Morgunblaðið - 07.05.2016, Page 2
Vor Brátt kemur betri tíð með blóm
í haga. Von er á hlýviðri eftir helgi.
Nokkuð mun hlýna sunnanlands um
helgina skv. spá Veðurstofunnar. Á
mánudag er búist við því að snúi til
suðvesturs með hæglætisvindi og
víða bjartviðri, en 5-10 m/s norð-
vestantil, skýjað, en úrkomulítið.
Hitastig verður frá 13 stigum um
landið, hlýjast á Suður- og Suðvest-
urlandi. Á þriðjudag og miðviku-
dag gerir Veðurstofa Ísalands
sömuleiðis ráð fyrir hlýju veðri og
verður úrkoma lítil sem engin yfir
landinu. Um helgina verður þó
kaldara, sérstaklega um norðan- og
austanvert landið. Á sunnudag er
gert ráð fyrir 3-12 stiga hita um
landið en mildast suðvestantil. Úr-
koma verður lítil og hægur vindur.
Vorhlýindi
loksins í
vændum
Betra eftir helgi
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2016
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Alþjóðlegri ráðstefnu brjóstaskurðlækna sem
haldin var í Klíníkinni, sérhæfðri lækninga- og
heilsumiðstöð, í Ármúla lauk í gær. Aðal-
viðfangsefni ráðstefnunnar var arfgengt
brjóstakrabbamein og hvernig má minnka
áhættu þessara kvenna, meðal annars með fyr-
irbyggjandi brjóstnámi. Fjölmargir heimsfrægir
vísindamenn og læknar voru meðal fyrirlesara.
Kristján Skúli Ásgeirsson, brjóstaskurðlæknir,
framkvæmdi fyrirbyggjandi brjóstnám á tveim-
ur íslenskum konum á ráðstefnunni, og gafst
ráðstefnugestum kostur á að fylgjast með að-
gerðinni í sal fyrir ofan skurðstofuna og í stórum
sal, sem áður var stærsti samkomusalurinn á
Broadway.
Brjóstnám í beinni á stóra sviði Broadway
Morgunblaðið/Eggert
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Árni Gunnarsson, forstjóri Flugfélags Íslands,
segir að hæð trjánna í Öskjuhlíð, hafi í einstaka til-
fellum haft áhrif á flutningsgetu flugvéla félags-
ins.
Í samkomulaginu sem Hanna Birna Kristjáns-
dóttir, þáverandi innanríkisráðherra, og Jón
Gnarr, þáverandi borgarstjóri, gerðu með sér
þann 13. október 2013, um lokun NA/SV-flug-
brautarinnar, svonefndrar neyðarbrautar, var
m.a. eftirfarandi málsgrein: „Þegar lokun NA/SV-
brautarinnar hefur verið staðfest verða ný lend-
ingarljós tekin í notkun í samræmi við breytt deili-
skipulag og nauðsynlegur fjöldi trjáa í Öskjuhlíð
felldur í þágu flugstarfseminnar.“
Engin tré hafa enn verið lækkuð eða felld, nú
tveimur og hálfu ári síðar.
Árni sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að
Flugfélag Íslands hefði gert athugasemdir við
trén og hæð þeirra. „Þetta hefur í einstaka til-
fellum haft áhrif á flutningsgetu flugvéla okkar.
Þetta hefur verið til vandræða hjá okkur í nokk-
urn tíma. Þetta gerist sem betur fer ekki oft, en
við vissar aðstæður skapa trén vandamál fyrir
okkur,“ sagði Árni.
Ekki lengur við þetta unað, segir Isavia
Jón Karl Ólafsson, framkvæmdastjóri flugvalla-
sviðs Isavia, sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær að gríðarlegur munur væri á milli þeirra þátta
sem snúa að flugöryggismálum og einhvers sam-
komulags um einhverja flugbraut. „Það hefur allt-
af verið okkar álit, að ekki er hægt að tengja sam-
an samkomulag um lokun á flugbraut og
spurninguna um það hvort öryggismál flugvall-
arins eru í lagi,“ sagði Jón Karl.
„Þetta hefur verið okkar skoðun lengi og raunar
er þetta líka skoðun Samgöngustofu, sem er lög-
gjafinn á vellinum. Við höfum farið fram á það við
Reykjavíkurborg, að við setjumst niður og förum í
alvöru yfir þetta, vegna þess að þessi mál eru kom-
in á þann stað, að það verður ekki lengur við un-
að,“ sagði Jón Karl.
