Morgunblaðið - 29.03.2016, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 29.03.2016, Qupperneq 40
ÞRIÐJUDAGUR 29. MARS 89. DAGUR ÁRSINS 2016 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR. 1. Klæddist öllum fötunum í fluginu 2. Dönsuðu og döðruðu í … 3. Mourinho vill þessa þrjá á Old … 4. Alvarlegt bílslys á Suðurlandi … »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Uppfærslu Borgarleikhússins á Mávinum eftir Anton Tsjékov í leik- stjórn Yönu Ross hefur, samkvæmt upplýsingum frá leikhúsinu, verið boðið á nokkrar leiklistarhátíðir. For- svarsmenn leikhússins hafa þegið boð um að sýna uppfærsluna á Kon- takt leiklistarhátíðinni í Póllandi síð- ar á þessu ári. Samkvæmt upplýs- ingum frá leikhúsinu er hátíðin ein af virtustu leiklistarhátíðum heims og hefur verið starfrækt frá árinu 1991. Skipuleggjendur hátíðarinnar bjóða áhugaverðustu leiksýningum í Evr- ópu á hátíðina, sem einnig er keppni þar sem dómarar velja þrjú bestu verkin á hátíðinni. Ljósmynd/Grímur Bjarnason Mávinum boðið á leik- listarhátíð í Póllandi  Sænski píanóleikarinn Stefan Boj- sten kemur fram á tónleikum í sal Norræna hússins í kvöld kl. 20. Á efn- isskránni eru verk eftir Mozart, Schu- bert og Debussy samin á seinni árum tónskáldanna sem áttu það sameig- inlegt að vera afkastamikil en skammlíf. Bojsten nam m.a. við Kon- unglega tónlistarháskólann í Stokk- hólmi og hefur frá 1997 starfað sem prófessor við sama skóla. Hann hefur hlot- ið margvíslegar viðurkenningar fyrir störf sín og er einnig vinsæll fyrirles- ari og gesta- kennari. Að- gangur að tónleikunum er ókeypis. Stefan Bojsten leikur í Norræna húsinu Á miðvikudag Austan 5-10 m/s og snjókoma eða slydda með köflum sunnanlands, hiti kringum frostmark. Hægari vindur og stöku él í öðrum landshlutum með frosti á bilinu 0 til 7 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan- og austanátt, víða á bilinu 3-8 m/s. Líkur á dálitlum éljum í flestum landshlutum, síst þó á Vest- urlandi. Hiti að deginum frá frostmarki syðst, niður í 8 stiga frost. VEÐUR Tindastóll sendi Keflavík í sumarfrí í Dominos-deild karla í körfuknattleik í gær- kvöld en Stólarnir burstuðu Suðurnesjaliðið í fjórða leik liðanna í átta liða úrslit- unum. Með sigrinum tryggði Tindastóll sér sæti í undanúrslitunum. Í kvöld eru tveir leikir í úrslita- keppninni. Njarðvík tekur á móti Stjörnunni og Haukar sækja Þór Þorlákshöfn heim. »2 Tindastóll sendi Keflavík í fríið „Við höfum farið rækilega yfir leikinn gegn Danmörku og greint ítarlega hvað betur má fara. Við drógum mik- inn lærdóm af leiknum gegn Dönum og það var til að mynda gott að fá að takast á við lið sem spilar með þriggja manna varnarlínu og færir boltann hratt á milli svæða,“ sagði Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari við Morgunblaðið. »4 Drógum mikinn lærdóm af Danaleiknum ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Þetta hefur smám saman undið upp á sig og hefur verið mjög gaman. Við höfum farið á flesta staði sem Tinda- stóll hefur keppt á og leikirnir ekki verið í beinni útsendingu á stóru stöðvunum,“ segir Viggó Jónsson á Sauðárkróki en fyrir nokkrum árum fór hann ásamt syni sínum, Elfari Má, af stað með upptökur og útsend- ingar á netinu frá körfuboltaleikjum Tindastóls, bæði á úti- og heima- leikjum. Ekkert félag hefur annan eins viðbúnað á leikjum, með fjórar tökuvélar og allt að átta manns að störfum við hverja útsendingu. Síðast í gærkvöldi aðstoðuðu Viggó og hans félagar við útsendingu Stöðv- ar 2 Sport frá viðureign Tindastóls og Keflavíkur í