Víkurfréttir - 18.12.1997, Side 29
SUMARDAGAR í REYKJANESBÆ
FISCHERHÚS
Mikið athafnasvæði var hér í
kringum Miðbryggjuna. Að-
gerðarplan nokkurra báta
(Planið), hlaðinn sjóvamar-
garður og skjólveggur sem
náðu frá miðbryggju að
Stokkavör er hér undir upp-
fyllingunni, þar sem við erum
stödd. Hér sjáum við sögu-
frægt hús, Fischershús, reist
1882.
Það |x>tti með glæsilegri hús-
um landsins, |tegar búið var
að koma því upp, en það kom
allt tilsniðið frá Danmörku.
Viðimir í burðarveggjununt
og spemmum em númeraðir
saman og geimegldir, þar em
engirjámnaglar. Því miður
hefur viðhald hússins ekki
verið sem skyldi. Langvar-
andi leki í kringum reykháf-
ana hefur valdið miklum fúa í
tréverkinu þar í kring. Undir
húsinu er kjallari, úr tilhöggnu
grjóti. Hafnargatan hefur ver-
ið hækkuð það mikið að búið
er að fjarlægja sérlega fallegar
tröppur og viðbyggingar sem
gengið var inn um.
H. P. Duus kaupir Fischerhús-
ið 1893 og flytur verslun sína
úr Gömlubúðinni í húsnæði
Fischerverslunarinnar. Versl-
Mynd frá því um alda-
mótin. Á henni er m.a.
„Hans R Pedersen
bókari" sem getid er
um ígreininni. Athygli
vekur ártalið 1848 en
það er stofnár
Duusverslunar sem flutt
var úr Gömlu-búðinni í
Fischerverslun.
Vel færi á því að koma
húsnæðinu til fyrra
horfs.
nef. Þá er Ósnef og handan
við það er Óssker og Ósinn.
Þar var, og er kannski enn,
öðuskel. Aðan var notuð til
beitu. Þá var farið upp í Hval-
fjörð eftir kræklingi og gat
ferðin tekið tvo til þrjá sólar-
hringa. Kræklingurinn var
geymdur í Ósnum og annars-
staðar í fjömnni, þar sem ekki
flæddi undan. Hann var hafð-
ur í pokum sem bundnir vom
við steina og þannig haldið
lifandi þar til átti að beita hon-
um, en þá var hann sóttur eftir
þörfum og ftskurinn skorinn
úr skelinni.
FYRIR BOTNI
KEFLAVÍKUR
Edinborgarverslun var á
svæði sunnan „Rásar” (Tjam-
argötu). Fyrstu bryggjumar
vom mjóar og gerðar fyrir
handvagna. Mikill þrældóm-
ur var að skipa upp við Edin-
borgarbryggju. Hún var svo
brött að klossar voru negldir á
bryggjudekkið svo að fengist
viðspyma við að draga upp
hlaðna vagnana. Tilhöggnir
steinar úr bryggjuhausnum
em hér Básmegin við safn-
húsið. Nærströnd var norðan
við Rásina, þá Myllubakki
sem dregur nafn sitt af kom-
myllu sem þar var. Undir allri
þessari uppfyllingu, sem er
fyrir bomi Keflavíkur, er graf-
inn fjöldi ömefna og gamalla
mannvirkja.
GATKLETTUR
Nú var haldið í átt að Vatns-
nesvitanum. skoða átti Gat-
klett, eitt af náttúmsmíðinni
hér. Aðstæður til skoðunar
vom slæmar. „Uppfyllingin”
sem þama er var dýblaut og
illa lyktandi. Ég hef velt fyrir
mér hvers vegna þessi ósómi
er ekki fjarlægður af friðlýsta
svæðinu. Það væri þess virði
að koma hér, ef umgengnin
væri önnur. Héðan er víðsýnt,
hægt væri að njóta sjávarins,
fuglalífsins og fallegu klett-
anna. Vel hefði farið á að öll
friðlýst svæði væru inni á ný-
útgefnu „göngukorti”.
FJARAN, VETTVANGUR
DAGLEGS LÍFS
Gengið var niður Básinn.
