Morgunblaðið - 07.05.2016, Blaðsíða 34
✝ SigursteinnGuðmundsson
fæddist að
Nýlendugötu 18 í
Reykjavík 16. nóv-
ember 1928. Hann
lést á Heilbrigðis-
stofnun Norður-
lands á Blönduósi
20. apríl 2016.
Sigursteinn var
fimmta barn for-
eldra sinna, en þau
voru Sigurlína Magnúsdóttir, f.
22.12. 1896, d. 13.3, 1976, frá
Hnjóti í Örlygshöfn, og Guð-
mundur Valdimar Elíasson, f.
9.11. 1894, d. 19.3. 1977, frá
Lambavatni á Rauðasandi og
eru af svokallaðri Kollsvík-
urætt. Systkini Sigursteins:
Guðrún Rakel, f. 20.6. 1922, Elí-
as, f. 17.9. 1923, látinn, Magnús,
f. 28.1. 1925, látinn, Hulda Re-
bekka, f. 16.6. 1926, látin, Guðný
Mikkelína, f. 2.8. 1930, Sigríður
Ásta, f.13.9.1937, látin, Guð-
mundur Hafþór, f. 24.6. 1943.
Sigursteinn giftist 1950 Bri-
gitte, fædd Leuschner, 27.1.
1926, d. 6.1. 1995, ættuð frá
Königsberg í Þýskalandi. For-
20 ára var Kristín Ágústsdóttir,
f. 28.6. 1940.
Sigursteinn varð stúdent frá
MR 1950 og Cand med. í júní
1958 frá HÍ. Almennt læknaleyfi
í október 1959. Störf: Starfaði
fyrst hjá Páli Kolka í eitt ár
1959 og síðan sem staðgengill
héraðslæknis í eitt ár á Patreks-
firði, 1960 til maí 1961. Aðstoð-
arlæknir og framhaldsnám í
kvensjúkdómum og fæðinga-
hjálp á Universitäts Frau-
enklinik í Kiel í Þýskalandi frá
júlí 1961 til desember 1962. Tók
þá við embætti héraðslæknis á
Blönduósi í desember 1962.
Kláraði svo námið hér heima við
kvennadeild Landspítala Íslands
og fékk sérfræðingsleyfi í kven-
sjúkdómum og fæðingarhjálp í
júlí 1988. Starfaði við Héraðs-
hæli Austur- Húnvetninga allt
til starfsloka, í janúar 1999, eða
í hart nær 40 ár.
Félags- og trúnaðarstörf:
Formaður Læknafélags
Norðvesturlands 1965-1967,
1969-1972 og 1977-1978. For-
maður Krabbameinsfélags Aust-
ur-Húnvavatnssýslu frá stofnun
í nóvember 1968-1996. Í sýslu-
nefnd Austur-Húnavatnssýslu
1966-1985. Lionsfélagi frá stofn-
un og til dánardægurs.
Sigursteinn verður jarðsung-
inn frá Blönduóskirkju í dag, 7.
maí 2016, og hefst athöfnin
klukkan 14.
eldrar hennar voru
Erna Leuschner, f.
Edel, f. 29. júní
1893, d. í apríl
1974, og Vilhelm
Leuschner, f. 25.10.
1894, d. í septem-
ber 1964. Brigitte
breytti síðan nafni
sínu í Brigitta Vil-
helmsdóttir við ís-
lenskan ríkisborg-
arrétt.
Börn Sigursteins og Birgittu:
1. Matthías L., f. 19.10. 1950,
kvæntur Fanney Zophoníasdótt-
ur, f. 15.3. 1953. Börn þeirra:
Greta, f. 1.4. 1968, Brigitta, f.
2.7. 1971, og Guðmundur Freyr,
f. 23.3. 1980. Eiga þau sex
barnabörn. 2. Rósa Margrét, f.
20.6. 1955, gift Rúnari Þór Ingv-
arssyni, f. 2.7. 1950. Börn
þeirra: Perla, dóttir Rúnars, f.
