Morgunblaðið - 07.05.2016, Blaðsíða 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2016
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Snúðu ekki upp á þig þótt aðrir
hlaupi ekki upp til handa og fóta til þess að
uppfylla óskir þínar. Leystu orku þína úr læð-
ingi. Það er ekki hægt að gera öllum til geðs.
20. apríl - 20. maí
Naut Þótt miklar annir séu hjá þér máttu
ekki vanrækja sjálfa/n þig. Líklega færðu
óvæntar fréttir sem tengjast ættmenni.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Settu það í forgang að verða öðr-
um að liði því það gefur þér mikið. Hvað varð
um líkamsræktaráformin? Taktu þér tak og
skelltu þér a.m.k. í góðan göngutúr.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Allt sem tengist rómantík, ástaræv-
intýrum, íþróttaiðkun, börnum, leiklist, partí-
um og listum heillar þig mest nú um stundir.
Leggðu deilumál til hliðar.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það er stundum erfitt að horfast í augu
við staðreyndir en hjá því verður samt ekki
komist. Mundu að þú munt ekki muna eftir
mánuð hvaða áhyggjur þú hefur í dag.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er allt í lagi að baða sig í vel-
gengninni en gleymdu því ekki að þú varst
ekki ein/n að verki. Taktu þér tíma til að
reyna að leysa gömul vandamál eða finna
nýjar leiðir.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það þykjast allir vita betur en þú og þér
finnst einhvern veginn eins og þú vitir ekki,
til hvaða ráða þú eigir að taka. Allir vilja
kynnast þér betur og eyða tíma með þér.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Horfur á rómantíska sviðinu eru
góðar á næstunni. Byrjaðu á því að tala ein-
ungis vel um sjálfa/n þig, hættu öllu niður-
rifi.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er vandratað meðalhófið og
þú verður að hafa þig alla/n við svo þér verði
ekki fótaskortur á tungunni. Fólk tekur betur
eftir þér núna en áður.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Samræður við maka þinn skipta
óvenju miklu máli þessa dagana. Nafnlaus
gjöf eykur á þroska þinn sem manneskju.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Fjölskyldan er hornsteinninn
hvort heldur er í gleði eða sorg. Vinir þínir
geta einnig komið þér skemmtilega á óvart.
Forðastu manneskju sem tekur frá þér orku
með neikvæðni sinni.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er mikill hamagangur í kringum
þig. Þú ert hvunndagshetja, hvorki meira né
minna. Reyndu að sjá alltaf hið besta í öllum.
Ekki reyna að þóknast öllum, það fer illa að
lokum.
Síðasta gáta – „í léttari kant-inum“ – var sem endranær
eftir Guðmund Arnfinnsson:
Biskups sess er sæti það.
Sést þar tróna presturinn.
Dómari upp þar dóminn kvað.
Dormar þar lærifaðirinn.
Helgi Seljan svarar:
Af biskupsstóli Agnes blessar lýð
og blessun predikar nú klerkastóð
Í dómstólunum háð er heilagt stríð
og höfgi í stólnum kennarans er góð.
Guðrún Bjarnadóttir á þessa
lausn:
Barin fer á biskupsstól.
Bæn ver predikunarstól.
Dómstóll gerir dæmdan foj.
Danskennari í LazyBoy.
Árni Blöndal leysir gátuna
þannig:
Sé ég helgan Hólastól.
Séra Halla er presturinn.
Dæmdur maður sá ei sól.
Sofnaður er kennarinn.
Helgi R. Einarsson svarar:
Glóran hún er söm við sig,
í sinnisleysi rólar.
Samt þetta eru, minnir mig,
mismunandi stólar.
Sjálfur skýrir Guðmundur gát-
una þannig:
Á biskupsstól er biskupinn.
Birtist klerkur í ræðustól.
Í dómstól er jafnan dómarinn.
Dottar í stólnum kennarinn.
Og bætir við limru:
Á þingi þau garga og góla,
á glóru þar sést ekki bóla,
stjórnin er völt
staurblind og hölt,
en stólað við getum á Óla.
Og sem endranær „svifaði gátu“
til Guðmundar og verður svar að
berast eigi síðar en á miðvikudags-
kvöld:
Lítillátur er hann eigi.
Enginn sigrar kappa þann.
Sleginn er á einum degi.
Er í Vatnsmýrinni hann.
