Morgunblaðið - 20.02.2016, Qupperneq 57

Morgunblaðið - 20.02.2016, Qupperneq 57
TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Einu sinni á ári kemur lands-lýður saman og hártogastum dægurtónlist og gildirþá einu hvort um er að ræða leikskólabörn eða ömmu gömlu. Einu sinni á ári finnur þú þig á gangi háskólans að ræða gildi viðlagsins í einhverju Eurovision-laginu ásamt Gumma frænda og háskólaprófessor sem dróst að heitum samræðunum. Einu sinni á ári ætlar þú varla að nenna að fylgjast með Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva en áður en þú veist af ertu djúpt sokkinn og allt í einu er „eitthvað við þetta“ lag sem þér fannst alveg síðasta sort fyr- ir tveimur vikum. Samfélagsleg virkni keppninnar sem allir hata að elska og elska að hata er dásamleg. Hér fara pælingar mínar um þau lög sem keppa til úr- slita í ár hér á landi elds og ísa. Hear them calling / Raddirnar Lag og texti: Greta Salóme Stefáns- dóttir Flytjandi: Greta Salóme Stefánsdóttir Draumkennt upphaf sem svo snýst upp í taktvissa framvindu, ætt- bálkatrommur lúra undir en svo er blástur í viðlaginu og þessi hrópandi, klappandi samsöngur að hætti Of Monsters And Men sem er afar móð- ins nú um stundir. Það er knýjandi kraftur í textanum; ótti, hræðsla og dularfullar raddir á sveimi. Lagið er vel samið upp á þessi drífandi ein- kenni, versin halda manni spenntum fyrir viðlagið sem svo springur út af krafti. Epíkin er þó ekki yfirdrifin, þetta er allt í smekklegu jafnvægi. OMAM í Eurovision-gír í raun, vel yf- ir meðallagi en sigrar þetta varla, ef ég á að leggja kaldan dóm á þetta. I promised you then / Hugur minn er Lag og texti: Þórunn Erna Clausen. Flytjendur: Hjörtur Traustason og Erna Hrönn Ólafsdóttir Fremur hefðbundin smíð í milli- takti, sígildur Eurovision-dúett og dálítið miðevrópskur að sniði. Ábúð- arfullt nokkuð, allt er undir því hvort Hjörtur og Erna ná sannfærandi tengingu sem þau og gera. Erna er fyrirtaks söngkona og gerir þetta af fagmennsku og leggur tilfinningu í flutninginn. Hjörtur er og góður, kannski fullviðkvæmnislegur, en við- laginu rúlla þau upp á sannfærandi hátt. Lagið geldur helst fyrir að vera aðeins of venjulegt, versin eru þá betri en viðlagið, sem siglir um of kunnugar strendur. Eye of the storm / Óstöðvandi Lag: Kristinn Sigurpáll Sturluson, Ylva Persson og Linda Persson Texti: Ylva Persson og Linda Persson Flytjandi: Karlotta Sigurðardóttir Hráar rafgítarstrokur opna þetta lag en fljótlega kemur Karlotta inn af krafti og beitir m.a. fyrir sig Adele- legum fraseringum í söngnum. Það er ekki annað hægt en að dást að söng hennar, þó að hann sé fullstælalegur á stundum. Lagið er þó fullflatt, við- lagið er ekki alveg að gera sig, það vantar meiri brodd þar og svipaða sögu er að segja af versunum. Það er sett smá túrbó í smíðina undir restina með lögboðinni hækkun en sú brella gerir lítið fyrir heildina. Ready to break free / Springum yfir heiminn Lag: Júlí Heiðar Halldórsson Texti: Guðmundur Snorri Sigurðarson Flytjendur: Þórdís Birna Borgars- dóttir og Guðmundur Snorri Sigurð- arson Píanóstef í upphafi, melódísk söng- lína frá Þórdísi og undirliggjandi drama og svo skipt harkalega yfir í hipp-hoppið. Hér eru menn með á nótunum og sambland Guðmundar og Þórdísar giska vel heppnað. Lagið á þó meira undir þessum umbúnaði fremur en eiginlegu innihaldi, lagið sjálft er svona la la að gæðum. Undir endann er meira að segja OMAM- viðlagi hent inn (oooó-oooó-oooó) , svona til að hafa þetta alveg öruggt ábyggilega! Það er stíll yfir