Morgunblaðið - 29.03.2016, Qupperneq 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 9. M A R S 2 0 1 6
Stofnað 1913 72. tölublað 104. árgangur
SPÆNSK MENNING
OG LIST FYRIR
UTAN SAND OG SÓL
HELLIR OG
MÁTTUR
FRÖNSKU
LYFJALAUST
LAXELDI EINSTAKT
Á HEIMSVÍSU
ENDURBYGGING 12 HREINLEIKI Á ÍSLANDI 20SAGA OG HEFÐ 34
Um 30 þúsund
mál komu til
kasta borgara-
þjónustu utan-
ríkisráðuneytis-
ins á síðasta ári.
Þegar neyðar-
ástand kemur
upp erlendis þar
sem íslenska rík-
isborgara er að
finna er þjón-
ustan ræst í gang ásamt bakvakt-
arteymi, líkt og gerðist núna síðast
eftir hryðjuverkin í Brussel.
Áætlað er að um 40 þúsund Ís-
lendingar séu búsettir erlendis og
því margir sem geta þurft á þjón-
ustunni að halda.
Líkt og vegna Brussel fer við-
bragðsáætlun í gang þar sem verk-
lagsreglur eru samræmdar og skjót
viðbrögð starfsmanna ráðuneyta,
sendiskrifstofa og ræðismanna eru
tryggð. Leitast er við að staðsetja
íslenska ríkisborgara erlendis,
tryggja öryggi þeirra og eftir at-
vikum koma þeim á öruggan stað.
Samfélagsmiðlar gegna þar lykil-
hlutverki í dag. »15
30 þúsund mál á
borði íslensku borg-
araþjónustunnar
Minningarathöfn
í Brussel.
Fleiri farþegar
» Heildarfjöldi farþega árið
2016 er áætlaður 6,7 milljónir
manns. Það er fjölgun um 1,9
milljónir á milli ára.
» Starfsfólki verður fjölgað og
flugstöðin stækkuð í ár.
Laufey Rún Ketilsdóttir
laufey@mbl.is
Alls hafa 25 flugfélög boðað komu
sína til Íslands í sumar. Hefur flug-
félögunum því fjölgað um fimm frá
árinu 2015 þegar 20 félög lentu hér á
landi með farþega sína. Er þetta
töluverð fjölgun en árið 2010 voru
flugfélögin einungis tíu talsins og
fimm árið 2005.
Flugfélögin sem hingað hafa kom-
ið eiga uppruna víða um heim en sem
dæmi má Lufthansa, Easy Jet, Pri-
mera Air, Air Berlin, Lux Air, Air
Greenland, Czech Airlines, SAS og
Sun Express. Stærsta félagið sem
flýgur hingað til lands í sumar með
tilliti til farþegafjölda er Easy Jet.
Áætlað er að um 6,7 milljónir far-
þega fari um Keflavíkurflugvöll í ár
en til samanburðar fóru um 4,8 millj-
ónir manna um völlinn í fyrra. Þar á
meðal eru komu-, brottfarar- og
skiptifarþegar og því eykst heildar-
álag á flugvöllinn milli ára.
Starfsfólki í Leifsstöð hefur verið
fjölgað til að koma til móts við aukið
álag og flugstöðin sjálf stækkuð, seg-
ir Guðni Sigurðsson, upplýsingafull-
trúi Isavia, við Morgunblaðið.
Metfjöldi flugfélaga í sumar
25 erlend flugfélög með ferðir til og frá Íslandi í sumar Voru fimm árið 2005
Heildarfjöldi farþega áætlaður 6,7 milljónir í ár Isavia bregst við fjölguninni
MFjölgun um 1,9 milljónir »4
AFP
Ofbeldi Fjórir sem slösuðust í árás-
unum fyrir viku eru látnir.