Limra Guðmundar, sem fylgdi
síðustu gátu, brenglaðist. Rétt er
hún svona:
Til forsetans flýtti sér Mundi
sá fagnaði Gunnlaugs kundi
en neikvætt gaf ans
við erindi hans.
Í styttingi sleit þeirra fundi.
Og þannig fór það.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Enn er setið
á rökstólum
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG ÞURFTI AÐ GRAFA HANN ALLAN
MEÐ BERUM HÖNDUM.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að vita að þú hefur
ekki breyst neitt.
Hö
g
g
vi
ð
-e
ft
ir
-n
úm
er
um
ÉG ELSKA ÞIG,
RÍKHARÐUR!
HVER ER
„RÍKHARÐUR?“
ÉG MEINA
„RÚTUR“
BARA EKKI
GLEYMA AÐ
GEFA KETTINUM,
KONA
ÉG ER MEÐ
HRÆÐILEGAN
HAUSVERK!
ÞEGAR ÉG FÆ HAUSVERK,
KYSSIR FALLEGA KONAN MÍN
MIG OG FAÐMAR ÞAR TIL ÉG
GLEYMI HONUM ALVEG!
ER HÚN
HEIMA VIÐ
NÚNA?
Hvað eiga heimsókn til tannlæknisog hin árlega ástandsskoðun
bílsins sameiginlegt?
Jú, kvíðahnútur hreiðrar um sig í
kviðarholi Víkverja. Hann óttast allt-
af það versta, að tennur hans séu all-
ar skemmdar sem kalli á tannlækna-
kostnað upp á mörg hundruð þúsund.
Skemmdirnar gætu orðið svo miklar
að þær þýddu að hann þyrfti að
skjögra út með tvo gervigóma. Full-
komlega órökréttar hugsanir og ekki
í tengslum við neinn veruleika.
x x x
Það sama á við um skoðun bílsins.Víkverji óttast að kveðinn verði
upp dauðadómur yfir þessari elsku.
Dómararnir yrðu þá einstaklega ná-
kæmir og samviskusamir skoðunar-
menn íklæddir samfestingum, vopn-
aðir möppu og penna.
Í þessu samhengi má ekki gleyma
aldri græna skrjóðsins. Ef bíll Vík-
verja væri maður, þá væri hann að
sjálfsögðu grænn á litinn og kominn
með æfingaakstur.
x x x
Víkverji veit að þessar hugsanirsem dynja á honum eru al-
gjörlega úr lausu lofti gripnar.
Ástæðan er sú að hann hefur um æv-
ina blessunarlega fengið eina litla
skemmd.
Og tannlæknirinn hrósar honum í
hvert skipti. Án gríns. Víkverja grun-
ar reyndar að tannlæknirinn segi
þetta við alla sem setjast í stólinn hjá
honum. Þessi flinki maður hefur ein-
stakt lag á að láta fólki líða vel. Meira
að segja þegar Víkverji gerðist sekur
um að „skrópa“ til tannlæknis í ein-
hver ár.
Annars verður Víkverji að koma
því að að þessi einstaki tannlæknir
hlýtur að vera með einhvern sér-
samning við náttúruöflin því hann
yngist með hverju árinu.
x x x
Hrós vikunnar fær hjólabúðin Örn-inn. Víkverji þurfti að kaupa ljós
á hjólið svo hann sé nú öruggur í um-
ferðinni. Starfsmaður sýndi Víkverja
ljósin samviskusamlega. Eitthvað
ruglaðist hann á verðinu sem hann
gaf upp því ljósið reyndist dýrara
þegar það var skannað inn. Það var
lítið mál og skellti starfsmaður því af-
slætti á ljósið. Fyrirmyndarvinnu-
brögð. víkverji@mbl.is
Víkverji
Allt megna ég fyrir hjálp hans, sem
mig styrkan gjörir. (Fil. 4.13)
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
til kl. 16 mánudaginn 09. maí
13. maí gefurMorgunblaðið
út sérblaðið
HEIMILI &
HÖNNUN
• Innlit á heimili
• Viðtöl við hönnuði og arkitekta.
• Heitustu trendin á heimilinu 2016
• Hvernig á að skipuleggja lítil rými
• Mottur /teppi og parket.
• Eldhústískan 2016.
• Smekkleg baðherbergi.
• Gluggatjöld sem prýða rýmið.
• Barnaherbergið.
• Málning, litir og veggfóður.
• Ásamt fullt af öðru spennandi efni
um heimili, hönnun og lífsstíl
–– Meira fyrir lesendur