Morgunblaðið - 19.05.2016, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 1 9. M A Í 2 0 1 6
Stofnað 1913 115. tölublað 104. árgangur
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
/
A
ct
av
is
3
1
4
0
2
0
Íbúfen®
400 mg, 30 stk og 400 mg, 50 stk
FYRSTU TÓN-
LEIKARNIR
Í TUTTUGU ÁR
SPÁ 690.000
Í HVALA-
SKOÐUN
SÍÐASTA BÍÓ-
MYNDIN LOF-
UÐ Í CANNES
VIÐSKIPTAMOGGINN FRUMSÝNING 41RISAEÐLAN 38
Í reglugerð sem nýlega tók gildi
er tiltekið að skip sem liggja við
bryggju skuli nota rafmagn úr
landi í stað skipaeldsneytis eftir því
sem kostur er. Á það fyrirkomulag
að stuðla að bættum loftgæðum og
draga úr mengun.
Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxa-
flóahafna, segir að til þurfi að koma
fjárstuðningur ríkisins við hafnir til
að efla lágspennukerfi þannig að
smærri skip og togarar geti öll
tengst landrafmagni í 10 stærstu
höfnunum á Íslandi.
Þá segir Gísli að með fjárhags-
stuðningi ríkisins og samstarfi
hafna og raforkufyrirtækja mætti
koma upp háspennutengingum í
Reykjavík og á Akureyri. »17
Ríkið styrki land-
tengingar skipa
Niðurstöður nýrrar rannsóknar Ís-
lenskrar erfðagreiningar voru birt-
ar í hinu virta fræðiriti New Eng-
land Journal of Medicine í
gærkvöldi. Þar segir að fundist hafi
sjaldgæfur erfðabreytileiki sem
lækkar verulega magn kólesteróls í
blóði. Um það bil einn af hverjum
120 mönnum beri með sér breyti-
leikann en fyrir þá veiti hann vernd
gegn kransæðasjúkdómi.
„Það er mjög spennandi að birta
þessa grein núna og það er þegar
byrjað að búa til lyf á grundvelli
uppgötvunarinnar,“ segir Kári
Stefánsson, forstjóri Íslenskrar
erfðagreiningar,
í samtali við
Morgunblaðið.
Hann segist
telja að uppgötv-
unin sé á meðal
þeirra tíu merk-
ustu sem fyr-
irtækið hafi gert.
Lyfjafyrirtækið
Amgen sem er í
samstarfi við ÍE er þegar byrjað að
búa til lyf sem hamlar starfsemi
efnisins.
Niðurstöðurnar fengust með
samanburði á gögnum úr raðgrein-
ingu á erfðaefni þúsunda Íslend-
inga og heilsufarsupplýsingum
þeirra.
Óþekktur þáttur að verki
„Breytileikinn sem við uppgötv-
uðum ver gegn hjartaáföllum. Að
hluta til vegna þess að hann lækkar
að einhverju leyti blóðfitu, en að
stórum hluta til vegna einhvers
annars óþekkts þáttar,“ segir Kári
og bætir við að töluverða athygli
hafi vakið að breytileikinn veiti
þannig meiri vernd en rekja megi
til lækkunar á kólesterólmagninu
einu saman. »6
Rannsókn ÍE vekur athygli
Uppgötvun gæti leitt til minni hættu á hjartasjúkdómum
Kári Stefánsson
Hrafnhildur Lúthersdóttir, úr Sundfélagi Hafn-
arfjarðar, varð í gær fyrsta íslenska konan til að
vinna til verðlauna á stórmóti í 50 metra laug
þegar hún fékk silfur í 100 metra baksundi á
Evrópumeistaramótinu í London. Er hún til
vinstri á myndinni en sigurvegarinn Ruta Meilu-
tyte frá Litháen er í miðið og hægra megin er
Chloe Tutton frá Bretlandi. Rætt er við Hrafn-
hildi í Íþróttablaði Morgunblaðsins. » Íþróttir
AFP
Sögulegur árangur Hrafnhildar á EM í London
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Bill Gates, stofnandi tölvurisans
Microsoft, mun fjárfesta í nýju fimm
stjörnu hóteli sem senn rís við hlið
tónlistar- og ráðstefnuhússins
Hörpu. Þetta herma áreiðanlegar
heimildir Morgunblaðsins en sam-
kvæmt þeim mun fjármögnun verk-
efnisins langt á veg komin. Bæði ís-
lenskir og erlendir aðilar munu koma
að henni.
