Morgunblaðið - 07.05.2016, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2016
Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is
Góð þjónusta
byrjar með
flottum fatnaði.
Laugavegur 59, 2. hæð • Sími 551 8258 • storkurinn.is
Opið:
Mán.-F
ös.
11-18
Lau. 12
-16
Við erum líka
BÓKABÚÐ
ÚR BÆJARLÍFINU
Sigmundur Sigurgeirsson
Selfossi
Pólfarinn og bæjarpólitíkusinn
Gunnar Egilsson rekur eitt öflugasta
jeppabreytingaverkstæði landsins,
sem ber nafnið IceCool. Fyrir
skömmu afhenti Gunnar tvo mikið
breytta jeppa sem fara til þjón-
ustustöðva RARIK á Hvolsvelli og í
Borgarnesi.
Um er að ræða glæsilega Ford
F-350 bíla sem færðir voru á 44
tommu dekk og á pallinum var komið
fyrir sérsmíðuðum kassa sem nýtist
starfsmönnum RARIK í verkefnum
þeirra. Gunnar hefur sjálfur tvívegis
farið akandi á suðurpólinn á bílum
sem hann breytti sérstaklega til
þeirra ferða. Fyrst fór hann árið 2005
og síðari ferðina fór hann árið 2010.
Hann þekkir því vel til þess hvað bílar
þurfa að þola í miklum átökum, og því
margir sem leita til hans þegar
breyta þarf jeppum og öðrum stærri
bílum.
Fulltrúar RARIK sem mættir
voru til að taka á móti bílunum voru
enda mjög ánægðir með útkomuna.
Í dag er þess minnst að tuttugu ár
eru á þessu ári liðin frá stofnun Jóru-
kórsins á Selfossi og er fyrirhugað að
halda upp á afmælið með stæl. Jóru-
kórinn er eingöngu skipaður konum.
Í dag verða haldnir sérstakir af-
mælistónleikar þar sem mikið er í
lagt, og eru þeir haldnir í íþróttahúsi
Vallaskóla. Ákveðið þema er á tón-
leikunum og er það tónlist hljóm-
sveitarinnar ABBA, en Stefán Þor-
leifsson, stjórnandi kórsins, hefur
útsett ýmis lög ABBA fyrir kórinn í
tilefni þessa.
Laufey Ósk Magnúsdóttir, for-
maður Jórukórsins, segir því þetta
ekki verða neina venjulega kór-
tónleika. „Við erum búnar að panta
hljóðnema fyrir hverja konu, ljósa-
sýningu og hljóðkerfi hjá EB kerfum.
Einnig verður söngkonan Jóhanna
Guðrún með okkur og sex manna
hljómsveit sem mun ekkert gefa eftir,
segir hún. Þá verður á dagskránni,
auk ABBA, einnig brot af því besta
frá sögu kórsins. Í kvöld er svo hátíð-
arkvöldverður kórsins haldinn í
Hvítahúsinu þar sem fagnað verður
vinnu vetrarins.
Margir bíða spenntir eftir
fótboltasumrinu sem sýndi sig í góðri
mætingu á kynningu á meistara-
flokksliðum Selfoss í knattspyrnu á
fimmtudagskvöldið. Þar kynntu þau
Gunnar Borgþórsson, þjálfari karla-
liðsins og Valorie O‘Brian þjálfari
kvennaliðsins, liðsmenn sína fyrir
gestum sem fylltu Tryggvaskála.
Mikill hugur er í forsvarsmönnum
knattspyrnunnar en fyrsti leikur
karlaliðsins er á heimavelli í dag,
gegn Leikni á Fáskrúðsfirði, og fyrsti
leikur kvennaliðsins, sem leikur í
Pepsí deildinni, er grannaslagur í
Eyjum á miðvikudagskvöld.
„Þetta var ein kraftmesta leik-
mannakynning sem við höfum haft í
nokkur ár,“ segir Adolf Bragason,
formaður knattspyrnudeildar Umf.
Selfoss. Hann segir liðin bæði byggð
upp á heimamönnum. „Strákarnir
eru árinu eldri og við höfum fengið fá-
eina erlenda leikmenn til að spila með
þeim í sumar. Með kvennaliðinu leika
þrír bandarískir leikmenn, og fyrirliði
liðsins undanfarin ár, Guðmunda Óla-
dóttir, hefur verið kölluð úr láni frá
Noregi og kemur til landsins á sunnu-
dag og leikur gegn ÍBV,“ segir Adolf.
Fyrstu heimaleikirnir fara fram
á gervigrasi, því sökum kulda hefur
aðalvöllur liðsins ekki náð sér á strik
eftir veturinn. „Við reiknum með að
fyrsti leikur á grasi verði heimaleikur
kvennaliðsins þann 18. maí,“ segir
formaðurinn.
Breytingar urðu í bæjarstjórn
Árborgar í vikunni þar sem Viðar
Helgason, oddviti Bjartrar framtíðar
í Árborg, baðst lausnar á störfum.
