Morgunblaðið - 07.05.2016, Side 31
Dómkirkju árið 1820. Leiðið og leg-
steinninn eru nú týnd.
Geir Vídalín góði, Reykjavík-
urbiskup, sem varð gjaldþrota sök-
um gjafmildis við snauða í Reykja-
vík, lét stækka kirkjugarðinn til
austurs, þegar þrengja fór að
greftrunarplássi. Hann lést í ör-
birgð 1823 og var jarðaður í þeim
hluta sem hann lét stækka og vígði.
Espólín greindi svo frá útför herra
Geirs biskups: „Engum var boðið
til hennar nema þeim sem honum
skyldu fylgja. Embættismenn og
stúdentar skiptust um að bera níð-
þunga kistuna gerða af þykkum
plönkum með skrúfnöglum. Um-
gerðin vó nærri fjórum vættum.“
Gildur Geir vó fjórar vættir (fjórar
vættir töldust um 160 kg) og bisk-
up og kista vógu því saman um 320
kg. Það þurfti til heila tylft emb-
ættismanna eða stúdenta til burð-
ar.
Skrúðgarður landlæknis
Árið 1883 fékk Schierbeck land-
læknir garðinn leigðan með því
skilyrði að hann myndi láta girða
hann laglega. Hann lét svo gera
fagran skrúðgarð með blómum og
trjám. Eftir að landlæknir fór al-
farinn af landinu fékk Halldór
Daníelsson bæjarfógeti garðinn til
umsjónar. Þá var hann kallaður
Bæjarfógetagarðurinn. Skrúðgarð-
urinn var af svipaðri stærð og upp-
runalegi kirkjugarðurinn.
Fyrri framkvæmdir
í Víkurgarði
Lyfsalinn O. Thorarenssen fékk
leyfi til að reisa lyfjabúð við Aust-
urvöll 1833. Síðar fékkst leyfi til að
reisa vöruhús og efnarannsóknar-
stofu sem brunnu árið 1882. Árið
1915 fékk Christensen lyfsali leyfi
til að gera vörugeymslukjallara
þar. Bakhús Landsímastöðvarinnar
var reist 1931 og var þá gerð ak-
braut inn í portið. Við gerð hennar
fundust fjórar járnhellur með graf-
skriftum. G. Hlíðdal landsímastjóri
spurði Matthías Þórðarson þjóð-
minjavörð hvað gera skyldi við
hellurnar og vildi Matthías að þær
yrðu geymdar sem næst leiðunum.
Var síðan gerður múrveggur sem
hellurnar voru festar á í röð. Við
lagningu símakapals í gegn um
garðinn komu upp mergð manna-
beina. Einnig fannst legsteinn
Gunnlaugs Oddssonar dómkirkju-
prests (d. 1835).
Landsímahúsið (1967)
Í nýju skipulagi Landsímareits
er gert ráð fyrir hótelviðbót við
húsið. Víkurkirkjugarður fær svo-
kallaða hverfisvernd samkvæmt
því, sem yrði sama eðlis og gildir
fyrir Hólavallagarð.
Fornleifauppgröftur og ný
ásýnd Víkurkirkjugarðs
Tillaga um fornleifauppgröft á
svæðinu var lögð fyrir borgarráð
um aldamót.
Full ástæða þótti til að garð-
urinn yrði rannsakaður sem kostur
væri og gengið yrði síðan frá hon-
um með þeirri virðingu og fegrun
sem kirkjugarði með aldagamla
sögu þrjátíu kynslóða Víkverja
sæmir.
Ungur fornleifafræðingur, Vala
Garðarsdóttir, hefur hafið rann-
sóknir og fornleifauppgröft á svæð-
inu og segir hún að búast megi við
að finna miklar menningarminjar
frá elstu tíð.
Höfundur er arkitekt.
MESSUR 31á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2016
AÐVENTKIRKJAN í Reykjavík | Ingólfsstræti
19, Reykjavík
Í dag, laugardag: Biblíufræðsla kl. 11. Guðs-
þjónusta kl. 12. Ræðumaður erEric Guðmunds-
son. Barna- og unglingastarf. Súpa og brauð eft-
ir samkomu.
