Morgunblaðið - 20.02.2016, Side 52
52 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 2016
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þér kann að finnast eigin tilfinn-
ingasemi fullmikil í dag. Byrjaðu á því að
rýma til í kringum þig með því að henda því
sem þú notar ekki og þarft ekki á að halda.
20. apríl - 20. maí
Naut Tækifæri sem þú hefur þegar hafnað í
vinnunni munu líklega koma upp að nýju.
Ekki láta gylliboð og skyndigróða afvega-
leiða þig.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Vertu varkár þegar kemur að ósk-
um. Vertu viðbúinn því að verja málstað
þinn gagnvart furðulegustu rökum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú ert fullur hugmynda og sérð ekki
hlutina í réttu ljósi. Allt sem gerist í dag
virðist á einhvern hátt örlagavaldur. Reyndu
að gera sem mest úr því.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Vinnusemi þín er nú að skila þér áfram
að því marki sem þú hefur lengi stefnt að.
Reyndu aftur seinna í vikunni því þá gæti
verið að gæfan hefði snúist þér í hag.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Staða þín er sterk í dag og ekki fyrir
aðra að abbast upp á þig eða vera að agnú-
ast út í þín vinnubrögð. Mundu að réttlætið
sigrar alltaf að lokum.
23. sept. - 22. okt.
Vog Samskipti nútímans eru nær öll í
tækninni. Annars drukknar þú bara í óleyst-
um verkefnum. Kannski er einhver reiður yf-
ir því að þú hafir hærri tekjur en hann eða
hún.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er ekkert að því að njóta
fegurðar hlutanna svo framarlega sem þér
finnst þú ekki þurfa að eignast þá alla. Taktu
eitt verkefni fyrir í einu og gefðu þér tíma til
að anda á milli.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Meiriháttar atvinnutækifæri
kemur upp. Vertu stoltur af bæði andlegum
og líkamlegum örum – vegna þeirra ertu
áhugaverður.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Líklegt er að einhver muni veita
þér aðstoð eða gefa þér gjöf í dag. Líkaminn
þarf súrefni, vatn og næringu en sálin fram-
sýni.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Ef þú gætir þess að hafa allt á
hreinu máttu vænta þess að þér verði umb-
unað fyrir vel unnin verk. Vertu því ekki
smeykur þótt þér sýnist margt snúið.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú hefur látið reka á reiðanum með
heilsu þína en verður nú að taka þau mál
föstum tökum. Vertu því á varðbergi. Leyfðu
öðrum að njóta nærveru þinnar.
Sem endranær var síðasta gátaeftir Guðmund Arnfinnsson:
Fugl á sundi sjáum þann.
Sál manns kalla megum.
Anddyri það er í rann.
Oft á lofti grípum hann.
Hörður Þorleifsson svaraði og
sagði að gátan hefði fengið sig til
að leika með rím, – „að anda að sér
alveg að fullu er hluti af lífsins orku
og ást“:
Önd við land á sundi sást,
söng án mengaðs angurtrega.
Lungun fanga feng af ást.
Fundin hending endanlega.
Helgi R. Einarsson svarar:
Nú á reiki andinn er
við undurfagra strönd.
Það eina sem að hentar hér
held ég að sé önd.
Helgi Seljan á þessa lausn:
Önd á polli oft ég leit,
önd mín þráir sálarró.
Yzt í húsum önd ég veit
með öndina í hálsi þó.
Guðrún Bjarnadóttir leysir
gátuna þannig:
Við grafarbakkann blaktir önd
og brauð fær önd við þessa strönd.
Önd á lofti, í undrun, greip,
því önd er víst forstofan sleip.
Árni Blöndal svarar:
Oft ég önd á sundi sá.
Sál er andans kraftur.
Dyrnar opna oft ég má.
Andann gríp á lofti þá.
Sjálfur skýrir Guðmundur
gátuna þannig:
Önd við sjáum sundið þreyta.
Sál manns líka önd má heita.
Önd í rann er anddyrið.
Öndina móðir grípum við.
