Morgunblaðið - 19.05.2016, Side 44
FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 140. DAGUR ÁRSINS 2016
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR.
1. Ekki hitt eiginmanninn í 4 ár
2. Föst í Boston frá því á mánudag
3. Hlupu í burtu frá vettvangi
4. Leita týndra sjóða foreldra sinna
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Tökur eru hafnar á sjónvarps-
þáttaröðinni Föngum sem Ragnar
Bragason leikstýrir og byggð er á
hugmynd leikkvennanna Nínu Daggar
Filippusdóttur og Unnar Aspar Stef-
ánsdóttur. Margrét Örnólfsdóttir
skrifar handrit þáttanna ásamt Ragn-
ari og Mystery Productions fram-
leiðir þá í samvinnu við Vesturport og
RÚV. Í tilkynningu segir að þættirnir
séu fjölskyldudrama. „Líf aðal-
persónunnar Lindu hrynur þegar hún
er færð í kvennafangelsið í Kópavogi
eftir lífshættulega árás á föður sinn,
þekktan og mikils metinn mann úr
viðskiptalífinu. Í fangelsinu kynnist
Linda konum sem hafa líkt og hún
farið út af sporinu í lífinu, mishörðn-
uðum glæpamönnum sem allar hafa
sögur að segja úr heimi grimmdar,
neyslu og ofbeldis,“ segir um þætt-
ina. Tökur fara fram í Kópavogi og á
höfuðborgarsvæðinu, m.a. í gamla
kvennafangelsinu við Kópavogsbraut.
Áætlað er að það taki um þrjá mánuði
að kvikmynda þættina sem eru sex
talsins. Þættirnir hafa þegar verið
seldir til sýninga víða um heim en
þeir verða fyrst sýndir á RÚV í byrjun
næsta árs.
Ljósmynd/Lilja Jónsdóttir
Tökur hafnar á
þáttaröðinni Föngum
Tónlistarmennirnir Harpa Fönn
og Þórir Georg halda tónleika á
Lofti í Bankastræti í kvöld kl.
21. Harpa flytur tónlist
sína á ukulele, á lág-
stemmdan og náinn hátt
og Þórir er
undir áhrif-
um frá pönki
og þjóðlaga-
tónlist af
ýmsu tagi.
Harpa Fönn og Þórir
Georg leika á Lofti
Á föstudag Norðlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s. Skýjað með köfl-
um og líkur á skúrum í flestum landshlutum, einkum síðdegis. Hiti
4 til 12 stig, hlýjast um landið suðvestanvert.
Á laugardag og sunnudag Hiti 3 til 12 stig, hlýjast sunnanlands.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Breytileg átt, 3-8 m/s. Skýjað með köflum
og líkur á dálitlum skúrum í flestum landshlutum. Hiti 6 til 12 stig.
VEÐUR
Íslenska sundfólkið hefur
áfram að gera það gott í
London. Hrafnhildur Lúth-
ersdóttir vann til silfur-
verðlauna í gær eins og
greint er frá á forsíðu. Ekki
eru það þó einu tíðindin frá
gærdeginum því Anton
Sveinn McKee og Eygló Ósk
Gústafsdóttir unnu sig
bæði inn í úrslit. Anton
Sveinn í 200 metra bringu-
sundi og Eygló Ósk í 100
metra baksundi. » 1
Íslendingar gera
það gott í London
Einar Hjörleifsson fer á sjóinn eld-
snemma á morgnana og mætir svo á
fótboltaæfingar hjá Víkingi í Ólafsvík
á kvöldin. Hann var í
stóru hlutverki í
sigri liðsins á
Skagamönnum í
Pepsi-deild karla á
mánudaginn
þegar hann varði
vítaspyrnu. For-
maður Víkings
segir að Einar
hafi gríðarlega
góð áhrif á liðið og
sé maður augna-
bliksins eins og
frammistaða hans
gegn vítaskyttum
hafi sannað. »4
Sjómaðurinn sem lék
Skagamenn grátt
Stjarnan og ÍBV unnu góða útisigra
þegar 2. umferð Pepsi-deildar kvenna
var leikin í gærkvöldi. Stjarnan fór á
Selfoss og sigraði 3:1 og ÍBV vann
Fylki 3:1 í Árbænum. Óvæntustu úrslit-
in urðu líklega í Kaplakrika þar sem
nýliðar FH náðu stigi gegn Íslands-
meisturum Breiðabliks. Sandra María
Jessen var í sviðsljósinu á Akureyri en
hún skoraði þrennu. »2-3
Góðir útisigrar hjá
Stjörnunni og ÍBV
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Sigrún María Jörundsdóttir, vall-
arþulur hjá Stjörnunni í Pepsi-deild
karla í knattspyrnu, hefur sýnt
góða takta í upphafi móts eins og
Stjörnuliðið í Garðabæ. Sigrún
María er fyrsta konan sem er vall-
arþulur í efstu deild karla í fótbolta
hér á landi, svo vitað sé, og víðar,
samkvæmt mjög óformlegri könn-
un.
