Morgunblaðið - 07.05.2016, Blaðsíða 52
LAUGARDAGUR 7. MAÍ 128. DAGUR ÁRSINS 2016
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 888 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR.
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Gísli Marteinn biðst afsökunar
2. Er enn í sömu fötunum
3. „Ég kippi mér ekki upp við þetta“
4. Hvað hefur Dorrit sagt?
Listamenn Korpúlfsstaða opna
vinnustofur sínar um helgina og einn-
ig verður opnuð stór samsýning sem
ber yfirskriftina Eitt eilífðar smá-
blóm. Á henni sýna 28 listamenn verk
sín og sýningarstjóri er Anna Gunn-
laugsdóttir myndlistarmaður.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Eitt eilífðar smáblóm
á Korpúlfsstöðum
Í tilefni þess að
einn ástsælasti
tónlistarmaður
Akureyrar, Ingi-
mar Eydal, hefði
orðið 80 ára á
þessu ári blása
nokkrir af félög-
um hans ásamt
félögum sínum til
söngskemmtunar á Græna hattinum í
kvöld kl. 21. Á efnisskránni eru öll
skemmtilegustu lög Hljómsveitar
Ingimars Eydal auk þess sem ein-
hverjar sögur af hljómsveitarstjóran-
um fá að fljóta með. Helena Eyjólfs-
dóttir, Þorvaldur Halldórsson,
Brynleifur Hallsson og Magni Ás-
geirsson leiða sönginn en hljómsveit-
ina skipa Ármann Einarsson, Sævar
Benediktsson, Valmar Väljaots og
Valgarður Óli Ómarsson.
Minnast Ingimars
Blítt og létt hópurinn, bæjarlista-
menn Vestmannaeyja 2015, heldur
Eyjakvöld í Austurbæ í kvöld kl. 20
og verða þar sungin og leikin valin
Eyjalög og textum
varpað á tjald svo
allir geti sungið
með. Af Eyjalögum
má m.a. nefna lög
Oddgeirs Krist-
jánssonar og
Ása í Bæ.
Eyjalög í Austurbæ
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Lægir og léttir til en stöku skúrir eða él við norðausturströndina
fram eftir degi. Líkur á síðdegisskúrum sunnanlands. Hiti 3 til 13 stig, hlýjast sunnantil.
Á sunnudag Breytileg átt, 3-8 m/s en suðvestan 5-8 m/s á Vestfjörðum. Bjart með köfl-
um en stöku skúrir sunnan- og vestanlands. Hiti 3 til 12 stig, mildast suðvestantil.
Á mánudag Hæg suðvestlæg átt og víða bjartviðri en 5-10 m/s norðvestantil, skýjað en
úrkomulítið. Hiti 5 til 13 stig. Á þriðjudag og miðvikudag Fremur hæg suðvestlæg átt.
Lið Keflavíkur sem líklegt þykir til af-
reka í 1. deild karla í knattspyrnu
gerði 1:1 jafntefli í 1. umferð þegar
deildin hófst í gærkvöldi. Keflavík
heimsótti HK í Kórinn. Keflvíkingar
jöfnuðu þegar tíu mínútur voru eftir
af leiknum. Í Grindavík var marka-
leikur þegar Grindvíkingar unnu
Hauka 3:2. Grindavík kom sér því fyr-
ir í toppsætinu. » 1
Keflavík gerði jafntefli
í 1. umferð 1. deildar
„Sigurhefðin er fyrir hendi
hjá Haukum. Hún hefur sitt
að segja. Það er gott fyrir
Aftureldingarmenn að fara í
úrslit annað árið í röð og
reyna að svara fyrir tapið í
fyrra. Fyrsti leikur liðanna
verður spennandi. Þar kemur
vel í ljós hvernig menn ætla
að spila úr sínum spilum,“
segir Óskar Bjarni Óskars-
son um einvígið um Íslands-
meistaratitil karla. »4
Fyrsti leikurinn
verður spennandi
Á mánudaginn fellur stóri dómurinn,
en þá tilkynna landsliðsþjálfararnir
Lars Lagerbäck og Heimir Hall-
grímsson hópinn sem fer á Evrópu-
mót karla í knattspyrnu í Frakklandi í
næsta mánuði. Eins og gefur að skilja
ríkir mikil spenna
og eftirvænting
hjá þjóðinni að
fá að vita
hvaða 23 leik-
menn verða
fyrir valinu
og vænt-
anlega
verða
skiptar skoð-
anir hjá fólki
um liðsvalið.
»4
Stóri dómurinn fyrir EM
fellur á mánudaginn
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Pavel Ermolinskij, landsliðsmaður í körfubolta og
margfaldur meistari með KR, hefur það fyrir venju
að gefa börnum verðlaunagripi, sem hann hlýtur að
launum fyrir afrek sín. Þannig fengu bræðurnir
Árni Dagur og Stefán Rafn Sigurgeirssynir gull-
pening Pavels sem hann var sæmdur þegar KR
varð Íslandsmeistari í liðinni viku.
