Morgunblaðið - 19.05.2016, Side 13
ið við öllum spurningunum sem hann
samdi sjálfur. „Dúllaði“ sér, eins og
hann segir, við að finna þær á netinu,
fletta þeim upp í „biblíunni“ sinni,
Maltin’s Movie Guide, og horfa í ann-
að eða jafnvel þriðja sinn á fjölda
kvikmynda úr gríðarstóru DVD-
safninu sínu. Svo tók hann líka niður
punkta þegar þeir Troy fóru í bíó eins
og þeir gera a.m.k. einu sinni í viku.
„Einhver þarf að stjórna leiknum
og ég er sjálfskipaður í hlutverkið,“
segir hann og vísar í hvort tveggja að
lesa spurningarnar af spjöldunum og
spila sýnishorn úr titillögum eða til-
vitnanir úr kvikmyndum sem hann
hefur hlaðið niður í tölvuna sína.
Spilaborðið er
samansett úr sex A4-
spjöldum og því fylgja
mörg hundruð spurn-
ingaspjöld, annars
vegar með litmyndum,
svokölluðum stillum,
og hins vegar með
myndum af karakter-
um úr ýmsum
kvikmyndum
sem og
plakötum
sem notuð
voru í
auglýs-
ingaskyni
fyrir til-
teknar
myndir.
Spurt er:
Hvað heitir
myndin og
hvað heitir kar-
akterinn? Spurning-
arnar spanna frá kvikmynd-
um á borð við Gone With the Wind til
The Hunger Games og allt þar á milli.
Töluvert álag var á prentarann
heima hjá þeim Troy þá mánuði sem
Axel Ólafur vann að spilagerðinni. „Í
fyrstu útgáfunni notaði ég leikmenn
úr gömlu lúdóspili og venjulegan ten-
ing, en Troy hafði svo án minnar vitn-
eskju nostrað við að búa til leikmenn
sem eru karakterar úr bíómyndum og
einnig spilatening sem hann gaf mér í
jólagjöf,“ segir hann. Teningurinn er
óhefðbundinn því að í stað til dæmis
sex punkta á venjulegum teningi er
mynd úr kvikmyndinni The Sixth
Sense, mynd úr The Fifth Element
táknar fimm og svo framvegis.
Strategíuspil í spilaklúbbi
Þótt Axel Ólafur geti af fyrr-
nefndum ástæðum ekki spilað með í
Movie Mania, dregur hann ekkert af
sér í spilamennsku á öðrum vettvangi.
Hann hefur þó hvorki dottið í bridds,
skák né golf, en hvers kyns strategíu-
borðspil eru í
miklu uppáhaldi –
og aðallega uppi á
borðum hjá spila-
klúbbn-
um
hans.
„Við fé-
lagarnir
kynntumst
gegnum Fa-
cebook, erum
héðan og það-
an; kokkur,
tölvunarfræð-
ingur, hár-
greiðslumaður
og hótelstarfsmaður svo dæmi
séu tekin, allir með mikinn áhuga á
spilum af þessu tagi og reynum að
spila um það bil einu sinni í viku.“
Spurður hvort einhver líkindi
séu með áhugamálum hans, borðspil-
unum og kvikmyndunum, vefst Axel
Ólafi ekki tunga um tönn. Hægt sé að
spila góð borðspil og horfa á góða bíó-
mynd aftur og aftur, segir hann.
„The Shawshank Redemption
frá 1994 er eftirlætismyndin mín og
raunar eina myndin sem mig langaði
til að sjá aftur um leið og henni var
lokið. Ég horfi margoft á myndir sem
mér finnst góðar og tek í hvert skipti
eftir einhverju nýju og áhugaverðu.
Sumir setja uppáhaldstónlistina sína
öðru hvoru á fóninn, ég set uppá-
haldsbíómyndirnar mínar í DVD-
spilarann.“
Trúlega eiga vinir og vanda-
menn Axels Ólafs oft eftir að keppa í
Movie Mania í nánustu framtíð, en
með höfundinn og hönnuðinn við
stjórnvölinn. Það er bara til eitt ein-
tak.
Allt uppi á borðum Axel
Ólafur er oftast í hlut-
verki stjórnandans, enda
hefur hann svör við öllu.
Morgunblaðið/Elín Arnórsdóttir
Persónur og
leikendur Troy
hannaði leik-
menn og gaf Axel
Ólafi í jólagjöf.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2016
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði www.skoda.is
Stenst kröfur sem stærri
bílar væru stoltir af
Verð frá aðeins
2.940.000 kr.
ŠKODA Rapid kemur skemmtilega á óvart, bæði í akstri og viðmóti. Hreinar línur, nýtt aflmikið yfirbragð
og tímalaus fágun gera Rapid að frábærum kosti. Komdu í reynsluakstur og snertu á framtíðinni.
Eric Vanhaute, prófessor í hagsögu
og heimssögu við háskólann í Ghent í
Belgíu, flytur fyrirlesturinn Famines
in History: What is there to be learn-
ed? á vegum Sagnfræðistofnunar Há-
skóla Íslands í dag kl. 16 í Árnagarði,
stofu 311. Vanhaute fjallar um hung-
ursneyðir í heiminum á liðnum öldum
og hvernig viðhorf fræðimanna hafa
breyst í greiningu og túlkun á þeim.
Í fyrirlestrinum ræðir Vanhaute um
hvernig fræðilegar áherslur hafa
færst frá kenningum Malthusar og
Marx um samspil hungursneyða og
fólksfjölda til hugmynda sem beina
sjónum að því hvernig samfélagsferli
ýta undir örbirgð viðkvæmra hópa í
samfélaginu. Samkvæmt þeim hug-
myndum skiptir atbeini einstaklinga
og hópa miklu máli. Hungursneyðir
hafa ýmist verið skoðaðar sem
óvæntar kreppur, samfélagsferli eða
niðurbrot á samfélagsbyggingunni.
Vanhaute kallar eftir samþættri
greiningu og ræðir um hvernig hana
megi nota til að svara fjórum lyk-
ilspurningum: Hvernig greinum við
hungursneyðir og hvernig mælum við
þær? Hvernig skýrum við hung-
ursneyðir? Hvernig metum við áhrif
hungursneyða? Hvernig tengjast
hungursneyðir fyrri tíma hungri og
fæðukreppum í samtímanum?
Fyrirlesturinn er á ensku og eru all-
ir velkomnir.
Fyrirlestur á vegum Sagnfræðistofnunar Háskóla Íslands
AFP
Hungur Milljónir manna þjást af
hungri og vannæringu í heiminum.
Hungursneyðir í heiminum
Þemað í vorönn leshringsins Sól-
kringlunnar er skáldævisögur eða
ævisögulegar skáldsögur. Í dag kl.
17.30-18.30 verður Minnisbók eftir
Sigurð Pálsson lesin í Sólheimasafn-
inu. Í bókinni rekur skáldið minningar
sínar frá Frakklandi á árunum 1967-
1982, eða frá því hann kemur, nítján
ára, til Parísar á miklum óróa- og
uppreisnartímum og fer heim sem
fullmótað skáld.
Endilega …
… verið með
í leshring
Morgunblaðið/Einar Falur
Skáldið Sigurður Pálsson.