Víkurfréttir - 13.12.2001, Blaðsíða 22
STEFANÍA LÓRÝ ER TVÍTUG OG í BANDARÍSKA HERNUM
Hermennska er eitthvað sem
tengist í hugum flestra karl-
mennsku en konur eru í ríkari
mæli að sækjast eftir því að komast í
herinn. Stcfanía Lory Erlingsdóttir
er tvítug stúlka frá Keflavík. Hún
býr nú á herstöð á Flórída en und-
anfarna mánuði hefur hún hlotið
stranga þjálfun hjá bandaríska
hcrnum. Silja Dögg Gunnarsdóttir
hafði samband við hana og fékk
hana til að segja aðeins frá sjálfri sér
og hvernig það væri að vera hermað-
uríAmeríku.
Lórý með föðursínum
Erlingi Bjarnasyni á
fermingardaginn.
Fæ ókeypis menntun
í hernum
Stefanía Lory Erlingsdottir
Davis fæddist í Keflavík árið
1980 en flutti til Spánar,
nokkrum árum síðar, með
móður sinni Huldu Reynisdótt-
ur, sem giftist bandarískum
hermanni Carlos Davis árið
1985. Faðir Stefaníu er Erling-
ur Bjamason. Lórý bjó á her-
stöð í Zaragossa á Spáni í 3 ár
ásamt móður sinni og fóstufoð-
ur. Þau fluttu árið 1988 til
Lakenheath i Englandi þar sem
þau bjuggu í 10 ár. Lórý út-
skrifaðist þar úr gagnfræða-
skóla árið 1998 og flutti sama
ár með hernum til Þýskalands.
Móðir Lórýar og fósturfaðir
búa núna, ásamt tveimur ung-
um bömum sínum á herstöð í
Geilenkirchen í Þýskalandi en
Lórý sjálf býr á hervelli sem
heitir Eglin AFB i Fort Walton
Beach, Florida.
„Meginástæðan fyrir því að ég
fór í herinn er að herinn býður
upp á fría menntun sem kostar
alveg rosalega mikið í Amer-
íku. Svo langaði mig til að sjá
heiminn og ferðast, sem herinn
býður svo sannarlega upp á.
Einu sinni var ég svo heppin að
ég þurfti að vinna á Islandi í
einn mánuð yfír jólin.“
Strangur agi
„Daglegt líf í hemum snýst um
að fyjgja mjög ströngum regl-
um. Eg vinn 8 klst. á dag á
skrifstofu við að sjá um papp-
írsvinnu fyrir einn af yfirmönn-
um hersins. Ég vinn alla tölvu-
vinnu fyrir hann og herflokkinn
sem ég er í. Aginn er mikill og
starfið er auðvelt ef viðkom-
andi fylgir öllum reglum. Fólk
fær viðurkenningu fyrir gott
starf og góðan árangur. Eg hef
verið í hemum í tvö og hálft ár
og fengið fjölda viðurkenn-
inga“, segir Lórý.
Undirbúningurinn í hemum er
það erfíðasta sem Lórý hefur
upplifað. Fyrstu tvær vikumar
vora erfiðastar að hennar sögn
því þá vissi enginn hvað myndi
gerast næst. „Við fengum t.d. 5
mínútur til að klæða okkur og
bursta tennumar og 3 mínútur
til að borða. Við fómm í gegn-
um mjög strangar æfingar og
þjálfarinn öskraði á okkur allan
daginn, eins og sýnt er í bíó-
myndunum. Það er ekki hægt
að hringja og kvarta í mömmu
því okkur er ekki leyft að
hringja í neinn, horfa á sjón-
varp eða neitt slíkt."
Konur fá engar undanþágur
Hermennskan á jafnvel við
konur sem karla, að mati Lórý-
ar. Konumar þurfa að gera það
sama og karlmennimir og
verða að rnuna að þær fá engar
undanþágur þó að þær séu kon-
ur því þær em sjálfídljugar í
hemum. Lórý segir að henni
hafi verið vel tekið í hemum,
sérstaklega vegna þess að hún
er Islendingur. „Fólkið sem ég
vinn með vill vita allt um land-
ið og tungumálið og ég eignað-
ist marga vini um leið og ég
kom á hervöllinn. Hér em allir
í sömu aðstöðu, við emm öll
ókunnug og því em fólk mjög
vingjamlegt og auðvelt að
kynnast, þó að maður búi utan
vallar. Við skemmtum okkur
vel saman um helgar; fömm á
ströndina sem er alveg æðisleg
og á klúbbana sem em frábær-
ir“, segir Lórý sem nýtur þess
að lifa lífinu og fást við það
sem hún er að gera hveiju
sinni.
Evrópa heillar
„Ég hef ekki tekið ákvörðun
um hvað ég ætla að vera lengi í
hemum en ég sé ekki eftir að
hafa farið í herinn. Ég hef lært
mikið af mínu starfi og er í
námi með hemum utan vallar.
Ég er líka í aukavinnu í verslun
Donna Karan (DKNY) sem ég
er mjög ánægð með. Þegar ég
verð búin með námið þá út-
skrifast ég sem viðskiptafræð-
ingur en ég hef ekki enn tekið
ákvörðun um hvar ég muni
setjast að í framtíðinni, en Evr-
ópa heillar mig meira en allt
annað.“
Þess má geta að Lóry fékk ný-
lega viðurkenningu fyrir góð
störf og hlaut titilinn starfsmað-
ur ársins. Þá fékk hún þriðju
strípuna sem hækkar hana í
starfi. Að sögn yfirmanns
hennar er Lóry einstakur starfs-
kraftur, samviskusöm og dug-
leg, því hún hefúr náð mjög
langt á skömmum tíma.
Eln af mörgum víðurkenningum sem Lórý hefur hlotið á
ferlinum en hún fékk nýlega þriðju strípuna sem hækkar
hana töluvert í launum.