„Ég hef unnið mikið fyrir og í
kringum Stjörnuna og hef unnið í
miðasölunni á leikjunum síðustu ár.
Ég var beðin um að hlaupa í skarð-
ið fyrir vallarþulinn í einum leik í
fyrra en afþakkaði það. Ég ákvað
svo að láta vaða þegar þeir heyrðu í
mér núna í vor þar sem vallarþul-
urinn er kominn í annað starf innan
félagsins. Aðeins að stíga út fyrir
þægindarammann og gera eitthvað
nýtt. Þá fórum við að velta fyrir
okkur að ég yrði fyrsta konan sem
væri í þessu starfi og það fannst
okkur flott,“ segir Sigrún María
sem hefur lengi tengst félaginu.
Mamma hennar er Herdís Sig-
urbergsdóttir, ein allra besta hand-
boltakona landsins, og faðir hennar
er Jörundur Áki Sveinsson knatt-
spyrnuþjálfari. „Ég var ekkert að
pæla í því að ég væri fyrsta konan í
þessu starfi fyrr en Stjörnumenn
fóru að benda mér á það. Þá fannst
mér það skemmtilegt að við í
Garðabæ værum að brjóta blað.“
Æfði eitt nafn 7.000 sinnum
Sigrún María hefur leyst starf
sitt af mikilli fagmennsku enda und-
irbýr hún sig vel fyrir hvern leik.
Kynnir sér lið andstæðinganna til
að vera með réttan framburð. „Það
var mjög fyndið í fyrsta leiknum því
þegar ég byrjaði að tala þá snéri öll
stúkan sér við þegar það heyrðist
kvenmannsrödd í hátalarakerfinu.
Það litu held ég allir við og voru
trúlega að velta því fyrir sér að ein-
hver væri að stelast í míkrófóninn.
Það var skemmtilegt að sjá við-
brögðin.“
Stjarnan hefur leikið tvo heima-
leiki og unnið þá báða. Meðal ann-
ars Þrótt 6:0. „Þá var nóg að gera.
Ég er að komast inn í þetta hlut-
verk en finnst þetta mjög skemmti-
legt. Þetta eru bara ég og strák-
arnir í blaðamannastúkunni, en þeir
koma mjög vel fram við mig.
Ég undirbý mig vel fyrir hvern
leik. Kíki á leikmenn aðkomu-
liðanna, hvort það séu einhver erfið
nöfn í framburði. Ég æfði til dæmis
eitt nafn um 7.000 sinnum áður en
ég mætti því ég vil skila góðu verki.
Þegar maður tekur að sér eitt-
hvert verkefni vill maður að gera
það vel.“
Stúkan snéri sér við í byrjun
Sigrún María
er vallarþulur
hjá Stjörnunni
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Frumkvöðull Sigrún er sennilega fyrsti kvenþulurinn í efstu deild karla hérlendis. Hún undirbýr sig vel fyrir leik-
ina og skoðar nöfn andstæðinga Stjörnunnar til að æfa sig á framburðinum. Hún finnur sig vel sem vallarþulur.
Á leikdegi Sigrún með míkrófóninn í hönd að þylja upp markaskorara.