Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.12.1996, Blaðsíða 30

Víkurfréttir - 19.12.1996, Blaðsíða 30
Bergdís Ásta er 24 ára. Hún býr í Njarðvíkum ásamt foreldrum sínum og hefur unun af tónlist og fer oft í sund. Líf hennar er þó geró- líkt annarra því hún er fötluð. Dagný Gísladóttir skoð- aði venjulegan dag í lífi Bergdísar Ástu. Bergdís Ásta er dóttir hjónanna Ás- geirs Ingimundarsonar og Sigríðar Guðbergsdóttur og á hún tvö systkin, Ásu 16. ára og Ingimund 21. árs. Bergdís fæddist í nóvemberlok árið 1972 og kom þá í ljós að hún var tjöl- fötluð. Fötlun hennar lýsir sér þannig að hún getur lítið gengið og notar yfir- leitt hjólastól eða göngugrind. Hún er einnig heyrnarskert og því geta tjá- skipti verið erfið. Hún getur ekki talað en gerir sig að nokkru leyti skiljanlega á táknmáli og með hljóðum. Hún notar ákveðnar áherslur og reynir að segja orð sem foreldrar hennar skilja. Bergdís þarf hjálp við allt sem lýtur að daglegu líft og sjá því foreldrar hennar um umönnun hennar. Auk þess starfar hún á Hæfingarstöð svæðisskrifstofu Reykjaness. Venjulegur dagur hjá Bergdísi Ástu hefst klukkan sjö á ntorgnana og þá finnst henni erfitt að vakna því hún er morgunsvæf. Klukkan átta fer móðir hennar með hana f vinnuna á Hæftng- arstöðina en þar vinnur Bergdís Ásta til klukkan fjögur. Pressar dósir í vinnunni Meginmarkmið hæfingarstöðvarinnar er að veita fötluðum dagþjónustu sem felur í sér vinnu við ýmis verkefni sem gefur þeim möguleika til virkrar þátt- töku í atvinnulífinu, bæði vemdaðri og almennri vinnu. Þar er starfshæfnin efld með því að vinna verkefni fyrir utanaðkomandi fyrirtæki og verkefni sem til falla innanhúss eins og pökkun, röðun og flokkun. Á morgnana byrjar Bergdís Ásta á því | að fá sér kafftsopa á hæfingarstöðinni ásamt öðrum sem þar vinna. Eftir kafftsopann er farið í vinnuherbergi og þar vinnur Bergdís Ásta við þau verk- efni sem verið er að vinna hverju , sinni. Má þar nefna pökkun á heymar- tólum, skrúfum og krækjum fyrir Húsasmiðjuna. Fara yfir og pakka Flugleiðabæklingum, endurvinnsla pappírs og nú fyrir jólin er Bergdís að búa til skál úr pappír. Bergdís Ásta vinnur einnig við að pressa dósir í dósapressuvél sent útbúin var sérstak- lega fyrir hennar fæmi. Vegna fötlunar sinnar þarf Bergdís á miklum stuðn- j ingi að halda við vinnuverkefnin sem og í daglegu lífi og er því ávalt starfs- maður henni innan handar. Að sögn j Margrétar Pálsdóttur þroskaþjálfara á Hæfingarstöðinni er Bergdís Ásta j mjög sterkur persónuleiki og lætur hún skoðanir sínar ákveðið í Ijós. Vinnu- deginum lýkur hjá Bergdísi Ástu kl. 16.00 og þá er hún sótt. Gefur hestunum brauð i Stundum sækir Guðlaug Hilmarsdótt- ir, félagsfræðinemi Bergdísi Ástu í vinnuna en Guðlaug starfar hjá lið- veislu Reykjanesbæjar. Megintilgang- ur liðveislunnar er að veita persónu- legan stuðning og aðstoð sem einkum miðar að því að rjúfa félagslega ein- angmn og felst m.a. í aðstoð til þess að njóta menningar og félagslífs. Guð- laug fer með Bergdísi Ástu í sund sem hún hefur sérstaklega gaman af og ein- nig fara þær oft að gefa hestunum brauð við Mánagrund. „Bergdís Ásta er mikill dýravinur og einnig er hún nijög hrifin af börnum“, segir Guð- laug. „Hún elskar líka að fara f sund og höfum við þrætt alla sundstaðina hér á Suðumesjum og verð ég að segja að aðgengi fyrir fatlaða er ábótavant hjá ýmsum þeina". Vinnan með Berg- dísi Ástu getur verið erfið líkamlega og einnig getur fölunin takmarkað möguleika þeirra því oft em t.d. stofn- anir ekki byggðar fyrir fatlað fólk. Samskipti þeirra á milli em takmörkuð en segir Guðlaug að þær noti sín á milli lykilhugtök og orð sem virka oft- ast. Þó kemur Sigga móðir Bergdísar til hjálpar þegar að Guðlaug skilur ekki hvað það er sem Bergdís Ásta vill. „Öll samskipti skipta miklu máli hversu takmörkuð sent þau eru“, segir Guðlaug. “Bergdís Ásta hefur góða kímnigáfu og er yfhieitt mjög róleg og geðgóð. Þó getur hún svo sannarlega reiðst eins og hver annar“. Sundið hefur gefið Bergdísi mikið Dýr og börn eru mikið hugarefni Bergdísar Ástu og einnig hefur sundið gefið henni mikið. Henni líður vel í vatninu. Að sögn þeirra sem þekkja hana vel er hún ákaflega skapgóð en þó hefur hún skap og sem betur fer, segja foreldrar hennar. Hún getur orðið öskureið og þá grætur hún einfaldlega. Tilefnið getur verið ýmislegt en þó minnist Guðlaug þess að það haft gerst eitt sinn er þær komu að lokaðri sund- laug. Kímnigáfan er ekki langt undan og oft tengist hún undarlegunrhljóðum þar sem þau magnast upp í heymartækjum Bergdísar. Bergdís er mannelsk og finnst ekkert skemmtilegra en að fara út á meðal fólks, og horfa á það með mikilli at- hygli. Hún er hrifin af tónlist og oft gerist það á daginn þegar hún kemur heim úr vinnu eða frá Guðlaugu að hún sest við hljómborðið sem er í herbergi hennar og spilar á það tímanum sam- an. Að sögn móður hennar er hljórn- borðið hluti af henni. Bergdís Ásta fer yfirleitt að sofa kl. 10 og þar með lýk- ur degi hennar. JOLABLAÐ 1996 Víkurfréttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.