22.7. 1972, Sigrún Eva, dóttir
Rósu, f. 29.9. 1973, Katrín Lauf-
ey, f. 30.6. 1977, og Sigursteinn
Ingvar, f. 30.11. 1979. Eiga þau
15 barnabörn. 3. Guðmundur
Elías, f. 18.11. 1957, d. 2.3. 1976,
barnlaus.
Sambýliskona Sigursteins til
Nú ertu horfinn á braut, elsku
faðir minn. Mamma og Gummi
bróðir hafa örugglega tekið á
móti þér.
Margs er að minnast og margs
er að sakna. Þú varst alltaf glað-
ur, hlýr og kletturinn sem var
alltaf til staðar þegar að reyndi á.
Ógleymanlegar eru ferðirnar
með þér í vitjanir. Við Gummi
bróðir heitinn fengum stundum
að koma með. Þá kenndir þú okk-
ur heitin á bæjunum á leiðinni
upp í sveit og á bakaleiðinni
spurðir þú okkur um heiti þeirra
til að vita hvort að við myndum
nöfnin. Eitt sinn vorum við að aka
fram hjá Kringlu og þú spurðir:
„Hvað heitir þessi bær?“ Gummi
var fljótur til og sagði: „Mmmm,
Tvíbaka.“ Já og þá var mikið
hlegið. Man líka þegar þú sagðir
okkur skemmtilega frá þegar
sveitasíminn var í algleymingi og
þú varst læknir á Patró. Það var
vonskuveður og mikil ófærð, er
eitt sinn var hringt af bæ hinum
megin við fjörðinn. Þá var ein
með slæmt astmakast og pabbi
sagði að Jóna á næsta bæ væri
nýbúin að fá astmalyf og myndi
örugglega lána henni lyf þar til
hægt væri að komast til Patró og
þá gall við í símanum: „Já, já,
ekkert mál, hún getur komið til
mín og ég redda þessu.“ Þannig
var það í þá daga. Eins þegar að
þú þurftir að fara á skíðum ásamt
sýslumanni yfir á Tálknafjörð, þú
að sinna lækningum og sýslumað-
urinn lagalegu hliðinni. Eða þá
fyrsti keisarinn, með prófessor-
inn í símanum á öxlinni að leið-
beina þér. Já, það var allt gert
sem gera þurfti varðandi lækn-
ingar á þeim tíma. Þú vitnaðir oft
í dvölina á Patreksfirði. Þú varst
mikill söngmaður. Spilaði á
harmonikku og píanó, allt nótu-
laust. Bara eftir eyranu. Oft tók-
um við rimmur út af konum í
Lions, þá gustaði í kringum okk-
ur. Þitt hobbí var kvikmyndagerð
og ljósmyndataka. Eftir þig ligg-
ur gríðarmikið safn af myndum
alveg frá tíma svart/hvítu mynd-
anna. Heimildarmyndir úr hér-
aðinu sem eru algjörir gimstein-
ar.
Elsku pabbi, ég mun sakna
faðmlagsins og símhringinganna.
En þú varst lánsamur með að
hafa hana Kristinu, Stína mín, án
hennar hefðir þú ekki getað verið
svona lengi heima. Ég verð æv-
inlega þakklát fyrir það. Hvíl í
friði, elsku pabbi, og Guð geymi
þig.
Þín dóttir,
Rósa Margrét
Sigursteinsdóttir.
Frá er fallinn mikill höfðingi,
Sigursteinn Guðmundsson, lækn-
ir og brautryðjandi í heilbrigðis-
málum á Norðurlandi. Einn af
þessum mönnum sem var trúr og
dyggur sinni köllun sem læknir,
maður sem lengi verður minnst
fyrir störf sín í heilbrigðismálum.
Ég á margar góða minningar
um ástkæran tengdaföður minn
sem ég leit mikið upp til og tók til
fyrirmyndar í mínu lífi og starfi.
