Morgunblaðið - 19.05.2016, Blaðsíða 23
UMRÆÐAN 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2016
Þú sem hefur unnið
og stritað, alið upp börn
og axlað ábyrgð þjóðfé-
lagsins, greitt þína
skatta og skyldur, byggt
upp og gefið af þér. Þú
sem átt reynslu ævinnar
að baki og manst tímana
tvenna og jafnvel
þrenna. Þú sem kannt
sögurnar sem ekki
mega þagna og þú sem kannt bæn-
irnar sem ekki mega gleymast. Réttu
úr þér og berðu höfuðið með reisn.
Þú hefur svo mikið að
gefa og miklu að miðla í
umhverfinu, í samtím-
anum og til komandi
kynslóða. Af sögum,
ljóðum og bænum. Trú,
von og kærleika.
Reynslu, umhyggju og
ást.
Veröldin væri svo
miklu fátækari ef þú
hefðir aldrei verið. Fá-
tækari án þinna upplif-
anna, sem enginn getur
miðlað til komandi kyn-
slóða nema þú segir frá, með þínum
hætti, frá þínu sjónarhorni.
Haltu því fyrir alla muni áfram að
gefa af þér. Fegra umhverfi þitt með
gjöfum og strá fræjum kærleika og
umhyggju. Við þurfum öll á því að
halda.
Láttu engan líta smáum augum á
aldur þinn, þekkingu eða reynslu.
Það er nefnilega enginn eins og þú.
Með kærleiks- og sumarkveðju!
Það er enginn
eins og þú
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson
» Veröldin væri svo
miklu fátækari ef
þú hefðir aldrei verið.
Fátækari án þinna
upplifanna, sem enginn
getur miðlað til komandi
kynslóða nema þú.
Sigurbjörn Þorkelsson
Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur
og aðdáandi lífsins.
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
plankaparket
Verðdæmi:
190 mm Eik Rustik burstuð
mattlökkuð 6.990.- m2
Hlaupakettir
og talíur
Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288
Skaft- og keðjutalíur úr áli og stáli
- lyftigeta allt að 20.000 kg.
Rafdrifnar keðjutalíur
- lyftigeta allt að 4000 kg.
Á árunum 1999-2005
var ég, undirritaður,
stjórnarformaður Sölu-
miðstöðvar hraðfrysti-
húsanna, SH, sem síðar
fékk nafnið Icelandic
Group. Flaggskip í
markaðssetningu sjáv-
arafurða frá Íslandi.
Á þeim tíma var
ítrekað reynt að fá ís-
lenska lífeyrissjóði til
að koma með nýtt fé inn í félagið til að
byggja upp öfluga, alþjóðlega mark-
aðssetningu. Icelandic Group var á
þeim tíma skráð á hlutabréfamarkað.
Stjórnendur lífeyrissjóða töldu þá að
fjármunum fólksins í landinu væri
betur komið fyrir annars staðar en í
sjávarútvegi.
Á síðustu árunum fyrir hrunið 2008
höfðu lífeyrissjóðirnir að mestu selt
sig út úr sjávarútvegsfyrirtækum og
skyldri starfsemi. Þeir litu orðið á
sjávarútveg sem lítt spennandi fjár-
festingakost sem stæðist ekki sam-
keppni um ávöxtun við ört vaxandi
fjármálaveldin.
Ekki þarf að fara nán-
ar út í hvernig fór fyrir
fjárfestingum lífeyr-
issjóðanna í fjár-
málageiranum.
Í desember 2009
stofnuðu sextán lífeyr-
issjóðir Framtakssjóð
Íslands. Sjóð með háleit
markmið um þátttöku í
enduruppbyggingu ís-
lensks atvinnulífs. Lesa
má um þessi fögru fyr-
irheit á heimasíðu
Framtakssjóðsins.