Belgísk yfirvöld hafa skýrt frá því
að tala látinna eftir hryðjuverka-
árásina á þriðjudaginn fyrir viku sé
nú komin upp í 35 að vígamönn-
unum sjálfum meðtöldum. Ástæða
þess að tala látinna hækkar er að
fjórir sem særst höfðu í árásinni eru
nú látnir.
Viðbúnaður er enn mikill í Bruss-
el og hefur lögreglan í Belgíu gert
húsleit víða og búið er að handtaka á
annan tug einstaklinga. Lögreglan í
Hollandi handtók á páskadag
Frakkann Anis B í Rotterdam og
fundust skotfæri í húsi hans. Grun-
ur leikur á því að hann hafi verið að
undirbúa árás í Frakklandi.
Sleppt úr haldi lögreglu
Í Belgíu þurfti ríkissaksóknari að
sleppa úr haldi Faycal Cheffou en
hann er talinn vera maðurinn sem
sést ganga um Zaventem-flugvöll
með hryðjuverkamönnunum tveim-
ur rétt áður en þeir sprengdu sig
upp. Faycal Cheffou var látinn laus
vegna skorts á sönnunargögnum,
að sögn ríkissaksóknara í Belgíu.
Hryðjuverk í Pakistan
Yfir 70 manns létu lífið í sjálfs-
morðsárás í almenningsgarði í borg-
inni Lahore í Pakistan á páskadag
og fleiri en 300 manns eru særðir.
Árásinni var beint gegn kristnum
sem voru samankomnir til að fagna
páskum. Árásin var gerð nærri
barnaleikvelli og er talið að um 30
börn séu meðal látinna. Klofnings-
hópur úr röðum talibana hefur lýst
yfir ábyrgð á verknaðinum og sagt
hann beinast gegn kristnum. »18
Fleiri fórnarlömb fallin í Brussel
Einn handtekinn í Hollandi Yfir 70 látnir eftir hryðjuverkin í Pakistan
Landsmenn voru á ferð og flugi um páskana að
vanda. Fjöldi var á tónlistarhátíðinni Aldrei fór
ég suður á Ísafirði, sumir héldu til fjalla á jepp-
anum góða eða sleðanum en flestir sem völdu
ævintýri í snjónum spenntu á sig skíði eða bretti.
Veður var gott víðast hvar og skíðabrekkurnar
iðuðu af lífi, t.d. í Hlíðarfjalli við Akureyri þar
sem myndin var tekin í gær. Sumir vita að mik-
ilvægt er að hvíla sig vel á milli ferða! »10-11
Stund milli stríða í Hlíðarfjalli
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Fjölmennt í skíðabrekkum landsins um páskahelgina
Bandaríska
dómsmála-
ráðuneytið hef-
ur fellt niður
kröfu á Apple
um að opna
síma í eigu
manns sem
gerði árás í San
Bernardino í
Kaliforníu í
desember sl.
Alríkislögreglan í Bandaríkjunum,
FBI, hefur tekist að opna símann
með hjálp þriðja aðila.
Apple neitaði að verða við kröf-
um FBI um að komast fram hjá
öryggiskerfum iPhone-síma fyrir-
tækisins. Fyrirtækið sagði að kraf-
an stæðist ekki ákvæði stjórnar-
skrárinnar og ef fyrirtækið yrði að
opna símann myndi það eyðileggja
það traust sem allir iPhone not-
endur bera til Apple.
FBI komst inn í sím-
an án leyfis Apple
iPhone frá Apple.
Sýrlenski stjórnarherinn hefur
náð menningarborginni Pal-
myra á sitt vald en liðsmenn
Ríkis íslams tóku hana fyrir 10
mánuðum. Þrátt fyrir mikla
eyðileggingu Ríkis íslams á
fornminjum í borginni, sem er á
heimsminjaskrá UNESCO, telja
fornleifafræðingar að byggja
megi hana upp á fimm árum.
Ríki íslams er að hörfa á
flestum vígstöðvum í Sýrlandi
og Írak. »19
Palmyra í Sýr-
landi frelsuð
RÍKI ÍSLAMS GEFUR EFTIR