AÐVENTKIRKJAN í Vestmannaeyjum |
Brekastíg 17, Vestmannaeyjum. Í dag, laug-
ardag: Guðsþjónusta kl. 12.
AÐVENTSÖFNUÐURINN á Akureyri | Eiðs-
vallagötu 14, Gamli Lundur. Í dag, laugardag:
Biblíurannsókn kl. 11. Guðsþjónusta kl. 12.
Barnastarf.
AÐVENTSÖFNUÐURINN á Suðurnesjum |
Blikabraut 2, Keflavík. Í dag, laugardag: Biblíu-
fræðsla kl. 11. Guðsþjónusta kl. 12. Ræðu-
maður: Einar Valgeir Arason.
AÐVENTSÖFNUÐURINN í Árnesi | Eyravegi
67, Selfossi. Í dag, laugardag: Biblíufræðsla kl.
10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður: Jens
Danielsen. Barna- og unglingastarf.
AÐVENTSÖFNUÐURINN í Hafnarfirði | Hóls-
hrauni 3, Hafnarfirði. Í dag, laugardag: Guðs-
þjónusta kl. 11. Ræðumaður er Björgvin Snorra-
son. Biblíufræðsla kl. 11.50. Barna- og
unglingastarf. Umræðuhópur á ensku.Súpa og
brauð eftir samkomu.
ÁRBÆJARKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta
kl. 11. Sr. Petrína Mjöll og Bryndís Eva sjá um
stundina. Kjartan leikur á píanóið.
ÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Séra Sigurður Jóns-
son, sóknarprestur, prédikar og þjónar fyrir alt-
ari ásamt Kristnýju Rós Gústafsdóttur djákna.
Kammerkór Áskirkju syngur, organisti er Magn-
ús Ragnarsson. Kaffisopi eftir messu.
BESSASTAÐAKIRKJA | Síðdegisguðsþjón-
usta kl. 17. Sr. Hans Guðberg og Margrét djákni
leiða stundina. Um tónlistina sjá Lærisveinar
hans ásamt Bjarti Loga organista. Börn sem
fermast á árinu 2017 eru sérstaklega boðin vel-
komin ásamt foreldrum sínum og eftir guðsþjón-
ustuna verður farið yfir fyrirkomulag ferming-
arfræðslu sem hefst í haust. Fermingardagar
hafa verið kynntir á bessastadasokn.is
BÚSTAÐAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11, séra
Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir
altari. Félagar úr kór Bústaðakirkju syngja undir
stjórn Antoniu Hevesi. Kaffi eftir guðsþjónustu.
DIGRANESKIRKJA | Tónlistarmessa kl. 11.
Prestur séra Gunnar Sigurjónsson, organisti er
Sólveig Sigríður Einarsdóttir, vortónleikar
Kammerkórs Digraneskirkju. Veitingar í safn-
aðarsal að messu lokinni.
Dómkirkja Krists konungs, Landakoti |
Messa á sunnud. kl. 8.30 á pólsku, kl. 10.30 á
íslensku, kl. 13 á pólsku, kl. 15 á litháísku og
kl. 18 á ensku. Virka daga kl. 18, og má., mi. og
fö. kl. 8, lau. kl. 16 á spænsku og kl. 18 er
sunnudagsmessa.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Karl Sig-
urbjörnsson biskup prédikar og þjónar fyrir alt-
ari. Dagmar Sigurðardóttir og Birgir Finnsson
lesa ritningarlestrana. Dómkórinn syngur og org-
anisti er Kári Þormar. Minni á bílastæðin gengt
Þórshamri.
FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Svavar Stefánsson þjónar fyrir altari. Odd-
fellowkórinn Hallveigarsynir syngja undir stjórn
Jón Karls Einarssonar og Arnhildar Valgarðs-
dóttur organista. Þór Breiðfjörð syngur einsöng.
Meðhjálpari er Jóhanna Freyja Björnsdóttir.
Molasopi eftir stundina.
FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Fermingarmessur
kl. 11 og 13. Kór og hljómsveit kirkjunnar leiðir
sönginn undir stjórn Arnar Arnarsonar. Organisti
er Skarphéðinn Þór Hjartarson og bassaleikari
er Guðmundur Pálsson. Prestar Sigríður Kristín
Helgadóttir og Einar Eyjólfsson.
FRÍKIRKJAN Kefas | Almenn samkoma í dag
kl. 13. Pétur Erlendsson prédikar og tónlist-
arhópur kirkjunnar leiðir lofgjörð. Gæsla fyrir
börn og kaffi og samvera í lokin.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjónusta kl.
14. Séra Hjörtur Magni Jóhannsson prédikar og
leiðir stundina. Sönghópurinn við Tjörnina leiðir
tónlistina ásamt Aðalheiði Þorsteinsdóttur pí-
anóleikara. Við hvetjum fermingarbörn og fjöl-
skyldur þeirra til að mæta í guðsþjónustuna.
GLERÁRKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Gunn-
laugur Garðarsson þjónar. Kór Glerárkirkju leiðir
söng undir stjórn Valmars Valjaots, organista.
Aðalsafnaðarfundur Lögmannshlíðarsóknar eft-
ir messu.
GRAFARVOGSKIRKJA | Uppskeruhátíð
barnastarfsins kl. 11. Umsjón hafa sr. Arna Ýrr
Sigurðardóttir og Benjamín Pálsson. Undirleikari
er Stefán Birkisson. Jói og Sóley frá Sirkus Ís-
lands koma og skemmta. Hoppukastali, grill-
aðar pylsur og gos.
GRENSÁSKIRKJA | Morgunverður kl. 10 og
bænastund kl. 10.15.
Messa kl. 11. Altarisganga. Samskot til Biblíu-
félagsins. Messuhópur þjónar. Kór frá Domus
vox syngur, skólastjóri Margrét J. Pálmadóttir.
Organisti er Ásta Haraldsdóttir. Prestur er Ólafur
Jóhannsson. Kaffi eftir messu. Hversdags-
messa á fimmtudag kl. 18.10-18.50. Þorvaldur
Halldórsson sér um tónlist.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Ganga á Helga-
fell. Gengið verður á Helgafell í stað hefðbund-
innar messu sunnudaginn 8. maí. Lagt verður af
stað frá Hafnarfjarðarkirkju kl. 10.30 (við förum
á eigin bílum, þeir sem ekki hafa bíl fá far hjá
öðrum). Lagt verður af stað kl. 11 frá Kald-
árbotnum. Gangan tekur 2-3 klukkutíma, róleg
ganga. Leiðsögumaður er Baldvin Her-
mannsson. Ritningarlestur og bænagjörð á
göngunni. Hressing þegar upp er komið.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barnastarf
kl. 11. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og
þjónar fyrir altari ásamt hópi messuþjóna. Fé-
lagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Org-
anisti er Björn Steinar Sólbergsson. Umsjón
barnastarfs Inga Harðardóttir. Bænastund má-
nud. kl. 12.15. Fyrirbænaguðsþjónusta þriðjud.
kl. 10.30. Árdegismessa miðvikud. kl. 8. Kyrrð-
arstund fimmtud. kl. 12.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa og sumargleði kl.
11. Helgihald í léttum dúr. Organisti er Kári All-
ansson. Grillað í sumarblíðunni að messu lok-
inni. Leikir fyrir börnin í umsjá Grímu og Birkis.
Aðalsafnaðarfundur að messu lokinni. Prestur
er sr. Helga Soffía Konráðsdóttir.
Hátúnsheimilið | Guðsþjónusta í Betri stof-
unni Hátúni 12 kl. 13. Hrafnhildur Eyþórsdóttir
djákni og Jóhanna María Eyjólfsdóttir djákna-
nemi þjóna ásamt Kristni Guðmundssyni með-
hjálpara og Arngerði Maríu Árnadóttur tónlistar-
stjóra, sem leiðir safnaðarsöng.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Messa kl. 11 í
umsjón karlahóps kirkjunnar, en það er grasrót-
arhópur sem hittist vikulega til að tala og biðja
saman. Hugvekju flytjur Björn Hjalmarsson
læknir. Undirleik annast Gunnar Böðvarsson og
Björn Hjálmarsson. Félagar úr hópnum taka virk-
an þátt í ýmsum öðrum messuliðum. Prestur er
Steinunn A. Björnsdóttir. Að lokinni messu er
kirkjukaffi í umsjón karlahópsins.
www.hjallakirkja.is
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Samkoma kl. 20.
