Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.12.1996, Page 46

Víkurfréttir - 19.12.1996, Page 46
Vélstjóra- og vélfræðingatal Nýlega komu út tvö fyrstu hindin af Vélstjóra- of> vél- fræðingatali sem fyrirhugaO er að gefa út í timm bindum. Talið mun gevma æviskrár yfir 7000 vélstjóra og ætt- fræðiupplýsingar um tugþúsundir íslendinga til viðhótar. í hindunum sem nú koma út verða Ijósmyndir af vél- stjórum ásamt ítarlegum upplýsingum um ættir, nám og störf þeirra.ltókaútgáfan Pjóðsaga ehf. gefur verkið út í samvinnu við Vélstjórafélag Islands. Sencfum Su&urnesjamönnum b>estu óskir um fcw?§celt liumaitíit Þökkum samskip>tin d árinu sem er a<3 /íc5cz Olsson. Jón Daníelsson þýddi. Svanur er fluttur og byrjaður í nýja skólanum. Þar líkar hon- umvel. Hann var að vísu búinn að skrifa undir hjóna- bandssamning við Soffíu áður en hann flutti, en það reyndist samt erfitt að halda stelpunum í nýja skólanunt frá sér. Þetta er fimmta bókin um prakkarann Svan, sem er eftir sömu höfunda og metsölu- bækumar um Bert. Þá er komin út Stóra ævin- týrabókin - Einu sinni var. Hér em fallegu og sígildu æv- intýrin, sem öll brön hafa yndi og ánægju af, samankomin í eina stóra og ríkulega mynd- skreytta bók. Ævintýrin eru t.d. Aladdín og töfralampinn, Hans og Gréta, Tumi þumall, Þrír litlir grísir, Stígvélaði kötturinn og mörg fleiri, allt saman sögur sent ekki mega gleymast. Bókaútgáfan Skjaldborg hefur sent frá sér bamabókina Maja, hvað er ferðalag? eftir Regine Schindler og Sita Jucker. Kristján Oddson þýddi. Matti á vinkonu sem heitir Maja og saman eiga þau ynd- islegt leyndarmál. En þegar matti sér óvart að Maja sting- ur sprautunál í handlegginn á sér breytist allt. Ýmsar spum- ingar vakna. Af hverju þarf hún eitrið? Hvað er ferðalag? Þessi fallega og fræðandi saga fjallar um málefni sem snertir alla og hefur ótvírætt forvam- argildi. Bókaútgáfan Skjaldborg hefur sent frá sér skáldsöguna Ametyst -ljós dauðans eftir Gústaf Gústafsson. Rúmenskum vísindamanni hefur tekist að smíða vopn sem breyta myndi öllum valdahlutföllum í heiminum ef það kæmist í framleiðslu. Hann er í felum á íslandi og þegar í Ijós kemur að vinnu- veitendur hans eru ekki allir þar sem þeir eru séðir fer gamanið að káma, ekki síst þar sem aðrir valdamiklir aðil- ar hafa áhuga á að koma höndunt yfir vopnið og svífast einskis í þeim tilgangi. Is- lenskur blaðamaður og fleiri landar hans dragast inn í leik- inn sem berst allt frá Vest- fjörðum og inn á skrifstofu Bandaríkjaforseta. Hér kveður nýr rithöfundur sér hljóðs með æsispennandi njósnasögu sem gefur bestu erlendu spennusögum ekkert eftir. Bókaútgáfan Skjaldboig hefur sent frá sér bókina Hafið hug- ann dregur - viðtöl við fimm valinkunna sjósóknara eftir Jón Kr. Gunnarsson. I þessari bók segja fimm valinkunnir skipstjórar sögu sfna en þeir eru: Andrés Finnbogason, skipstjóri, Reykjavík, Aki Guðmundsson, skipstjóri á Bakkafirði, Guðmundur Vig- fússon, skipstjóri frá Holti, Halldór Hallgrímsson, skip- stjóri, Akureyri og Halldór Þórðarson, skipstjóri í Kefla- vík. Bókaútgáfan Skjaldborg hefur sent frá sér bókina Upp á líf og dauða - æfingar og alvara í starfi björgunarsveita