Víkurfréttir - 18.12.1997, Síða 17
erum að snæða hér í kvöld“,
segir Hjörtur og hlær góðlát-
lega. „En jólahlaðborðin eru
jákvæðari nú en áður þegar
jólaglöggin var og hét. Hún
gat oft endað illa og tel ég að
hún hafi verið heilmikið þjóð-
arböl á tíma“.
Áhuga á fjölmiðlun
Nú ert þú nýkominn heim eft-
ir þriggja ára nám í Edinborg í
Skotlandi þar sem þú rannsak-
aðir tengsl þjóðkirkjunnar við
ríkisfjölmiðla. Hver var
ástæða þess að þú fórst út í
þetta nám?
„Ég hef lengi haft áhuga á
fjölmiðlun og mér finnst mál-
efni kirkjunnar hafa margt
með fjölmiðlun að gera. Þar
má nefna boðmiðlun, sam-
skipti og boðun orðsins en
þetta skarast allt saman. Fjöl-
miðlar snúast um samskipti
og boðmiðlun og svo gerir
kirkjan einnig“. Hér sér Hjört-
ur einhver efasemdablik í aug-
um mínum og útskýrir rnálið
því nánar.
Kirkjan og fjölmiðlar
„A miðöldum og kannski
fram á þessa öld var kirkju-
stofnunin æði miðlæg í sam-
félaginu og átti stóran þátt í að
móta það og viðhalda gerð
þess. Én hún er nú komin út á
jaðarinn. Fjölmiðlar eru aftur
á móti mjög miðlægir og þeir
móta upplýsingaumhverfi
fólks, heimsmynd og veru-
leikaskynjun sem og menn-
ingarumræðu sem áður var í
höndum kirkjunnar. Það er
þessi skömn þ.e.a.s. samskipti
kirkjunnar við fjöl
miðla sem er verð-
ugt umfjöllunar-
efni. Er það bæði í
þessu sögulega og
félagsfræðilega
ljósi og svo ekki
síst í Ijósi þeirra
deilna sem átt
hafa sér stað
innan kirkju
stofnunar
innar und-
anfarin ár.
Margt af
því er,
að ég
held
kirkj-
unni
sjálfri
að kenna vegna
þess að hún hefur
náð að fóta sig í því upplýs-
inga- og fjölmiðlaumhverfi
sem við hræmmst í“.
Uppfyllti námið væntingar
þínar?
Opnaði nýjar dyr
Hjörtur hugsar sig um áður en
hann svarar. „Jú, það gerði
það en að vissu leyti varð ég
fyrir vonbrigðum því það
miðaðist töluvert við annað
menningarumhverfi en hjá
okkur. En námið opnaði að
því að manni fannst nýjar dyr.
Mín rannsókn snýst mikið til
um samskipti þjóðkirkju við
ríkisfjölmiðla og í Skotlandi
er einnig þjóðkirkja þótt hún
sé að ýmsu leyti sjálfstæðari
gagnvart ríkinu en sú íslenska.
Ég gerði samanburðarrann-
sóknir á ntilli íslands og
Skotlands þar sem ég skoðaði
annars vegar samskipti skosku
kirkjunnar við BBC og hins-
vegar íslensku kirkjunnar við
Sjónvarpið. í raun má segja að
ég hafi verið að skoða þá
mynd sem birtist af kirkjunni í
fjölmiðlum t.d. hvernig fjöl-
miðlar bera fréttir af kirkju-
þingi og prestastefnum og
þeirri mynd sem dregin er upp
af kirkjunni þegar þjóðarsorg
dynur yfir.
Þar skoðaði ég hvemig fjallað
var um snjóflóðin sem féllu á
Vestfjörðum og bar það sam-
an við fréttir BBC af morðun-
um í Dumblane. Við þessar
kringumstæður birtist jákvæð-
ari mynd af kirkjunni en (regar
verið var að flytja fréttir af t.d.
kirkjuþingum. A tímum þjóð-
arsorgar sjá fjölmiðlar kirkj-
una hafa mikilvægu hlutverki
að gegna en þegar fjallað er
um stofnunarmál kirkjunnar
má greinilega finna þann tón
undir niðri að kirkjan hafa litla
skírskotun til samfélagsins í
dag".
