Morgunblaðið - 29.03.2016, Qupperneq 37
Á dögunum var
frumsýnd í hinu
kunna Berlínar-
leikhúsi Volks-
bühne ópera í
einum þætti eftir
Ragnar Kjart-
ansson myndlist-
armann og sam-
starfsmann hans
til margra ára,
tónskáldið Kjartan Sveinsson.
Óperan nefnist Krieg, eða Stríð, og
var tónlistin hljóðrituð af Deutsch-
es Filmorchester Babelsberg. Axel
Hallkell gerði leikmyndina. Sýn-
ingum lýkur í apríl.
Ópera Ragnars og
Kjartans í Berlín
Ragnar
Kjartansson
MENNING 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MARS 2016
Það hefur vakið athygli og umtal í
Bretlandi að raðhús í Lundúnum
þar sem meðlimir hinnar alræmdu
pönkhljómsveitar Sex Pistols
bjuggu á áttunda áratugnum og
enn getur að líta veggjakrot eftir
söngvarann, John Lydon sem kall-
aði sig þá Johnny Rotten, hefur ver-
ið sett í verndarflokk og nýtur þar
næst efsta stigs samkvæmt bresk-
um byggingaverndarlögum.
Haft hefur verið á orði að það sé
kaldhæðnislegt að hrjúfir rokk-
ararnir sem gáfu dauðann og djöf-
ulinn í hefðir samfélagsins skuli nú
innvígðir á þenan hátt, að krot
þeirra og hýbíli verðskuldi vernd.
Byggingin sem um ræðir er frá
17. öld og númer 6 við Denmark
Street og hafa aðdáendur hljóm-
sveitarinnar gjarnan lagt leið sína
þangað gegnum árin en á jarðhæð-
inni er í dag verslun sem selur not-
aða gítara. Fólk hefur þó ekki get-
að skoðað skrif og teikningar
Lydon í sambyggðu bakhýsi sem
blaðamaður The Guardian segir
áhugaverð. Þar getur meðal annars
að líta í hástöfum eftirfarandi upp-
hrópanir, á ensku: DEPRESSED
MISERABLE TIRED ILL SICK BO-
OED & BORED. Þá eru á veggjum
teikningar hans af þeim félögum í
hljómsveitinni og þekktum umboðs-
manninum, Malcolm McLaren, sem
heldur á fúlgu fjár. Talsmaður
nefndar sem mælti með friðun
hússins segir markmiðið að vernda
hús sem teljast mikilvæg fyrir
menningarsöguna og segir hann
ekkert írónískt við það að vernda
ummerki pönksins.
Ljósmynd/Koen Suyk
Rokk og ról Hljómsveitin Sex Pistols í Amsterdam 1977, þegar meðlimirnir hreyfðu við
stofnanaveldinu. Frá vinstri: Paul Cook, Glen Matlock, Johnny Rotten og Steve Jones.
Aðsetur meðlima Sex Pistols friðað
Tónlist Barða Jóhannssonar við
þöglu kvikmyndina Häxan frá
árinu 1922, eftir danska kvik-
myndagerðarmanninn Benjamin
Christensen, verður leikin af sin-
fóníuhljómsveit á sérstakri sýningu
á kvikmyndinni á alþjóðlegu kvik-
myndahátíðinni í Transilvaníu í
Rúmeníu, sem hefst 27. maí og lýk-
ur 5. júní. Sýningin fer fram í göml-
um kastala og verður Barði við-
staddur hana.
Tónlist Barða við myndina var
gefin út á diski fyrir tíu árum, í
flutningi búlgarskrar sinfón-
íuhljómsveitar. Häxan er þekkt
kvikmynd og þótti svo ógurleg á
sínum tíma að hún var bönnuð víða.
Djöfullinn Stilla úr þöglu kvikmynd-
inni Häxan frá árinu 1922.
Tónlist Barða leik-
in í Transilvaníu
hann ekki þvælast fyrir sér.
