Morgunblaðið - 19.05.2016, Blaðsíða 43
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 2016
Fullkomnaðu augnablikið með ljúffengri sælkeraköku.
– Láttu það eftir þér!
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
1
6
-0
4
2
9
Tónlistarkonan Emilíana Torrini
heldur tvenna tónleika með Sinfón-
íuhljómsveit Íslands í Eldborgarsal
Hörpu, í kvöld og annað kvöld kl.
20.
Emilíönu þarf vart að kynna þar
sem hún er ein þekktasta tónlist-
arkona Íslands, hefur hlotið ótal
verðlaun og starfað með tónlist-
armönnum á borð við Kylie Mi-
nogue, Moby og Sting.
Á tónleikunum mun Emilíana
syngja mörg af sínum bestu lögum
við órafmagnaðan leik sinfóníu-
hljómsveitarinnar. „Þannig öðlast
lögin sjálf nýja og spennandi vídd
auk þess sem hin fjölmörgu lit-
brigði hljómsveitarinnar njóta sín
til fullnustu,“ segir í tilkynningu.
Sex útsetjarar koma að tónleik-
unum, hver með sinn stíl og nálgun
og hafa valið sér til viðfangs þau
lög Emilíönu sem þeim þykja sér-
lega spennandi. Útsetjararnir eru
franski tónlistarmaðurinn Albin de
la Simone, svissneski klarínettleik-
arinn og tónskáldið Claudio Puntin,
ensku tónskáldin og útsetjararnir
Max de Wardener og Mara Carlyle
og íslenska tónskáldið og fiðluleik-
arinn Viktor Orri Árnason.
Meðal laga sem flutt verða á tón-
leikunum eru „Jungle Drum“,
„Nothing Brings Me Down“, „Hold
Heart“ og „Life Saver“ og einnig
„Tvær stjörnur“ eftir Megas og
„Gollum’s Song“ sem Emilíana
söng fyrir kvikmyndina Lord of the
Rings, eða Hringadróttinssögu.
Hljómsveitarstjóri er Hugh
Brunt en hann er aðalstjórnandi
London Contemporary Orchestra
og hefur komið mikið að flutningi
samtímatónlistar í Bretlandi, m.a.
við Aldeburgh-hátíðina og stjórnar
sinfóníuhljómsveitinni á nýju
Radiohead-plötunni, A Moon Shap-
ed Pool.
Með Sinfó Emilíana mun flytja mörg af sínum bestu og þekktustu lögum á
tónleikunum með Sinfóníuhljómsveit Íslands í kvöld og annað kvöld.
Emilíana og SÍ í Eldborg
Hljómsveitin Noise heldur útgàfu-
tónleika à Græna hattinum annað
kvöld kl. 22. Mun hún þar fagna ný-
útkominni breiðskífu sinni Echoes.
Platan hefur að geyma lög af fyrri
plötum Noise í nýjum búningum.
Á laugardagskvöld kemur fær-
eyska leik- og söngkonan Annika
Hoydal fram á Græna hattinum og
kynnir m.a.nýjustu plötu sína End-
urljós. Annika gerði garðinn
frægan à sínum tíma með Harka-
liðinu en þau gerðu lagið um Ólav
Riddararós vinsælt à sínum tíma,
að því er fram kemur í tilkynningu.
Tónleikar Anniku og hljómsveitar
hennar hefjast kl.21.
Ljósmynd/Sigrún Kristín
Noise Bandið heldur tónleika á Græna
hattinum á Akureyri annað kvöld.
Noise og Hoydal á
Græna hattinum
Tilkynnt var um tilnefningar til
Safnaverðlaunanna 2016 í tilefni
af Alþjóðlega safnadeginum á Ís-
landi í gær í Safnahúsinu við
Hverfisgötu. Tilnefningar hlutu
Byggðasafn Skagfirðinga, Lista-
safn Reykjavíkur – Ásmundarsafn
og sýningin Sjónarhorn í Safna-
húsinu við Hverfisgötu sem er
samstarfsverkefni Þjóðminjasafns
Íslands, Listasafns Íslands, Nátt-
úruminjasafns Íslands, Stofnunar
Árna Magnússonar í íslenskum
fræðum, Landsbókasafns Íslands -
Háskólabókasafns og Þjóð-
skjalasafns Íslands. Auk við-
urkenningarinnar fylgir verðlaun-
unum ein milljón króna.
Verðlaunin verða veitt við hátíð-
lega athöfn þann 13. júlí á Bessa-
stöðum af forseta Íslands, Ólafi
Ragnari Grímssyni.
Íslensku safnaverðlaunin eru
veitt annað hvert ár íslensku safni
fyrir framúrskarandi starfsemi.
Sem fyrr gátu almenningur, stofn-
anir og félagasamtök sent ábend-
ingar um safn eða einstök verk-
efni á starfssviði safna sem þykja
til eftirbreytni og íslensku safn-
astarfi til framdráttar.
Tilnefningar til
Safnaverðlauna
Ásmundarsafn Eitt þeirra safna sem
tilnefnd eru til Safnaverðlaunanna 2016.