Víkurfréttir - 18.12.1997, Blaðsíða 33
NN VIÐ JOLABEINIÐ
Ég og Stúfur
erum álík
Margrét Gunnarsdóttir
er bæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins í
bæjarstjórn Grindavíkur
auk þess að vera kennari
og húsmóðir.
Uppáhaldsjólasveinninn
hennar er Stúfur og það
besta sem hún gerir yfir
hátíðarnar er að lesa góða
bók með mjólkurglas og
smákökur við höndina.
Margrét var svo Ijúf að
sýna okkur hvernig hún
er inn við beinið á
jólunum.
Nafn: Margrét Gunnarsdóttir.
Aldur: 45 ára.
Fjölskylduhagir: Gift Eiríki Tómassyni framkvæmdastjóra og
eigum við fjóra drengi, Heiðar Hrafn 23 ára, Tómas Þór 20 ára,
Gunnlaug 15 ára og Gunnar 9 ára.
Atthagar: Alin upp í Glaumbæ í Skagafirði, annars á ég ættir að
rekja til Austfjarða og Eyrabakka.
Starf: Húsmóðir og kennari.
Bíll: Mitsubishi Pajero árgerð '95.
Laun: Fara eftir árstíma.
Uppáhalds jólasveinninn: Stúfur, við erum álík á hæð.
Hvað borðar þú á jólunum: í hádeginu á aðfangadag er
grjónagrautur með möndlu. Um kvöldið er humarforréttur, reyk-
tur svínahryggur og að lokum er svo heimatilbúinn ís með heitri
súkkulaðisósu. Á jóladag er hangikjöt með öllu tilheyrandi.
Jóladrykkurinn: Hinn sígildi jóladrykkur malt og appelsín.
Hvað finnst þér best að gera unt jólin: Að hafa góða bók til að
lesa og ekki skemmir fyrir að hafa mjólkuiglas og smákökur við
höndina.
Besta jólalagið: Hvít jól og ég hef einnig mikið dálæti á
jóladisk sem heitir Phil Coulter's Christmas.
Áhugamál: Ferðalög hér innan lands og íþróttir. Þessa dagana
er ég forfallinn Man.Utd. aðdáandi eftir að hafa farið á Old
Trafford fyrir stuttu. Það var frábært að sjá þá baka Blackbum.
Bestu jólin: Þegar ég lærði að jólin koma þó að ekki hafi gefist
tími til að strauja allan þvottinn og pússa alla spegla. Yngsti
sonur okkar var eitt sinn mikið veikur síðustu dagana fyrir jól og
var gengið með hann um gólf allan sólahringinn. Þegar líða tók
á aðfangadag fór hann að hressast og áttum við mjög ánægjulegt
aðfangadagskvöld, þrátt fyrir þreytu.
Hvernig eyðir þú aðfangdagskvöldi: Fjölskyldan fer í kirkju
klukkan sex og á eftir borðhald er sest niður og jólakortin lesin,
og gjafirnar opnaðar. Seinna um kvöldið förum við til
tengdaforeldranna minna en þar hittist fjölskylda Eiríks.
Ferðu í mörg jólaboð: Já, jóladag eyðum við með mínum
bræðrum, þeim sem búa sunnan heiða og fjölskyldum þeirra. Á
annan í jólum á tengdapabbi minn afmæli og þá er jólaboð þar.
í kringum jólin eru mörg afmæli í tengdafjölskyldunni minni
þannig að við hittumst oft.
Hvað langar þig mest í jólagjöf: Bókina eftir Davíð Oddsson
og einnig nýju bókina eftir Guðberg Bergsson.
Helsti veikleiki: Fljótfæmi.
Helsti kostur: Ég er mjög skapgóð manneskja.
Trúir þú á jólasveininn: Já, hver ætti annar að setja í skóinn
minn.
Ef þú værir jólasveinn hvernig myndir þú hafa jólin: Að
veðrið sé þannig að auðvelt er að komast á milli staða, því í
miklu roki og snjó getur verið erfitt að komast með gjafir til
allra. Og að allir eigi gleðileg jól.
Gleðilega hátíðl
Opnunartimi
um hátíðarnar
Sunnudagur 21. desember
Þorláksmessa 23. desember
Aðfangadagur 24. desember
Jóladagur 25. desember
2. jóladagur 26. desember
Gamlársdagur 31. desember
Nýársdagur 1. janúar
Aðrir dagar eíns og venjulega.
Opíð M. 11-21
Opíð kl. 11-24
LOKAÐ
LOKAÐ
LOKAÐ
LOKAÐ
LOKAÐ
Orskuni 5iiánniL’rS/uiiiáiuiuni íjkáik’íjra
Jálos ú/j faráældar á Jiý/u ári iPákkum
uiáókiptin á áriiui csnu rr aá liáu.
Hafnargötu 62 • 230 Keflavík • Sími 421 4777
piestu nsfetr um gíeðtíeg júí
ug farstríít á ugju árL
Ahaldahúsinu við Vesturbraut
Tólatré • Greni
Krossar • Borbskreytingar
Jólatrésjcetur
Kíwanísklúbburinn Keílír
Allur ágóði rennur
tíl líknarmála
Opið virka daga
frá kl. 17-22
Laugardaga og
sunnudaga
frá kl. 13-22
Víkurfréttir
TÓLABLAÐ