Víkurfréttir - 19.12.1996, Page 45
Með því að versla heima fyrir þessi jól og
nota alla þá þjónustu sem býðst í Grindavík
stuðlum við best að því markmiði.
íT Gleðileg jól5
BBS farsœlt komandi ár. ££^7PPjT\;
H “ Bœjarstjórn Grindavíkur U
Styðjum sjálfstœða Grindarík
Loftnetsskermar
á Stafnesi felldir
Einn skermanna var felldur sérstaklega fyrir fréttamenn í síð-
ustu viku. Pó Hringrásarmenn hafi verið búnir að klippa
festingunum undan honum var hann ekkert á því að láta sig. Að
lokum varð hann þó að gefa sig og var það tignarleg sjón að sjá
250 tonna og 40 metra hátt mastrið falla til jarðar.
Vinna við að fella niður loft-
netsskerma fjarskiptastöðvar
Varnarliðsins við Básenda á
Stafnesi - Dye Five, hófst í
síðustu viku en skermarnir
voru reistir á öndverðum sjö-
unda áratugnum. Stöðin var
liður í tjarskiptakerfi er byg-
gði á speglun útvarpsbylgja
milli jarðar og veðrahvolfs og
tengdi saman ratsjárstöðvar
Bandaríkjahers og annarra
NATO ríkja beggja vegna Atl-
antshafsins. Aflmiklum út-
varpsgeisla var varpað milli
stöðva er mynduðu keðju
milli Kanada, Grænlands, Is-
lands, Færeyja og Bretlands.
Með aðstoð risastórra loftneta
var geislanum varpað í sjón-
línu í átt til næstu stöðvar og
speglaðist hann á leið sinni af
veðrahvolfinu sem liggur í
boga tneð yfirborði jarðar.
Örlítið brot af sendistyrknum
náði þannig til næstu stöðvar
þrátt fyrir að hún lægi langt
handan sjóndeildarhringsins.
Þar var merkið magnað upp
aftur og sent áfram. Tækni
þessi kom fram á undan gervi-
hnöttum sem hafa nú leyst
hana af hólmi á lengri leiðum.
Stöðin nefndist eftir Dyer-
höfða á Austurstönd Kanada
ásamt tjórum öðrum er lágu
þvert yfir Grænland og mynd-
uðu ákveðna rekstrareiningu.
Loftnetsskermamir fjórir við
Básenda hafa staðið ónotaðir
frá því að stöðin hætti starf-
semi sinni árið 1992 eftir 30
ára dygga þjónustu. Starfs-
menn Hringrásar hf. í Reykja-
vík fella nú þessi 40 metra háu
stálmannvirki, sem hvert um
sig vegur um 250 tonn, og
nýta í brotajám.
Eflaust verður það viðbrigði
fyrir marga að sjá ekki þessi
áberandi mannvirki sem
staðið hafa hér svo lengi. Alla
vega er vitað að margir sjó-
farendur munu sakna þeirra
því margir notuðu skermana
fyrir mið í landi.
Víkuifréttir
JÓLABLAÐ 1996