Morgunblaðið - 07.05.2016, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2016
Margverðlaunuð NOKIAN gæðadekk
ein öruggustu dekk sem völ er á
valin bestu dekkin í gæðakönnunum
eigum dekk fyrir fólksbíla, jeppa og sendibíla
Bíldshöfða 5a, Rvk
Jafnaseli 6, Rvk
Dalshrauni 5, Hfj
Opnunartími: virka daga kl. 8-17. Laugardaga: sjá MAX1.is
Á Íslandi vitum við að sumarveður getur þýtt alls konar veður. Þess vegna
hefur Nokian þróað sumar- og heilsársdekk sem henta fjölbreyttu veðurfari
norðlægra slóða.
Greiðsludreifing
í boði
Aðalsímanúmer
515 7190
Knarrarvogi 2, Rvk (ath. ekki dekkjaþjónusta)
VELDU ÖRYGGI
Við bjóðum Nokian dekk í hæsta gæðaflokki á frábæru verði
Fáðu tilbo
ð
dekkjal
eitarvél
inaSkoðaðu
VIÐTAL
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Einn fremsti hjartaskurðlæknir
heims, dr. Pedro Brugada, hyggur
nú á samstarf við Klínikina Ármúla
þar sem hann hyggst opna skurð-
stofu síðar á þessu ári. Fyrst í stað
mun starfsemi hans aðallega felast í
meðhöndlun erlendra sjúklinga sem
hingað koma í þessum erindagjörð-
um, en hann leggur jafnframt mikla
áherslu á samstarf við íslenska
hjartalækna. Ásdís Halla Bragadótt-
ir, stjórnarformaður Klíníkurinnar,
segir að meirihluti þeirra lækna sem
eigi Klíníkina hafi áður starfað er-
lendis. Margir íslenskir læknar og
hjúkrunarfræðingar hafi þegar lýst
yfir áhuga á að koma aftur heim til
starfa á Klíníkinni og verði af þessu
samstarfi geti það skapað ný starfs-
tækifæri fyrir heilbrigðisstarfsfólk á
Íslandi,
Dr. Brugada er spænskur að upp-
runa og starfar víða um heim. Við
hann er kennt Brugada-heilkennið,
sem hann uppgötvaði árið 1992
ásamt Joseph, bróður sínum. Heil-
kennið felst í raflífeðlisfræðilegri
röskun á hjartastarfsemi, sem getur
aukið líkur á hjartastoppi og hefur
verið talsvert í umræðunni að und-
anförnu vegna ótímabærra dauðs-
falla ungs fólks. Aðferðir hans eru
notaðar við meðferð hjartasjúklinga
víða um heim, m.a. á 32 sjúkrahúsum
í Belgíu. „Bandaríkin, Indland, Jap-
an, Kína – það má segja að ég hafi
komið víða við,“ segir hann hlæjandi.
Og nú er ég kominn til Íslands.“
Hann er afar eftirsóttur hjarta-
læknir og kennari og hefur þjálfað
lækna um víða veröld. Hér mun hann
m.a. hitta íslenska hjartalækna að
máli. „Það skiptir mig öllu máli að
vera í góðu samstarfi við íslenska
lækna og heilbrigðiskerfið,“ segir
Brugada og bætir við að hann vonist
til þess að íslenskt heilbrigðiskerfi
muni njóta ávinnings af þessari
starfsemi m.a. með aukinni þekkingu
og samstarfi. Hann segir að líklega
muni erlendir læknar starfa á hans
vegum í Klíníkinni fyrst í stað. „Það
verður vonandi í góðu samstarfi við
íslenska lækna,“ segir hann. „Það
þarf að veita eftirfylgni og þar gætu
íslenskir læknar komið inn. Eins og
ég sé þetta fyrir mér ættu margir að
geta notið ávinningsins.“
Hann átti fund með Kristjáni Þór
Júlíussyni heilbrigðisráðherra í gær-
morgun og segir samtalið hafa verið
gagnlegt. „Við ræddum m.a. hve afar
mikilvægt samstarf við íslenska
hjartasérfræðinga væri,“ segir hann
og segir það hafa komið sér á óvart
hversu auðvelt og óformlegt þetta
ferli hafi verið. „Það tekur gjarnan
talsverðan tíma að ná tali af ráðherr-
um í öðrum löndum, en hérna virðist
það ekki vera mikið mál. Það, hversu
hlutirnir taka stuttan tíma, hlýtur að
vera ein af ástæðunum fyrir því
hversu fljótt Ísland hefur náð sér
upp úr kreppunni.“
Frysting í stað brennslu
Brugada og samstarfsmenn hans
hafa þróað meðhöndlun við hjart-
sláttartruflunum frá gáttum. Hann
segir að algengt sé að meðhöndla
þær með svokallaðri brennslumeð-
ferð; hjartaþræðingu þar sem
brennt er með útvarpsbylgjum, þar
sem sjúklingurinn sé svæfður í allt
að átta klukkustundir. Aðferðina,
sem hann hefur þróað, kallar hann
frystingu. „Það ætti að henta vel hér
á Íslandi, það er nú ekkert sérlega
hlýtt hérna,“ segir hann kíminn.
