Morgunblaðið - 19.05.2016, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2016
Suðurhrauni 4, Garðabæ | Furuvellir 3, Akureyri | Sími 575 800 | samhentir.is
Heildarlausnir
í umbúðum og öðrum rekstrarvörum
fyrir sjó- og landvinnslu
◆ KASSAR
◆ ÖSKJUR
◆ ARKIR
◆ POKAR
◆ FILMUR
◆ VETLINGAR
◆ HANSKAR
◆ SKÓR
◆ STÍGVÉL
◆ HNÍFAR
◆ BRÝNI
◆ BAKKAR
◆ EINNOTA VÖRUR
◆ HREINGERNINGAVÖRUR
Allt á
einum
stað
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
boðsins. Veitur og Míla taka þátt í kostnaði við
verkið ásamt Reykjavíkurborg. Áætluð verklok
eru í september.
Gatan verður lokuð fyrir bílaumferð meðan á
verkinu stendur en alltaf opin fyrir gangandi og
hjólandi vegfarendur. Haft hefur verið samráð við
hagsmunaaðila við götuna, að því er fram kemur í
Framkvæmdir við endurnýjun Hverfisgötu á milli
Klapparstígs og Smiðjustígs hófust í vikunni.
Tilboð í verkið voru opnuð 20. apríl síðastliðinn.
Tvö tilboð bárust og var lægstbjóðandi Grafa og
grjót ehf. Tilboðsupphæð var um 117 milljónir
sem var um 85% af kostnaðaráætlun. Samið var
við Gröfu og grjót ehf. um verkið á grundvelli til-
frétt frá borginni. Gatan verður endurnýjuð frá
grunni, þ.e. yfirborð götu og gangstétta.
Snjóbræðsla verður í gangstéttum, hjólareinum
og gatnamótum og lagnir endurnýjaðar eftir þörf-
um. Hjólareinar verða beggja vegna götu. Gatna-
mót verða steinlögð og lyft í sömu hæð og gang-
stéttar. sisi@mbl.is
Morgunblaðið/Júlíus
Hverfisgatan lokuð fram á haust
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Kolbeinn Guðmundsson, stýrimað-
ur og varðstjóri hjá Landhelgis-
gæslunni, hefur í vikunni störf hjá
fjölþjóðlegri herstjórnarstöð Atl-
antshafsbandalagsins (NATO) í
Stettin í Póllandi. Hann mun starfa
sem borgaralegur sérfræðingur á
aðgerðasviði og er gert ráð fyrir að
hann verði þar í eitt ár.
Urður Gunnarsdóttir, blaða-
fulltrúi utanríkisráðuneytisins,
staðfesti þetta í svari við fyrir-
spurn frá Morgunblaðinu í gær.
Kolbeinn á að baki mikla reynslu
hjá Landhelgis-
gæslunni.
Aðdragandi
málsins er sá að
á leiðtogafundi
NATO í Wales
haustið 2014
kynnti Ísland
þær fyrirætlanir
sínar að efla
þátttöku og
framlög í þágu
eigin varna og
Atlantshafsbandalagsins, m.a. með
því að fjölga borgaralegum sér-
fræðingum í störfum bandalagsins.
Liður í þessu er þátttaka í starfi
fjölþjóðlegrar herstjórnarstöðvar
bandalagsins í Stettin, en henni er
ætlað mikilvægt hlutverk við fram-
kvæmd varnaráætlunar bandalags-
ins fyrir Eystrasaltsríkin og Pól-
land ef þörf krefur. Þátttaka í
starfi stöðvarinnar er gagnlegt og
sýnilegt framlag Íslands til sam-
stöðuaðgerða NATO að mati ráðu-
neytisins.
Urður segir að með þátttöku
Kolbeins í starfi stöðvarinnar í
Stettin skapist betri tengsl Land-
helgisgæslunnar við starfsemi Atl-
antshafsbandalagsins og sú reynsla
sem ávinnist muni koma að góðu
gagni í starfi hennar til framtíðar.
Starfsmaður Gæslunnar í
herstjórnarstöð í Póllandi
Kolbeinn
Guðmundsson
Verður borgaralegur sérfræðingur á aðgerðasviði NATO
„Okkur finnst þetta upplegg til rík-
isfjármála næstu fimm árin vera
vond skilaboð,“ segir Gylfi Arn-
björnsson, forseti Alþýðusambands
Íslands, ASÍ, en miðstjórn ASÍ
gagnrýnir forgangsröðun í ríkisfjár-
málum sem fram kemur í þings-
ályktun um fjármálaáætlun fyrir ár-
in 2017-2021.
Að mati ASÍ er þar hvorki að
finna merki um að efnahagsstefna
stjórnvalda til næstu fimm ára muni
treysta efnahagslegan stöðugleika
né undirbyggja félagslega velferð og
aukinn jöfnuð. Gylfi segir slaka í rík-
isfjármálum samhliða vaxandi
spennu í hagkerfinu og uppgangi á
vinnumarkaði ýta undir ofþenslu og
óstöðugleika og vinna gegn peninga-
málastefnunni. „Samhliða þessu er
misskipting aukin með því að veikja
mikilvæg stuðningskerfi á borð við
barna- og húsnæðisbótakerfi,“ segir
í ályktun ASÍ.