Lofgjörð og fyrirbænir. Ólafur H. Knútsson pre-
dikar. Kaffi og samfélag eftir stundina.
KÓPAVOGSKIRKJA | Messa kl. 11. Sigurður
Arnarson sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir
altari ásamt Ástu Ágústsdóttur djákna. Kór
Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Má-
téová kantors kirkjunnar. Aðalsafnaðarfundur í
safnaðarheimilinu Borgum að lokinni messu.
KVENNAKIRKJAN | Guðsþjónusta í Garða-
kirkju á Álftanesi kl. 20. Signý Gunnarsdóttir og
Sólveig Hannesdóttir segja frá trú sinni og séra
Auður Eir Vilhjálmsdóttir talar um daglega trú.
Aðalheiður Þorsteinsdóttir stjórnar sálmasöng
og leikur á píanó. Á eftir verður kaffi í Króki.
LANGHOLTSKIRKJA | Síðasta fjölskylduguðs-
þjónusta vetrarins kl. 11. Sr. Jóhanna Gísladótt-
ir og Snævar Jón Andrjesson æskulýðsfulltrúi
leiða stundina. Skólahópur Krúttakórs Lang-
holtskirkju leiðir söng og tekur lagið undir stjórn
Thelmu Hrannar Sigurdórsdóttur og Ragnheiðar
Söru Grímsdóttur. Bryndís Baldvinsdóttir spilar
undir. Messuþjónar aðstoða við helgihaldið.
Stundin hentar öllum aldurhópum.
LAUGARNESKIRKJA | Messa og barnastarf
kl. 11. Sr. María Ágústsdóttir héraðsprestur pré-
dikar og þjónar ásamt Hrafnhildi Eyþórsdóttur
og Þuríði Björg Wiium guðfræðinema. Arngerður
María Árnadóttir stjórnar tónlist og leiðir safn-
aðarsöng ásamt félögum úr Fílharmóníu-
söngsveit. Barnastarf undir stjórn Hjalta Jóns
Sverrissonar og félaga.
LÁGAFELLSKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta
kl. 11 – lokastund barnastarfsins. Tónlist í guðs-
þjónustunni flytja: Jögvan Hansen, söngvari, Ás-
björg Jónsdóttir, píanóleikari, ásamt Barnakór
Lágafellsskóla. Stjórnandi Guðbjörg Hilm-
arsdóttir, Hreiðar Örn Zoega. Ragnheiður Jóns-
dóttir sóknarprestur.
LINDAKIRKJA í Kópavogi |
Sunnudagaskóli kl. 1, messa með altarisgöngu
kl. 20. Kór Lindakirkju sér um tónlistina undir
stjórn Óskars Einarssonar. Sr. Sveinn Al-
freðsson þjónar. Lofgjörðar- og fyrirbænastund
kl. 20. Margrét Sigurðardóttir, umboðsmaður
barna, segir nokkur orð. Sveinn Alfreðsson flytur
hugvekju
NESKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.
Barnakór Neskirkju og Kór Neskirkju syngja.
Leiðtogar í barnastarfi leiða stundina ásamt sr.
Skúla S. Ólafssyni. Að lokinni guðsþjónustu
verður boðið upp á pylsur á kirkjutúninu og
hoppukastala.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Guðsþjónusta (vel-
komumessa) og barnastarf kl. 14. Prestur er
Pétur Þorsteinsson. Meðhjálpari er Petra Jóns-
dóttir. Karlakórinn Stefnir leiðir sálmasöng og
svör undir stjórn organistans, Árna Heiðars
Karlssonar. Einnig mun krakkahópur úr Suð-
urhlíðaskóla syngja undir stjórn Frode Jak-
obsen. Nýskráðir félagar sérstaklega velkomnir.
