Morgunblaðið - 07.05.2016, Qupperneq 49
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MAÍ 2016
Ljósmyndasýningin Lífið með verk-
um Díönu Júlíusdóttur verður opn-
uð í Anarkíu í Kópavogi í dag kl. 15.
Sýningin er innblásin af göngu á
Hvannadalshnúk vorið 2012, en
fjöll og stórfenglegt landslag hafa
alltaf heillað Díönu og hefur hún
leitast við að beina linsunni að
hvoru tveggja.
Fjöll og landslag
Hvannadalshnúkur Ein mynda Díönu.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Ég, eins og svo margir, varðfyrst var við Þóri á Músík-tilraunum árið 2001 er
hann lék þar með sveit sinni Do
What Thou Wilt Shall Be the Whole
of the Law. Sveitin vakti verðskuld-
aða athygli, en í þá tíð var Þórir bú-
settur í rokkbænum Húsavík. Ári
síðar flutti hann á mölina og lét
fljótlega til sín taka í neðanjarðar-
rokki Reykjavíkur. Og það heldur
betur, en Þórir hefur verið virkur í
tónleikahaldi, upptökum og hljóm-
sveitastússi óslitið síðan og slær
aldrei af. Á meðal þeirra sveita sem
hann hefur komið á stofn eða leikið
með eru Fighting Shit, Hryðjuverk,
The Deathmetal Supersquad, Gavin
Portland, Helgi í Morðingjunum,
Ofvitarnir, Eðli annarra, Kvöl og
Knife Fights, og sem hann sjálfur
hefur hann gefið út sem Þórir, Þórir
Georg, My Summer as a Salvation
Soldier og svo ku vera meira sóló-
efni á leiðinni undir enn einu nafn-
inu (skv. upplýsingum frá mann-
inum sjálfum í tölvupósti til pistil-
ritara).
Hugmyndin með þessari grein
var að setja niður nokkur orð um
nýjustu útgáfu Þóris, stuttskífuna I
Am the Champions, sem út kom síð-
asta haust. Um er að ræða fjögurra
laga plötu og er innihaldið mikið
gítarrokk, minnir nokkuð á Dino-
saur Jr. og J Mascis og andi Pave-
ment og heimspeki hangsaranna
leikur um gripinn og sést m.a. í um-
slagshönnun. Þórir er með þennan
geira ef svo má kalla vel á valdi sínu
og lögin öll sannfærandi mjög.
En mér fannst plássinu hér hins
vegar betur varið í almenna umfjöll-
un um Þóri og hans list en djúprýni í
fjögurra laga plötu enda stendur
hann rækilega undir þannig úttekt.
Á litlu landi er það oft svo að fáir
einstaklingar bera hitann og þung-
ann af framkvæmdum og fjöreggs-
viðhaldi og Þórir er sannarlega
þannig maður, miðlægur í útjaðr-
inum svo ég hræri í netta þversögn.
Það sem hann ber með sér tónlistar-
lega er síðan ekki síður mikilvægt,
en helsti styrkur hans liggur í fjöl-
breytninni. Maður veit aldrei al-
mennilega hvers má vænta og Þórir
kann lítið við endurtekningar. Plat-
an Afsakið er t.a.m. kassagítar-
drifið, hjartnæmt verk þar sem
textar eru allir á íslensku (stundum
notar hann ensku) og hann hefur
líka gert nokkrar sveimplötur (e.
ambient). Verk hans sem My Sum-
mer as a Salvation Soldier eru ein-
hvers konar pönk-söngvaskálds-
skífur (Jeffrey Lewis kemur í hug-
ann).
Þessi iðja öll liggur í hug-
myndafræði og fagurfræði neðan-
jarðarpönks og -rokks sem á sér
fylgismenn víða um heim, hið svo-
kallaða gerðu-það-sjálfur (DIY) við-
horf stýrir málum í umslögum,
veggspjöldum o.s.frv. „Hreinn“ og
fagur heimilisiðnaður skal það vera.
Hægt er að nálgast plötur Þóris
á Bandcamp (thorir-
georg.bandcamp.com) og þó að
heilar fimmtán skífur liggi þar er
það ekki nándar nærri sá fjöldi sem
hann hefur sýslað í.
Einn sit ég og syng
» Á litlu landi er það oft svo að fáir einstakling-ar bera hitann og þungann af framkvæmdum
og fjöreggsviðhaldi og Þórir er sannarlega
þannig maður, miðlægur í útjaðrinum svo ég
hræri í netta þversögn.
Einn Tónlistarmaðurinn Þórir Georg Jónsson á merkilegan feril að baki í neðanjarðarrokksenu Íslands.
Þórir Georg Jónsson er nokkurs konar neðanjarðarsöngvaskáld og hefur verið iðinn og áberandi sem
slíkur undanfarin 15 ár eða svo. Eftir hann liggja tugir platna með tugum sveita og listamannsnöfnum.
22 börn hafa verið valin í hlutverk
söngleikjarins Blái hnötturinn sem
unninn er upp úr bók Andra Snæs
Magnasonar, Sagan af bláa hnettin-
um. Verkið verður frumsýnt í Borg-
arleikhúsinu í september og voru
börnin 22 valin úr hópi 1.300 sem
mættu í fyrstu prufuna. Var sá stóri
hópur minnkaður smám saman og á
endanum völdu leikstjóri uppfærsl-
unnar og höfundur leikgerðar, Berg-
ur Þór Ingólfsson, og söngstjóri
hennar og höfundur tónlistar, Krist-
jana Stefánsdóttir, börnin 22. Á
myndinni, sem ljósmyndarinn Jorri
tók, má sjá leikhópinn.
Æfingar hefjast núna í maí og
áætluð frumsýning er 17. september.
Leikhópurinn Börnin 22 sem leika í söngleiknum Blái hnötturinn.
22 börn valin í Bláa
hnöttinn úr hópi 1.300
BAD NEIGHBORS 2 2, 4, 6, 8, 10
CAPTAIN AMERICA 3D 6, 9
CAPTAIN AMERICA 10:25
RATCHET & CLANK 1:50,3:50 ÍSL.TAL
MAÐUR SEM HEITIR OVE 8
THE BOSS 5:55
KUNG FU PANDA 1:50, 3:50
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
TILBOÐ KL 2
TILBOÐ KL 1:50
TILBOÐ KL 1:50