Haraldur Flosi Tryggvason, lög-
maður Carpenter
& Company, fyr-
irtækisins sem
reisir hótelið, vildi
ekki tjá sig um
málið þegar eftir
því var leitað.
Carpenter &
Company hefur
komið að mörgum
stórum hótelverk-
efnum í Norður-
Ameríku, meðal annars í samstarfi
við hótelkeðjurnar St. Regis, Four
Seasons, Marriott, Hyatt og Star-
wood. Áætlað er að kostnaður við
verkefnið muni verða í kringum 130
milljónir dollara, jafngildi um 16
milljarða íslenskra króna.
Hótelið verður rekið undir merkj-
um lúxuskeðjunnar Marriott Edition
sem tryggt hefur sér rekstrarleyfið
að því til hálfrar aldar. Í því verða
meðal annars 250 herbergi, veislu- og
fundarsalir, veitingastaðir og heilsu-
lind.
Fjárfestir í Hörpuhóteli
Bill Gates, stofnandi Microsoft, fjárfestir í nýju fimm stjörnu hóteli við Hörpu
Auðugasti maður heims Eignir hans metnar á ríflega 9.000 milljarða króna
Gríðarlegar eignir
» Eignir Bill Gates eru metnar
á 75 milljarða dollara sam-
kvæmt Forbes, jafngildi 9.200
milljarða íslenskra króna.
» Meðal eigna hans er 47,5%
hlutur í hinni heimsþekktu
Four Seasons-hótelkeðju sem
hann keypti árið 2007.
MViðskiptamogginn » 1
Bill
Gates
„Við höfum ekki náð að vinna úr
öllum gögnum en vísbendingar eru
um aukna hrygningu miðað við
svipaða leiðangra árin 2010 og
2013,“ segir Björn Gunnarsson,
sjávarlíffræðingur hjá Hafró og
leiðangursstjóri á rannsóknarskip-
inu Bjarna Sæmundssyni, en skipið
lauk nýverið leiðangri milli Skot-
lands og Færeyja þar sem sýni voru
tekin úr hrygningarstofni makríls.
Var leiðangurinn einn sá lengsti
sem Bjarni Sæmundsson hefur tek-
ið þátt í og er hluti af rannsókn Al-
þjóðahafrannsóknaráðsins (ICES)
sem framkvæmd er þriðja hvert ár
á makrílstofninum í NA-Atlants-
hafi. Talið er of snemmt að fullyrða
um mikla makrílgöngu norður á
bóginn í sumar. »16
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hafrannsóknir Vísbendingar eru um auk-
inn makrílstofn í NA-Atlantshafi.
Leiðangur sýnir
aukinn hrygning-
arstofn makríls
Um 90% þess flóttafólks sem
kemur til landa Evrópusam-
bandsins komast þangað með að-
stoð glæpasamtaka sem hagnast
um 5-6 þúsund milljarða banda-
ríkjadala á starfseminni.
Þetta kemur m.a. fram í nýlegri
skýrslu um smygl á flóttafólki sem
unnin er af Alþjóðalögreglunni
(Interpol) og Evrópulögreglunni
(Europol). Skýrslan er ítarleg
greining á starfsemi og leiðum sem
glæpasamtök nota til að koma fólki
til Evrópu. Slík kortlagning er mik-
ilvæg svo lögreglan geti brugðist
við ástandinu. »20
Glæpamenn græða
á flóttamönnunum