Morgunblaðið - 29.03.2016, Qupperneq 34
34 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MARS 2016
Hlaupakettir
og talíur
Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288
Skaft- og keðjutalíur úr áli og stáli
- lyftigeta allt að 9000 kg.
Rafdrifnar keðjutalíur
- lyftigeta allt að 4000 kg.
FLATKÖKUR
Þótt Spánn sé fyrsta val Íslendinga
þegar kemur að því að velja áfanga-
stað til að heimsækja þá má segja
að langfæstir sem sækja landið
heim kynnist því sem Spánverjar
myndu segja að væri ekta Spánn.
Benidorm, Magaluf, Marbella, Pla-
ya del Inglés, Costa del Sol y
Torrevieja eru staðir sem eiga það
sameiginlegt að þar sleikja Íslend-
ingar sólina og snæða mat á kvöldin
án þess að komast í snertingu við
innfædda, segir Margrét Jónsdóttir
Njarðvík, vararæðismaður Spánar á
Íslandi og eigandi menningar-
ferðaskrifstofunnar Mundo.
„Það er líka frábært því við þurf-
um á sólinni að halda.“
Úr akademíu í ferðamennsku
Margrét er spænskufræðingur að
mennt en hún lauk doktorsprófi í
spænsku frá Princeton. Eftir 25 ár í
akademíunni söðlaði hún um og
stofnaði ferðaskrifstofuna Mundo
sem sérhæfir sig í ferðum sem hún
segir vera um „ekta“ Spán.
„Þetta var rökrétt framhald á
starfsferli mínum sem gekk út á að
miðla spænskumælandi menningu
til nemenda hér á Íslandi. Nú hef
ég snúið þessu við og fer með Ís-
lendinga til Spánar þar sem ég býð
þeim að tengjast innfæddum milli-
liðalaust. Flestar ferðirnar sem ég
býð uppá byggjast líka á persónu-
legum tengslum mínum við Spán.
Ég var t.d. skiptinemi í bænum
Zafra í Extremadurahéraði á Spáni
– héraði sem afar fáir Íslendingar
þekkja. Nú rúmum 30 árum síðar
þá fer ég í þorpið með 30 ungmenni
á aldrinum 14-18 ára sem dvelja á
heimilum í þorpinu þar sem eru
ungmenni á sama aldri. Slíkt væri
óhugsandi ef vinkona mín væri ekki
aðstoðarskólameistari í mennta-
skólanum og önnur vinkona mín
væri ekki í bæjarstjórn.“
Með þeirra hjálp segir Margrét
tryggt að öll ungmennin dvelja á
öruggum heimilum og vitaskuld
læra íslensku krakkarnir helmingi
meira á því að vera inni á heimilum
þar sem er unglingur á sama aldri
en ef þau eru öll saman á heima-
vist.
Menning og list ekki bara
sandur og sól í ferðunum
Margrét er alin upp í ferða-
mennsku og því er ferðaskrifstofan
Mundo eðlilegt framhald á starfs-
ferli hennar, segir hún. Aðspurð
segist hún ekki ætla að flytja Ís-
lendinga á sólarstrendur heldur
muni hún sérhæfa sig í að nota sér-
þekkingu sína á Spáni til að búa til
ævintýri fyrir fólk.
„Ég trúi á að menntun, skemmt-
un, menning og þjálfun geri allar
ferðir skemmtilegar og tel að land-
inn vilji öðruvísi ferðir, vilji kynnast
því hvernig venulegt fólk lifi lífinu á
Spáni. Vinsældir ferðanna um Jak-
obsveginn sýna það glöggt að fólk
vill öðruvísi ferðalög. Í ferðunum
um Jakobsveg leggur fólk heilmikið
á sig líkamlega því flesta daga eru
gengnir um það bil 20 kílómetrar
eða hjólaðir 60 kílómetrar. Í slíkri
ferð er farið um sveitahéruð sem
aldrei eru í alfaraleið og gefst fólki
tækifæri til að tengjast öðrum á
sömu leið og fá allt aðra sýn á Spán
en hefur verið í boði hingað til.“
Fræðimaður og ferðafrömuður
Fræðistörf og fræðimennska hafa
einnig heillað Margréti en hún var
t.d. aðalritstjóri spænsk-íslensku og
íslensk-spænsku orðabókarinnar
auk þess að hafa komið að annarri
útgáfu. Henni hefur tekist vel að
tengja fræðimennskuna og ferða-
lögin og segir menningartengdu
ferðamennskuna m.a. byggjast á
sérþekkingu sinni á spænskri tungu
og bókmenntum.
