Morgunblaðið - 07.05.2016, Síða 13
leið án nokkurrar eftirsjár. Honum
fannst hin akademíska nálgun afar
takmörkuð og þvælast fyrir raun-
verulegum lærdómi. „Ég var fastur í
stöðnuðu skólakerfi. Ekkert hafði
breyst frá því ég stundaði háskóla-
nám í New York fyrir tuttugu árum.
Námsaðferðirnar áttu ennþá rætur í
texta og textagerð, kaldhæðnisleg
og hvimleið nálgun þegar unnið er
með myndmiðla eins og ljósmynd-
un,“ segir Orri.
„Auk þess vorum við öll orðin
þreytt á hversdagslegri rútínu,
kapphlaupinu við að ná endum sam-
an og ys og þys borgarlífsins bæði í
Reykjavík og Toronto þar sem sjald-
an gefst stund til að hugleiða, læra,
lifa og njóta,“ bætir hann við.
Óhefðbundin nálgun
Þau Þórdís þekktu til í Oaxaca,
höfðu ung og barnlaus þvælst þar
um fyrir margt löngu og síðar
ferðast um Mexíkó í þrjá mánuði
þegar eldri börnin voru lítil. Orri
viðurkennir að verkefnið hafi verið
býsna draumórakennt þegar þau
hófu vegferðina en smám saman
slípast til og orðið markvissara.
„Nálgunin er óhefðbundin og
ábyggilega að margra mati losara-
leg. Í byrjun lögðum við ekki upp
með skipulagða dagskrá en síðan
fundum við að litlu drengjunum
þótti betra að vita nokkurn veginn
hvað í vændum væri næsta dag og
breyttum samkvæmt því. Þeir hafa
heilmikið að segja um eigið nám,
hvernig, hvað og hvenær þeir læra,
ólíkt skólanum heima. Báðir hafa
þroskast mikið á þessum tæpu
þremur mánuðum og ýmsir áður
duldir hæfileikar hafa komið upp á
yfirborðið – eins og reyndar hjá okk-
ur öllum,“ segir Orri kankvís.
Fjölskyldan heldur í samein-
ingu úti vefsíðunni www.inanew-
light.info, þar sem framvindu verk-
efnisins og um leið daglegu lífi
hennar eru gerð skil í máli og mynd-
um. Á síðunni blasir við að hæfileik-
ar og áhugasvið hvers og eins liggja
á mörgum og mismunandi sviðum.
„Þeir yngstu njóta góðs af náttúru-
og vísindaáhuga Kára, sem jafn-
framt kennir þeim stærðfræði,
teiknihæfileikum og bókmennta-
áhuga Eyju og eru himinlifandi með
tónlistartímana hjá Vasilis og hljóm-
sveitina sem þeir stofnuðu,“ nefna
þau hjónin sem dæmi um viðfangs-
efnin.
Sjálf koma þau að námi sonanna
með ýmsum hætti og sinna jafn-
framt eigin hugðarefnum. „Ég passa
upp á að þeir viðhaldi íslenskunni,“
upplýsir Þórdís. Og Orri vinnur að
ljósmyndabók. Sem kennari kveðst
Þórdís ævinlega vera með hugann
við hvað og hvernig nota megi eitt og
annað til að gera nám áhugaverðara.
Flóka og Þorra finnst í það minnsta
ekki leiðinlegt að læra íslensku og
stærðfræði í gegnum krossorðaspil.
„Þeir þurfa að leggja saman stigin,“
segir hún um stærðfræðiþáttinn.
Frjó og fordómalaus umræða
Þannig kviknar ein hugmynd af
annarri um nýstárleg námsgögn og
námsaðferðir. Markmiðið er að allir
fái notið sín á eigin forsendum – og
læri vitaskuld sem mest í leiðinni.
Orri lætur þess getið að
takmarkið hafi þó aldrei verið að
leysa áratuga krísu skólakerfisins
heldur taka meira stjórnina á nám-
inu í eigin hendur. „Fjórir mánuðir
eru knappur tími. Vonandi verður
afraksturinn samt innlegg í frjóa og
fordómalausa umræðu um hvernig
nálgast megi nám á fjölbreyttari
hátt en verið hefur,“ segir Þórdís.
Þeim finnst svolítið kvíðvænlegt
við heimkomuna að festast kannski
sjálfkrafa í lífsmynstrinu sem þau
flúðu og velta fyrir sér hvernig hægt
verði að viðhalda þessu skapandi og
rólega andrúmslofti sem þau hafa
búið við undanfarið. Hins vegar
hlakka þau til að vinna úr efniviðn-
um sem þau söfnuðu ytra og deila
reynslu sinni.
Fjölskyldan ver dögunum í skapandi nám, sem felur
m.a. í sér að skrifa sögur og ljóð, teikna og mála,
taka ljósmyndir og vídeó, hugleiða, matreiða,
semja tónlist, spila á hljóðfæri og næra huga og
hönd með margvíslegum hætti.
Fjölskyldan í Oaxaca Orri, Flóki, Þórdís, Kári, Eyja, Vasilis og Þorri á góðri stund.
Þorri og Flóki í
náttúruskoðun.
Eyja og Þorri
matreiða
Listaverk
eftir Flóka
Vasilis og Orri
búa til bók.
Kári og Þorri teikna.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2016
Velkomin um borð! Söguhringur
kvenna, sem er samstarfsverkefni
Borgarbókasafnsins og Samtaka
kvenna af erlendum uppruna, býður
konum á sýningu Sjóminjasafnsins
og í kaffi um borð í varðskipið Óðinn
kl. 13.30 til 16.30 í dag, laugardag.
Fyrst á dagskrá er ganga um sýn-
ingar safnsins, síðan verður farið í
leiki þar sem konurnar velta fyrir
sér mismunandi orðum á mismun-
andi tungumálum yfir ýmsa hlut
sem tengjast sjávarútvegi, því næst
kíkt við á sýningu um sjósókn
kvenna frá upphafi landnáms. Ferð-
inni lýkur út á sjó um borð í Óðni
þar sem allir krókar og kimar skips-
ins verða skoðaðir. Punkturinn yfir i-
ið er svo kaffisamsæti í matsal
skipsins.
Söguhringur kvenna er vettvangur
fyrir konur sem hafa áhuga á að
deila menningarlegum bakgrunni
sínum með öðrum, skapa saman,
spjalla og víkka út sjóndeildarhring-
inn. Þær horfa á lífið sem andlegt
og landfræðilegt ferðalag og velta
m.a. fyrir sér hvaða áhrif land-
fræðileg einangrun Íslands og ofsa-
fengin veðrátta hafi haft á þróun
þjóðfélags og menningar í áranna
rás. Einnig hvernig landfræðileg
áhrif hafi mótað aðrar þjóðir.
Allar konur eru velkomnar um
borð og aðgangur er ókeypis.
Sjóminjasafnið
Morgunblaðið/Jim Smart
Óðinn Varðskipið á 80 ára afmæli
Landhelgisgæslunnar fyrir 10 árum.
Söguhringur
kvenna út á sjó