Síðan er limra:
Er birti í kofa kytrunum
og klakann leysi af sytrunum,
Jón skrapp niðr’á strönd
og skaut þar önd,
hann er nú í andarslitrunum.
Og ný laugardagsgáta:
Valfaðir í Valhöll heitir,
Vinsæll þorrablótum á.
Margur sitt í reiði reitir.
Á róðrarbát er þollur sá.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Með öndina í hálsinum
Í klípu
„ÞETTA ER EKKI PRIKIÐ
SEM ÉG HENTI TIL ÞÍN.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„HVERNIG GET ÉG VERIÐ OF HÆFUR?
ÉG HÆTTI Í SKÓLA ÞEGAR ÉG
VAR ÁTTA ÁRA!“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... björgunarbátur
fyrir tvo.
HÍ
HÍ
HÍ
HVAÐ ER SVONA
FYNDIÐ?
KLEINUHRINGURINN SEM
ÞÚ ÁST Í MORGUN?
ÉG FALDI
VÍTAMÍNIÐ
ÞITT Í HONUM!
ÞETTA?
JÁ?
HÚN
BROSIR!
ER ÞAÐ
GÓÐS
VITI?
ÉG SET UPP SAMA
SVIP ÞEGAR ÉG KEM
Á HÁDEGISVERÐAR-
HLAÐBORÐIÐ!
NEI…
Víkverji horfir ekki mikið á sjón-varp … enn. Þetta viðkvæði
heyrir hann sjálfan sig segja alltof
oft. Svo kemur upp úr kafinu að Vík-
verji horfir mun meira á sjónvarp en
hann vill vera að láta. Samt heldur
hann áfram að fullyrða að hann fylg-
ist ekki mikið með þáttum í sjón-
varpinu öðru en sjónvarpsfréttum
og Kastljósi af og til. Vill hann
meina.
x x x
Það sem Víkverji horfir á í sjón-varpinu og fylgir dagskránni
samviskusamlega eru íslensku þætt-
irnir Ófærð. Honum finnst þeir á
margan hátt fínir og bíður spenntur
eftir að sjá tvöfaldan lokaþátt sem
sýndur verður á morgun.
Honum finnst það vel til fundið að
smella þeim saman til að draga þetta
ekki of mikið á langinn. En fyrir-
fram er hann samt örlítið efins um
að það sé svo snjallt þegar öllu er á
botninn hvolft. Ástæðan er sú að
fram að þessu þá hefur honum þótt
þættirnir vera fulllangdregnir og
hægir. Víkverji er samt orðinn
óþreyjufullur yfir því að fá að vita
hvernig allt er í pottinn búið og hver
myrti hvern. Víkverji áttar sig á því
að það er ekkert eins og það sýnist í
fyrstu. Það er alveg eins og það á að
vera í góðum glæpaþætti.
x x x
Það er í rauninni tvennt sem vegurhvað þyngst í því að Víkverji
fylgist með Ófærð. Hið fyrra er
tímasetningin: sunnudagskvöld þeg-
ar barnið er sofnað er tilvalið að
hreiðra um sig í sófanum og eiga
prýðisgott sjónvarpskvöld með betri
helmingnum. Hitt er að þættirnir
eru íslenskir. Víkverja finnst það
vera skylda sín sem Íslendings að
horfa á íslenskt efni og styðja það
með öllum mögulegum hætti. Þó að
Ófærð endurspegli ekki tilveru Vík-
verja nema að litlu leyti – því hann
hefur hvorki myrt mann né upplifað
eitthvað í líkingu við það sem per-
sónurnar gera þá snúast þættirnir
ekki um það. Ekki heldur um sam-
runa bæjarfélaganna sem skapa
sögusviðið heldur skáldskapinn
sjálfan. Þetta er skáldskapur og það
á að horfa á þættina sem slíkan því
þar gilda allt önnur lögmál en í veru-
leikanum. víkverji@mbl.is
Víkverji
Sælir eru þeir, sem hungrar og þyrstir
eftir réttlætinu, því að þeir munu
saddir verða. (Matt. 5:6)