariola Ewelina Szulborska
Óskar Örn Eggertsson
Steinar Smári Hilmarsson
Örvar Már Jónsson
Sunnudagur
95 ára
Álfheiður Jónsdóttir
85 ára
Albert Wathne
80 ára
Arnbjörn Sigurbergsson
Ingibjörg S. Finnbogadóttir
Lilja Gunnarsdóttir
Sólveig Guðlaugsdóttir
Svava Gísladóttir
Þóra Sigurðardóttir
75 ára
Baldvin Hermannsson
Helgi Guðmundsson
Ósk Elín Jóhannesdóttir
Valgerður Anna Jónasdóttir
70 ára
Ásmundur S. Jónsson
Herbert Baxter
Inga Pála Björnsdóttir
Ingibjörg Óskarsdóttir
Kristín H. Kristinsdóttir
60 ára
Edmundas Kaminskas
Elín Alma Arthursdóttir
Guðrún A. Sigurvinsdóttir
Hildur Gunnarsdóttir
Hildur M. Blumenstein
Roman Stanislaw
Laskowski
Sigríður Birna Björnsdóttir
Þóra Elsa Gísladóttir
50 ára
Alma Björk Guttormsdóttir
Anna Birna Ragnarsdóttir
Dröfn Guðbjörnsdóttir
Elín Sigurborg Harðardóttir
Grzegorz Jackowski
Hallgrímur M. Alfreðsson
Hlynur Harðarson
Hörður Pálsson
Jacek Lewandowski
Laufey Hallgrímsdóttir
Marjakaisa Matthíasson
Ragnhildur Guðjónsdóttir
Valdimar Þorkelsson
Valur Geir Kjartansson
40 ára
Ashesh Man Baisyet
Delia Florentina Frumuselu
Edyta Stepniewska
Finnur Sigurðsson
Harpa Hafberg
Gunnlaugsdóttir
Helga Björnsdóttir
Helga Magnúsdóttir
Jóhannes Ægir
Kristjánsson
Krzysztof Jablecki
Miroslaw Tarasiewicz
Sigurður Arnar
Þorgrímsson
Sólrún Helga
Guðmundsdóttir
Victoria Aleksandersdóttir
30 ára
Adda Soffía Ingvarsdóttir
Antonio Jose Espinosa
Mossi
Anton Örn Guðjónsson
Ásbjörg Gústafsdóttir
Eyrún Eva Haraldsdóttir
Heimir Þór Óskarsson
Maria Lára Roure
Olga Pokrovskaya
Ólafur Ingi Guðmundsson
Sólrún Heiða
Sigurðardóttir
Tómas Þór Þorsteinsson
Til hamingju með daginn
Hægt er að senda
mynd og texta af
nýjum borgara eða
brúðhjónum af slóðinni
mbl.is/islendingar
eða á netfangið
islendingar@mbl.is
Börn og
brúðhjón
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 • Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 • Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 • alnabaer.is
Opið:
virka da
ga
10-18
GLUGGATJÖLD
– mi
kið úrval
Renndu við og fáðu lánaðar
gardínulengjur heim til að auðvelda valið
40 ára