Gott að koma heim
Að sögn Hjartar er öll rann-
sóknarvinna að baki en hann á
enn þá eftir að vinna úr niður-
stöðum rannsóknarinnar. Ég
ákveð því að spyrja hann
hvenær hann muni Ijúka
henni.
„Ég sé til með það“, segir
Hjörtur með óræðu brosi sem
gefur til kynna að bið geti orð-
bið á því. „Það er búið
vera gríðar-
1 e g a
mikið að
gera hjá
mér frá því
að ég kom
heim svo ég
hef ekki náð
að líta á þetta.
Það bíður bara
síns tíma“.
Hvernig var að
koma heim eftir
námið?
„Það var mjög gott
að koma heim“,
segir Hjörtur og
leggur áherslu á orð
sín. „Móttökur voru
virkilega góðar og hlýj-
ar og ég fann það að ég
hafði saknað preststarfs-
ins að miklu leyti. Það voru
viðbrigði eftir þá einangrun
sem að vissu leyti fylgir rann-
sóknarvinnu. Ég hafði saknað
jress að vera með fólki á gleði
jafnt sem sorgarstundum en
fyrir mig em það viss forrétt-
indi og ég nýt þeirra. En þetta
er annar lífstaktur og það tek-
ur einhvern tíma að komast
aftur í hann“.
Jólastemmningin hefur farið
vaxandi þetta kvöld og víða
má heyra hlátrasköll. Víst er
að á tímum upplýsinga og
íjölmiðlunar þar sem hver og
einn neytir síns fjölmiðils í
sínu homi að þá gefur fólk sér
enn tíma til mannfagnaðar og
er það að mati Hjartar mjög
jákvætt.
Hann sýnir nú á sér fararsnið
enda orðið áliðið og í mörgu
að snúast fyrir sóknarprest rétt
fyrir jól. Hjörtur gefur sér þó
tíma til þess að sitja fyrir á
nokkmm ljósmyndum áður en
hann hverfur út í vetrar-
myrkrið og hugsar til jólanna.
„Ég og fjölskylda mín sökn-
uðum íslensku jólanna þegar
við dvöldum í Skotlandi og
okkur fannst Skotar ekki
halda nein jól. Auðvitað gera
þeir það en bara ekki eins og
okkur líkaði. Þeir vom gjama
á pöbbnum á aðfangadags-
kvöld og fannst okkur hátíð-
leikann skorta.
Jólin eru okkur mjög mikil-
væg, jafnt bömum sent full-
orðnum, kannski vegna þess
að við finnum meira fyrir
skemmdeginu og kuldanum
en þeir í Skotlandi. Hér sam-
einast því Ijósahátíð og sólar-
hátfð við fæðingarhátíð frels-
arans á þessum helga tíma“.
XELDZf
varnir
" V
höldum
SLYSALAUS
JÓL OG
ÁRAW°t'
Brunavarnir
Suðurnesja
Hafib eldvarnir í lagi,
þ.e.a.s. reykskynjara,
y eldvarnarteppi og
slökkvitæki.
Er reykskynjari og
slökkvitæki í lagi og
rétt staðsett?
Um áramót þarf að
huga vel að:
Ganga vel og tryggilega
frá undirstöðum þegar
þið skjótið upp flugeldum.
Fylgið ávallt leiðbein-
ingum sem standa á
skoteldum, notið hanska
og hlífðargleraugu við
notkun þeirra.
Opnunartímí
jffír hátíöarnar
Þorláksmessa
Opíð 11:30 - 23:30
Aðfangadagur jóla LOKAÐ
Jóladagur
LOKAÐ
Annar í jólum Opíð 11:30-01:00
27. desember Opíð 11:30 - 01:00
28. desember Opíð 11:30-01:00
29. desember Opíð 11:30 - 01:00
30. desember Opíð 11:30-01:00
Gamlársdagur Opið 11:30-16:00
og 01:00 - 07:00
Nýársdagur J0:00-01:00
2. janúar 11:30-01:00 *
Gleðílegjól, farsælt nýtt ár!
Víkurfréttir
JÓLABLAÐ