Morgunblaðið - 19.05.2016, Síða 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2016
Leikkonuna
Kristen Stewart
dauðlangar að
vinna með leik-
stjóranum Lars
von Trier. Þetta
kom fram á
blaðamanna-
fundi á kvik-
myndahátíðinni í
Cannes sem
breska dagblaðið The Guardian
greinir frá. Stewart sem öðlaðist
frægð fyrir leik sinn í Twiligt-
myndunum á sínum tíma, er stödd í
Cannes til að kynna tvær nýjustu
myndir sínar, en önnur þeirra er
opnunarmynd hátíðarinnar, Café
Society í leikstjórn Woody Allen.
Langar að vinna
með Lars von Trier
Kristen Stewart
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Í fyrrakvöld var síðasta bíómynd
Sólveigar Anspach, The Together
Project, frumsýnd í Cannes við lof-
samlegar undirtektir. Þetta er síð-
asta myndin í sjálfstætt standandi
þríleik hennar sem hófst með
Skrapp út, síðan kom Queen of
Montreuil og núna The Together
Project.
Hálfíslenskur leikstjóri
Fyrsta myndin hennar Hertu upp
hugann vakti heimsathygli er hún
var frumsýnd í Cannes árið 1999.
Myndin fjallaði
um unga konu
sem er barnshaf-
andi en jafnframt
með krabbamein.
Að hluta til var
myndin byggð á
eigin reynslu
enda hafði Sól-
veig greinst með
krabbamein
nokkru fyrr á
sama tíma og
hún var barnshafandi.
Kvikmyndaleikstjórinn Sólveig
Anspach, sem var hálfíslensk og
hálfbandarísk en bjó nánast alla
sína ævi í Frakklandi lést á síðasta
ári úr krabbameini aðeins 54 ára
gömul.
Íslenska framleiðslufyrirtækið
Zik Zak sem hefur áður unnið að
myndum Sólveigar framleiðir
myndina ásamt franska framleiðslu
fyrirtækinu Agat Films.
Skúli Malmquist er framleiðandi
myndarinnar ásamt Patrick So-
belman.
Skúli sem hefur farið með nokkr-
ar bíómyndir til Cannes sagðist
aldrei hafa upplifað að uppklapp
eftir mynd stæði í fimmtán mínútur.
Ást á sundkennara
Myndin fjallar um Samir, sem er
staðráðinn í að bæta ráð sitt gagn-
vart sundkennara sínum Agathe,
sem hann er yfir sig ástfanginn af.
Hann eltir hana alla leið til Ís-
lands en það kemur babb í bátinn
þegar hann verður fyrir rafstraumi
og missir minnið. Didda Jónsdóttir
fer með sama hlutverk í myndinni
og hún fór með í hinum tveimur
fyrri myndum í þríleiknum.
Stanslaust lófatak
Aðspurður hversvegna Skúli hafi
byrjað að vinna með Sólveigu segir
hann að hún hafi verið magnaður
listamaður og þess vegna auðvelt að
ákveða að vinna með henni þegar
hann var beðinn. „Hún kom til dyr-
anna eins og hún var klædd,“ segir
Skúli. „Kom fram við alla á sama
hátt. Einstakur leikstjóri.“
The Together Project var frum-
sýnd í gærkvöldi í flokknum Direc-
tor’s Forthnight í sama kvikmynda-
sal og fyrsta myndin hennar
Sólveigar var frumsýnd fyrir
sautján árum á Cannes. Myndinni
var tekið með standandi lófataki í
lokin og var fólk bæði glatt og
hrært. Það var hjartnæm stund og
andi Sólveigar sveif yfir vötnum.
Bíó hélt henni gangandi
Skúli segir að Sólveig hafi barist
allt til enda og að markmið hennar
að klára kvikmyndina hafi haldið
henni gangandi. „Hún var bara
þannig manneskja að hún kláraði
það sem hún byrjaði á,“ segir Skúli.
„Hún var reyndar búin að vinna svo
marga bardaga í baráttunni við
veikindi sín að maður hélt að henni
tækist það enn og aftur. Sólveig
skilaði af sér fyrstu útgáfu af klipp-
inu, þann sama dag fór hún á
sjúkrahús en kom aldrei aftur.“
Þekkt í Frakklandi
Sólveig er kannski ekki mjög
þekkt á Íslandi þótt hún sé hálf-
íslensk og fæddist í Vestmanna-
eyjum, en hún hefur náð mikilli
hylli í Frakklandi.
