Morgunblaðið - 07.05.2016, Síða 46
46 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2016
Söfn • Setur • Sýningar
8. maí kl. 14: Ókeypis sunnudagsleiðsögn
um grunnsýningu Þjóðminjasafnsins.
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
grunnsýning Þjóðminjasafnsins
Vinnandi fólk - ASÍ 100 ára í Myndasal
Hvað er svona merkilegt við það? Störf kvenna í 100 ár í Bogasal
Bláklædda konan - Ný rannsókn á fornu kumli í Horni
Norðrið í norðrinu á 3. hæð
Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru
Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
LISTASAFN ÍSLANDS
LJÓSMÁLUN – LJÓSMYNDIN OG MÁLVERKIÐ Í SAMTÍMANUM 7.5 - 11.9.2016
UDSTILLING AF ISLANDSK KUNST
UPPHAF KYNNINGAR Á ÍSLENSKRI MYNDLIST Í KAUPMANNAHÖFN 21.1-11.9 2016
PABLO PICASSO Í SAFNEIGN LISTASAFNS ÍSLANDS;
JACQUELINE MEÐ GULAN BORÐA (1962) 21.7. 2015-11.9. 2016
Leiðsagnir á ensku alla föstudaga kl. 12:10
SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur • KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is. Opið dagl. kl. 11-17, lokað mánud.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR
GYÐJUR 5.2. - 29.5.2016
Leiðsögn með sýningarstjóranum Birgittu Spur, sunnudaginn 8. maí kl. 15.
Opið laugard. og sunnud. kl. 14-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
UNDIR BERUM HIMNI - MEÐ SUÐURSTRÖNDINNI 5.2.-16.9.2016
Opið sunnudaga kl. 14-17. Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is
Sýningin Sjónarhorn Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú
Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög,
ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira
Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna.
Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali
Kaffitár nú einnig í Safnahúsinu
Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið þriðjudaga til sunnudaga frá kl. 10-17.
Verið
velkomin
Hverfisgötu 15, 101 Reykjavík s: 530 2210
www.safnahusid.is Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17
Kaffitár opið mánudaga til föstudaga frá 8-17, 10-17 um helgar
SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU
Opið kl. 12-17. Lokað mánud.
Verslunin Kraum í anddyri
Garðatorg 1, Garðabær
www.honnunarsafn.is
Listadagar barna til 8. maí
Sýning á verkum belgísku myndlist-
arkonunnar Berlinde de Bruyckere í
Listasafni Íslands verður opnunar-
sýning Listahátíðar í Reykjavík í ár.
Sýningin verður opnuð kl. 15 laug-
ardaginn 21. maí. Samdægurs og
næstu tvær vikur á eftir verða síðan
opnaðar margar aðrar sýningar
myndlistarmanna og hönnuða undir
hatti Listahátíðar.
Ferill Bruyckere spannar um 30
ár en hún vakti fyrst alþjóðlega at-
hygli í kjölfar Feneyjatvíæringsins
árið 2003, þar sem verk hennar voru
sýnd í ítalska skálanum. Hinar
kraftmiklu og afmynduðu fígúrur
Berlinde, mennskar eða af hrossa-
kyni, úr feldi dýra, vaxi eða hári,
vekja verðskuldaða athygli.
Heysáta, nágrannar, Djúpið …
Fleiri myndlistarsýningar verða
opnaðar í miðborginni sama dag.
Sýning Gabríelu Friðriksdóttur,
Innra líf heysátu, verður í Gallery
GAMMA við Garðastræti. Gabríela
birtir gestum þar innra líf heysátna
með teikningum, skúlptúrum og lif-
andi teiknimynd. Í Ljósmyndasafni
Reykjavíkur í Grófarhúsinu verður
sýningin Hverfandi menning –
Djúpið, með ljósmyndum Þorvalds
Arnar Kristmundssonar en þær
veita innsýn í hverfandi menningu
og samfélag í Ísafjarðardjúpi.
Í Tveimur hröfnum listhúsi við
Baldursgötu verður sýningin Mósa-
ík með verkum Steinunnar Þór-
arinsdóttur og þá opnar í Lístasafni
ASÍ sýningin Við vorum einu sinni
nágrannar, með verkum Hreins
Friðfinnssonar og bandaríska ab-
straktmálarans Johns Zurier en
hann hefur starfað talsvert að list
sinni hér á landi. Í Berg Contempor-
ary, við Klapparstíg, verður sýning
Huldu Stefánsdóttur, Færsla.
Sýning á verkum Söru Björns-
dóttur, Flâneur, verður opnuð í
Gerðarsafni 27. maí. Í Lækninga-
minjasafninu á Seltjarnarnesi opnar
innsetning hönnuðarins 3. júní og þá
eru ýmsir aðrir myndlistarviðburðir
á dagskrá Listahátíðar.
Hljómalindarreitnum verður um-
breytt til tveggja ára með verkefn-
inu Húsgafl og port og í Norræna
húsinu verða ýmsir viðburðir í
tengslum við sýninguna The Weath-
er Diaries sem nú stendur þar yfir.
Fígurur Eitt af verkum belgísku listarkonunnar Berlinde de Bruyckere en sýning á þeim verður í Listasafni Íslands.
Í verkum Bruyckere birtast iðulega afmyndaðar fígúrur, mennskar eða af hrossakyni, úr feldi dýra, vaxi eða hári.
Verk Bruyckere á
opnunarsýningunni
Málverk Sýning á málverkum Huldu Stefánsdóttur í Berg Contemporary
kallast Færsla. Sýningin fjallar um bergmál af eða ummerki um hið liðna.
Heysáta Í Gallerí Gamma setur Gabríela Friðríksdóttir upp sýninguna
Innra líf heysátu og vinnur þar með teikningar, skúlptúra og teiknimynd.
Mósaík Verk Steinunnar Þórarinsdóttur verða sýnd í Tveimur hröfnum
listhúsi. Sýningin er sögð hugleiðing um hinar síbreytilegu víddir mannsins.
Fjöldi ólíkra
myndlistarsýninga
á Listahátíð í ár
Gloria eftir Antonio Vivaldi, Am-
ore mio eftir Julian M. Hewlett og
Requiem eftir John Rutter verða
flutt á tónleikum í Grafarvogs-
kirkju í dag kl. 16. Fram koma
Kór Grafarvogskirkju, Kór Fella-
og Hólakirkju, Óperukór Mos-
fellsbæjar og Vox populi og
syngja verkin saman. Stjórnendur
kóranna eru Hákon Leifsson, Juli-
an M. Hewlett, Arnhildur Val-
garðsdóttir og Hilmar Örn
Agnarsson. Verk Hewlett verður
frumflutt á tónleikunum, samið
fyrir einsöngvara og mun Kristín
R. Sigurðardóttir syngja verkið.
Sigríður Ósk Kristjánsdóttir
syngur einsöng í Gloriu og Requiem. Hljómsveit leikur á tónleikunum og
konsertmeistari er Auður Hafsteinsdóttir. Miðasala fer fram í anddyri
kirkjunnar og er miðaverð kr. 3.500.
Amore mio eftir Julian M. Hewlett frum-
flutt á tónleikum í Grafarvogskirkju
Stjórnendur Hákon Leifsson, Arnhildur
Valgarðsdóttir og Julian M. Hewlett eru
stjórnendur kóranna en á myndina vantar
Hilmar Örn Agnarsson.