Vond
skilaboð,
segir ASÍ
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Við teljum að enn sé töluvert um
vanskráningu þegar kemur að
óvæntum atvikum þó að skráningin
hafi vissulega lagast undanfarin ár,“
segir Laura Scheving Thorsteins-
son, staðgengill sviðsstjóra á sviði
eftirlits og gæða hjá Embætti land-
læknis, í samtali við Morgunblaðið.
Vísar hún í máli sínu til þess að ár-
ið 2015 voru alls 9.073 óvænt atvik
skráð í íslenskri heilbrigðisþjónustu,
en árið 2014 voru þau 8.282 talsins.
Með óvæntu atviki er, að sögn henn-
ar, átt við óhappatilvik, mistök, van-
rækslu eða önnur atvik sem valdið
hafa sjúklingi tjóni eða hefðu getað
valdið sjúklingi tjóni.
„Byltur eða föll eru þau óvæntu
atvik sem oftast eru skráð innan
heilbrigðisstofnana,“ segir Laura og
bendir á að fjöldi skráðra byltna árið
2015 sé alls 4.801. Af þeim voru 725
atvik skráð innan Landspítalans og
62 á Sjúkrahúsinu á Akureyri.
„Afleiðingar byltna geta verið al-
varlegar, enda oft um að ræða eldra
fólk með skerta hreyfigetu. En ef um
alvarleg atvik er að ræða ber stofn-
unum að tilkynna þau sérstaklega til
Embættis landlæknis sem rannsak-
ar þá málið,“ segir Laura.
Atvik tengd lyfjagjöf
Í tölum landlæknis kemur einnig
fram að atvik tengd lyfjameðferð eru
rúmlega 13% af heildarfjölda
skráðra óvæntra atvika árið 2015.
Eru þau alls 1.198 talsins, þar af
voru 492 skráð innan Landspítalans
og 64 á Sjúkrahúsinu á Akureyri.
„Það geta verið alls kyns atriði
sem koma upp varðandi lyf, s.s. þeg-
ar þau eru ekki gefin á réttum tíma
eða þegar sjúklingur A fær lyf sem
ætluð eru sjúklingi B,“ segir Laura
og bendir á að lyfjaatvik geti hæg-
lega verið hættuleg sjúklingi.
Tæplega 5.000 bylt-
ur skráðar í fyrra
Yfir 9.000 óvænt atvik skráð innan heilbrigðiskerfisins
Morgunblaðið/Arnaldur
Aldraður Byltur eru algengastar.
„Mér finnst Kast-
ljósþátturinn
marka ákveðinn
lágpunkt í frétta-
flutningi. Þátt-
urinn var yfirfull-
ur af rang-
færslum. Í
símtölum við
stjórnendur þátt-
arins í dag [í gær]
leiðrétti ég margt
af því sem mér var sagt að þar
myndi koma fram, en það var ber-
sýnilega lítill áhugi fyrir því að fá
nema eina bjagaða hlið á málinu.“
Þetta segir Júlíus Vífill Ingvars-
son, fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins, í samtali við Morg-
unblaðið og vísar þar til umfjöllunar
Kastljóss á RÚV í gærkvöldi.
Þar kom fram að tvö systkini Júl-
íusar Vífils og systursonur hans
segja hann hafa gengist við því degi
eftir að Panamaskjölin voru opnuð
að sjóðir foreldra hans væru geymd-
ir í aflandsfélagi í hans eigu.
„Ótakmarkað fimbulfamb“
Í þættinum var rætt við systurson
og tvö systkini Júlíusar Vífils.
Byggðist umfjöllunin á gögnum úr
Panamaskjölunum og sagði frá leit
erfingja Ingvars Helgasonar, stofn-
anda og eiganda samnefnds bílaum-
boðs, og Sigríðar Guðmundsdóttur,
eiginkonu hans, að varasjóði þeirra
sem átti að vera á reikningum er-
lendis. Var sjóðurinn enn ófundinn
er Sigríður lést í fyrra.
Júlíus Vífill segir rangt að hann
hafi sölsað undir sig sjóði annarra.
„Viðmælendum var gefinn ótak-
markaður tími til að fimbulfamba án
þess að fréttamaður fylgdi því eftir á
nokkurn hátt eða óskaði eftir frekari
sönnunum þrátt fyrir að ásakanir
væru alvarlegar og ærumeiðandi.
Ég ítreka það sem þegar hefur
margoft komið fram að það eru gróf
ósannindi að ég hafi gengið í eða
sölsað undir mig sjóði annarra.“
Þá segir Júlíus Vífill það hafa ver-
ið erfitt að sjá því haldið fram að
móðir hans heitin hafi verið fjárþurfi
í ellinni. „Hún var sem betur fer
mjög vel efnum búin og skorti ekk-
ert, en því miður þjáð í mörg ár af
Alzheimer. Væntanlega hefðu sömu
einstaklingar og tala með þessum
hætti farið varlegar með fjármuni
hennar ef sú hefði verið raunin í stað
þess að draga sér tugi milljóna af
bankareikningi hennar.“ khj@mbl.is
Segir rang-
færslur í
Kastljósi
Markar lágpunkt
Júlíus Vífill
Ingvarsson