Víkurfréttir - 13.12.2001, Blaðsíða 30
Þegar Einar Falur hleypti heimandraganum 19 ára gamall lá auðvitað beinast við að fara í fullt starf
sem Ijósmyndari hjá Morgunblaðinu. Mynd: Svandís Helga Halldórsdóttir
var að gefa út sína fyrstu plötu.
„Við uppgötvuðum hann áður
en hann meikaði það“, segir
Einar og hefur gaman af.
Fyrsta blaðið sem Einargafút
átti þó rætur að rekja lengra aft-
ur. „Fyrsta blaðið sem ég gaf út
var gefið út í einu eintaki en þá
var ég líklega 7 ára. Ég skrifaði
fréttir úr keflvísku samfélagi og
um landsmálin og teiknaði
fréttamyndir með", segir Einar.
Fréttir hafa alltaf verið honum
hugleiknar og hann hefur ætíð
fylgst vel með landsmálum.
„Ég vaknaði alltaf með Morg-
unblaðinu heima til að vera
fyrstur til aö lesa það; áhuginn
var hálf manískur." Einari
faruist þetta þó hinn eðlilegasti
hlutur og segir að þetta hafi
einfaldlega gersl af sjálfu sér.
Ljósmyndari
New York Knicks
Þegar Einar Falur hleypti heim-
andraganum 19 ára gamall lá
auðvitað beinast við að fara í
fullt starf sem ljósmyndari hjá
Morgunblaöinu en þar starfaði
hann ásamt því að Ijúka bók-
menntafræði í Háskóla íslands.
„Bókmenntir eru gamalt
áhugamál hjá mér en ég er
mikill bókaormur", segir Einar.
Aö loknu námi liélt hann áfram
hjá Mogganum og starfaöi þá
viö Menningarblað Moggans
ásamt Keflvíkingnum Súsönnu
Svavarsdóttur. Árið 1992 lékk
síðan aðaláhugamálið alla at-
hyglina en þá hélt Einar Falur
til New York í The School of
Visual Arts þar sem hann lauk
mastersgráðu í ljósmyndun.
Viö tók síðan vinna í Banda-
ríkjunum í eitt ár eða þar til það
kom símtal að heiman: staða
myndstjóra hjá Morgunblaöinu
var í boði og artur var haldið
heim á Moggann. „Ég segi
alltaf að ég sé uppalinn á
Mogganum og það virðist eng-
inn leið að slíta þann nafla-
streng", útskýrir Einar. I
Bandaríkjunum fékk Einar Fal-
ur einnig tækifæri sem enginn
forfallinn körfuboltaáhugamað-
ur eins og 1-inar lætur framhjá
sér fara. Ur því að mynda leik
Keflavíkurliðsins á íslandi og í
það að mynda körfúboltastjörn-
urnar í New York Knieks. „Ég
fylgdi Kellavíkurliðinu um allt
og missti til dæmis ekki af leik
i þrjú áreftir 1980. í Bandaríkj-
unum fór ég síðan að mynda
Knicks-liðið og hef fylgst vel
með þeim síðan", segir Einar
en fyrstu árin eftir heimkom-
una lét hann senda sér spólur
með öllum leikjum liðsins svo
hann gæti fylgst vel með.
Perú, Japan, Kína,
Norðurpólinn
Með tímanum hafa Ijósmyndir
Einars breyst mikið. „í kring
um 1988 þá hætti ég að líta á
ljósmyndun sem bara fréttaljós-
myndun og fer að líta á hana
sem mína listgrein", segir Einar
en hann hefur haldið sýningar á
verkum sínum um víðan völl.
„Ég lít á myndavélina sem mitt
persónulega skráningartæki
sem ég get séð heiminn í gegn
um.“ Skólinn sem Einar fór í
vareinmitt listaháskóli. I dag
snýst Ijósmyndun Einars um
tvo þætti, annarsvegar frétta-
Ijósmyndun og hins vegar list-
Ijósmyndun. A síðustu árum
hefur Einargert mikið afþví að
ferðast en eins og hann segir
sjálfur þá hefur hann mikla
þörf fyrir að skoða heiminn,
bæði í samvinnu við Morgun-
blaðið og á eigin vegum og hef-
ur selt erlendum tímaritum
greinar sínar. „Á síðustu árum
hef ég þannig farið í mynda-
tökuleiðangra til Perú, Bólivíu,
Japan, Kína og Indlands, svo
einhver lönd séu nefnd; í vinn-
unni hef ég lent í Rússlandi,
Amieníu og meira að segja á
Norðurpólnum en þangað fór
ég að sækja Harald Örn pól-
fara." begar heirn er komið tek-
ur síðan við meiri vinna við
það að koma ferðasögunni nið-
30