Ólafur Kristjánsson mun taka vel á móti öllum.
Viðamikill viðurgerningur, rjómatertur og tröllas-
úrubökur með svartbaunaseyðinu eftir messu.
SALT kristið samfélag | Samkoma kl. 17 í
Kristniboðssalnum, Háaleitisbraut 58-60, 3.
hæð. Ræðumaður er Guðlaugur Gunnarsson.
Túlkað á ensku. Barnastarf. Ath. breyttan sam-
komutíma.
SELJAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Ólaf-
ur Jóhann Borgþórsson prédikar. Kór Seljakirkju
leiðir safnaðarsöng. Organisti er Tómas Guðni
Eggertsson. Guðsþjónusta og kirkjureið kl. 14.
Riðið frá hesthúsahverfum til Seljakirkju. Hall-
dór Halldórsson, formaður reiðveganefndar
Spretts, prédikar. Sr. Valgeir Ástráðsson þjónar
fyrir altari. Brokkkórinn syngur við undirleik
Magnúsar Kjartanssonar.
SELTJARNARNESKIRKJA | Messa kl. 11. Í
messunni verður þess minnst að 30 ár eru liðin
frá því að Solveig Lára Guðmundsdóttir vígslu-
biskup var ráðin sem fyrsti sóknarprestur Sel-
tjarnarnesprestakalls. Sr. Solveig Lára prédikar.
Bjarni Þór Bjarnason sóknarprestur þjónar fyrir
altari. Organisti er Glúmur Gylfason. Forsöngvari
er Ragnhildur Dóra Þórhallsdóttir. Kaffiveitingar
og samfélag eftir athöfn.
Orð dagsins:
Biðjið í Jesú nafni.
(Jóh. 16)
Morgunblaðið/Kristinn
Mosfellskirkja.
FANNBERG FASTEIGNASALA ehf. Sími 487 5028
Guðmundur Einarsson, lögg. fasteignasali
Jón Bergþór Hrafnsson, viðskiptafræðingur
ÞRÚÐVANGI 18 -
850 HELLU
Veitingahús
á HvolsvelliTil
sölu
Til sölu er veitingastaðurinn Gallery Pizza á Hvolsvelli. Fyrirtækið hefur verið rekið
í 25 ár og nýtur vinsælda í héraði og meðal ferðamanna. Vetingastaðurinn sem er
vel búinn tækjum, er rekinn í 214 fm húsnæði á góðum stað á Hvolsvelli, auk þess
fylgir með einbýlishús, sem staðsett er við hliðina á veitingastaðnum.
Mögulegt er að kaupa rekstur, tæki og húsnæði, eða að kaupa einungis rekstur
og tæki og leigja húsnæðið. Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu.
FANNBERG FASTEIGNASALA ehf. Sími 487 5028
Guðmundur Einarsson, lögg. fasteignasali
Jón Bergþór Hrafnsson, viðskiptafræðingur
ÞRÚÐVANGI 18 -
850 HELLU
Einbýlishús
á HelluTil
sölu
Til sölu er 198,5 fm einbýlishús ásamt 32 fm bílskúr við Heiðvang nr. 21, á Hellu. Húsið er
byggt úr steinsteypu árið 1972. Það er múrað og málað að utanverðu og hluti þess hefur
verið klæddur með timburklæðningu. Eignin telur, anddyri, gang, salerni, stofu, eldhús,
þvottahús, herbergjagang, baðherbergi og fimm svefnherbergi. Undir hluta hússins er
kjallari sem hefur verið innréttaður sem fjölskylduherbergi. Í húsinu eru vandaðar
innréttingar úr hlyn og við það er stór verönd úr timbri með heitum potti. Húsið stendur við
botnlangagötu á góðum útsýnisstað í Helluþorpi. Verð kr. 39.500.000,-
Nánari upplýsingar og myndir á heimasíðu www.fannberg.is og á skrifstofu.
Skipti mögulega á ódýrari eign.
Skráðu þig
í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/
Nú geta
allir fengið
iPad-áskrift