þessu, ungæðislegt og smart og þetta gæti farið langt. Á ný Lag og texti: Greta Salóme Stefáns- dóttir Flytjandi: Elísabet Ormslev Stóreflis smíð þetta og Elísabet stendur í stafni, keik og klár, enda á hún ekki langt að sækja sönghæfi- leikana. Adele-blær yfir þó að Elísa- bet sé síst að apa eftir henni í söng- stíl. Það er svona lúmskur kraftur í henni, hún heldur smekklega aftur af sér út í gegn en lætur svo vaða – temmilega þó – í viðlaginu. Greta Sal- óme er einkar lagið að semja svona nett óperuleg popplög, hún fer aldrei út í algjöra geðveiki í epíkinni heldur er með bönd á henni út í gegn og eig- inlega stríðir okkur þannig. Það er eitthvað aðlaðandi við þetta lag og náttúruleg útgeislun Elísabetar gerir mikið fyrir það. Now / Augnablik Lag: Alma Guðmundsdóttir og James Wong Texti: Alma Guðmundsdóttir og James Wong Flytjandi: Alda Dís Arnardóttir Alda er söngkona af Guðs náð og hún afgreiðir þessa smíð af mikilli list. Þetta er haganlega samið lag og módernískt, höfundar greinilega eldri en tvævetur í popplagabransanum sem er og raunin. Framvindan er áreynslulaus, Alda fylgir laglínunni snurðulaust og bakraddir styðja við á áhrifaríkan hátt. Versið er smekklegt og viðlagið punkturinn yfir i-ið ein- hvern veginn. Lagið er hæglega það besta sem er í boði hér, það hefur „gripið mig“ og gæti „gripið hvern sem er“ en við spyrjum að leikslokum. Það er allt mögulegt í Eurovision. Söngvakeppnin 2016 „Kósí lítil lög …“  Úrslitin í Söngvakeppni Ríkissjónvarpsins ráðast í kvöld  Rýnt af alefli sem alúð í lögin sex sem keppa í Háskólabíói 900-9901 Greta Salóme Stefánsdóttir syngur Hear them calling, en hún er höfundur bæði lags og texta. 900-9902 Hjörtur Traustason og Erna Hrönn Ólafs- dóttir syngja saman lagið I promised you then. 900-9904 Þórdís Birna Borgarsdóttir og Guðmundur Snorri Sigurðarson flytja Ready to break free. 900-9903 Karlotta Sigurðardóttir syngur Eye of the storm og þykir minna á Adele í söngstíl sínum. 900-9905 Elísabet Ormslev syngur Á ný. Hún er eini keppandinn sem syngur á íslensku í keppni kvöldsins. 900-9906 Alda Dís Arnardóttir syngur Now, sem greinarhöfundur lýsir sem haganlegri lagasmíð. MENNING 57 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 2016 Íslenska dómnefndin í Söngva- keppninni verður í ár kjör- dæmaskipt í fyrsta skipti og skipuð 18 fagmönnum. Þeirra á meðal eru Þórunn Gréta Sigurðardóttir, Eið- ur Arnarsson, Védís Hervör Árna- dóttir, Gissur Páll Gissurarson, Bjarney Ingibjörg Gunnlaugsdóttir og Ólafur Páll Gunnarsson. Atkvæði dómnefndar og síma- atkvæði landsmanna vega jafnt í fyrsta vali. Þá kemur í ljós hvaða tvö lög eru stigahæst og þegar þau hafa verið flutt aftur verður kosið á ný . Í það skipti ráðast úrslitin ein- göngu með símakosningu. 18 í dómnefnd ZOOLANDER 2 2, 5:50, 8, 10:10 DEADPOOL 4:30, 8, 10:20(P) ALVIN & ÍKORNARNIR 1:50, 3:50, 5:50 ÍSL.TAL THE REVENANT 7 THE BOY 10:10 NONNI NORÐURSINS 1:50, 3:50 ÍSL.TAL LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Miðasala og nánari upplýsingar POWERSÝNING KL. 10:20 TILBOÐ KL 2 TILBOÐ KL 1:50 TILBOÐ KL 1:50 -T.V., Bíóvefurinn –– Meira fyrir lesendur ÍMARK DAGUR Föstudaginn 4. mars gefur Morgunblaðið út sérblað, tileinkað ÍMARK deginum PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA Fyrir kl. 12, þriðjudaginn 1. mars NÁNARI UPPLÝSINGAR Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is Íslenski markaðsdagurinn verður haldinn hátíðlegur með veglegri ráðstefnu í Háskólabíói 4. mars.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.