eftir Björgvin Richardsson. Hér kemur í fyrsta sinn íyrir sjónir almennings lýsing á starfi björgunarsveitarfólks þar sem eðli málsins samkvæmt er oft teflt á tæpasta vað. Þetta er athyglisverð og áhrifarík bók þar sem höfundur lýsir ótrú- legum mannraunum og bar- áttu við óblíð náttúmöfl í æf- inga- og björgunarferðum með Hjálparsveit skáta í Kópavogi. Skjaldborg hefur sent frá sér nýja bók eftir bama- og ung- lingabókahöfundinn Kristján Jónsso. Bókin heitir Jói Jóns, Kiddý Munda og dularfullu skuggaverumar. Helstu persónumar þessarar spennusögu em á aldrinum 12 til 18 ára auk Tóta svarta, Gumma svakalega, Guð- mundarlæknis og séra Stur- laugs. Hér glíma þau Jói Jóns, Pétur, Kiddý Munda og fleiri við nýtt ævintýri. Bókaútgáfan Skjaldborg hefur sent frá sér bamabókina Besta skólaár allra tíma eftir Bar- böm Robinson í þýðingu Jóns Daníelssonar. Það verður alltaf allt vitlaust þegar Herdman-systkinin eru annars vegar, í skólanum, þvottahúsi bæjarins, slökkvi- stöðinni, pósthúsinu og út um allt. Þetta er sprenghlægileg bók með alvarlegum undirtón. ra okja dborg rekur bemsku sína á Eskifirði, árin sem hann var í siglingum og lýsir því þegar hann var matreiðslunemi á einum fín- asta veitingastað Kaupmanna- hafnar, Frascati við Ráðhús- torgið. Hann rekur ævintýra- legan feril sinn og lýsir því á áhrifamikinn hátt þegar hann missti allt út úr höndunum og þurfti að vinna sig upp aftur úr engu. Þorsteinn kemur víða við í frásögninni og hlífir hvorki sjálfum sér né öðmm. Þorsteinn er þrígiftur og lýsir á opinskáan hátt hjónabönd- um sínum, segir frá ástinni og hinu Ijúfa lífi, kynnum sínum af undirheimum Kaupmanna- hafnar og því þegar hann rak þar hóruhús fyrir Simon Spies. Þá hefur forlagið sent frá sér fjórar bækur í nýjum flokki matreiðslubóka sem kallast Litlu matreiðslubækurnar. Bækurnar eru: Itölsk mat- reiðsla, Kínverskar uppskrift- ir, Mexíkósk matseld og Pastauppskriftir. Unnur Þor- steinsdóttir þýddi.Bókaútgáf- an Skjaldborg hefur sent frá sér bama- og unglingabókina Kvennagullið Svanur eftir þá Anders Jacobsen og Sören Jilakækvr Bókaútgáfan Skjaldborg hefur sent frá sér bókina Sönn ís- lensk sakamál eftir Sigurjón Magnús Egilsson. I bókinni segir frá fjölda ís- lenskra sakamála. Þau eru öll frá þessari öld, það yngsta að- eins fárra ára gamalt. Málin eru margvísleg, allt frá því sem kalla má minni háttar af- brot og upp f alvarlega glæpi. Frásagnirnar eru hraðar og spennandi og til undantekn- inga heyrir ef nöfnum er breytt. I bókinni er að finna kaflana Af geðdeildinni á Oðal, Brennuvargur í Reykja- vík, Vopnað rán, Myrti aðra og barði hina, auk 35 annarra íslenskra sakamála. Götustrákur á spariskóm - Lífssaga Þorsteins Viggósonar athafna- og ævintýramanns eftir Þóru Kristínu Asgeirs- dóttur. Þetta er þriðja bók höfundar. Þorsteinn Viggóson í Kaup- mannahöfn er mörgunt Is- lendingum vel kunnur en hann átti og rak skemmtistað- ina Pussycat og Bonaparte f miðborg Kaupmannahafnar. Þorsteinn er einnig þekktur úr skemmtanalífinu í Reykjavík sem framkvæmdastjóri Stork- klúbbsins og fleira. Þorsteinn JOLABLAÐ 1996 V íkurfréttir

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.