Morgunblaðið - 19.05.2016, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2016
Yngsti stórmeistari Íslands mætir
einum þekktasta skákmanni heims
við taflborðið um helgina. Þá leiða
saman hesta sína á MótX-einvíginu í
Salnum í Kópavogi Hjörvar Steinn
Grétarsson og Nigel Short, Það er
Skákfélagið Hrókurinn undir forystu
Hrafns Jökulssonar sem skipuleggur
mótið og segir Hrafn að búast megi
við mjög skemmtilegu einvígi. Báðir
meistararnir séu þekktir fyrir frum-
legan stíl og snilldartilþrif á skák-
borðinu.
Short og Hjörvar tefla sex atskák-
ir, með 25 mínútna umhugsunartíma.
Aðstaða í Salnum til að fylgjast með
einvíginu er mjög góð. Aðgangur er
ókeypis og eru allir velkomnir.
Nigel Short fæddist 1965 og var
undrabarn í skák. Fjórtán ára gamall
varð hann yngsti alþjóðameistari sög-
unnar. Stórmeistari varð hann 19 ára
og var þá yngstur allra í heiminum
sem báru þann eftirsótta titil. Short
hefur unnið tugi alþjóðlegra skák-
móta og verið í fremstu röð í áratugi.
Margir Íslendingar minnast sigurs
hans á hinu gríðarlega sterka IBM-
skákmóti í Reykjavík 1987 þar sem
jöfrar á borð við Tal, Timman og
Korchnoi voru meðal keppenda, auk
bestu skákmanna Íslands. Short
vann sér rétt til að tefla um heims-
meistaratitilinn við sjálfan Garry
Kasparov árið 1993, en beið lægri
hlut.
Hjörvar Steinn Grétarsson fæddist
1993 – árið sem Short glímdi við
Kasparov um heimsmeistaratitilinn –
og vakti kornungur mikla athygli fyr-
ir hæfileika sína. Hann var lyk-
ilmaður í sigursælum skáksveitum
Rimaskóla, sem sópuðu til sín Ís-
lands- og Norðurlandameistaratitlum
í skólaskák. Hjörvar náði fyrsta stór-
meistaraáfanga sínum á Evrópumóti
landsliða í Porto Carras árið 2011.
Hann tryggði sér svo stórmeistaratit-
ilinn á EM-taflfélaga á Rhodos 2013.
Hjörvar Steinn er nú næststigahæsti
skákmaður Íslands með 2580 stig.
gudmundur@mbl.is
Short teflir við yngsta stórmeistarann
Búist við skemmtilegu skákeinvígi í Salnum í Kópavogi um helgina Munu tefla sex atskákir
Nigel
Short
Hjörvar Steinn
Grétarsson
Mývetningar ætla að koma sér upp
flokkunarsvæði í landi Grímsstaða
til að geta flokkað rusl. Ekki fékkst
leyfi frá landeigendum í Reykjahlíð
og því var samþykkt að ganga til
samninga við bændur á Gríms-
stöðum. Ólafur H. Jónsson, einn af
landeigendum Reykjahlíðar, skrifar
í fréttabréf Mývetninga, Mýfluguna,
um fyrirhugað gámasvæði.
Þar segir hann að alla framsýni
skorti hjá sveitarstjórninni og við-
komandi svæði sé of dýrt fyrir
gámasvæði og alltof nálægt íbúð-
arbyggð. „Það er útúrsnúningur og
villandi að segja að í ljósi t.d. að-
gengis að rafmagni, vatni o.fl. sé
Múlavegur hagstæðasti kostur. Ef
gámasvæði yrði leyft við Múlaveg
væri það endurtekning á þeim miklu
mistökum sem gerð voru á sínum
tíma þegar Strax-verslun og bensín-
tankar voru leyfðir, þar sem þeir eru
í dag,“ segir Ólafur í grein sinni.
Hann bendir á að tilboð sveit-
arstjórnar varðandi leigugjald sé um
23% lægra en núverandi leiga á
vatnstankssvæðinu austan á Dag-
málahlíð. „Tilboðið er mjög sér-
kennilegt, þó að ekki sé meira sagt
og í raun óskiljanlegt á allan máta.
Ef eitthvað væri þá ætti leigan við
Múlaveg að vera miklu miklu
hærri.“
Þá segir Ólafur í grein sinni að
iðnaður eigi ekki erindi svo nálægt
Reykjahlíð og bendir á svæði sem
hann telur vera mun hentugri. Það
muni kosta meira í upphafi en muni
til lengri tíma margborga sig.
Mývatnssveit Sveitarstjórn er búin
að skipuleggja flokkunarsvæði.
Iðnaður á
ekki heima í
Reykjahlíð
Ósáttur við skipu-
lag í Mývatnssveit
Þingkonur Framsóknarflokksins
komu í ræðustól Alþingis í gær og
minntust þess að 40 ár væru liðin frá
því að fyrstu jafnréttislögin hafi ver-
ið samþykkt á Alþingi. Fögnuðu þær
þeim áfanga og lögðu m.a. áherslu á
mikilvægi þess að karlar og konur
fengju sömu laun fyrir sömu störf.
Helgi Hrafn Gunnarsson, þing-
maður Pírata, gerði málið einnig að
umtalsefni og vakti athygli á því að
einungis þingkonur Framsóknar-
flokksins hefðu stigið í pontu vegna
málsins. Minnti hann á að ekki væri
nóg að konur berðust fyrir jafnrétti.
Karlmenn þyrftu þess líka.
Jafnréttis-
laga minnst