Bræðurnir búa með foreldrum sínum í Vestur-
bænum og á liðnu hausti byrjaði Stefán, sem er sjö
ára, að æfa körfubolta hjá KR. Æfingarnar voru á
undan æfingum meistaraflokks og því sá Stefán Pa-
vel reglulega á æfingum í vetur, en var feiminn og
þorði ekki að gefa sig á tal við átrúnaðargoðið. „Ég
spilaði körfubolta með Tindastóli sem unglingur á
Sauðárkróki og áhugi minn hefur smitast yfir í syn-
ina,“ segir Berglind Stefánsdóttir, móðir drengj-
anna. Hún segir að Pálmar Ragnarsson, þjálfari
yngri flokka KR, sé ekki aðeins mjög góður þjálfari
heldur hafi hann hrifið börnin og forráðamenn
þeirra með sér og meðal annars hvatt krakkana til
þess að mæta á leiki. „Með honum óx áhugi Stefáns
á körfunni, Árni Dagur, sem er fimm ára, smitaðist
og þeim finnst mjög gaman að fara á leiki,“ segir
Berglind. „Þeir eru öllum stundum að skjóta á
körfu á bílskúrsveggnum hérna heima og stefna að
því að verða jafngóðir og Pavel.“
Frábær fyrirmynd
Strákarnir hafa ekki alltaf verið duglegir að
borða fisk, en þar varð heldur betur breyting á þeg-
ar þeir vissu að fiskurinn væri keyptur hjá Pavel í
sælkerabúðinni Kjöti & fiski á Bergstaðastræti.
„Það er nóg að segja að fiskurinn sé keyptur hjá
Pavel þá er hann borðaður þegjandi og hljóðalaust.
Þetta er líka frábær búð með besta fiskinn og kjötið
sem hægt er að fá í bænum,“ segir Berglind.
Daginn eftir annan leikinn í úrslitakeppninni fór
fjölskyldan sem oftar í búðina til Pavels. Berglind
segist þá hafa sagt honum að það væri honum að
þakka að drengirnir væru orðnir duglegir að borða
fisk. „Ég bætti við að þeir væru auðvitað grjót-
harðir KR-ingar og mættu vel á leiki, meðal annars
í Haukahúsið kvöldið áður. Honum þótti þetta
greinilega merkilegt og sagði við þá að ef KR land-
aði titlinum á heimavelli næsta mánudag skyldu
þeir koma til sín og hann myndi gefa þeim medal-
íuna sína. Þeir sáu ekkert nema stjörnur og töluðu
ekki um annað. Leikurinn tapaðist en á leiðinni í
fjórða leikinn sögðu þeir að kannski fengju þeir me-
dalíuna hans Pavels eftir leik. Ég sagði þeim að
Pavel hefði bara talað um heimaleikinn, en þeir
fóru samt til hans eftir sigurinn. „Hæ, við erum
strákarnir úr fiskbúðinni. Manstu eftir okkur?“
sögðu þeir við hann. Hann mundi strax eftir þeim,
tók af sér medalíuna og gaf þeim.“ Berglind á ekki
til orð yfir hugulsemi Pavels. „Hann er frábær fyr-
irmynd í íslenskum körfubolta,“ segir hún.
„Það var ánægjulegt að heyra að bræðurnir hafa
tekið upp þann góða sið að borða fisk eins og ég og
það er mikill sigur fyrir mig að vera fyrirmynd
ungra og efnilegra körfuboltamanna,“ segir Pavel.
„Ég hef alltaf gefið mínar medalíur og það hefur oft
verið þannig að fyrsti krakkinn sem hefur beðið um
verðlaunin hefur fengið þau,“ heldur hann áfram.
Hann segist ekki hafa verið mjög vongóður um að
hitta bræðurna í hamaganginum eftir síðasta leik,
en hann hafi beðið rólegur eftir því að sjá þá.
„Margir krakkar báðu mig um medalíuna en ég
sagði þeim sem var að það væri búið að panta hana.
Svo komu strákarnir feimnir upp fyrir haus,
minntu mig á loforðið og ég gaf þeim medalíuna.“
Pavel segir að hann þurfi ekki að eiga stóran bik-
araskáp. „Ég þarf ekki medalíur til að minna mig á
minningarnar og sigrana,“ segir hann. „Medalían
er stórmál fyrir krakkana og þegar ég var á þeirra
aldri leit ég upp til íþróttamanna og þótti vænt um
athygli frá þeim. Ef sigurlaunin gleðja krakkana
gleður það mig meira en medalían sjálf.“
Pavel gef-
ur alltaf
gullin sín
Bræðurnir borða fisk að
hætti átrúnaðargoðsins
Ljósmynd/Berglind Stefánsdóttir
Gulldrengir Pavel Ermolinskij með Stefáni Rafni, sem er með verðlaunapeninginn, og Árna Degi.