Það varð ógæfa míns gamla félags
að lenda í þessum slæma félagsskap,
Framtakssjóði, sem hafði takmark-
aðan líftíma og skammtímahyggju að
leiðarljósi. Ég hef oft fundið til með
mínum tryggu samstarfsmönnum
sem enn starfa hjá Icelandic Group.
Það er fátt verra en að starfa hjá fé-
lagi með fjarlægan eiganda sem velur
sér fulltrúa sem ekki kann til verka til
að fara með eigendavaldið. Á síðustu
árum hefur verið unnið að sölu Ice-
landic Group í pörtum til að innleysa
hagnað á þá fjármuni sem Framtaks-
sjóðurinn hafði lagt í félagið. Nú er
svo komið að undir Icelandic Group
er eingöngu rekstur í nokkrum lönd-
um Evrópu. Þær einingar sem eftir
eru hafa verið endurskipulagðar og
sýna ágæta afkomu. Það er víst ekki
fullnægjandi fyrir Framtakssjóðinn
heldur virðist sjóðurinn nú vera að
leysa félagið upp að fullu.
Það ætti því ekki að koma mönn-
um á óvart ef vörumerki félagsins
„Icelandic“ verður að lokum selt
hæstbjóðanda á alþjóðlegu uppboði.
Hjá Framtakssjóðnum er jú allt falt
fyrir skammtímagróða. Þau fyrir-
heit sem gefin voru í desember 2009
eru nú að snúast upp í andhverfu
sína. Framtakssjóðurinn er að enda
sem útfararstofa fyrir Icelandic
Group.
Um tíma var Framtakssjóðurinn
með sterka stöðu og eitt helsta stolt
Íslendinga Icelandair Group. Við sem
höfum fjárfest í ferðamennsku meg-
um þakka fyrir að stjórnendur Fram-
takssjóðsins náðu ekki að stýra þró-
uninni í því farsæla félagi og innleiða
þar vinnubrögð sín. Þá sætu flug-
menn Icelandair sennilega í hreyf-
ilslausum flugvélum úti á Keflavík-
urflugvelli að reyna að koma þeim í
loftið. Á sama tíma sætu stjórnendur
Framtakssjóðsins við tölvur sínar og
reiknuðu út skammtímagróða af
hreyfilssölu.
Við endurreisn efnahags landsins
héldu menn að ný hugsun kæmi í fjár-
festingar og horft yrði til lengri tíma.
Svo er víst ekki. Ekkert virðist hafa
breyst. Það kæmi því ekki á óvart að
sagan endurtæki sig. Með bútasöl-
unni á Icelandic Group losi lífeyr-
issjóðirnir um fjármagn til að kaupa
aftur hlut í bönkum og trygginga-
félögum. Verði þeim að góðu.
Eftir Róbert
Guðfinnsson
Róbert Guðfinnsson
» Það ætti því ekki
að koma mönnum
á óvart ef vörumerki
félagsins „Icelandic“
verður að lokum selt
hæstbjóðanda á
alþjóðlegu uppboði.
Höfundur er athafnamaður
á Siglufirði.
Niðurrif í umboði lífeyrissjóða Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi
umræðu í landinu og birtir aðsendar
greinar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgun-
blaðinu greinar eru vinsamlega beðn-
ir að nota innsendikerfi blaðsins.
Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir
öryggi í samskiptum milli starfsfólks
Morgunblaðsins og höfunda. Morgun-
blaðið birtir ekki greinar sem einnig
eru sendar á aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir Morg-
unblaðslógóinu efst í hægra horni
forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á
lógóið birtist felligluggi þar sem lið-
urinn „Senda inn grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið
er notað þarf notandinn að nýskrá
sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbein-
ingar fylgja hverju þrepi í skráning-
arferlinu.
Eftir að viðkomandi hefur skráð
sig sem notanda í kerfið er nóg að
slá inn kennitölu notanda og lykilorð
til að opna svæðið. Hægt er að
senda greinar allan sólarhringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk
Morgunblaðsins alla virka daga í
síma 569-1100 frá kl. 8-18.