„Í ferðirnar mínar legg ég allt
sem ég hef safnað í sarpinn í gegn-
um lífið og veit að virkar. Þannig er
ég jógakennari og nota það meira
að segja þegar ég kenni unglingum
málfræði í sumarbúðunum á Spáni.
Það gekk svo vel í fyrra að krakk-
arnir báðu um meira af slíku. Þá lét
ég þau gera sólarhyllinguna á sama
tíma og við beygðum sagnir. Það
svínvirkaði,“ segir hún og skelli-
hlær.
„Margir Íslendingar halda nefni-
lega að Spánn sé takmarkaður við
nautaat og senjorítur en þegar þeir
komast að því hversu rík saga land-
ins er, hversu merkileg listasagan
er og hversu dásamlegur maturinn
er þá opnast nýr heimur fyrir
fólki.“
Þá segir Margrét Spánverja ekki
bara lifa á fornri frægð því mann-
lífið og samfélagið sé mjög fjöl-
breytt í dag og á mikilli siglingu.
„Mjög fáir vita að Spánverjar
vinna nú ár eftir ár heimsmeist-
aratitilinn í matargerðarlist, sem og
alþjóðlegu arkitektaverðlaunin.
Enn færri vita að þeir eru bestir í
líffæraflutningum og að þeir stýra
helmingi allrar flugumferðar í Evr-
ópu og búa til bestu hraðlestir og
vindmyllur í heimi. Það eru einmitt
þessi atriði sem unun er að miðla til
fólks í ferðum um landið.“
Mannleg tengsl og minningar
Gott ferðalag á að auka á þekk-
ingu okkar og víðsýni og skapa góð-
ar minningar.
„Að geta tengt fólk beint við inn-
fædda dýpkar upplifun ferðamanns-
ins og kveikir áhuga á að vita
meira, læra tungumálið og búa til
skemmtilegar minningar á fleiri
stöðum. Þannig er ég nú að skipu-
leggja ferðir með hópum sem hafa
gengið með mér áður á nýjar og
spennandi slóðir. Margir hafa farið
með mér um Spán og nú í haust
verð ég með fyrstu ferðina til Róm-
önsku Ameríku eða á Inkastíginn í
Perú. Það þekkja það allir sem
ganga að sterk tengsl myndast hjá
fólki á göngu. Ómeðvitað nærir fólk
líkama og sál um leið og það nýtur
náttúru, byggingarlistasögu og
matar. Því skyldi engan undra
hversu margir velja einmitt að
ferðast á þennan máta því þetta er
að fá menningu beint í æð.“
Margrét segir að besta dæmið
um það hversu ný menning og
tungumál móti mann sé skiptinema-
dvölin en 13 skiptinemar hafa dval-
ið á vegum Mundo á Spáni í vetur.
„Þú ættir að sjá krakkana núna í
mars – altalandi á spænsku og
synda nú um spænska menningu
eins og ekkert sé. Hún segir að
fjöldi nema í skiptinám hljóti að
Menning og ævin
Margrét Jónsdóttir Njarðvík kynnir
fólki á öllum aldri spænska menningu
og list Menningartengd
ferðaþjónusta sem eykur þekkingu
og víðsýni fróðleiksfúsra ferðalanga
Menning Margrét Jónsdóttir
Njarðvík, eigandi Mundo
og vararæðismaður Spánar
á Íslandi.
Bandaríski rithöfundurinn Jim
Harrison er látinn, 78 ára að aldri.
Náttúran skipaði stóran sess í
mörgum af hans verkum, þar á
meðal í Legends of the Fall sem síð-
ar varð að kvikmynd með Brad Pitt
í aðalhlutverki.
Harrison samdi 21 skáldsögu og
14 ljóðabækur, auk ritgerða og
einnar barnabókar. Hann var mikill
drykkju- og reykingamaður og lýsti
hann sjálfum sér sem geðhvarfa-
sjúkum. Verk hans endurspegluðu
ást hans á villtri náttúrunni og
ástríðu hans fyrir veiðimennsku,
auk matreiðslu.
Harrison var nýbúinn að gefa út
nóvelluna The Ancient Minstrel og
ljóðabókina Dead Manśs Float þeg-
ar hann lést.
AFP
Heilsa Bandaríski rithöfundurinn Jim Harrison var mikill drykkju- og reykingamaður.
Jim Harrison er látinn, 78 ára að aldri