úrslitakeppni Dominos- deildarinnar. Um leið tók Viggó upp leikinn fyrir körfuknattleiksdeildina. Stólarnir gjörsigruðu Keflvíkinga og því komnir í undanúrslit. Þar með er líklegt að fleiri leikir séu eftir fyrir Tindastól TV á þessari leiktíð. Fjórar tökuvélar Frá því Tindastóll TV fór af stað hafa umsvifin smám saman aukist. Fyrst var notast við eina tökuvél og engin lýsing var á því sem fyrir augu bar. Síðan tóku ungir menn að sér lýsingarnar og lengi var Pálmi Þórs- son í því hlutverki. Hann er nú kominn í lið Tindastóls og í vetur hefur hinn kornungi Eysteinn Guðbrandsson farið á kostum í lýsingunum. Í útileikjunum hef- ur Gunnlaugur Skúlason oft sinnt þessu hlutverki. Þá hafa Gunnar Traustason og Adam Smári Hermannsson veitt góða aðstoð í tæknivinn- unni, bæði nyrðra og syðra, ásamt fleirum. Umsvifin jukust verulega eftir áramótin þegar bætt var við upptökuvélum og Árni Gunnarsson, kvikmyndagerð- armaður hjá Skottu Film, gekk til liðs við Viggó og félaga. Er nú notast við fjórar vélar í heimaleikjunum og skipt á milli eftir þörfum. „Körfubolti er gott sjónvarpsefni og við finnum klárlega að áhuginn hefur aukist. Áhuginn kemur líka þegar þessum greinum er sinnt,“ seg- ir Viggó en þegar mest lætur hafa þúsundir manna verið að horfa á Tindastól TV, eins og í úrslitavið- ureigninni gegn KR á síðasta keppn- istímabili. IP-tölur hafa mest sýnt hátt í 2.000 tölvur og gætu þá verið fleiri en einn að horfa í hverri tölvu. „Þetta er um allt land og víða um heim. Skagfirðingar vilja fylgjast með sínu liði hvar sem er og einnig stuðningsmenn mótherjanna. Hjá okkur er bara hátíð í bæ þegar út- sendingar eru frá körfunni, fólk setur sig í stellingar og fær sér popp og kók fyrir framan tölvurnar.“ Útsendingar um heim allan  Tindastóll TV jafnast á við heila sjónvarpsstöð Ljósmynd/Óli Arnar Brynjarsson Tökuliðið Menn kampakátir í Síkinu í gær, f.v. Sigþór Gunnarsson, Gunnar Traustason, Adam Smári, Viggó Jóns- son, Eysteinn Guðbrandsson og Árni Gunnarsson. Á myndina vantar Elfar Má Viggósson og Áróru Árnadóttur. Viggó Jónsson viðurkennir fúslega að eiga oft erfitt með að halda aftur af sér við tökuvélina, með annan son sinn inni á körfuboltavellinum, fyrirliðann Helga Rafn. „Það hefur komið fyrir að ég hef stundum gleymt mér í æs- ingnum. Ég reyni þó að ein- beita mér að því að koma efn- inu til skila til áhorfenda,“ segir Viggó en fleiri fjöl- skyldumeðlimir hafa einnig tengst leikjum Tindastóls. Sigríður Inga, dóttir hans, hefur oft verið á ritaraborðinu á heimaleikjunum og eig- inkonan, Rannveig Helgadóttir, hef- ur séð um þvott á búningum liðsins. Eins og kemur fram hér til hliðar hefur Elfar Már Viggósson að- stoðað við tæknimálin. Þó að hann stundi sjóinn af kappi hefur það ekki hindrað hann í að veita aðstoð, staddur jafnvel langt úti á Reykja- neshrygg. „Hann er þá bara inni á tölvunni minni gegnum netið og símann. Það er gott að hafa slíkan tækni- mann í fjölskyldunni,“ segir Viggó sem hefur verið tökumaður fyrir RÚV og Stöð 2 mörg undanfarin ár, þegar eitthvað hefur verið um að vera í Skagafirði og nágrenni. „Hef stundum gleymt mér“ FJÖLSKYLDA VIGGÓS Í ÝMSUM HLUTVERKUM Helgi Rafn Viggósson „Það eru svona tvær til þrjár vikur síðan ég vissi að þetta væri að fara að gerast. Þegar þetta kom á borðið þá kom lítið annað til greina hjá mér en að láta þetta verða að veruleika,“ sagði Guðmundur Þórarinsson við Morgunblaðið eftir að hafa skrifað undir samning við Rosenborg. »1 Þriðji Íslendingurinn í herbúðum Rosenborg

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.