Hann segir að vandamálið sé ekki einskorðað
við Öskjuhlíðina, því trén í Hljómskálagarðinum
hafi vaxið svo mikið, að þau séu komin í aðflugslín-
una inn á norður-suður-brautina.
„Þetta hefur í raun ekkert með umræður um
flugvöllinn að gera. Ef það er flugvöllur, og flogið
inn á hann, þá verðum við einfaldlega að uppfylla
þær öryggisreglur sem eru í gildi,“ sagði Jón Karl.
Trén hafa skapað vandræði
Flugfélag Íslands hefur gert athugasemdir við hæð trjánna í Öskjuhlíð Fram-
kvæmdastjóri flugvallasviðs segir öryggismál flugvallarins verða að vera í lagi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
„Það eru forrétt-
indi að fá svona
hús í fangið og fá
tækifæri til að
gera eitthvað
skapandi í rým-
inu,“ segir Að-
alheiður Magn-
úsdóttir, sem er
nýr eigandi Ás-
mundarsals
ásamt eiginmanni
sínum, Sigurbirni Þorkelssyni.
Ásmundarsalur við Freyjugötu
hefur um árabil verið í eigu Lista-
safns ASÍ og hefur leikið stórt hlut-
verk í lista- og menningarsögu Ís-
lands allt frá því Ásmundur
Sveinsson myndhöggvari lét reisa
húsið á fjórða áratug síðustu aldar.
Ásmundar óskaði þess að húsið
yrði nýtt í þágu myndlistarinnar eft-
ir hans dag og það er vilji nýrra eig-
enda. „Við munum jöfnum höndum
styðja við unga hönnuði og lista-
menn auk þess að vera í nánu sam-
starfi við virta og þekkta lista-
menn,“ segir Aðalheiður, sem er
menntuð í Parsons School of Design
í New York í hönnun og markaðs-
setningu og með viðbótargráðu í
listrænni stjórnun. „List hefur því
lengi verið mér hugleikin og frá því
við fluttum aftur til Íslands hef ég
gengið með þá hugmynd í maganum
að finna húsnæði þar sem við getum
gert skapandi rými fyrir fólk til að
koma saman.“
Listasafn ASÍ verður með starf-
semi í húsinu fram á haust. Spurð
um áherslubreytingar segir Aðal-
heiður að helstu breytingar verði
þær að listaverkageymsla ASÍ muni
víkja. „Það var mikil sköpun í húsinu
þegar Ásmundur og kona hans
Gunnfríður voru þar og nú þegar
rýmra verður sjáum við fram á að
rými opnist fyrir sköpun í mismun-
andi myndum. Okkur langar að
þarna komi saman fólk með fjöl-
breyttan bakgrunn og úr verði sterk
upplifun fyrir gesti jafnt og lista-
menn.“ erla@mbl.is
Listin lifir í Ásmundarsal
Ásmundarsalur List mun áfram til-
heyra húsinu á Freyjugötu.
Listaverka-
geymsla ASÍ víkur
fyrir lifandi sköpun
Halldóra Dröfn Gunnarsdóttir,
framkvæmdastjóri Barnavernd-
arnefndar Reykjavíkur, segir að
skýrslutökur hafi hafist í gær af þol-
endum og gerendum í grófu einelt-
ismáli sem upp kom í Austurbæj-
arskóla. Á myndbandi sem birt var í
fjölmiðlum í fyrradag mátti sjá hóp
nemenda veitast að stúlku, sem
einnig er nemandi í skólanum, með
grófu ofbeldi. Halldóra segir að fyrst
um sinn verði lögð áhersla á áfalla-
stuðning með aðstoð sálfræðinga.
Í skriflegu svari Kristínar Jó-
hannesdóttur, skólastjóra Austur-
bæjarskóla, við fyrirspurn mbl.is
segir hún skólasamfélag Austurbæj-
arskóla harma atvikið. ,,Hugurinn er
hjá þolanda og fjölskyldu hans en
einnig hjá öðrum börnum og fjöl-
skyldum sem málinu tengjast. Skól-
inn mun vinna náið með öllum þeim
sem vinna að úrlausn málsins og
veita þann stuðning sem á þarf að
halda,“ segir m.a. í svari Kristínar.
Skýrslutaka
í eineltismáli
Betri ferð
- vita.is
fyrir betra verð
Verð frá:
49.900 kr.
Á mann m.v. 2 fullorðna og 2
börn í íbúð með 1 svefnherbergi
á Ambar Beach í 7 nætur.
CALPE
Frábær fjölskyldustaður
og stórar íbúðir.
VITA | Skógarhlíð 12 | Sími 570 4444 | VITA.IS
Aðalheiður
Magnúsdóttir