Vegna fyrirspurnar frá Þýskalandi
og afskiptaleysis lögreglu þar og á
Íslandi tekur hún að sér að spyrj-
Frá því Velvakandi hófgöngu sína í Morg-unblaðinu hefur hús-móðir í Vesturbænum
oft átt síðasta orðið. Glæpasagan
Konan í blokkinni eftir Jónínu
Leósdóttur er angi af sama meiði
nema hvað þar er konan marg-
slungna nafn-
greind.
Sagan fjallar
fyrst og fremst
um nágrannana
á Birkimelnum í
Vesturbæ
Reykjavíkur,
Steinunni, 38
ára framhalds-
skólakennara, og
Eddu, fyrrver-
andi verslunarstjóra í bókabúð og
nú löggilt gamalmenni, sem
reyndar er á besta aldri og lætur
ast fyrir um þýska fyrrverandi
pennavinkonu sína, málið hleður
utan á sig og sitt sýnist hverjum.
Konan í blokkinni er óvenjuleg
glæpasaga, þar sem húmor er sem
rauður þráður frekar en barátta
góðs og ills. Edda, sem á sam-
kvæmt ritúalinu að vera sest í
helgan stein, hagar lífi sínu ekki
eins og aðrir telja að hún eigi að
haga því heldur fer sínu fram.
Aðrar persónur verða að dansa
með, hvort sem þeim líkar betur
eða verr.
Frásögnin er létt, vel skrifuð og
þægileg aflestrar. Birkimelurinn
og Hótel Saga eru í skotlínunni en
sagan teygir sig samt út fyrir
Vesturbæinn og reyndar einnig til
útlanda. Lesandinn fær grein-
argóða mynd af sviðinu auk þess
sem varpað er ljósi á ýmis vanda-
mál sem blasa við fólki á eft-
irlaunaaldri. Og jafnvel einnig
yngra fólki. Þrátt fyrir fyndnina
er undirtóninn stundum alvarlegur
og á sálfræðilegum eða fé-
lagsfræðilegum nótum og ýmislegt
sem vekur fólk til umhugsunar.
Ágætis blanda.
Á tímabili voru rannsóknarlög-
reglumenn í glæpasögum oft
drykkfelldir en dregið hefur úr
þeim lesti. Þrá í rauðvín veikir
Eddu og vonandi sér hún að sér í
framtíðinni, en á kápu bókarinnar
stendur Eddumál sem gefur til
kynna að framhald verði á.
Morgunblaðið/Eggert
Létt „Frásögnin er létt, vel skrifuð og þægileg aflestrar,“ segir um bókina.
Áfallastreituröskun með
léttum blæ í Vesturbænum
Glæpasaga
Konan í blokkinni bbbmn
Eftir Jónínu Leósdóttur.
Mál og menning 2015. Kilja. 292 bls.
STEINÞÓR
GUÐBJARTSSON
BÆKUR
Franski leikarinn Vincent Cassel
vandar þeim sem hafa umsjón með
talsetningum á kvikmyndum á Ítal-
íu ekki kveðjurnar og líkir þeim við
mafíu, í samtali við breska dag-
blaðið Independent. Hann segir
ómögulegt að sjá kvikmyndir á Ítal-
íu á upprunalegu tungumáli, tal-
setjarar sjái til þess. Nýjasta kvik-
mynd Cassel, Un moment
d’égarement, var frumsýnd á Ítalíu
24. mars og fer talsetningin fyrir
brjóstið á honum. Hann segir kímn-
ina ekki skila sér og þá sérstaklega
þegar kemur að ólíkum hreim
frönsku leikaranna. „Talsetning-
arleikararnir eru mafía,“ segir Cas-
sel, greinilega mikið niðri fyrir.
Ósáttur Vincent Cassel.
Líkir ítölskum tal-
setjurum við mafíu
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
BATMAN V SUPERMAN 3D 6, 9(POWER)
MY BIG FAT GREEK WEDDING 2 5:50, 8, 10:10
KUNG FU PANDA 3 5:50 ÍSL.TAL
BROTHERS GRIMSBY 10
FYRIR FRAMAN ANNAÐ FÓLK 8
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
POWERSÝNING
KL. 21:00
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