Síðasta bíómyndin hennar Lulu
femme nue fékk nálægt 500 þúsund
áhorfendur í bíó sem þykir ansi gott
í hvaða landi sem er í heiminum. Yf-
irmaður Directors Fortnight deild-
ar Cannes hátíðarinnar, Edouard
Waintrop, sem valdi The Together
Project inná hátíðina sagði að-
spurður hvers vegna hann hefði val-
ið hana að það væri einföld ástæða
fyrir því, þetta væri besta gam-
anmynd sem hann hefði séð í ár.
Hollywood Reporter ánægt
Gagnrýnendur voru þegar farnir
að birta álit sitt á síðum blaðanna í
gær enda gerast hlutirnir hratt í
Cannes. Fram að þessu hafa dóm-
arnir verið einróma lof. Í Hollywood
Reporter segir að myndin sé
heillandi. Helmingur hennar eigi
sér stað á alþjóðlegri ráðstefnu
strandvarða, sem sé skemmtilegt út
af fyrir sig. Myndin sé skemmtileg
frásögn ástfangins manns sem læt-
ur eins og hann kunni ekki að synda
til að ná athygli sundkennarans sem
hann þráir.
Það þurfi ekki að hafa séð fyrri
myndirnar til að njóta þessarar en
það sé hægt að sjá þessa karaktera
birtast í fyrri mynd í þríleiknum,
þótt þeir hafi ekki náð saman þá.
Gagnrýnandinn lýkur orðum sín-
um á því að segja að með tilliti til
þess að leikstjórinn er dáinn þá fær
þessi annars bjarta og gleðilega bíó-
mynd óvænt þunglyndislegan und-
irtón, enda fer maður að þrá að sjá
bíómyndirnar sem þessi leikstjóri
hefði gert, en mun ekki gera.
Screen er ánægt
Að mati tímaritsins Screen er um
mjúka kómedíu að ræða og að aðdá-
endur fyrri mynda hennar verði
ekki fyrir vonbrigðum. Gagnrýn-
andinn hrósar leik og leikstjórn,
sérstaklega fær hinn skrítni húmor
myndarinnar athygli.
Skúli segir að Sólveig hafi lengi
lifað með því viðhorfi að hver dagur
væri gjöf og þess vegna hafi hún
nýtt sérhvern dag til skapandi
vinnu og gefið af sér við alla sem
hún hitti. „Hún vissi að þetta gat
verið bæði fyrsta og síðasta skiptið
sem hún hitti manneskju og kom
þess vegna alltaf yndislega fram við
fólk,“ segir Skúli. „Það var mjög
gefandi að vinna með henni og ég
þakka fyrir að hafa haft tækifæri til
þess.“
Frumsýningar víða um heim
Myndin verður frumsýnd í
Frakklandi hinn 29. júní og fer í
mjög stóra dreifingu, í rúmlega 200
kvikmyndahúsum í landinu.
Hún verður frumsýnd á Íslandi í
haust.
Einstakur leikstjóri
Sólveig Anspach fær lof fyrir síðustu bíómyndina sína í Cannes í Frakklandi
Bíómyndin var frumsýnd við mikið lófaklapp og góða gagnrýni
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Cannes Frá vinstri: Didda Jónsdóttir, Jean-Luc Gaget, meðhöfundur myndarinnar, Skúli Malmquist og Patrick Sobelman framleiðendur.
Sólveig
Anspach
Allt fyrir eldhúsið
Allir velkomnir
Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi
Sími 540 3550 | progastro.is
Opið alla virka daga kl. 9–18.
Allt fyrir eldhúsið hjá Progastro
Heildarlausnir fyrir heimilið
X-MEN APOCALYPSE 3D 7, 10(P)
ANGRY BIRDS ÍSL.TAL 5:50
ANGRY BIRDS ENS.TAL 8
BAD NEIGHBORS 2 8, 10
CAPTAIN AMERICA 10:10
RATCHET & CLANK 5:50
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
POWERSÝNING
KL. 22:00