Skollanefið var skoðað frá
veginum, þaðan sést munninn
að gatinu. Staldrað var við
hjá „Sundhöllinni”. Sund-
höllin var upphaflega byggð
sem útilaug árið 1939 af
U.M.F.K. tíu ámm eftir stofh-
un þess. Staðsetningin réðst
af því að sjór var hafður í
lauginni, þar sem hér vom
hvorki vatns- né holræsisveit-
ur, fyrr en um og eftir lýð-
veldisstofnun. Fyrir neðan
Tónlistarskólann var Fram-
nes, hús systranna Jónínu og
Guðlaugar Guðjónsdætra,
sem þekktar vom fyrir störf
sín að kennslu og félagsmál-
um. Faðir |teirra var vel lát-
inn bátasmiður. Við smíðam-
ar vann hann allt árið héma í
fjömnni. Fjaran öll var mikill
vettvangur daglegs lífs. Þar
var gert að afla og dyttað að
bátum, konur tíndu sprek og
þvoðu t.d. strigapoka með því
að slá þá með „klöppu” á
steini niðumndir flæðarmáli
og böm vom þar við leiki.
HANDAN NORD-
FJÖRDSGÖTU
Næsta stopp okkar var niður
undir Norðfjörðshúsi (byggt
1888, nú Nýung). Trúlega
hefur ekkert hús hér hýst eins
marga starfsemi; íbúðir, lækn-
isstofu, Sparisjóðinn, verslan-
ir. samkomur. böll, bíó, leik-
fimis- og leikhús og eflaust
margt fleira. Næsta hús við
Norðfjörðshús, að norðan-
verðu, var kallað Eldhúsið.
Það nafn er vfst tilkomið af
þvf að húsið er staðsett þar
sem gamalt hlóðareldhús var
og daglega kallað Eldhúsið.
Næsta hús er Kot, þar er sama
ástæða fyrir nafngiftinni, þar
stóð lítill torfbær, sem kallað-
urvarKot. Fyrir daga hol-
ræsisins, rann til sjávar af þó
nokkm svæði fyrir ofan gamla
bæinn, leysingavatn eftir far-
vegi sem vatnið hafði grafið
og kom fram milli Eldhússins
og Kots. Farvegurinn beygði
niður með Kotslóðinni, í átt
að Ishússtígnum og var sam-
hliða honum. A þeim kafla,
voru aðgerðar og beitningar-
skúrar yfir honum og „ræsi” á
Hafnargötunni, sunnan við
Miðbryggjuna (krakkar gátu
gengið þama undir og í gegn).
Fyrir ofan þar sem farvegur-
inn beygði niður með Ishús-
stígnum á að vera vatnsból
sem talið var illbrúklegt
vegna klappar sem er í botni
þess. Húsið sem er hér
vinstra megin við Íshússtíginn
varkallað Skólinn. Þarvar
bamaskólinn til húsa frá árinu
1897 þar til nýr skóli var
byggður 1911 sem er fyrsta
steinsteypta húsið í Keflavík.
Honum var valinn staður (við
Skólaveginn) nokkuð mið-
svæðis milli Njarðvíkurog
Keflavík, þar sem hann var
sóttur af bömum beggja stað-
anna, sem voru eitt sveitarfé-
lag.
Hinum megin við Ishússtíg-
inn, á móti skólanunt, er jám-
klætt hús. Þegar það og önn-
ur hús hér voru í eigu Duus
var það afþiljað í fjós og hest-
hús. Hey var geymt uppi á
lofti, sem var í húsinu og í
kjallaranum var þvottahús.
Fyrir enda jsess að ofanverðu
var „Hlandforin”. Hús þetta
var gert að vélarhúsi þegar
vélvæðing tók við af gömlu
aðferðinni við að frysta síld til
beitu. Eftir bmnann sem hér
var er búið að fjarlægja rúst-
imar. Sjást nú vel hlaðnar
undirstöður og veglegir viðar-
bitar, geimegldir, hér var ís-
húsið sem Ishússtígurinn
dregur nafn sitt af. „Bygging-
amar” sem em ofan á og inn-
an hins frábærlega hlaðna
garðs, sem Símon steinsmiður
vann að mestu eða öllu leyti
við annan mann og átti að
vera skjól fyrirhugaðs „skrúð-
garðs” em ekkert augnayndi.
Garðinum ætti að koma í upp-
mnalegthorf. Steinamirúr
skörðunum, sem rofin hafa
verið í hann, eiga að vera til.
Aðgerð á
Planinu.
Húsið með
hvítmál-
uðu glugg-
unum er
Norð-
fjörðshús.
Víkurfréttir
JÓLABLAÐ