Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.12.2001, Blaðsíða 35

Víkurfréttir - 13.12.2001, Blaðsíða 35
sem Ragnar kom með nýtt á markað. Hann átti einnig þátt í því að umbúðir utan um kringl- ur og annað tóku stakkaskipt- um. „Við tókum upp á því að pakka kringlunum í sexstrenda kassa, mjög huggulegar um- búðir, og þetta varð gífúrlega vinsælt. En síðan birtist bréf í Morgunblaðinu þar sem sagt var að fínar umbúðir hækkuðu verðir og þá dróst þetta saman aftur. Það hækkað reyndar ekk- ert verðið en fólk hætti alveg að kaupa þetta“, segir Ragnar. Bakarí Ragnars bar þess greini- lega merki að bakarinn hafði kynnt sér bakarí erlendis því í staðinn fyrir hvíta veggi og hvít afgreiðsluborð voru komnir lit- ríkir veggir, sérsmíðaðar tekk- innréttingar og smekklegar gardínur. Keflavíkingar tóku þessari nýbreytni vel og rekstur bakarísins gekk vel þangað til árið 1987 þegar það „sprakk“, eins og Raggi orðar það. Verð- bólgan var rnikil og fyrirtæki áttu í erfiðleikum þrátt fyrir aukningu upp á 120% ár ffá ári eins og raunin var með Ragn- arsbakarí. „Það þoldi einfald- lega ekki svona öra stækkun.“ Gæti hugsað mér að snúa mér að einhverju öðru Ragnar og Ásdís létu þó ekki gjaldþrot slá sig út af laginu heldur stofnuðu kökugerðina Árbak þrem mánuðum seinna. „Það kom nú upp í kollinn á mér að hætta í viðskiptum en ég hugsaði sem svo að ég byij- aði með fyrirtæki urn leið og ég kom úr námi og hef alltaf verið minn eiginn herra. Þannig að ég bjóst nú við að ég myndi verða heldur óstýrilátur undir- maður, myndi láta illa að stjóm og myndi fara að vasast í stjórnuninni áfram“, segir Raggi en viðurkennir að senni- lega hefði honum farist það jafnvel úr hendi og hverjum öðrurn. Þau hjónin sjá alfarið um framleiðsluna sem sam- anstendur af rúllutertubrauðum og sælgætisbotnum, rúllutertu- brauðin fúndu þau upp og voru þau fyrst sett á markað 1972, Hjónin hjálpast að í bakaríinu. en einnig hafa þau tekið að sér bakstur fyrir brúðkaup, afmæli og þess háttar. Á þeim árum sem þau hafa rekið Árbak hef- ur fyrirtækið stækkað smátt og smátt, í byijun var það í 100 fm húsnæði í Grófinni en fyrir tíu ámm fluttu þau Árbak í 300 ffn húsnæðið sem þau em í í dag. „Við eigum ekki eftir að stæk- ka þetta meira heldur höfum við verið að velta því fyrir okk- ur að selja þetta. Eg hefði helst óskað þess að einhver af lær- lingum mínum tæki þetta að sér þegar ég hætti en við getum vel hugsað okkur að snúa okk- ur að einhveiju öðm.“ Notalegt athvarf á Stafnesi Ragnar og Ásdís sögðu skilið við Keflavíkina fyrir tveimur ámm og tóku á leigu Bæjarsker á Stafnesi. „Það er mjög gott að vera á Stafnesi. Það er rólegt og maður er ekki nema tíu mínút- ur til Keflavíkur", segir Raggi og bætir við að það skipti sig engu máli hvar hann sofi því konan sé snillingur í að búa vel um þau hvar sem þau em. Það fer líka vel um barnabörnin þegar þau koma í heimsókn en þau eru orðin þó nokkur og jafnvel komin bamabamaböm í fjölskyldu Ragnars. Frítíma sínum eyðir Ragnar einnig með konunni sinni en þau ferðast mikið um landið hvenær sem tækifæri gefst. „Eg er með al- veg rosalega bíladellu en ég keypti mér Econoline með drifi á öllurn hjólum og ég hef verið að byggja hann upp ffá 1994. Við fórum í 12 daga ferðalag í sumar um Vestfirðina sem var alveg frábært", segir Ragnar. Þau hjónin hafa alltaf eytt miklum tíma saman og njóta samvistanna við hvort annað, þau reyndu m.a. golf fyrir nokkrum ámm en náðu ekki að smitast af bakteríunni. Tíminn fer því að mestu í rólegheit úti á Stafnesi, vinnu og ferðalög. „Við gerum allt saman og höf- um alla tíð gert. Við eigum mjög gott með að vera alltaf saman sem er kannski óvana- legt hjá hjónum en við eigum auðvelt með það hvort sem er í leik eða í starfi“, segir Ragnar sem er greinilega ennþá ást- fanginn upp fyrir haus. omancdár. ms/ziptin á er að Ciða. Saltver LJtgerð - rækjuvinnslo Síðasta falað fyrir jól kemur út 20. desember Auglýsingasíminn er 421 4717 2001 (§fendiim Jéíapsmönnum oý (§fuðurnesjamönmim öílam Cestu ösfir um jóf Jarsœ/ffommidi ár. Gim Samsfarjie) á árimrsém er að fða. JÓLABLAB VÍKURFRÉTTA 2DQ1 35
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.