Morgunblaðið - 19.05.2016, Side 22
22 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2016
Með reglulegu milli-
bili kemur sú niðurstaða
æðsta dóms Alþýðu-
sambands Íslands(ASÍ)
fram í fjölmiðlum lands-
ins að tilfallandi lækk-
anir á sköttum eða
gjöldum hafi ekki skilað
sér til meðlima sam-
bandsins. Eftir því sem
ég kemst næst hefur Al-
þýðusambandið starfs-
fólk til að mæta í verslanir og kanna
verð og haldi úti fólki til að reikna sig
niður á einu réttu niðurstöðuna um að
niðurfellingin það og það skiptið hafi
nú bara alls ekki skilað sér, hafi skilað
sér að hluta eða svona mörg pró-
sentustig vanti nú upp á hæfilegt verð
smásalans. Virðist ASÍ í engu taka
það með í sína útreikninga að sá
kostnaður er þeir sjálfir stuðla að
hækkunum á er oftast meginorsök
þess „ranga“ verðs sem þeir telja
vera á vörum. Um er að ræða laun og
launatengd gjöld sem sambandið
knýr fram hækkanir á með reglulegu
millibili, finnist þeim vanta upp á kost
félagsmanna. Virðist sem svo að ASÍ
telji sér ekkert óviðkomandi hvað
kjör fólks varðar og vill
véla um allt þar að lút-
andi, laun, húsnæði,
vexti, verðtryggingu og
hvað eina sem þeim
kemur til hugar við að
réttlæta víðfeðma starf-
semi sína. Mætti sam-
bandið eyða meiri orku í
að aðstoða félagsmenn-
ina við að sinna sínum
störfum betur þannig að
mæting og ástundun sé í
samræmi við þau kjör
sem knúin hafa verið
fram með sameiginlegu átaki. Af
nógu er að taka í þeim hluta kjara-
málanna.
Ég hef oft á tilfinningunni að Al-
þýðusambandið kæri sig kollótt um
að koma því til skila sem vel er gert
eða að rétt sé staðið að hlutum. Í
heild hafa allar breytingar á sköttum
og gjöldum verið gerðar á þann hátt
sem til er ætlast á hverjum tíma og
ekki verið blandað saman við verð-
breytingar er verða óumflýjanlega
þegar Alþýðusambandið hefur hækk-
að sína verðskrá. Einatt forðast Al-
þýðusambandið að nefna það að
stærsti kostnaðarliður fyrirtækja hafi
nú hækkað eða að innlendur kostn-
aður fyrirtækja sem e.t.v framleiða
og selja vöru sína á innanlands-
markað hafi hækkað fyrir þeirra eig-
in tilstuðlan. Kostnaðarhlutfall launa
er afar mismunandi milli fyrirtækja
og eru dæmi um að laun séu 80%
kostnaðar t.d. hjá verkfræðistofum
og í hugverkaiðnaði. Ekki er óalgengt
að í framleiðslugreinum sé launahlut-
fall á milli 40% og 50% af kostnaði
rekstrarins. Á mörgum sviðum er það
mikil samkeppni að þó að knýjandi
þörf sé á verðhækkunum, sem sam-
bandið hefur knúið á um, treysta
smásalar sér illa til að hækka sitt
verð. Alþýðusambandið, ríkisvaldið
og opinberir aðilar hafa enga sam-
keppni og hækka sín gjöld er þeim
þykir henta. Það þyrfti kannski að
taka það með í reikninginn?
Afnám ekki skilað sér?
Eftir Steinþór
Jónsson »Ég hef oft á til-
finningunni að
Alþýðusambandið kæri
sig kollótt um að koma
því til skila sem vel
er gert eða að rétt sé
staðið að hlutum.
Steinþór Jónsson
Höfundur er atvinnurekandi.
Fyrir löngu átti Al-
þingi að samþykkja
frumvarp Höskuldar
Þórhallssonar þing-
manns um að skipu-
lagsvaldið yfir flugvell-
inum í Vatnsmýri verði
flutt frá Reykjavík-
urborg til íslenska rík-
isins. Þriðjudaginn 15.
desember 2015 voru
kynntar í Frétta-
blaðinu vitlausar hug-
myndir, um skipulag vegna hrað-
lestar milli Keflavíkur og
Reykjavíkur. Það snýst um að graf-
in verði 14 km löng jarðgöng úr
Vatnsmýri undir Öskjuhlíð, Foss-
vog, Kópavog, Garðabæ og Hafn-
arfjörð, án þess að vitað sé um
jarðfræðilegar aðstæður undir öllu
höfuðborgarsvæðinu. Þar getur
áhættan verið of mikil, á meðan and-
stæðingar flugvallarins vilja ekkert
um það vita. Aldrei hefur verið
rannsakað hvort þessi jarðgöng
þurfi að fara niður á enn meira dýpi
en Hvalfjarðargöngin. Slæm fjár-
hagsstaða sveitarfélaganna á
höfuðborgarsvæðinu og Suð-
urnesjum kemur í veg fyrir að þau
ráði auðveldlega við fjármögnun
hraðlestarinnar sem talið er að kosti
250-300 milljarða króna. Á Reykja-
víkursvæðinu telja margir hagfræð-
ingar að forsendurnar fyrir áætl-
uðum heildarkostnaði, við þetta
lestarkerfi sem erfitt er að fjár-
magna standist aldrei. Illa þolir nú-
verandi borgarstjórnarmeirihluti
spurninguna um hvað jarðgöngin
sem hraðlestin færi í gegnum geti
kostað. Ekki er útilokað að þessi
göng kosti ein og sér 26-30 milljarða
króna, ef gangalengdin yrði 14 km.
