Víkurfréttir - 07.06.2001, Qupperneq 14
Bílagcyinshui ALKX
Dekraðu
viðbílinn
Tilvulid er að láta
þrífa eða gera við
bílinn þegar farið
er erlendis eða einfald-
lega iáta geynia hann á
góðuni o” iirugguni stað
hjá bílageymslunni
ALEX.
Við brotlför Irá Leifstöð er
bíl lagt á skammtíinasvæði
næst flugstöð og verk-
beiðni st'ðan útfyllt í brott-
fararsal og lykill skilinn
eftir í þar tilælluðu boxi.
Við heinikomuna kemur
slarlsmaður ALEX með
bíl að flugstöð, vel þrilinn
og i topp standi, ef þess er
óskað. Full ábyrgð er tekin
á bílnum að og frá flug-
stöð og á meðan hann er í
umsjón fyrirtækisins.
Bílahúsið ALEX ehf helur
starlað liá árinu 1993 og
hefur vaxið jafnl og þétt
frá fyrstu tíð. Nú er svo
komið að starfsemin er
rekin í tæplega 2000 m2
luísnæði með 14 starfs-
menn í vinnu.
Víkurfréttir/Svandís Helga
HESTAFERÐIR
Riðiðí
stórbrotiuni
náttúru
Reykjaness
ð ríða um stór-
brotna náttúru
Reykjanesins sem
er oft líkt við tunglslands-
lag er yndisleg upplifun.
Þar leynast hverir, hellar
og önnur leyndarmál
hraunsins. Hestalcigan Vík
í Grindavík gerir óvönum
sem og vönum reiðmönn-
um kleift að kynnast nátt-
úrunni á baki fjórfætlings.
Leigan hefur allt upp í 20
hesta á sínum vegum og
bíður upp á reiðtúra um
Reykjanesið. Hópsnes-
hringurinn er oft riðinn,
hringurinn í kringum Þor-
bjöminn er einnig mjög
vinsæll og svo er það lengri
túrinn sem fer út á Reykja-
nestanga. Allir aldurshóp-
ar em velkomnir í túrana
og segir Kristólína, eigandi
leigunnar, að yngsti reið-
maðurinn sem hafi komið
með þeim í reiðtúr hafi ver-
ið 5 ára gamall og sá elsti
70 ára Frakki sem var að
fara á hestbak í fyrsta
skipti. Leiðsögumaður er
ávallt með í för svo enginn
ætti að villast. Þá er bara
að vonast eftir fallcgu
sumri og skella sér á bak.
Iistum
allanbæ!
Byggðasafn Suðurnesja
Safnið er staðsett á
nokkrum stöðum. Aðal-
safnið er á Vatnsnesvegi 8 í
Reykjanesbæ í gönilu
íbúðarhúsi sem gefið var
sérstaklega til þessara nota.
Þar má sjá ýmsa hluti sem
tengjast sögu sveitarfélags-
ins m.a. margt sem tengist
verslunarsögu, en Keflavík
á sér langa og merkilega
sögu sem verlsunarbær.
Einnig er þar mikið Ijós-
myndasafrt. Byggðasafnið
er opið í sumar ffá 13.00-
17.00 virka daga og alla
sunnudagafrá 13.30-17.00,
einnig geta gestir fengið
aðra tíma eftir samkomu-
lagi. Upplýsingar í síma
421-6700.
Listasafn
Reykjanesbæjar
Safnið er ekki staðsett á
einum stað heldur eru lista-
verkin á víð og dreif í opin-
berum byggingum í
Reykjanesbæ. Sérstaklega
er bent á bæjarskrifstofum-
ar á Tjamargötu 12. Þarer
opið alla virka daga frá kl.
8.30-15.30. Einnigmásjá
útilistaverk víða um bæinn
t.d. Minnismerki sjómanna,
eftir Asmund Sveinsson á
mótum Skólavegs og Faxa-
brautar, Stjána bláa eftir
Erling Jónsson á Hafnar-
götunni við pósthúsið og
Fuglahúsið eftir Sigurð
Guðmundsson við Fjöl-
brautaskóla Suðumesja við
Sunnubraut. Kynning á
myndlistarmönnum
Reykjanesbæjar fer fram
að Hafnargötu 57. Þar er
einn listamaður kynntur í
hverjum mánuði með þeim
hætti að málverk eftir við-
komandi listamann er sett
upp og samhliða myndinni
hanga upplýsingar um feril
viðkomandi listamanns á
ensku og íslensku.
Hamborgarar, pylsur, gos, sælgæti
Opið alla daga 09-23:30
Biðskg/Iið
Hólagötu 20 • 260 Njarðvík • Sími 421 2563
14
VÍKURFRÉTTIR • SUMARIB 2001
f