Viðar hyggst ásamt konu sinni flytj-
ast búferlum til Reykjavíkur í sumar
og því mun hann ekki geta sinn hlut-
verki sínu sem bæjarfulltrúi lengur.
Á fundi bæjarstjórnar var Viðari
þakkað fyrir gott samstarf og góð
kynni. Í stuttu ávarpi þakkaði hann
sjálfur fyrir samstarfið og óskaði
bæjarstjórninni góðs gengis. Björt
framtíð á einn fulltrúa í bæjarstjórn
Árborgar og sæti Viðars tekur Eyrún
Björg Magnúsdóttir, framhaldsskóla-
kennari og stjórnsýslufræðingur.
Már Ingólfur Másson kennari er
varamaður hennar.
Eyrún verður einnig aðalmaður
á aðalfundi SASS, í fulltrúaráði Hér-
aðsnefndar Árnesinga og á aðalfundi
Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, auk
þess sem hún verður varamaður á
Landsþingi Sambands íslenskra
sveitarfélaga.
Mikið lagt í afmælistónleika
Morgunblaðið/Sigmundur
Breyttur jeppi Brynjar Svansson og Gunnar Karlsson, frá RARIK við
breyttan Ford F-350 bíl sem starfsmenn IceCool á Selfossi afhentu þeim ný-
verið. Tveir slíkir eru nú í notkun hjá RARIK á Hvolsvelli og í Borgarnesi.
Erla María Markúsdóttir
erla@mbl.is
„Þetta kom okkur á óvart vegna þess
að við vissum að það hefur verið
stefnumótun í gangi í mennta- og
menningarmálaráðuneytinu og eftir
því sem við vissum best var ráðherr-
ann búinn að setja
það á oddinn að
ná svokölluðu
Norðurlanda-
meðaltali 2020 í
stað 2021. Þess
vegna vorum við
að vona að þetta
myndi ganga,“
segir Jón Atli
Benediktsson,
rektor Háskóla
Íslands.
Rektorar allra háskóla á Íslandi
sendu frá sér yfirlýsingu í gær þar
sem þeir lýsa miklum vonbrigðum
með að háskólar verði skildir eftir í
þeirri sókn í íslensku samfélagi sem
fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar
fyrir árin 2017–2021 gerir ráð fyrir.
„Þar er gert ráð fyrir verulegri heild-
arútgjaldaaukningu sem endurspegl-
ast ekki í fjárveitingum til háskóla-
og rannsóknarstarfs,“ segir í yfirlýs-
ingunni. Samkvæmt nýrri fjár-
málaáætlun ríkisstjórnarinnar mun
fjármögnun á háskólastigi aukast úr
39,3 milljörðum árið 2017 í 41,8 millj-
arða árið 2021. „Þetta er lítil hækk-
un, um 6,4% á þessu tímabili. Inni í
þessu er einnig Hús íslenskra fræða,
en gert er ráð fyrir þremur milljörð-
um í það verkefni. Þetta eru því mikil
vonbrigði fyrir okkur,“ segir Jón
Atli.
Íslenskir háskólar
undirfjármagnaðir
„Skýrslur OECD hafa sýnt fram á
með óyggjandi hætti að íslenskir há-
skólar eru verulega undirfjármagn-
aðir og fá til að mynda helmingi
lægra framlag á hvern nemanda en
háskólar á Norðurlöndum,“ segir
meðal annars í yfirlýsingunni.
„Þetta hefur verið mikið í um-
ræðunni, meðal annars vegna stefnu
og aðgerðaáætlunar Vísinda- og
tækniráðs 2014-2016 þar sem er tal-
að um að háskólakerfið verði fjár-
magnað með svipuðum hætti og á
Norðurlöndum árið 2020. Það jafn-
gildir að einhverju leyti ríkisstjórn-
arsamþykkt vegna þess að forsætis-
ráðherra er formaður ráðsins og
mennta- og menningarmálaráðherra
og fjármálaráðherra sitja í ráðinu,“
segir Jón Atli.
Þörf á fimmtán milljörðum
Svo að Norðurlandameðaltalið ná-
ist telur Jón Atli að þörf sé á 15 millj-
arða króna aukningu til háskólanna.
Núverandi áætlun gerir ráð fyrir
tveimur milljörðum. „Þetta eru um-
talsverðar upphæðir en við vonumst
svo sannarlega eftir að okkar rödd
heyrist.“ Rektorar hafa ekki rætt
aftur við ráðherra eftir að áætlunin
var gefin út en það stendur til. „Við
fáum alltaf góð viðbrögð frá stjórn-
málamönnum en það er ansi mikið
sem vantar upp á í þetta sinn,“ segir
Jón Atli.
Rektorar telja ríkisstjórn-
ina skilja háskólana eftir
Fjárframlög til háskóla hækka um 6,4% samkvæmt fjár-
málaáætlun ríkisstjórnarinnar Rektorar eru óánægðir
Morgunblaðið/Ómar
HÍ Framlög til háskóla hækka um
6,4% á næstu fimm árum.
Jón Atli
Benediktsson