Ákvörðunin um að ógilda skipulags-
valdið yfir Reykjavíkurflugvelli og
lokun neyðarbrautarinnar flýtir
ekki fyrir því að lífæð allra lands-
manna fari úr Vatnsmýri eftir átta
ár. Þá hljóta einhverjir að spyrja
hvort allar tilraunir til að taka í
notkun háhraðalest milli Leifs-
stöðvar og Reykjavíkur árið 2024
muni fljótlega renna út í sandinn
þegar það sannast að andstæðingar
flugvallarins reikna vitlaust og sitja
uppi með skömmina. Fullvíst þykir
að þeir þurfi aldrei að bæta fyrir
mistök sín sem verða síðar meir
skrifuð á reikning skattgreiðend-
anna þegar í ljós kemur að fjögur
þúsund króna fargjald á hvern far-
þega stendur aldrei undir fjár-
mögnun og rekstri háhraðalest-
arinnar. Nýlega rak Héraðsdómur
hornin í sjúkraflugið með því að
sníða dóminn um lokun neyð-
arbrautarinnar eftir duttlungum
borgarstjóra til að réttlæta brot á
skipulagsreglum Reykjavíkur-
flugvallar án þess að mannslíf skipti
nokkru máli. Ég spyr:
Getur borgarstjóri
næstu mánuðina teymt
Héraðsdóm á asnaeyr-
unum þegar honum
hentar? Tímabært er
að núverandi ráðherra
samgöngumála, Ólöf
Nordal, segi endanlega
upp samkomulaginu
við borgarstjórnar-
meirihlutann um bætta
aðstöðu á Reykjavík-
urflugvelli sem und-
irritað var í tíð fyrrver-
andi innanríkisráðherra, Hönnu
Birnu Kristjánsdóttur, og Jóns
Gnarr, þáverandi borgarstjóra.
Sjálfur braut Dagur B. þetta sam-
komulag áður en hann ákvað
skyndilega að stefna íslenska ríkinu
vegna vanefnda um lokun neyð-
arbrautarinnar. Hrós mitt fær Ólöf
Nordal sem tók rétta ákvörðun og
hafnaði kröfu núverandi borgar-
stjóra um að þessi flugbraut verði í
50 km fjarlægð frá Reykjavíkurflug-
velli. Áður sendi Samgöngustofa frá
sér skýr skilaboð um að bygging-
arnar sem Valsmenn vilja reisa á
Hlíðarendasvæðinu mættu ekki fara
upp í hæð fluglínunnar við enda
neyðarbrautarinnar. Örfáum mín-
útum fyrir áætlaðan lendingartíma
stefnir það öryggi sjúkraflugvélar í
enn meiri hættu ef flugmaður, sem
flytur fárveikan mann utan af landi
til Reykjavíkur, verður vegna of
mikils hliðarvinds að hætta við lend-
ingu á A-V- og N-S-flugbrautunum
sem Dagur B. vill glaður loka gegn
vilja 73% Reykvíkinga. Önnur
spurning: Hvert geta sjúkraflug-
menn Mýflugs tekið stefnuna ef
sama vandamál kemur upp á Kefla-
víkurflugvelli, sem er í alltof mikilli
fjarlægð frá Reykjavík? Krafan sem
andstæðingar Reykjavíkurflugvallar
halda til streitu um að sjúkraflugvél
Mýflugs lendi frekar í 50 km fjar-
lægð frá sjúkrahúsum höfuðborgar-
innar mælist illa fyrir hjá starfandi
læknum í Reykjavík sem eðlilegt er.
Þriðja spurning: Ætlar Dagur B.,
sem lögsækir íslenska ríkið, að safna
mörg þúsund undirskriftum gegn
flugmönnum Mýflugs ef þeir neita
að lengja flutningsleiðina um þenn-
an kílómetrafjölda þegar slasaður
maður úti á landi þarf að komast á
sem stystum tíma undir læknis-
hendur í Reykjavík?
Ólöf Nordal tók
rétta ákvörðun
Eftir Guðmund
Karl Jónsson
» Illa þolir núverandi
borgarstjórnar-
meirihluti spurninguna
um hvað jarðgöngin sem
hraðlestin færi í gegn-
um geti kostað.
Guðmundur Karl
Jónsson
Höfundur er farandverkamaður.
á fallegum, notalegum stað á
5. hæð Perlunnar.
ERFIDRYKKJA
Perlan • Sími 562 0200 • Fax 562 0207 • perlan@perlan.is
Pantanir
í síma
562 0200
Hoist Vinnulyftur • Víkurhvarf 4 • Sími 517 6000 • hoist@hoist.is • www.hoist.is
Umboðsaðili Alimak Hek á Íslandi
Turnlyftur
Sala og þjónusta
Sérhæfum okkur
í sölu og þjónustu
á lyftum af öllum
stærðum og gerðum
517 6000