Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.03.2016, Qupperneq 35
Úr sumarlínu Bouchra
Jarrar 2016. Hönnun
Jarrar einkennist mikið
til af mínimalisma.
Bouchra Jarrar tók nýverið við sem listrænn stjórnandi elstatískuhúss Frakklands, Lanvin. Forveri hennar í starfi, Al-ber Elbaz, var látinn fara eftir að hafa starfað sem yfir-
hönnuður Lanvin í 15 ár. Jarrar fæddist í Cannes árið 1970 en for-
eldrar hennar eru marokkóskir. Hún útskrifaðist úr
Duperré School of Applied Arts í París árið 1994, þá 24 ára gömul,
og hóf að strax að starfa innan tískuheimsins, meðal annars við
skartgripagerð hjá tískuhúsinu Jean Paul Gaultier. Tveimur árum
seinna hóf Jarrar störf hjá franska tískuhúsinu Balenciaga þar sem
hún var yfirmaður stúdíósins. Hún starfaði hjá Balenciaga í áratug
eða þar til 2006 að hún fékk stöðu yfirhönnuðar hátískulínu Christi-
ans Lacroix. Þar starfaði hún í þrjú ár eða þar til hún stofnaði eigin
hátískulínu, Bouchra Jarrar, árið 2010, eftir að hafa fengið mikla
hvatningu hjá Lacroix.
Jarrar er mínimalískur hönnuður. Hún hefur mikið sótt inn-
blástur í sjöunda áratuginn í sínum fyrri línum auk þess sem hún
leggur ríka áherslu á útsaum og vönduð smáatriði.
Jarrar greindi frá því í viðtali við tímaritið WWD að
þegar hún hæfi störf hjá Lanvin myndi hún helga sig
starfinu. Því telja tískuspekúlantar ekki líklegt að hún
muni halda áfram að hanna línur fyrir Bouchra
Jarra.
Jarra er fjórða konan sem stýrir tísku-
húsinu Lanvin, sem var stofnað árið 1889.
Hún mun gegna starfi yfirhönn-
uðar kvenlínu tískuhússins.
Það þótti mikil eftirsjá að
Alber Elbaz og mótmæltu aðr-
ir starfsmenn Lanvin upp-
sögninni. Elbaz er þekktur
fyrir ákaflega glæsilega kjóla og
kokteilklæðnað og því má gera
ráð fyrir töluverðum breytingum
hjá Lanvin þar sem Jerra er þekkt
fyrir fágaðan einfaldleika. Þó er
stefna fyrirtækisins að halda í glæsi-
lega kjóla og kokteilklæðnað sem
verður áberandi ásamt einföldum
fatnaði í anda Bouchra Jarrar.
Bouchra Jarrar tók nýverið við sem yfirhönn-
uður elsta starfandi tískuhúss Frakklands,
Lanvin. Jarrar er fjórða konan sem stýrir
hönnunardeild hússins.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Bouchra Jarrar hefur tekið við sem
yfirhönnuður Lanvin.
AFP
Alber Elbaz var látinn hætta eftir 15
ár hjá tískuhúsinu.
Úr sumarlínu Albers Elbaz fyrir
Lanvin 2016. Línan einkennist af
fallegum formum og glæsileika.
Einfaldleiki í
bland við hátísku
20.3. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35
Vila
7.490 kr.
Stutterma galla-
skyrta. Falleg við til
að mynda gallabuxur.
Kastanía
31.990 kr.
Þetta úr frá Tiwa er
ofboðslega fallegt.
Selected
49.990 kr.
Vandaður rúskinns-
jakki í rústrauðum lit.
Gallerí 17
52.995 kr.
Síð, hneppt leðurskyrta
er falleg yfir gallabuxur
eða þykkar sokkabuxur
og strigaskó.
Bianco
13.990 kr.
Támjó ökklastígvél eru
fáguð og passa við flest.
Í þessari viku...
Sigurborg Selma
sigurborg@mbl.is
Það er nauðsynlegt að eiga gott úrval af
grunnflíkum sem henta við mörg tilefni og
auðvelt er að poppa upp með skarti og öðr-
um aukahlutum. Klassískir hælar, góðar
gallabuxur og þægilegur jakki eru flíkur sem
eiga oft við og auðvelt er að para við
mismunandi flíkur og snið.
Net-a-
porter.com
24.382 kr.
Æðislegt síma-
hulstur frá
Saint Laurent.
Eva
17.995 kr.
Þröngar
gallabuxur
frá Samsøe
& Samsøe.
Hugo Extreme er ný útgáfa
af hinum goðsagnakennda ilmi
Hugo Man frá árinu 1995. Nýi
lmurinn er þó eilítið krydd-
aðri en Hugo Man.
sigurborg@mbl.is
Essie naglalökkin eru mjög
endingargóð og fáanleg í fjöl-
mörgum litum. Petal Pushers
er fallegur litur úr vorlínu Essie.
Hugo Woman Extreme
er ný útgáfa af ilminum
Hugo Woman frá Hugo
Boss. Ferskur og kvenlegur
blómailmur.
Nýtt