Hann var víðsýnn og hafði skoð-
anir á ýmsum málum sem við
ræddum gjarnan um þegar við
hittumst og opnaði það minn
þrönga haus til að horfa á lífið í
víðara samhengi. Við ræddum
mikið um orkumál og hafði hann
mikinn áhuga á mínu starfi í
orkugeiranum.
Mikið var ég hissa þegar ég sá
bílskúrinn hans í fyrsta skiptið,
allt í röð og reglu og málverk á
veggjunum og bílar hreinir og
þrifalegir þar inni.
Sagði hann gjarnan þegar
hann kom í heimsókn til okkar
núna síðustu árin að ég hefði nú
eitthvað lært af sér því minn bíl-
skúr er líka flísalagður og með
málverk á veggjum eins og hjá
honum.
Á síðari árum þegar við Rósa
vorum flutt frá Blönduósi og
hann kom í heimsókn þótti hon-
um gaman að fara með mér rúnt í
Hafnarfjörðinn þar sem hann var
alinn upp.
Þar þekkti hann húsin með
nafni og talaði um hverjir áttu
heima í þessum húsum og hvað
þeir gerðu. Gaman að hlusta á
sögur frá því Rafha varð til og
þegar verið var að virkja Lækinn
í Hafnarfirði.
Með honum veiddi ég minn
fyrsta og eina lax í Blöndu, senni-
lega verða þeir ekki fleiri.
Við Rósa ferðuðumst með hon-
um um Evrópu á stóra Chevrolet
Classic drekanum og var það
fróðlegt að ferðast um með fólki
sem talaði reiprennandi þýsku og
ensku og þekkti staði sem vert
var að skoða.
Ég lærði að drekka bjór með
honum og var alltaf valið af krana
því það var ekki til á Íslandi í þá
daga. Ég fékk lítinn og hann stór-
an.
Það verður tómlegt að koma á
Blönduós þegar þín nýtur ekki
við lengur og enginn hringir þeg-
ar við erum á leiðinni ofan af heið-
inni eins og þú gerðir svo gjarnan
til að vita hvenær við kæmum.
Takk fyrir allt, kæri tengda-
pabbi.
Rúnar Þór Ingvarsson.
Sigursteinn Guðmundsson
læknir á Blönduósi er fallinn frá.
Lífshlaup Sigursteins Guð-
mundssonar læknis verður ekki
rakið hér. Hann var föðurbróðir
minn og nú sækja á nokkrar
minningar um Sigurstein frænda.
Samgangur var nokkur á milli
bræðranna og þeirra fjölskyldna.
Til er svart/hvít ljósmynd af föður
mínum sem tekin var á Blönduósi
af Sigursteini í þann mund sem sá
fyrrnefndi ók af stað til Reykja-
víkur eftir að hafa flutt Sigurstein
og fjölskyldu til Blönduóss í byrj-
un mars árið 1959 þegar hann tók
til starfa á Blönduósi. Sagan segir
að Volkswagen-bifreið Sigur-
steins hafi meira og minna verið í
togi yfir Holtavörðuheiðna vegna
snjóþunga.
Sigursteinn og Brigitte eigin-
kona hans gistu oft hjá okkur í
Reykjavík. Þá var ávallt nokkur
eftirvænting ríkjandi, því bræð-
urnir gátu setið við og rifjað upp
sögur af mönnum og málefnum
frá uppvextinum í Hafnarfirði,
þannig að viðstaddir gátu ekki
annað en smitast af hlátri þeirra
og sagnagleði.
Þeir bræður voru vinir en það
var þeirra háttur að rökræða
frekar en að faðmast. Sigursteinn
var fróður sögumaður og það var
skemmtilegt að hlusta á hann
segja frá. Ég naut frændsemi
hans og reglulega fékk ég að
dvelja á heimili þeirra hjóna í
páskafríum með börnum hans,
Guðmundi og Rósu. Guðmundur
kom stundum til okkar í skólafrí-
um og tókst með okkur góð vin-
átta, enda vorum við jafnaldrar.