Til að útskýra meðferðina betur
talar hann um „hybrid“ eða tvinn-
aðferð, þar sem hjartasérfræðingur
og hjartaskurðlæknir vinna saman.
Reynt er að lágmarka umfang
skurðaðgerðarinnar, gert er „lítið
gat“ á síðu sjúklingsins sem hjarta-
skurðlæknirinn athafnar sig um á
meðan hjartasérfræðingurinn fer
með smásjármyndavél inn um nára
sjúklingsins og leiðbeinir þannig
skurðlækninum.
„Yfirleitt er sjúklingurinn ekki
svæfður lengur en í klukkustund. Ég
veit ekki til þess að þessi aðferð sé
notuð á Íslandi og ég vonast til að
geta kynnt hana fyrir íslenskum
læknum.“
Hugmyndin er að erlendir sjúk-
lingar, fyrst og fremst frá Evrópu,
fái meðhöndlunina. „Fólk sem hefur
af ýmsum ástæðum ekki tök á að
bíða eftir að röðin komi að því á bið-
lista eftir aðgerð,“ segir Brugada. „Í
flestum tilvikum greiða sjúkratrygg-
ingar eða aðrar tryggingar fyrir
meðferðina. Þetta er stundum kallað
„medical tourism“, heilbrigðistúr-
ismi, sem er kannski ekki skemmti-
legt orð, en nær utan um þetta að
hluta.“
Hefja starfsemi í haust
Dr. Brugada hefur komið upp
gagnagrunni um þá sem hafa greinst
með Brugada-heilkennið sem hann
segir vera þann stærsta í heimi um
þetta heilkenni. „Það gæti vel verið
grundvöllur fyrir samstarfi. Gena-
lækningar hafa þróast miklu hraðar
á undanförnum árum en nokkur lét
sig dreyma um og Ísland hefur átt
sinn þátt í því. Það væri virkilega
ánægjulegt ef það myndi gerast í
framtíðinni að sjúklingar myndu
læknast af Brugada-heilkenninu
vegna samstarfs okkar og annarra.“
Samstarfsaðili að verkefninu er
Burbanks Capital í Hollandi, undir
forystu Henri Middeldorp, og dr.
Brugada segir að upphaflega hafi
hugmyndin verið að byggja sjálf-
stæða læknastöð hér. „En eftir að
við fréttum af Klíníkinni og skoðuð-
um þá aðstöðu sem þar er fannst
okkur áhugavert að kanna sam-
starfsgrundvöll. Það á eftir að ganga
frá ýmsum þáttum, en áætlanir okk-
ar gera ráð fyrir að við hefjum starf-
semi í haust.“
Spurður hvers vegna Ísland hafi
orðið fyrir valinu fyrir starfsemi sem
þessa segir dr. Brugada að ástæð-
urnar fyrir því séu nokkrar. „Það er
auðvelt að komast hingað – Ísland er
viðkomustaður á leiðinni frá Evrópu
til Bandaríkjanna. Svo er það loftið,
kyrrðin, vatnið, rólegheitin og ein-
stök náttúrufegurð. Ég efast um að
það sé hægt að finna heilsusamlegra
umhverfi en hér.“
Segir gott samstarf lykilatriðið
Einn fremsti hjartaskurðlæknir heims hyggur á samstarf við Klíníkina Vill miðla af sérfræði-
þekkingu sinni til íslenskra hjartalækna Mun fyrst í stað aðallega meðhöndla erlenda sjúklinga
Morgunblaðið/Eggert
Hjartaskurðlæknir Dr. Pedro Brugada starfar um víða veröld, bæði sem
læknir og kennari. Hann segir umhverfið hér einstaklega heilsusamlegt.
ustu og er nú með um 500 fleiri við-
skiptavini en árið 2013 var Síminn
með 20 þúsund fleiri áskriftir.
