Morgunblaðið - 07.05.2016, Page 19
FRÉTTIR 19Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2016
Kringlunni 4c – Sími 568 4900
Fylgist með okkur á faceboock Við höfum lækkað vöruverð
Í ÚRVALI
20% afsláttur
af öllum vörum
KRINGLUKASTTil og með mánudag 9. maí
Bjarni Bene-
diktsson, fjár-
mála- og efna-
hagsráðherra,
segir að ekki sé
gert ráð fyrir því
í fjármálastefnu
og fjármála-
áætlun fyrir hið
opinbera til
næstu fimm ára,
að ríkissjóður
kaupi jörðina Fell.
Fell liggur að Jökulsárlóni að
austan og þjóðlendumörkum þar
norðan við, en hún hefur verið aug-
lýst til sölu. Jökulsárlón er einn vin-
sælasti viðkomustaður ferðamanna.
„Fjármálaáætlunin er svo mikið í
breiðu línunum, að það er ekki far-
ið inn á einstök mál, eins og jarða-
kaup. Það er miklu meiri spurning
um almenna stefnumörkun. En við í
fjármálaráðuneytinu, og ég veit
einnig í umhverfisráðuneytinu, er-
um vitanlega að fylgjast grannt
með máli Jökulsárlóns,“ sagði
Bjarni í samtali við Morgunblaðið í
gær.
Í frétt á heimasíðu fjármálaráðu-
neytisins um fjárhagsáætlunina
segir m.a. að hún feli í sér „að hægt
verði á næstu árum að búa enn
frekar í haginn fyrir komandi kyn-
slóðir með því að greiða niður op-
inberar skuldir, draga úr álögum á
fólk með lægri og sanngjarnari
sköttum, byggja upp samfélagslega
innviði og treysta til muna grunn-
þjónustu ríkisins með hækkun bóta,
eflingu heilbrigðiskerfisins og
auknum gæðum menntunar.“
agnes@mbl.is
Ekki ráð-
gert að
kaupa Fell
Fylgjast með Felli
og Jökulsárlóni
Bjarni
Benediktsson
Styrktarsjóður Kiwanisumdæm-
isins Ísland/Færeyjar og Kiwanis-
klúbbarnir Elliði, Eldey, Esja,
Hekla og Dyngja hafa gefið svo-
kallað Lucas2-hjartahnoðtæki til
notkunar í þyrlum Landhelgisgæsl-
unnar. Fór afhendingin fram á
þyrlupallinum við Landspítalann í
Fossvogi.
Forstjóri Landhelgisgæslunnar,
Georg Kristinn Lárusson, veitti
tækinu viðtöku fyrir hönd Land-
helgisgæslunnar ásamt áhöfnum
þyrlna Landhelgisgæslunnar.
Tækið sem Kiwanis gaf mun
skipta sköpum í umönnun sjúk-
linga um borð í þyrlunum, segir í
fréttatilkynningu. Þar segir að
tækið, sem kostar á þriðju milljón
króna, hafi verið í notkun víða um
heim með afar góðum árangri.
Veitir jafnt og gott hnoð
„Segja má að tækið leysi af
hólmi einn mann um borð í þyrl-
unum þegar endurlífgun á sér stað,
sem annars hefði þurft að sinna
hjartahnoði. Getur hann þá sinnt
öðrum mikilvægum málum í
tengslum við umönnun sjúklinga
um borð. Tækið veitir alltaf jafnt
og gott hnoð og þreytist ekki, ólíkt
mannshöndinni. Tækið er fær-
anlegt milli véla sem eykur enn
frekar notagildi þess,“ segir í til-
kynningunni.
Georg Kristinn forstjóri sagði að
Landhelgisgæslan sé afar þakklát
fyrir þessa rausnarlegu gjöf sem
muni auka verulega gæði og ör-
yggi í umönnun sjúkra um borð í
þyrlum Landhelgisgæslunnar.
Gáfu hjartahnoðtæki í þyrlur
Ljósmynd/Landhelgisgæslan
Afhending Forstjóri Landhelgisgæslunnar afhendir forsvarsmönnum Kiw-
anis skjöld með merki Landhelgisgæslunnar í þakklætisskyni fyrir gjöfina.
Nýja tækið leysir af hólmi einn mann um borð í þyrlunum
Í dag, laugardaginn 7. maí, heldur
Hekla hinn árlega Volkswagen-dag
hátíðlegan milli kl. 12 og 16 að
Laugavegi 170.
Nýr og glæsilegur Volkswagen
Passat GTE verður frumsýndur.
Hann gengur fyrir bæði rafmagni
og bensíni og honum má leggja frítt
í stæði.
Auk Passat GTE verður til sýnis
úrval Volkswagen-bíla sem spann-
ar allan skalann frá borgarbílum til
Touareg. Þá verða sértilboð á sýn-
ingarbílum á staðnum. Að auki
verður boðið upp á reynsluakstur,
ís frá Valdís og blöðrudýr fyrir
börnin.
Allir eru velkomnir.
Hekla heldur
Volkswagen-dag