Guðmundur féll frá langt um ald-
ur fram.
Íbúð Sigursteins og Brigitte
var fyrst um sinn hluti af sjúkra-
húsinu á Blönduósi og var innan-
gengt. Kom þá fyrir að við börnin
laumuðumst í heimsóknir á elli-
heimilið sem þá var í sömu bygg-
ingu. Af þeim heimsóknum var
auðvelt að sjá hversu vel látinn
Sigursteinn var sem læknir.
Þeir bræður, Sigursteinn og
Magnús, áttu það til að ferðast
saman um hálendið og fara í
veiðiferðir. Foreldrar mínir fóru
reglulega inn á hálendið á sumr-
in. Sigursteinn hafði mikinn
áhuga á kvikmyndagerð og ljós-
myndun og öllu sem því tengdist.
Hann var góður ljósmyndari og
gerði mikið af því að kvikmynda.
Hann lagði sig allan fram við
þá iðju. Það var t.d. ekkert til-
tökumál að láta frænda sinn, þá
14 ára, aka nokkrum sinnum yfir
ár að Fjallabaki í þeim eina til-
gangi að ná góðri kvikmynd af
akstrinum.
Á áttunda áratug þessarar ald-
ar voru ekki allir vegir malbikaðir
á milli Blönduóss og Reykjavíkur.
Kom því fyrir að ökutæki Sigur-
steins væru auri ausin þegar
komið var til Reykjavíkur. Kom
það gjarnan í minn hlut að þrífa
bílana hans. Sigursteinn sýndi
unglingnum fullt traust með því
að afhenda lyklana og óska eftir
þrifum. Ökutæki hans voru yfir-
leitt ekki af verri endanum og
verklaun voru góð. Sigursteinn
var hlýr maður sem góð orka
stafaði frá. Ég votta aðstandend-
um hans mína dýpstu samúð.
Magnús Haukur Magnússon.
Látinn er nú á áttugasta og
áttunda aldursári einn af þekkt-
ari Blönduósingum seinni tíma,
Sigursteinn Guðmundsson, fv.
héraðslæknir okkar Austur-Hún-
vetninga. Sigursteinn fær veit-
ingu fyrir læknishéraðinu í árs-
byrjun 1963. Var þá búinn að
starfa hér nýútskrifaður kandí-
dat með Páli Kolka um hríð. Sig-
ursteinn er úti í í Kíel í Þýska-
landi í miðju framhaldsnámi er
hann fær fregnir af því að héraðið
sé laust. Hann er hvattur til að
sækja um. Björg Kolka læknisfrú
lét svo um mælt er hún vissi að
Sigursteinn hefði sótt um. „Ég
hef heitið á Blönduóskirkju, að þú
fáir héraðið og hingað til hefur
Blönduóskirkja aldrei svikið
mig.“ Þarna var stigið mikið
gæfuspor í þágu okkar Húnvetn-
inga. Það hefur áreiðanlega verið
mikil áskorun fyrir hinn unga og
velmenntaða lækni að taka við
læknisstarfi í stóru og að mörgu
leyti erfiðu héraði sem Austur-
Húnavatnssýslan var.
En héraðsbúar tóku litlu lækn-
isfjölskyldunni mjög vel og brátt
var Sigursteinn kominn á kaf í
ýmisskonar félagsstörf meðfram
erfiðu læknisstarfi. Hann tekur
fljótlega sæti í sýslunefnd og sit-
ur þar um áratuga skeið. For-
maður nefndar í byggingu íbúða
fyrir aldraða. Frumkvöðull að
byggingu nýrrar álmu við Hér-
aðshælið. Formaður Krabba-
meinsfélags Austur-Húnavatns-
sýslu, alls um tuttugu ára skeið.
Félagi í Lionsklúbbi Blönduóss
fljótlega eftir stofnun hans til
dauðadags. Félagi í sönghópi
Lionsfélaga er kallaði sig Lions
sextettinn, undir stjórn Jónasar
Tryggvasonar. Sigursteinn hafði
góða söngrödd og hafði mikið
yndi af söng og góðri hljómlist.