Skýrslan gildir fyrir árin 2013–2015.
Viðskiptavinir Nova eru langfjöl-
mennastir þegar kemur að fyrir-
framgreiddum kortum, þeir hringja
mest í aðra farsíma og nota internet-
ið í símanum langmest eða 67,6%
hlutdeild miðað við viðskiptavini
Símans sem koma næstir með 18,3%
hlutdeild.
Í skýrslunni má sjá að Hringdu er
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Gagnamagn um snjallsíma jókst um
122,8% á milli áranna 2014 og 2015.
Gagnamagn á farsímaneti jókst um
67% en þar er átt við nettengdar
spjald- og fartölvur. Þetta kemur
fram í nýrri skýrslu Póst- og fjar-
skiptastofnun um fjarskiptamarkað-
inn á Íslandi. Netnotkun Íslendinga
á þráðlausu neti kemur ekki fram í
tölunum heldur er þetta eingöngu
notkun utan heimilisins. Í kortinu
hér til hliðar má sjá þróunina. Blái
liturinn táknar snjallsíma en appels-
ínuguli nettengdar spjald- og far-
tölvur.
Í skýrslunni kemur einnig fram að
heimilissíminn er á undanhaldi en
fjöldi hringdra mínútna úr fastlínu-
síma fór niður um 10,2%. Þá hefur
áskrifendum að fastlínusíma fækkað
um rúma sjö þúsund. Virðist sem
nýjum áskrifendum fækki og má
tengja það við að ungt fólk sjái ekki
tilganginn í að vera með fastlínu.
Nova tekur framúr Símanum
Fyirtækið Nova tekur framúr
Símanum þegar kemur að heildar-
fjölda áskriftar fyrir tal og netþjón-
eina fjarskiptafyrirtækið sem eykur
sína markaðshlutdeild í internet-
tengingum, en hún fór úr 3,7% í
5,4%. Hringdu bætti við sig 2.308
tengingum sem er meira en saman-
lögð aukning Símans, Vodafone og
365. Þá vekur athygli að MMS-skila-
boð eða myndskilaboð aukast um
6,2% á milli ára en þau skilaboð hafa
hingað til verið hægt og rólega að
deyja út með tilkomu snjallsíma og
smáforrita þar sem ekkert kostar að
senda myndir.
Mikil aukning á gagna-
magni um snjalltæki
Íslendingar vilja alltaf vera í sambandi við umheiminn
Gagnamagn á farsímaneti
Tal og gögn
Eingöngu gögn
G
B
(G
íg
ab
æ
t)
Heimild: Póst- og fjarskiptastofnun
12.000.000
10.000.000
8.000.000
6.000.000
4.000.000
2.000.000
2010 2011 2012 2013 2014 2015
0
„Það er mjög áhugavert að fá að
vinna með aðilum sem njóta
jafnmikillar alþjóðlegrar virð-
ingar,“ segir Ásdís Halla.
Hún segir að eftir að spurnir
bárust af opnun Klíníkurinnar
hafi íslenskir sérfræðingar,
bæði læknar og hjúkrunarfræð-
ingar sem nú starfa erlendis,
haft samband og lýst yfir áhuga
á að starfa hér á landi. Með til-
komu starfsemi dr. Brugada
geti skapast ný tækifæri fyrir
sérhæft heilbrigðisstarfsfólk til
að koma heim. „Þannig að þetta
getur haft margvísleg áhrif ís-
lensku samfélagi til góðs.“
Spurð hvort Íslendingum
standi til boða að njóta með-
ferðar dr. Brugada hjá Klíníkinni
segir hún að hugmyndir hans
séu að veita þjónustu til er-
lendra sjúklinga ekki síst þar
sem hann vilji alls ekki grafa
undan starfsemi sem nú þegar
er til staðar hér á landi. Meti
heilbrigðisyfirvöld það hins veg-
ar svo, að þau vilji að íslenskir
sjúklingar fái aðgang að þjón-
ustunni eða einhverjum þáttum
hennar, yrði án efa orðið við því,
en engar slíkar viðræður hafi
átt sér stað.
Er bara fyrir
útlendinga
HVATI FYRIR LÆKNA