Hann var félagi í Kór eldri borg-
ara meðan hann starfaði og þótti
slæmt er hann hætti.
Eitt enn vil ég nefna sem Sig-
ursteinn bar mjög fyrir brjósti og
var hans hjartans áhugamál.
Hann hafði forgöngu með að gera
örlítinn golfvöll við endann á
Flúðabakkanum meðfram Svín-
vetningabrautinni og lét sér annt
um hann alla tíð. Enn eitt áhuga-
mál Sigursteins var ljósmyndun.
Hann tók í gegnum tíðina óhemj-
umagn ljósmynda af fólki og við-
burðum í héraðinu.
Ég hef í þessari stuttu grein
drepið á örfá atriði í lífi og starfi
Sigursteins læknis. Hann var
mjög ljúfur maður í allri fram-
komu. Einstök snyrtimennska og
kurteisi var honum í blóð borin.
Sem læknir var hann afar vin-
sæll og vel metinn. Þó slapp hann
ekki við stór áföll í lífinu. Konu
sína, Birgittu, missti hann fyrir
aldur fram. Sonur þeirra fórst 18
ára með m/b Hafrúnu frá Eyrar-
bakka.
Sambýliskona Sigursteins um
20 ára skeið, Kristín Ágústsdótt-
ir, annaðist hann einstaklega vel
þegar heilsunni fór að hraka.
Húnvetningar kveðja nú sinn
Sigursteinn
Guðmundsson
34 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2016
Útfarar- og lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Snævar Jón Andrésson
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Við önnumst alla þætti
undirbúnings og framkvæmd
útfarar ásamt vinnu við dánar-
bússkiptin. Við þjónum með
virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð,
kveðjur og hlýhug vegna andláts og útfarar
okkar ástkæru eiginkonu, móður, systur,
mágkonu, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
HERVARAR JÓNASDÓTTUR.
Sérstakar þakkir færum við læknum og
hjúkrunarfólki Landspítalans.
Guð geymi ykkur öll.
.
Helgi Ágústsson,
Jónas R. Helgason, Unnur Árnadóttir,
Guðmundur B. Helgason, Helga Jóna Benediktsdóttir,
Helgi Gunnar Helgason, Fríða Ingibjörg Pálsdóttir,
Oddfríður S. Helgadóttir, Hjalti Daníelsson,
Hallgrímur Jónasson, Guðbjörg Þorvaldsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
ERLA HRÓLFSDÓTTIR,
Víghólastíg 10, Kópavogi,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
29. apríl. Útförin fer fram frá
Digraneskirkju mánudaginn 9. maí kl. 15.
.
Helgi Jóhannesson,
Edda Rósa Helgadóttir,
Heiðveig Helgadóttir, Tómas Ragnarsson,
Helgi Viðar Helgason, Marion Walser,
Sigurður Helgason, Heidi Greenfield,
Smári Helgason, Helinda Loh Akbar,
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæri
SIGURÐUR SIGFÚSSON,
Skarðsbraut 15, Akranesi,
andaðist á Höfða, hjúkrunar- og
dvalarheimili, mánudaginn 2. maí.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju
þriðjudaginn 10. maí kl. 13.
.
Sigríður Sigurðardóttir, Björn B. Þórhallsson,
Ragnheiður Sigurðardóttir, Sigurður Stefánsson,
Halldór Sigurðsson, Ása Helgadóttir,
Guðrún Sigurðardóttir, Hinrik Gunnarsson,
Lóa Sigurðardóttir,
Þórey Þórðardóttir
og afabörn.
Elskulegur eiginmaður minn,
ÓLI JAKOB HJÁLMARSSON
svæfingalæknir,
lést á Landspítalanum 20. apríl 2016.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hins látna.
Fyrir hönd aðstandenda,
.
Ása Margrét Ásgrímsdóttir.